Tíminn - 26.01.1980, Blaðsíða 3
Laugardagur 26. janúar 1980
3
Ferðaskrifstofa Akureyrar hf. — nýtt fyrirtæki stofnað í gær
Flugleiöir og Ferðaskrifstofa
Akureyrar í eina sæng
— ásamt þrem aðilum öðrum
ÞH — Akureyri — 1 gær voru
undirritaðir samningar um
stofnun nýs fyrirtækis á
Akureyri. Hlaut það nafnið
Ferðaskrifstofa Akureyrar hf.
Stofnendur eru fimm talsins,
Jón Egilsson, Gfsli Jónsson frá
Feröaskrifstofu Akureyrar,
Flugleiðir hf., Flugfélag
Norðurlands hf., og Ferðaskrif-
stofan Úrval. Eignahlutföll i
nýja fyrirtækinu eru þannig, að
Flugleiðir hf. eiga 35%, Flug-
félag Norðurlands 14%, Ferða-
skrifstofa Akureyrar 34%,
Ferðaskrifstofan Úrval 16% og
Gisli Jónsson 1%.
Á blaðamannafundi sem hald-
inn var i gærkom meöal annars
fram, aö Ferðaskrifstofa
Akureyrar hf. mun stunda aDan
almennan ferðaskrifstofurekst-
ur, ásamt farseðlasölu og mun
taka við þvi' hlutverki sem sölu-
skrifstofa Flugleiða á Akureyri
og Ferðaskrifstofa Akureyrar
hafa gegnt undanfarna áratugi.
Þá mun skrifstofan annast mót-
töku ferðamanna Utlendra sem
innlendra, annast skipulagn-
ingu ferða hér á landi og hafa á
hendi farmiðasölu i langferða-
bifreiðir. Enn fremur mun hiin
annast farmiðasölu fyrir Flug-
félag Norðurlands. Þá mun
Ferðaskrifstofa Akureyrar hf.
annast alla fyrirgreiðslu fyrir
þá sem ferðast til útlanda.
Enn fremur kom fram á fund-
inum að gert er ráð fyrir að
starfsemin hefjist 1. mai n.k.
Með þessu fyrirkomulagi verð-
ur söluskrifstofa Flugleiða á
Akureyri lögð niður, en sama
form veröurhaftá flugvellinum
og verið hefur. Þá eru uppi
ráðagerðir um að Flugfélag
Norðurlands auki umsvif sin
samfara þessari breytingu.
Einnig kom fram, að slik sam-
eining ætti sér stað viðar á land-
inu, en þaö mál hefur ekki verið
tekið til umræðu enn.
Stjórn Ferðaskrifstofu
Akureyrar hf. skipa: Einar
Helgason stjórnarfromaður,
Jón Egiisson og Steinn Lárus-
son. Varamenn: Kolbeinn
Sigurbjörnsson og Sigurður
Aðalsteinsson. Skrifstofan
veröur til húsa að RáðhUstorgi
3. Framkvæmdastjóri er Gisli
Jónsson og skrifstofustjóri er
Kolbeinn Sigurbjörnsson.
Danski rithöfundurinn Erik
Stinus gistir Norræna húsið i
næstu viku og heldur þar tvo fyr-
irlestra. Hann hefur farið víða um
heim, þekkir veltii mála f Asiu og
Afriku og hefur dvalizt árum
saman f þeim heimshlutum.
Fyrra erindið, Rejser pa jorden,
flyturhann á þriðjudaginn klukk-
an 8.30, og er það kynning á
skáldskap hans.en siðara erindið
er á sama tima laugardaginn 2.
febrúar, nefnist De mægtiges
dörtrin og fjallar um örðugleika
þróunarlanda og árangurslausar
tilraunir þeirra, sem lítils mega
sin, til þess að komast yfir
þröskuld hinna völdugu.
Frá Neskaupstað.
