Ísafold - 13.11.1912, Blaðsíða 3

Ísafold - 13.11.1912, Blaðsíða 3
ISAFOLD 275 TJukaskip frá gufuskipafél Thore fer frá Kaupmannahöfn 12.—15. desember um Leith og Færeyjar til Reykjavíkur. Er áætlað, að skipið verði hér um 27. desember og fari héðan aftur 2. janúar 1913 til Færeyja og Kaupmannahafnar. ráða mátti af símskeytum, heldur urðu Grikkir að hefja ófriðinn. Tyrkir vildu komast hjá ófriði við Grikki að þessu sinni, hafa líklega vænst þess að þeir létu sér nægja með Krít, en Grikkir vildu ekki slíta því bandalagi, er þeir höfðu gengið í við hinar Balk- anþjóðirnar. Rikiserfingi Rússlands var hættulega veikur er síðast fréttist. Sagt að Nikulás keisari tæki það ákaflega nærri sér og væri hinn ókátasti. Friðurinn milli Itala og Tyrkja var saminn með þeim aðalskildaga, að Tyrkir skyldu veita Tripolis og Cyreti- aika fullkomna sjálfsstjórn, en jafn- framt skyldi Italíukonungur lýsa yfir því, að hann væri einvaldur yfir lönd- um þessum. Tyrkir kunnu þessu betur en að láta þenna hluta ríkis síns beint af hendi við ítali. ÞráBlaus fréttastöB á Grænlandi. Talað er um að byggja stóra frétta- stöð á Suður-Grænlandi til þráðlausra skeytasendinga frá Norðurlöndum og Rússlandi til Vesturheims. Búist við að aðferð Valdemars Poulsens verði notuð þar. — Jæja þá. Grænlend- ingar fá þá líklega fyr að sjá það nú- tíðartæki en vér íslendingar. -----$.---- 1 cfalanð aríenóis. Islandsráðherrann Hannes Hafstein fór til Kristjaníu um mánaðamótin síðustu, til þess að semja við Norð- menn samkv. ályktun síðasta alþingis. Danska stjórnarblaðið Riqet skýrir frá því, að þegar H. H. komi úr þeirri ferð, standi til skraf og ráðagerðir milli hans og forsætisráðherra Dana um sambandsmálið. Aage Meyer Benedictsen, sem hér hefir ferðast tvisvar sinnum um landið hefir verið að flytja erindi víðsvegar um Danmörku um ísland og sýnt héðan margar skuggamyndir. Arne Möller prestur ritar all-langa grein um ísland nýlega í Höjskole- bladet. Er hún eins og annað frá hendi þess manns rituð í ólíku vin- gjarnlegri og skilningsmeiri tón en flest af því, er úr dönskum pennum rennur um mál vor, þótt vitaskuld sé hún eigi laus við danska hlutdrægni á köflum. í grein þessari segir Arne Möller m. a. dönsku Olympíunefnd- inni rækilega til syndanna út af hót- fyndni hennar og ókurteisi við Olympíufarana íslenzku i Stokkhólmi síðastliðið sumar. Ennfremur kveður hann skorinort upp úr um, að nor- rænu þjóðirnar verði vel að muna, að þær séu eigi aðeins 4, heldur 5, — íslendingar eigi þar fullkominn rétt til 5. sætisins og skýlaus viðurkenn- ing þess sé sjálfsögð af hinna þjóð- anna hálfu. Arne Möller endar grein sina á því, að ef til nýrrar millilanda- nefndar komi, sé mjög áríðandi, að i hana séu valdir af Dana hálfu menn, sem kunnugir séu íslendingum og högum þeirra. Sumt annað í grein Möllers er aftur á móti eigi sem réttast, t. d. er hann leiðir það út af sögu Thorefélagsins, að íslendingar geti lítt treyst á sjálfa sig um samgöngur og að erfitt muni fyrir islenzka verzlun að halda uppi Þýzkalandsferðum o. s. frv. Höfnin okkar fyrirhugaða vekur all- mikla eftirtekt í Noregi. Tidens Tegn flytur grein um