Ísafold - 06.01.1915, Blaðsíða 3

Ísafold - 06.01.1915, Blaðsíða 3
ISAFO LD 3 laust spara oss ómakið nm aldir alda. Vér eigum ekki í því efni né öðrum að gera meira en vér getum, en vér eigum að gera það sem vér getum hlutfallslega við aðrar þjóðir. Vér höfum þegið af öðrum þjóðum þegar hörmungar hafa dunið yfir þetta land. Ætti þá ekki eitthvað að koma frá oss í staðinn, eða eigum vér að »eiga eina höndina, ok þá þó, at þiggja ávallt enn gefa aldrigit ? — Mundi ekki hitt vera sæmra, að gefa eftir efnu'm, eins og aðrar þjóðir. Verði fjárhæðin þá lítil, þá er það ekki vor sök, heldur fámennisins. Þess er og að gæta, að það er lítið sem ekki dregur þann, sem ekkert hefir til að seðja hungur sitt. Hver máltíð er mikils virði í aug- um þess sem vantar hana, en fáir eru svo aumir hér á landi, að þeir gætu ekki gefið einnar máltíðar virði til að seðja hungraðan bróður sinn, þó hann sé suður í löndum. Hver sem vill sýna hugarþel sitt í verk- inu og leggja sitt fram, til að greiða þá þakklætisskuld sem hver dreng- lynd sál á belgisku þjóðinni að gjalda, hann á að geta komið gjöf sinni á framfæri. Þess vegna er það bein skylda vor að stofna til al- mennra samskota um land alt. A gamalársdag 1914. Guðm. Finnbogason. Eldsvoði. A gamalárskvöld brann íbúðar- húsið á Grímsstöðum á Mýrum til kaldra kola. Kom eldurinn upp meðan stóð á húslestri, að haldið er, frá lampa. Nokkru tókst að bjarga, en þó er tjónið tilfinnanlegt mjög. Talið um 3000 kr. Er þetta annað sinni, sem eldsvoðaslys ber að hönd- um bóndans þar, Hallgríms Níeis- sonar, bróður Haralds prófessors. Settur sýslmnaður í Dalasýslu er Kr. Linnet yfir- dómslögmaður, frá x. janúar. Fer hann vestur um miðjan mánuð. Hinn fráfarni sýslum. Björn Bjarnarson hefir legið um hríð i Landakotsspítala eftir uppskurð (sullur), en er á góðum batavegi. Baukavextir lækka. Bankavextir hafa, svo sem kunn- ugt er, verið mjög háir síðan í öndverðu stríðinu (7%). En sú breyting varð á núna eftir nýárið, að þeir hafa verið lækkaðir í báðum bönkunum niður í 672% Þingmálafundur verður haldinn í Hafnarhrði á föstudaginn. Þingmenn Gullbr,- og Kjósarsýslu verða báðir á fundinum. Ennfremur hefir ráðherra verið boðið á hann og hefir hann heitið að koma, Illkynjaður sjúkdómur hefir gosið upp á Akureyri í haust og vetur. Það er máttleysissjúk- dómur, sem ásækir börn, «Börne- lammelse« nefnt á dönsku. Er fæst- um eða engum lífsvon af honum. Oftast er hann banvænn, en ef eigi, þá valdur máttleysis að meira eða minna leyti alla æfi. Sjö börn hafa veikina tekið. Hafa ráðstafanir verið gerðar til að stemma stigu fyrir frekari útbreiðslu hennar. Bannlögin feDgu fullnaðargildi á nýársdag. — 1 minningu þess flutti Q u S m . landlæknir Björnsson snjaLt erindi frá svölum alþingishúss- Jarðarfor minnar elskuiegu konu, Ingi- leifar Björnsdóttur, sem andaðist 30. f. m. fer fram laugardaginn 9. þ. m. og hefst með húskveðju á heimili okkar, Laufásvegi 47, kl. ll*/2. Sigurður Halldðrsson. ins kl. 2 á nýársdag, en fjölmenni mik- ið hlustaði á. Látin er í hárri elli hór í bæ á gamlársdag Þ ó r u n n S t e p h e ns e n, systir Magnúsar landshöfðingja. Jarðar- för hennar fer fram á föstudag 7. þ. mán. og hefst meS húskveðju kl. 12 á hádegi frá heimili hennar, Pósthús- stræti 17. Engey seld. Vigfús Guðmundsson hefir selt 2/3 hliua Engeyjar síra Lárusi Benediktssyni fyrir 48 þús. kr. að sögn — þ. e. í skiftum fyrir 2 hús- eignir í Rvík (Þingholtsstræti 5 og Bergstaðastræti 11 A). Nýárssundið fór svo þetta sinni, sem næstu þrjú