Nýi Barðinn
kemur eftir
helgina
Fyrirbyggjandi að-
gerðir gegn óspekt-
um um áramót
lögreglumenn þinga um málið
FRI — Margir muna eflaust eftir
óspektum unglinga i Hafnarfirði,
á Selfossi og á Sauöárkróki um
siðustu áramót og á þrettándan-
um. Fyrir stuttu komu lögreglu-
menn frá þessum þrem stöðum
saman til fundar og ræddu fyrir-
byggjandi aðgerðir til varnar
þessum ófógnuði. Að sögn Hjalta
Zóphaniussonar lögfræðings i
dómsmálaráðuneytinu þá var
fundurinn árangursrikur og
margar góðar tillögur komu fram
á honum. Sagði Hjalti að þeir
stefndu að þvi að útrýma þessum
óspektum.
„Við bárum saman bækur okk-
ar á fundinum” sagði Jón Guð-
mundsson yfirlögregluþjónn á
Selfossi i samtali við Timann, en
þetta er mikið vandamál og leið-
indablettur á þessum stöðum.
Það fer ekki milli mála að það
þarf að ráða bót á þessu ástandi.
„Það er eðlilegt að við grfpum
til einhverra ráða i þessu sam-
bandi þar sem hér hafa lögreglu-
menn verið lengi frá vinnu út af
meiðslum sem þeirhlutu og raun-
ar hefur einn þeirra ekki enn get-
að mætt.
Aðalatriðið i tillögum okkar er
aðhöfða til fólksins sjálfs. Að það
passi upp á þessa hluti. Við mun-
um heita á alla ungiinga aö vera
ekki með uppvöðslu af þessu tagi.
Fólk á að skemmta sér en
skemmtanir mega ekki fara úr
böndunum.
Brúin yfir Önundarfjörö:
Áætlað að byggja
brúna í sumar
HEI —„Eftir þeirri vegaáætlun
sem núgildirergertráðfyrir aö
brúin yfir önundarfjörð viö
Holtsodda veröi byggð i sumar.
Hinsvegar gerir fjárlagafrum-
varp Sighvats Björgvinssonar
ráðfyrir niðurskurði i vegamál-
um og meöan ekki er búið að
taka það frumvarp fyrir vitum
viö ekkert hvar sá niöurskurður
kemur niður”. Þetta sagöi Ei-
rikur Bjarnason umdæmisverk-
fræðingur Vegagerðar riksisins
á tsafirði m.a. er hann var
spuröur um framgang þessa
máls.
Eirikur sagði þvi litið hægt að
segja um framhaldiö að svo
komnu máli. En hönnun þess-
arar brúar væri nokkurn veginn
tilbúin og þeir væru tilbúnir að
byggja brúna ef peningar yrðu
til reiöu. Ifyrra hefði verið gert
ráð fyrir að leggja i þetta verk,
þ.e. brúna og vegfyllingu aö
henni, 370 milljónir króna.
Vegna mikillar verðbólgu væru
likur á að þær verðlagsforsend-
ur hafi breyst.
Eirikur sagði að þessi brú
mundi stytta leiöina fyrir
önundarfjörð verulega. Fyrst
og fremst kæmi þaö til góða, i
sambandi við fiug um Holtsflug-
völl, þar sem leiöin tU Flateyrar
styttist t.d. um 9 kilómetra, svo
og alla aöra innansveitarum-
ferð. En einnigstytti þetta leiö-
ina fyrir þá sem lengra ætluðu.
Einnig benti Erikur á, aö það
væri mjög óhagkvæmt að fresta
þessum framkvæmdu, þvi þá
yrði aö lappa upp á gamla veg-
inn fyrir önundarfjörð, sem
værioröinnmjög lélegurog þar
að auki snjóþúngur. Það væri
þvi nánast að setja peninga I
súginn. Frestun brúarbygg-
ingarinnar væri þvl óskynsam-
leg.