hana og afskifti Gabri- els Smiths af undirbúningi hafnarmáls- ins. Þykir auðsjáanlega leitt, að norska tilboðið skuli eigi hafa sigrað í sam- kepninni. Bááth og Island. Sænska skáldið A U. Bááth dó i sumar, eins og les- endum ísafoldar er kunnugt. Hann var mikils góðs maklegur af vorri hálfu, enda hlýlega minst í íslenzkum blöðum, er hann lézt. En sænsk blöð sum gera þó ótrúlega mikið úr söknuði þeim, er andlátsfregn hans hafi vakið hér,segja að hinni islenzku þjóð í heild sinni hafi fundist hún beinlinis missa mætan vin sinn ogfundistskarð hans ákaflega vand- fylt. — Er þetta auðvitað mjög öfgakent. •----i--- Kofoed-Hansen og „Ingólfnr“. Mér þótti leitt að sjá athugasemdir næst-síðasta »Ingólfs« um ferðalag skógræktarstjórans i sumar. Ferðasag- an, sem stóð í »Suðurlandic, ber með sér, að Kofoed-Hansen er framúrskar- andi fei^amaður og hugmaður mikill. Það eru ekki nema ofurhugar eins og Sigurður Haraldsson eða Magnús Bergs- son, sem fara slikar ferðir, sem raun- ar lika hefðu verið í frásögur færandi; en fyrir útlending er þó alt ennþá óárennilegra, og hrakningar Stolls í sumar sýna hve háskasamlegar slíkar einfarir geta verið. Alt ranghermi ber auðvitað að forðast, en það er því leiðara, sem sá er betri maður, sem það verður á, eða því verður fyrir. Og ennfremur ber hér eins að gæta: Danir, einkum danskir Júðar, hafa gert islenzku þjóðinni svo mikið ílt, að til fullra vandræða hefir horft, og þjóðin er enn sliguð eftir; íslend- ingurn ríður afarmikið á, að koma Dönum í skining um, að þeir verða að bæta fyrir forfeður sína með því, að hjálpa þessari efnilegu en svo afar- fátæku og niðurnýddu þjóð, ákaflega miklu framar og betur en hingað til hefir gert verið. En auðvitað verða íslendingar að fara sem skynsamlegast að, og virðist mér ekki skynsamlegt, að vilja gjöra lítið úr dönskum mönnum, sem eins mikinn vilja hafa sýnt á að læra íslenzku og gera Islandi gagn, eins og mér er sagt að skógræktar- stjórinn hafi gerj. Ög ekki ætti hann að ejalda þess, að hann er ekki Gyð- ingur. 6. nóvember. Helqi Pjeturss. .. —0=2---------- Veðrátta frá 10. nóv. til 13. nóv. Sd. Md. Þd. Mvd. V.ey. — L7 — 2,1 — 3,5 6,2 Rv. — M — i,5 — 4,o 3,5 íf. — 3,o — 1.7 — 3,3 5,i Ak. — 5>o — 5,0 — 8,9 6,6 Gr. — 6,0 — 2,0 — 7,2 1,2 Sf. 0,0 — 2,0 — 2,8 2,8 Þh. 0,0 2,5 — 0,4 12,1 V.ey. = = Vestmanneyjar. Rv. = Reykjavík. Is. = ísafjörður. Ak. = Akureyri. Gr. = Grímsstaðir. Sf. = Seyðisfjörður. Þh. = Þórshöfn á Fære. Aldarafmæli Páls Melsteös Þess er minst hér í bæ í dag með fánum á stöng víðsvegar um bæinn. Kl. 12 gengu mentaskólasveinar ískrúð- göngu, framhjá kvennaskólanum gamla, suður i kirkjugarð og lögðu sveig á leiði hans og talaði einn pilta, Har- aldur Thorsteinsson þar nokkur orð. I kvennaskólanum mintist skólastýra frk. In$ibjór$ H. Bjarnason aldaraf mælis- ins í morgun; en kvennaskólastúlkur iögðu blómsveig á leiðið. JReykj a vikur-annáll. Brunabótavirðingar. Leiðr. í síð- asta blaði var brunabótavirðingin á húsi Bjötns Jóussonar f. raðh. talin 19,225,60 en hin rótta fjárhæð er kr. 22,559. Ennfr. var húseignin í Þingholtsstr. 