árin á undan, að Er- lingur Pálsson varð hlutskarp- astur. Svam hann að markinu á 36 7g sek. Næstur honum varð Sigurður Gíslason (38 2/5), en þriðji varð Guðm. Kr. Guðmundsssn. Alls þreyttu 5 manns sundið. Eftir sundið afhenti Bjarni frá Vogi verðlaunin með stuttri ræðu. Skipafregn. P o 11 u x fór héðan til útlanda á mánudagskvöld. Meðal farþega voru Einar Benediktsson meö; frú sinni, kaupmennirnir Hallgrímur' Benediktsson og Cari Olsen. Steriing áað koma við í Leith í næstu ferð sinni frá Khöfn. Hestarnir og stríðið. Bretar vilja auðsjáanlega ekki hleypa neinum ís- lenzkum hesti á land í Danmörku. Þeir taka hvert skipið á fætur öðru, er þann flutning hefir. Nú síðast hafa brezk herskip tekið Esbjerg, er var með 200 hesta og látið það afferma þá í Bretlandi. Botnía var eins og menn muna tekin um daginn. Tafðist hún svo við það, að eigi komst til Khafnar fyr en 30. þ. mán. Jarðarför Halldórs Jónssonar fór fram á mánudaginn að viðstöddu miklu fjölmenni. Flutti síra Jóhann hús- kveðju, en síra Ólafur Magnússon frá Arnarbæli talaði í kirkjunni. Good- templarar báru kistuna inn í kirkju og að gröfinni, en bæjarfulltrúar úr kirkju. Bifreiðarslys varð í gær á Hafnar- fjarðarveginnm. Svell var talsvert á einum stað, og rann bifreiðin út af veginum niður í 2 mannhæða gjótu. Bifreiðarstjórinn Björgvin Jóhannsson meiddist talsvert, fór úr liði á öxl, og meiddist á fæti og í andliti. Tveir voru farþegar, karlmaður og kvenmaður og meiddust bæði taisvert. — Vagninn hafði eigi skemst til muna. Þau tvö bifreiðarslys, sem þegar eru orðin í Hafnarfjarðarhrauni, ættu að hrinda f framkvæmd þeirri nauðsyn, að setja grindur með veginum, þar sem gjótur eru. Kirkjuhljómleikar. Þeir bræður Eggert og Þórarinn Guðmundssynir léku á orgel og fiðlu í dómkirkjunni á sunnudaginn. Þótti fyrirtaks skemtun. Galdra-Loftur. í næsta blaði hefst grein um Galdra-Loft, söguleg rannsókn eftir Hannes Þorsteinsson skjalavörð. Dómur um leik Leikfélags Reykja- víkur kemur og í næsta blaði. Reuter-skeyti (til Isafoldar og Morgunblaðsins). London, 28. des. kl. 4,15 e. h. Fjögur gufuskip hafa enn farist á tundurduflum þeim, er þýzku skipin vörpuðu útbyrðis, er þau fóru her- förina til Sctrborough. Eitt þeirra var norskt, annað hollenzkt og hin tvö brezk. Fjöldi manna fórst. Rússnesk tilkynning skýrir frá því að nú sé dregið úr tílraunum Þjóð- verja að komast til Warschau. Aust- urríkismenn hafa aftur verið sigraðir í Galiziu og mistu 3500 menn og 18 hríðbyssur. Símskeyti frá Berlín herma að her- förin til Cuxhaven hafi orsakað enn meiri æsingu þar. Enda þótt farið sé leynt með hver skaði hafi af hlot- ist, er álitið að hann hafi verið mik- ill. Opinberlega viðurkent að sprengi- kúlum hafi verið kastað niður á nokk- ur skip, sem lágu fyrir festum og einnig á gasgeymi, en því lýst yfir að enginn skaði hafi af hlotist. Menn eru mjög gramir yfir gagnleysi tund- urduflasvæðis þess, er brezka flota- deildin sigldi i gegn um. R e u t e r. London "29. des. kl. 4.41 e. h. Tilkynt er að Parseval-loftskipa- skýli hafi verið eyðilagt og margir Zeppelinsloftskipaskálar skemdir í herförinni til Cnxhaven. Nú er það kunnugt að brezkir sprengileyðar rendu sér alt af í hring umhverfis beitiskipin og vörðu þau kafbátaárásum. Allir sprenglar þeir, er skotið var að brezku skipunum, mistu marksins_ Austurrikismenn viðurkenna að þeir hafi farið halloka norðan við Duklaskarð, og segja að hersveitir sínar hafi neitað að berjast við Rússa. Austurrikismenn hafa nú tekið sér stöðvar nær hábrúnum