Tíminn - 26.01.1980, Blaðsíða 6

Tíminn - 26.01.1980, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 26. janúar 1980 r (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Eitstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur ólafsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gfslason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar SIÖu- múla 15. Simi 86300. — Kvöldslmar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö I lausasölu kr. 230.- Askriftargjald kr. 4.500 á mánuöi. Blaöaprent. Reynum tíl þrautar Þegar Benedikt Gröndal, formanni Alþýðu- flokksins, var falið að gera tilraun til stjórnar- myndunar kváðust forystumenn Alþýðuflokksins mundu leggja fram ,,málamiðlunartillögur” og nýjan „samkomulagsgrundvöll” i þvi skyni að greiða sem best fyrir þvi að meirihlutastjórn yrði mynduð sem allra fyrst. Þessum ummælum Alþýðuflokksmanna var að vonum vel tekið i öðrum flokkum, enda orðið mjög brýnt að stjórnarkreppunni ljúki hið fyrsta. Eina undantekningin var Lúðvik Jósepsson, formaður Alþýðubandalagsins, sem hljóp i baklás áður en hann hafði kynnt málið fyrir flokksmönnum sinum. Með þeirri framkomu itrekaði Lúðvik þá afstöðu Alþýðubandalagsins að taka ekki þátt i neinni rikis- stjórn yfirleitt og koma sér undan allri ábyrgð. Um leið jók Lúðvik mjög á þann innbyrðis ágrein- ing sem rikjandi er innan Alþýðubandalagsins, og er nú svo komið að sjá má eldglæringarnar til- sýndar af átökunum þar. Það er óhætt að segja að mönnum hafi orðið bilt við þegar þeir kynntu sér innihald þeirra svokölluðu „málamiðlunartillagna” sem Alþýðuflokkurinn hefur nú lagt fram. Efni þeirra er ómengaður og „itrasti kratismi” eins og haft hefur verið eftir ein- um af leiðtogum Alþýðuflokksins. I raun og veru er það ekkert nema ósvifni þegar Alþýðuflokksmenn halda þvi fram að i þessum til- lögum sé reynt að stuðla að samkomulagi og mála- miðlun. Þetta sést best ef hinar nýju og harðsoðnu tillögur Alþýðuflokksins eru bornar saman við þær tillögur sem þeir lögðu fram i fyrri viðræðum um myndun vinstristjórnar undir forystu Steingrims Hermannssonar. Hinn 19. desember sl. lögðu full- trúar Alþýðuflokksins fram „úrdrátt úr tillögum Alþýðuflokksins”, og það er mikið pólitiskt djúp staðfest milli þeirra hugmynda og hinna sem lagðar voru fram i liðinni viku. Það er og verður hreinasta ráðgáta hversu ill sinnaskipti hafa átt sér stað i forystuliði Alþýðu- flokksins frá þvi i desember. Halda menn t.d að Alþýðuflokkurinn stefni að samstarfi við Framsóknarflokkinn þegar hann gerir tillögu um að leggja Byggðasjóð niður? í hvaða skyni leggur Alþýðuflokkurinn þá tillögu fyrir Framsóknarflokkinn að samvinnufélög fram- leiðanda i landinu verði svo gott sem bönnuð með þvi að settar verði reglur „þannig að eðlileg skil verði sett milli hagsmuna bænda og vinnslustöðva”, eins og það er orðað, vitandi að bændur eiga og reka vinnslustöðvarnar? Og halda einhverjir Alþýðuflokksmenn i raun og veru að öfgar þeirra i landbúnaðarmálum almennt séu „umræðugrundvöllur” um samstarf við Fram- sóknarflokkinn? í tillögum sinum hafa Framsóknarmenn lagt á það sérstaka áherslu að haft verði samráð við laun- þegasamtökin um mótun kjaramálastefnu. Nú leggur Alþýðuflokkurinn til að gengið verði hiklaust til verulegrar skerðingar á visitölubótum. Til hvers er slik tillaga lögð fram? Það var einsýnt að Framsóknarflokkurinn hlyti að hafna hinu nýja plaggi Alþýðuflokksins, enda bersýnilega að þvi