31 talin eign Lárusar Lúðvígssonar, en átti að vera Lúðvígs Lárussonar. Þessi mishermi stafa af því, að af sórstökum ástæðum var eigi hægt að ná í gjörðabók bæjar- stjórnar og treyst því, að Vísir kynni að hafa farið rótt með þessar tölur. Dánir. Kristinn Guðmundsson (bú- fræðingur) bóndi á Miðeugi í Grímsnesi dó f Heilsuhælinu 8. nóv. Ekkja Þorkatla Sigurðardóttir (úr Borgarfirði) dó í Heisuhælinu 5. nóv. Hjúskapur. Eiríkur Þersteinsson Bræðraborgarstíg 13 og Ólína Guðrún Guðmundsdóttir. Gift 12. nóv. Gísli Guðmundsson gerlafræðingur Miðstræti 4 og Halldóra Þórðardóttir frá Ráðagerði. Gift 12. nóv. Leikliúsið. F j a 11 a-E y v i n dur var leikinn síðasti, sunnudag með hinum nýju leikslokum, sem getið var í síðasta blaði og virtist þau falla áhorfendum mjög vel í geð. í næstu viku er búist við, að hið nýja leikrit V e r k f a 11 i ð (Brödrene Han- sen ú dönsku) verði leikið fyrsta sinni. Sigurður Krlondsson bóksali fer vestur á land á Ceres núna í vikunni og ætlar hann að dveljast vestan- og norðanlands f vetur. Skipafregn. P e r v i e kom í fyrra kveld. Hafði fengið illsku veður. C e r e s kom í gærkveld seint frá útlöndum. Meðal farþega: Herluf Brýde stórkaupm., Arent Claessen verzlm., Magnús Þorsteinson kaupm., með frú sinni 0. fl. Tekju- og eignaskattur Reykjavíkur 1913. ---- Nl. Tekjur. Skattgj. kr. kr. Geir Zoega kanpm 6000 100 eign 500 20 Geir Zoega verkfræðingnr . 2000 10 G. Gislason & Hay .... 10000 255 Gisli Finnsson járnsm. . . . 3000 25 Gisli Ólafsson símastj.. . . 2000 10 Guðjón Gamalielsson . . . 2000 10 Guðjón Signrðsson .... 5000 70 Guðm. Björnsson landlæknir 6500 117,50 Guðm. Hannesson prófessor 4000 43 Guðm. Helgason præp. hon. 2500 17,50 Guðm. Jakobsson trésm. . . 3000 25 Guðm. Jóhannesson verzlm. 2000 10 Guðm Magnússon próf. . . 7000 135 eign 375 15 Guðm. Olsen kaupm. . . . 3000 25 Guðm. Sveinbjörns8on . . . 3000 25 Gunnar Gunnarsson kaupm. 8000 175 Gunnar Þorbjörnsson kaupm. LOOOO 255 eign 140 5 Gutenbergprentsmiðja . . . 3000 25 Halberg J. G. eignatekjur . 4000 160 Halldór Briem 2400 16 Halldór Danielsson .... 3500 35 Halldór Jónsson bankagjk. . 5500 85 Halldór Þorsteinsson skipstj. 6000 100 Hannes Hafstein ráðh. . . . 8500 195 Hannes Hanson kaupm. . . 4000 45 Hannes Thorarensen .... 3000 25 Hannes Tborsteinsson . . . 3500 35 Hansen Aal 2000 10 Hansen H. J. bakari . . . 3000 25 Haraidur Árnason jkaupm. . 2500 17,50 Haraldur Nielsson prófessor 2600 19 Helgi Magnússon járnsm. . 2500 17,50 H. Magnússon & Co. . . . 5000 70 Helgi TeitsBOn 2500 17,50 Helgi Zoega kaupm 5000 70 Hjalti Jónsson skipstj. . . . 6000 100 Hjálmtýr Sigurðsson . . . 3000 25 Hjörtur Hjartarson .... 2000 10 Hlutafélagið Yöiundur . . . 6000 100 Hróm. Jósefsson skipstj. . . 2500 17,50 Indriði Einarsson skrifst.stj. 4200 50 Indriði Gottsveinsson v . . 3500 35 Ingvar Pálsson 2000 10 íshúsfélagið 4000 45 Jakobsen Egill 5000 70 Jakob Jónsson verzlunarstj. . 3000 25 Jens B. Waage 2400 16 Jensen E. kanpm 2500 17,50 Jensen Thor kaupm.. . . . 10000 255 Jóel Jónsson sjóm 3000 25 Jóh. Júbannesson kanpm. . 3500 35 Jóh. Þorkelsson dómkirkjupr. 4000 45 Jóh. Þorsteinsson prestur . 1600 6 eign 500 20 Jóh. Sigfú.-son adjunkt. . . 