Karpatafjálla. Voðalegur bylur hefir geisað yfir England og Norður-Frakkland og tafið hernaðarframkvæmdir að mikl- um mun. R e u t e r. London 30. des. kl. 4.27 síðd. Bandaríki Norður-Ameríku hafa sent skjal til Breta og kvarta yfir meðferðinni á skipum hlutlausra ríkja sem flytja bannvöru. Þótt skjalið sé mjög ákveðið, er það sérlega vinalega ritað og búast menn fastlega við því að málið verði útkljáð á vinsamlegan hátt. Rússneskar fregnir frá viðureign- inni í Duklaskarði segir að ósigur Austurríkismanna sé stærri en nokk- ur annar ósigur þeirra. Austurríkis- menn skildu alt eftir: landabréf, flögg, peninga og ógrynni af skotfærum og vistum. Riddaralið Rússa elti Aust- urrikismenn og tóku marga fanga. Opinber tilkynning segir, að fyrri helmingdesembermánaðar, eftir gamla stíl, hafi 50 þúsund Austurríkismenn verið teknir höndum. — Fregnir um að frakkneski kafbáturinn Curie hafi farist er hann gerði árás á Austur- ríksku herskipin við Póla, er staðfest. R e u t e r. London, 31. des. kl. 5,15 e.h. Sjö þýzk loftför köstuðu sprengi- kúlum yfir Dunkirk, drápu 15 manns ogsærðu 32. Voruþað mest borgarar. Enskur maður, Lansdale að nafni, hafði verið dæmdur i 10 ára hegn- ingarhúsvinnu, fyrir að slá fanga- vörð hjá Döberitz, en mál hans var tekið upp að nýju, og var hann þá dæmdur til lífláts. Bruno Garibaldi liðsforingi, sonar- sonur Garibalda hershöfðingja, beið bana í áhlaupi á skotgryfjur Þjóð- verja í Argonne. Uppreistarforinginn Maritz í Suður- Afríku og 1800 félagar hans réðust á 480 landvarnarmenn hjá Kakamas Orange. Tóku þeir 9o,Maxim- byssur og 80 þús. pd. af skotfærum. R e u t e r . Slðustu simfregnir. Qpinber tilkynning frá brezku utanríkisstjórninni í London. —Ö*<CC*»3='» Loftförin til Nancy. London 29. des. kl. 12,22 síðd. Fregn, sem nýlega hefir komið frá Þýzkalandi, sýnir að árásir Zeppe- linsloftskipanna á Nancy var hefnd fyrir árás Frakka á Freiburg. Frakk- nesku flugmennirnir réðust samt sem áður að eins á staði sem höfðu hern- aðarlega þýðingu, loftfaraskýli og járnbrautarstöð. En Þjóðverjar vörp- uðu sprengikúlum niður i borgina á þá staði sem borgarar eingöngu gátu orðið fyrir tjóni. Tyrkir fara halloka. Herstjórn Rússa í Kákasus segir, að Rússum hafi tekist að stemraa stigu fyrir framsókn Tyrkja í Olty- héraði og að orusta standi yfir þar. Þann 26. biðu Tyrkir ósigur í Dutah-héraði og biðu þeir feiknalegt manntjón. Margh voru teknir hönd- um. — Bretar i Sudan. Þegar ófriðurinn hófst milli Bret- lands og Tyrklands, tókst Sir R. Wingate ferð á hendur til Sudan og skýrði ljóslega frá þvi að ófriður Bretlands við Tyrki væri hafinn vegna árásar Tyrkja á það. Margir máls- metandi íbúar mintust á hina hræði- legu kúgun Tyrkja og sýndu fram á hve mikinn hag landið hefði haft af vernd Breta. Bretahylli manna allra stétta má sanna með fjölda bréfa og með ræðum manna, sem bjóðast til þess að hjálpa til að verja ríkið gegn óvinum þess. »Sudan Times* segir, að hversu mikið böl sem ófriðurinn muni flytja með sér, þá hafi hann þó sannað að afskifti Breta i Sudan hafi borið góð- an árangur. Rússnesk tilkynning. London 30. des. kl. 11.15 e. h. Eftirfarandi tilkynniug kemur frá yfirherstjórn Rússa: í gærdag yfirgáfu Þjóðverjar skot- grafir á hægri bakka Bzura-fljóts. Hjá Rawka háði stórskotalið Rússa orustu við Þjóðverja og hafði betri hlut. Rússar hafa hafið sókn frá Boliwov. Rússar náðu aftur skotgryfjum, er þeir höfðu mist nálægt þorpinu Sumius og tóku þar nokkrar vél- byssur og fanga. í miðju gerðu Rússar áhlaup á vígi