stefnt. En með þvi eru Fram- sóknarmenn ekki að skella hurðum, heldur vilja þeir reyna það til þrautar hvort ekki er unnt að koma vitinu fyrir Alþýðuflokkinn og Alþýðubanda- lagið. JS Erlent yfirlit Ástæða til að efa dómgreind Carters Álit James Reston, fréttaskýranda New York Times Waldheim er ekki sammála Carter um aögeröir gegn íran. 1 meöfylgjandi grein eftir James Reston, sem nýlega birtist i New York Times, dregur hann I efa, aö refsiaö- geröir gegn tran komi aö gagni og styöst m.a. viö álit Waldheims aöairitara Sam- einuöu þjóöanna. Reston ef- ast einnig um ýmsar aörar fyrirætlanir Carters, þótt þær a.fli honum vinsælda heima fyrir. Eins og er, er svo aö sjá sem bandamenn okkar styðji aö- geröir Carters gegn Sovétrikj- unum og Iran, en viö ættum ekki að láta blekkjast. Það, sem þeir segja opinberlega, og það, sem þeir segja i kunningjahópi, er alls ekki það sama. Vissulega eru þeir æfir yfir töku bandarisku gislanna i Teheran og vopnaðri innrás Rússa I Afghanistan. Þess vegna taka þeir undir gagnaö- geröir Carters gegn Rússum og stjórnarvöldum I Teheran til skamms tíma, en þegar lengra er litið, draga þeir mjög i efa, al ályktanir Carters hafi verit réttar. Sennilega væri rangt aö gefa i skyn, aö allir meiri háttar bandamenn okkar séu sammála um þetta, en a.m.k. sumir þeirra láta I þaö skina, aö stefna stjórnarinnar i Washington gegn Iran sé orðin úrelt. Þeir halda þvi fram, að ef til vill sé ekki aðalógnunin gegn Banda- rikjunum og hinum frjálsa heimi fólgin i valdi ayatollans eða byltingarráðsins i íran til að halda gislunum, heldur sú hætta, að allt stjórnarfar i land- inu hrynji i rúst i þeirri ringul- reið, sem i kjölfarið mun fylgja, og þar með veitist Rússum tæki- færi til að ná yfirráðum I land- inu, en þeir eru nú á landamær- um Afghanistans og Austur- Irans og norðurlandamærum Sovétrikjanna og Irans. Afstaða Waldheims Aöalritari Sameinuðu þjóð- anna, Kurt Waldheim er ný- kominn frá Teheran. Siðan hefur hann verið að reyna að sannfæra Carter um þaö, að kröfur um refsiaðgerðir gegn ayatollanum muni ekki verða til þess að frelsa gislana. Þær muni heldur verða til þess að æsa upp herskáa múhameðstrú- armenn, kljúfa Iran i' veikbyggt sambandariki, þar serh hver höndin verður upp á móti ann- arri.og þar með verði tran auð- veld bráð Rússa. Það er augljóst, að Carter er ekki á sama máli. Hans hugsun snýst fyrst og fremst um það vandamál, hvernig frelsa megi gislana sem fyrst, og hvaöa af- leiöingar það hafi fyrir hann sjálfan i stjórnmálaheiminum, hvort honum tekst þaö eöa ekki. A meðan hann heldur þessu skammtimasjónarmiði til streitu, hafa vinsældir hans heima fyrir stóraukist sam- kvæmt skoðanakönnunum, á sama tima og bandamenn okkar hafa óskað honum góðs gengis i þessari baráttu, en velta fyrir sér hvort hann hafi valiö rétt sjónarmiö. Innrás Rússa i Afghanistan gefur lika tilefni til aö velta vöngum yfir dómgreind hans, og I sambandi viö hana, er jafn- vel alvarlegri ágreiningur milli ráðamanna I Washington og bandamanna, þó að hljóðlega fari. Carter-stjórnin, sem hafði trúað öllu fögru um stuðning Moskvu við slökunarstefnuna siöastliðin 3 ár, er nú reiöubúin að trúa öllu þvi versta. Carter hefur túlkað innrás Rússa i Afghanistan sem meiri háttar árásarherferð, sem stefnir að þvi að ná yfirráðum yfir olíu- lindum og siglingaleiðum Mið- austurlanda. Og þar með sé hún möguleg ógnun viö oliustreymi til iðnvædda heimsins og þess vegna alvarlegasta