2200 13 Jón Áraason kaupm 2000 10 Jón Brynjólfsson kaupm. . . 2500 17,50 Jón Gunnarsson 4000 45 Jón Halldórsson & Co. . . . 3000 25 Jón Helgason prófessor . . 4000 45 Jón Helgason kaupm. . . . 3000 25 Jón Hermannsson skrifst.stj. 4500 57,50 Jón Jakohsson landsbókav. . 3500 35 eign 300 12 Jón Jensson yfirdómari . . 4600 60 Jón Jóhannsson skipstjóri . 6000 100 Jón Jónsson dósent .... 2800 22 Jón Jónsson frá Vaðnesi. . 3000 25 Jón Kristjánsson prófessor . 3000 25 Jón Laxdal kaupm 2500 17,50 Jón Magnússon bæjarfógeti. 7000 135 eign 200 8 Jón Ólafsson ritstj 2400 16 Jón Ólafsson skipstjóri . . 2000 10 Jðn Pálsson hankamaður . . 2400 19 Jón Setberg trésmiður. . . 2000 10 Jón H. Sigurðsson læknir . 2000 10 Jón Signrðsson skipstjóri . 3000 25 Jóns Þórðarsonar verzlun . 5000 70 Jón Þórarinsson fr.m.stjóri . 3000 25 Jón Þorkelsson skjalav. . . 5000 70 Jón Þorláksson verkfr. . . 5000 70 Jón Þorvaldsson cand. phil. . 2000 10 Jónatan Þorsteinsson . . . 8000 175 Jórunn Norðmann eign . . 4000 160 J. Havsteen fyrv. amtm. . . 4900 67,50 Kaaber L. kaupmaður . . . 6000 100 Karl Nikulásson verzlm. . . 2000 10 Kjartan Gunnlaugsson . . . 2500 17,50 Klemens Jónsson 6500 117,60 Kofoed-Hansen skgræktarstj. 3000 25 Kolheinn Þorsteinsson . . . 6000 100 Krahbe Th. verkfræðingnr . 4000 45 Kristinn Brynjólfsson . . , 3000 25 Kristinn Jónsson trésm. . . 2500 17,50 Kristiana Hafstein 2250 13,75 Kristján Jónsson háyfirdóm. 9000 215 Kristján Þorgrimsson . . . 2000 10 eign 135 5 Kristófer Sigurðsson járnsm. 2000 10 Lange J. málari 2200 13 eign 60 2 Lárus fl. Bjarnason .... 5000 70 Lárus Fjeldsted lögfræðingur 2000 10 Lárus Lúðvígsson 8000 175 Levi Ragnar kaupm. . . . 4000 45 Magnús Arnbjarnarson . . . 2000 10 Magnús Blöndal trésmiður . 4000 45 Magnús Einarsson dýralækn. 4500 52,50 Magnús Helgason skólastjóri 3000 25 Magnús Magnússon kennari. 4000 45 Magnús Stepbensenf. landsh. 6000 100 Magnús Sigurðssou lögm. . . 3000 25 Magnusen Cold verzlm. . . 3000 25 Margrét Zoega hóteleigandi 5000 70 Marteinn Einarsson kaupm. 3000 25 Matth. Einarsson læknir . . 4000 45 Matth. Þórðarson skipstjóri 2500 17,50 Matth. Þórðarson fornmenj.v. 2400 16 Millner kanpmaður .... 2000 10 Morten Hansen skólastjóri . 2500 17,60 Múller Lorenz verzlunarstj.. 2500 17,50 Nathan & Olsen umboðsm. . 8000 175 Nic. Bjarnasen kanpm.. . . 2500 17,50 Nielsen N. B. umboðssali . 4000 45 Obenhaupt umboðssali . . , 4000 45 Oddur Gislason yfird.lögm,. 4300 51 Ólafur Árnason kaupm. . . 4000 45 Ólafur Björnsson ritstjóri. . 6000 100 Ólafur Dan Danielsson . . 2300 14,50 Ólafur Eyólfeson skólastjóri 5000 70 Ólafur Johnson 6000 100 Ólafur Jónsson á »Marz< . 2000 10 Ól. Ólafsson prestur. . . . foOO 25 Ól. Rósenkranz 2500 17.50 Ól. Þorsteinsson læknir . . 4000 45 Páll Einar8son borgarstjóri. 4500 54.50 Páll H. Gislason kaupm.. . 2500 17.50 Páll Halldórsson sk.stj. . . 2800 22 Páll Matthiasson sk.stj. . . 2000 10 Pálmi Pálsson adj 3300 31 — — af eign. . . . 50 2 Petersen Hans 2500 17.50 — P. ljósm 3000 25 Pétur Bjarnason skipstj. . . 2000 10 Pétur Brynjólfsson 4000 45 Pétur Gnnnarsson 3300 87 Pétur Hjaltested kand.. . . 2000 10 Pétur Hjaltested úrsm.