Þjóðverja sunnan við Urowldge, með 3 vélbyssum. í héraðinu hjá Neðri-Nida tóku Rússar þorpin Staro, Korezyn og Aussenoslanice. í orustunni tóku Rússar 40 austurríkska herforingja, hér um bil 1700 menn og 3 vél- byssur. í Vestur-Galiziu hröktu Rússar óvinina á vigstöðvunum hjá Gron- mik, Gorlik og Jasliska og tóku þar bæði fallbyssur og margar vélbyss- ur. Siðari helming desembermánað- ar hafa Rússar tekið 50 þúsunc Austurrikismenn. Frönsk tilkynning. London, 29. des. kl. 5,35 e. h. Eftirfarandi opinber frönsk til- kynning var gefin út siðdegis í dag: í Belgíu tókum vér bo’-p’ð St. George. Milli Lys og Somme skutu óvinirnir ákaft á stöðvar vorar. í La Grurie-skógi sóttum vér dá- ítið fram. A hæðunum hjá Meuse var ýms- um árásum Þjóðverja hrundið. Norðaustan við Troyon hafa Þjóð- verjar ýerið hraktir úr skotgryfjum sínum eftir grimma viðureign. í Efri Elsass höfum vér sezt um Steinbach fyrir fult og alt. Tilkynning frá Þjóðverjum hermir að Zeppelin loftskipaárásin á Nancy sé borgun fyrir árás frönsku flug- mannanna á Freiburg. En Frakkar réðust ekki á aðra staði en þá, sem íafa hernaðarþýðingu, eins og loft- skipaskýli og járnbrautarstöðvar. í Sarrebourg réðust Frakkar að eins á járnbraut. En á hinn bóginn köst- uðu Þjóðverjar sprengikúlum niður í miðja borgina Nancy, þar sem ?eim gat enginn hernaðarhagur af jví staðið. London 30. des. kl. 5,45 e. h. Eftirfarandi opinber frönsk tilkynn- ing var gefin út síðdegis í dag: Oss hefir miðað dálítið áfram í xéraðinu Nieuport í Belgíu. Óvin- irnir hafa skotið ákaft á St. George. Vér tókum smástöðvar af óvinunum sunnan og austan við Zonnebeke. í Argonnehéraði miðaði oss nokkuð áfram í héraðinu Four de Paris. í Vogesafjöilum voru áhlaup óvinanna á Tete de Faux brotin á bak aftur. í Efra-Elsass treystum vér stöðvar vorar. Stórskotalið vort þaggaði nið- ur i Howitzer-byssum óvinanna hjá Aspack le Haut. London, 31. des., kl. 11,27 árd. Sjöunda skýrsla belgisku nefndar- innar, sem skipuð var til að rann- saka grimdarverk Þjóðverja, er nú komin út. Ómótmælanlegar sann- anir eru fengnar fyrir því, að þýzkir hermenn hafi notað dum- dum kúlur i orustunni við Ninove, Alost og fleiri orustum í september. Frekari sannanir eru og fengnar um það, að borgarar hafi verið látnir ganga á unaan liðinu, er það gerði áhlaup. Verzlunarmálaráðuneytið tilkynn- ir, að vátrygging á förmum sé lækk- uð úr D/2 gineu niður í 1 gineu fyrir þúsundið. Frakkneski tundurbáturinn Fanfar skaut á tyrknesku liðsveitirnar og tvístraði þeim hjá Guekli á Asiu- ströndum. Flotamálastjórnin tilkynnir að tjón það, er brezku flugmennirnir ollu í Friedrichshafen, sé talið: skemdir á loftskipaskýli einu stóru og eyði- legging á gasframleiðara. Framsókn Rússa. London 31. des. kl. 2,25 síðd. Eftirfarandi opinber rússnesk til- kynning var gefin út síðdegis í gær: Grimm orusta hefir verið háð hjá Bolimow og í Lodzhéraði og fyrir sunnan Malogoszez vestan við Weich- sel. Hjá Bolimow sendu óvinirnir fram mörg tvifylki (regiment) hvað eftir annað, en öllum áhlaupunum hrintu vorir menn af höndum sér, gerðu gagnáhlaup með byssustingj- um og unnu óvinunum mikið tjón einkum hjá Borgimow og Gumine. Skamt frá Malogszez tókst óvin- unum að taka nokkrar skotgryfjur vorar eftir að þeir höfðu lengi beint stórskotum sinum á þær. Vorir menn gerðu gagnáhlaup með aðstoð stórskotaliðsins og náðum þessum stöðvum algerlega á vald sitt aftur. Þessa sigra höfum vér unnið í Galiciu: Hjá Zaklyczin tókum vér

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.