Leggur væntanlega aí stað frá Frakklandi I dag
JSS — Nýi togarinn, sem
Sildarvinnslan á Neskaupstað
hefur fest kaup á, leggur væntan-
lega af stað frá Frakklandi i dag
og er hann væntanlegur til Nes-
kaupstaðar nú eftir helgina.
Jóhann K. Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar
sagði i viötali við Tímann, að tog-
arinn væri smiðaður i Póllandi
fyrir fjórum árum, fyrir Frakka,
eins og reyndar 12 skip önnur og
væriþetta fjórða skipiðaf þessum
12sem kæmi hingað til lands. Hin
væruBirtingur, Hegranes og Þor-
lákur.
„Kaupverðið er nálægt einum
milljaröi lcróna”, sagði Jóhann
,,og þá eru breytingar reiknaöar
með. Við þurftum m.a. að breyta
lestinni, en hún var stíuð áður.
Eins þurfti aö setja svokallaöan
skutrennuloka, og breyta matsal
o.fl. litillega.
Togarinn, sem hlotið hefur
Framhald á bls. 23.
800 Siglfirðingar
mótmæla
i desember s.l. fór fram undir-
skriftarsöfnun á Siglufiröi til að
mótmæla þeirri mikiu loft og
sjávarmengun sem er frá loðnu
og beinaverksmiðjum S.R. i bæn-
um.
Nemendur áttunda bekkjar
grunnskóla Siglufjarðar gengu
eitt kvöld um bæinn og buðu fólki
að skrifa sig á listana. Tæplega
800 manns skrifuðu sig á listana,
og er það mjög mikiö. Listarnir
hafa, ásamt bréfi, verið sendir til
mengun
stjórnar S.R.
Mengunin frá verksmiðjum
S.R. hefur sennilegasjaldan verið
einsmikileinsog á slðustu vertlð,
og stafar það af gömlu hráefni
svo og að reykháfarnir náðu þá
ekki nema rétt upp fyrir þak
verksmiðjunnar S.R. 46.
Ennfremur er bent á þá miklu
sjávarmengun sem er frá verk-
smiðjunum svo og þann mikla
sóðaskap sem er á verksmiöju-
lóðinni.
Hluti Ástúnshverfis.
Kópavogur:
Samkeppni um íbúöa-
byggð í Ástúnshverfi
FRI — Kópavogskaupstaður hef-
ur nú efnt til samkeppni um
ibúöabyggð I Astúnshverfi I
Kópavogi. Ahersla er lögð á svo-
kallaða lága byggö þ.e. 1-2 hæða,
þar sem flestir Ibúar hefðu yfir að
ráða einkalóöum. Þarna gæti ver-
iö um að ræða a.m.k. 50-60 ibúðir.
Verðlaunafé er 6 millj. kr., en
fyrstu verðlaun nema 2,5 millj.
kr.
Formaöur dómnefndar er
Magnús Skúlason arkitekt.
Meöal-
hækkun
11%
Nýtt fiskverö hefur verið
ákveöið og gildir það frá ára-
mótum.
Samkvæmt þvi nemur
hækkun á skiptaverði helstu
botnfisktegunda aö jafnaöi
um 11% á ýsu og keilu um
16%, á ufsaog löngu um 10%,
steinbiti um 13% karfa um
7%, og grálúðu um 4%. Jafn-
framt var ákveðið að greiða
skuli linuuppbót á grálúöu og
að greidd skuli 25% veröupp-
bót úr nýstofnaðri deild við
aflatryggingarsjóð á karfa
og ufsa á árinu 1980, þó ekki
ufsa veiddan I mars, april og
mai.
Meðal mikilvægustu for-
sendna þessarar fiskverðsá-
kvörðunareru þrenn lög sem
afgreidd voru frá Alþingi I
fyrradag:
Lög um tímabundið oliu-
Framhald á bls. 23.