|. . . 3000 25 P. J. Thorsteinsson & Co . 20000 655 eign 2000 85 Rasmussen vefari ..... 4000 45 Rich. Torfason 2400 16 Samúel Ólafsson 2000 10 Sápnbúðin, Austurstræti . . 2000 10 Schou hannastjóri 12600 359 Sigfús Eymundsson bókav. . 2500 17.50 Siggeir Torfason kaupm. . . 8000 175 Sighvatur Bjarnason bankas. 8000 175 Sig. Brietn póstm 5000 70 eign 200 8 S'gurður Guðmundsson . . 2000 10 Sígnrður Hjörleifsson . . . 3500 35 Sigurður Jónsson kennari . 2200 13 Sigurður Kristjánsson hóks. 3000 25 Sigurður Sivertsen dósent . 3000 25 Sigurður Thoroddsen adjúnkt 8000 26 Skúli Thoroddsen 4000 45 eign 400 16 Sláturfélag Suðurlands. . . 10000 255 Slippfélagið 8000 175 Schmith vélastjóri .... 2500 17.50 Schmith símam 3000 25 Smjörhúsið 2500 8 Stefán Eiríksson 2500 17.50 Steingr. Guðmundsson . . . 2000 10 Steingr. Thorstelnsson . . . 4000 45 eign 450 18 Strand Emil 3000 25 Sturla Jónsson kaupm.. . . 4000 45 eign 1500 60 Sveinn Björnsson 6000 100 Sveinn Hallgrimsson . . . 2600 19 Sveinn Hjartarson 3000 25 Sæm. Bjarnhéðinsson . . . 3500 35 Thomsensverzlun 4000 45 eign 150 6 Th. Thorsteinsson 80000 1055 Thorsteinsson Pétnr . . . . 8000 175 af eign 400 16 Tómas Jónsson 2000 10 Trolle C. skipstjóri .... 5000 70 Tryggvi Gunnarsson. . . . 4000 45 eign 50 2 Ungerskov skipstj 3500 35 Yilh. Bernhöft tannl. . . 4500 54.50 eign 150 6 Vöruhúsið, Austurstræti . . 4000 45 Wittrup stýrimaður . . . . 2000 10 Zimsen, Jes kaupm 9000 215 Zimsen, Knud 4000 45 Zimsen, Chr 3200 29 Þórður Bjarnason verzlm. . 2500 17.50 Þórður Sveinsson læknir . 3500 35 Þórh. Bjarnason biskup . . 5000 70 Þorl. Bjarnason 2800 22 Þorl. Guðmundsson Háeyri. 2000 10 Þorl. Jónsson póstafgr.m. . 3500 35 Þorsteinn Gislason ritstj. . 2000 10 Þorst. Guhmundsson fiskim. 2500 17.60 Þorst. Jónsson járnsm.. . . 2000 10 Þorst. Þorsteinsson kand. . 2000 10 Þorst. Þorsteinsson kaupm. 3000 25 Þórunn Jónassen 2000 10 eign 200 8 Þorv. Thoroddsen próf. . . 2000 10 eign 150 6 Þorv. Þorvarðarson . . . . 2000 10 Bruni á Ísaíiröi. Aðfaranótt sunnudags brann á ísa- firði pakkhús 22 álna langt, tilheyr- andi niðursuðuverksmiðjunni í s 1 a n d (P. M. Bjarnasonar). í þessu pakkhúsi voru geymd ýms áhöld verksmiðjunn- ar og efni. Auk þess viðskiftabækurn- ar. Brunnu þær margar. Eldsins varð vart kl. 10 um kvöldið. Tjónið er eigi hægt að gizka á enn, eftir því sem hr. P. M. Bjarnason hefir tjáð ísafold. Um upptök eldsins er ókunnugt. Jarðarför Jóns sál. Árnasonar i Þorlákshöfn fer fram næsta laugardag 16. þ. m. Simað var þaðan eftir sira Ólafi fri- kirkjupresti Ólafssyni, og fer hann austur á morgun. Messufall í frí- kirkjunni á sunnudaginn; enda tíminn notaður til að gera við orgelið. Köítubrúsar 3, 5, 10, 15 og 20 ltr., eru lang ódýrastir í verzlun undirritaðs. Sömu- leiðis tilheyrandi sálir, hvort heldur er til glaðnings, eður annars. B. H. Bjarnason. Undirrituðum hefir nú í haust verið dregið hvítt hrútlamb með mínu marki: Biti fr. hægra. Lamb þetta á eg ekki; óska eg því að réttur eig- andi vildi gefa sig fram sem fyrst, vitja lambsverðsins og semja við mig um markið. Skrauthólum á Kjalarnesi. Björn Maqnússon. * I fjarveru minni i