kreppan i hcimspólitikinni siðan i siðari heimsstyrjöldinni. Bandamenn okkar geta ekki afneitaö þessari skoðun, en þeir hafa ekki raunverulega trú á henni. Þeir hafa alltaf gengið út frá þvi sem visu, að Moskva gæti lagt Afghanistan undir sig, hvenær sem er — i rauninni urðu þeir undrandi á þvi, að Rússar skyldu þurfa að senda 80.000 manna her til Kabúl til að sýna fram 'á þetta. Bandamenn okkar taka það ekki sem sjálfsagðan hlut, aö aðgerö Rússa hafi eingöngu veriö til að verja sin eigin landamæri, heldur óttist þeir, aö ringulreiö i nafni múhameös- trúar eigi eftir að breiðast út til Afghanistan. Þeir hafi þvl á- kveðið, að ekki einungis vildu þeir koma i veg fyrir það, heldur lika koma sér upp að- stööu á landamærum Afghanist- ans og Irans til að geta gripiö fljótlega i taumana, ef stjórn- leysi virtist vera að komast á. Þaö er engin leið aö færa sönnur á eða afsanna, hvað vakir fyrir Rússum. Carter ætl- ar þeim allt hið versta og póli- tisk atburöarás styöur þessa skoöun hans. En bandamenn okkar i Sameinuðu þjóöunum, og jafnvel Waldheim aðalritari, hallast aö þvl, að ekki sé rétt að draga þá ályktun, að þeir séu til ills eins visir i sambandi við at- burðina i Iran og Afghanistan. Waldheim leggur til, aö viö sýnum þolinmæði, og lítum ekki á íran og Afghanistan sem hættuleg og stefnúmarkandi vandamál 1 heimsmálunum. Þá kunni svo að fara, að ráðamenn I Teheran gefi loks gislunum frelsi og geri sér grein fyrir hættunni á meiri háttar átökum milli stjórnarvalda i Washing- ton og Moskvu i Miðausturlönd- um. Waldheim minnist þess, þeg- ar Rússar geröu innrás i Tékkó- slóvakiu. Þá var mikill ótti á Vesturlöndum um, að Rauði herinn kynni að halda áfram ferð sinni yfir Austurriki, sem er hlutlaust, eða yfir Ungverja- land inn i Júgóslaviu til að ná yfirráðum yfir höfnum og fá þar með aðgang að innhöfum og Miðjarðarhafinu sjálfu. Striðshætta Á þeim tima var Waldheim utanrikisráðherra Austurrikis. Hann hélt þvi fram, að Rússar myndu ekki hætta á heimsstyrj- öld þá með þvi aö halda yfir Júgóslaviu til hafs. A sama hátt heldur hann þvi fram nú, að það sé rangt að trúa, aö leiðtogarnir i Moskvu hafi hrundið af stað meiri háttar árásarherferð til að ná yfirráðum i íran og ryöja sér braut yfir Afghanistan og Iran til oliusvæðanna og sigl- ingaleiðanna i Persaflóa. Næstum þvi allt, sem Carter hefur aöhafst siðan atburöarás- in I tran og Afghanistan hófst, hefur oröið honum til fram- dráttar I bandarlskum stjórn- málum. En sú pólitik, sem gefur stundarávinning, er ekki endi- lega sú sama og best reynist, þegar til lengdar lætur. Carter getur fariö fram á að- gerðir gegn Iran, en Japanir vilja ekki taka þátt i þeim. Cart- er fer fram á kornsölubann, en Argentina vill ekki vera með i leiknum. Hvað varðar útflutn- ingsbann á nýtiskutæknivæö- ingu, styðja aörar þjóðir sjónar- mið hans, en afneita aöferöum hans. Enginn ætti að láta blekkjast af timabundnum stuðningsyfir- lýsingum við refsiaðgerðir gegn Irönum og Rússum frá banda- mönnum okkar. Þær verða kannski til að styrkja Carter i prófkjörum þeim til forseta- framboös, sem eru að hefjast, en þegar til kastanna kemur, er augljóst mál, að bandamenn okkar munu fyrst og fremst hafa eigin efnahagslega hags- muni i huga, jafnvel þó aö það hafi I för með sér að leiða hjá sér áskoranir Carters um sið- ferðilegar refsingar fyrir póli- tiskan ójöfnuö i Teheran og Kabúl. Þýtt. K.L.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.