vetur, veit- ir herra bókhaldari Olafur Runólfsson móttöku reikningum og bréfum til mín og kvittar fyrir borganir. Sigurður Erlendsson bóksali. Við Reykjavík er til sölu með sanngjörnu verði og góðum borgunarskilmálum timbur- hús með áföstum skúr. Ennfremur heyskúr, fiskiskúr og fiskgeymsluhús. Tún, sem gefur af sér 50 hesta af töðu, og kálgarður sem gefur af sér 16 tunnur af jarðarávexti, stórt fisk- verkunarpláss. Eignin er við sjó, góð lending. — Ritstjóri vísar á. Mannslát. Kristinn Guðmundsson bóndi frá Miðengi í Grímsnesi, lózt. 8. nóv. í Heilsuhælinu, á bezta aldri. Hann var fæddur í Miðengi 8. maí 1870. Ólst þar upp hjá föður sínum, og var hjá honum fram yfir tvítugt. Fór síðan í búnaðarskólann á Hólum í Hjaltadal, og útskrifaðist þaðan vorið 1895 með bezta vitnisburði. Eftir að hann kom aftur hingað til Suðurlands, gekk hann að eiga heitmey sína, Sigríði Bjarna- dóttur, frá Arnarbæli í Grímsnesi. Bjuggu þau fyrst eitt ár hér í Reykjavík. Síð- an fluttist Kristinn að Miðengi vorið 1899 og reisti þar bú og bjó þar til dauðadags. Þau hjónin eignuðust 4 börn er lifa, 3 dætur og einn son, yngst- an barna. Elzta stúlkan er á 15. árinu. Búskapurinn gekk vel, enda voru þau hjónin samhent vel um alt, og heimilið eitt af mestu myndarheimilunum þar í sveltinni, og þó viðar væri leitað. Kristinn bætti mikið jörð sína, og mun hún lengi bera menjar verka hans. Jarðarbætur hans, svo og önnur verk, voru óvanalega vel af hendi leyst, enda var maðurinn laginn, útsjónarsamur og framúrskarandi vandvirkur að hverju sem hann gekk. Honum voru tvívegis veitt verðlaun úr Ræktunarsjóði íslands, fyrir jarðarbætur sínar og aðrar fram- kvæmdir, árin 1906 og 1911. Krlstinn heitinn var reglumaður um alla hluti, og hófsmaður í hvívetna. Reglusemi hans kom meðal annars fram í búskapnum. Hver hlutur á sínum stað og alt í röð og reglu. Var bæði skemtilegt og lærdómsríkt að koma að Miðengi, enda komu þangað margir og öllum jafnan vel tekið. Kristinn gegndi ýmsum opinberum störfum í sveit sinni. Hann var í hreppsnefnd, formaður búnaðarfólagsins í sveitinni um 10 ár, og formaður Foss- vallalækjar-rjómabúsins frá því það var stofnað. Þessi störf sín, sem önnur, leysti hann af hendi með ráðdeild og trúmensku. Enginn loftkastalamaður var Kristinn sálugi og sumum þótti hann helzt til fastheldinn og jafnvel íhaldssamur um sumt, og má vera, að þess hafi stundum orðið vart í innansveitarmálum. En hitt er jafn víst, að hann var þó í raun og veru framfaramaður, og bera þess mest- an og beztan vottinn, verk hans og um- bætur þær, er hann gjörði á ábúðarjörð sinni. En hann var að eðlisfari athug- ull, fastur fyrir og gætinn, og vildi aldrei rasa fyrir ráð fram, hvorki í einu nó öðru. Hann var tryggur í lund og vinfastur, og heilráður þeim, er hans leituðu í þeim efnum. Að Kristni er mikill mannskaði, og skarð fyrir skildi þar sem hann er fall- inn frá. Sakna hans og allir, er nokk- ur kynni höfðu af honum, og er sæti hans vandfylt, því maðurinn var gildur bóndi, góður fólagsmaður, heimilisfaðir ágætur, og drengur hinn bezti í hví- vetna. Arnesinqur.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.