Fréttablaðið - 25.04.2007, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 25.04.2007, Blaðsíða 41
Aðdáendur Bjarkar Guð- mundsdóttur verða í lykilhlutverki við gerð myndbands við lagið Innocence. Lagið er það fyrsta af nýrri plötu Bjarkar, Volta, sem gert verður tónlistarmynd- band við. Á aðdáendasíðunni bjork.com er efnt til samkeppni, þar sem fólki gefst færi á að gera myndband við lagið. Samkvæmt heimasíð- unni er hugmyndin komin frá Björk sjálfri, og það verður jafn- framt hún sem velur besta myndbandið. Höf- undur þess fær svo að vinna með söngkonunni við að leggja lokahönd á verkið og feta þar með í fótspor ekki óþekktari manna en Spike Jonze og Michel Gondry. Á síðunni má nálgast myndir af listaverkinu sem Björk klæð- ist á umslagi plötunnar. Þar má einnig finna hlekk á lagið sjálft, sem og texta. Engar reglur gilda um myndbandið aðrar en þær að því þarf að skila í Quicktime skjali, og að það þarf að hafa bor- ist í byrjun júlí. Sigurvegarinn og söngkonan munu hins vegar leiða saman hesta sína í byrjun ágúst. Nánari upplýsingar fást með því að skrá sig á póstlista keppninnar. Samkeppni um nýtt myndband Vefritið GetReykjavík stendur fyrir hæfileikakeppni fyrir upp- rennandi tónlistarfólk í samstarfi við Ölgerð Egils Skallagríms- sonar og Reykjavík FM 30. apríl næstkomandi. Keppnin sjálf fer fram í Iðnó, en áheyrnarprufur verða haldnar á Barnum í kvöld og annað kvöld. Prufurnar eru opnar fólki á öllum aldri, en skil- yrði fyrir þátttöku er að keppend- ur hafi ekki gefið út tónlist áður, að netinu undanskildu. „Það eru náttúrulega til nokkr- ar tónlistarkeppnir, eins og bara Músíktilraunir, en það eru allt- af einhver aldurstakmörk,“ sagði Carmen Jóhannsdóttir, ritstýra GetReykjavík. „Það er fullt af fólki í bænum sem hefur ekki gefið neitt út nema á netinu, til dæmis á Myspace, sem hefur ótrúlega mikið „potential“. Við viljum bara fá sem flesta til að koma,“ sagði hún. GetReykjavík velur átta til tíu keppendur úr áheyrnarprufun- um sem fá að stíga á svið í Iðnó. Það er til mikils að vinna fyrir tónlistarfólk, því í fyrstu verðlaun er útgáfusamningur og stúdíótími í boði Cod Music. Í önnur verð- laun er Logic Pro upptökuforrit frá Apple. Áheyrnarprufur fara fram á milli 18 og 23 í kvöld og annað kvöld. Keppnin í Iðnó, mánudag- inn 30. apríl, hefst klukkan 22. Útgáfusamningur í verðlaun Rithöfundurinn Óttar Mart- in Norðfjörð hefur sent frá sér nýja bók. Í bókinni segir frá afmælisveislu Jóns Ás- geirs Jóhannessonar at- hafnamanns. „Bókin er um það þegar Jón Ás- geir heldur upp á afmælið sitt. Í sögunni fær hann Michael Jack- son til að spila. Hann býður svo Davíð Oddssyni, Brad Pitt og fleira frægu fólki og brallar svo eitthvað með Kára Stefánssyni til að slá endanlega út allar fyrri veislur,“ segir Óttar Martin Norðfjörð sem var að gefa út sína fyrstu teikni- myndasögu, Jón Ásgeir og afmæl- isveislan. „Hann ætlar að nota tækifær- ið og hefna sín á Davíð í veislunni en Davíð ætlar líka að gera það þannig að þetta verður eins og í Shakespeare-leikriti með tvær andstæðar fylkingar. Jón Ásgeir hefnir sín og Davíð hefnir sín á móti, svo endar þetta auðvitað á grand finale í lokin,“ segir Óttar. „Kveikjan að bókinni voru allir þessir ríku karlar sem hafa verið að halda afmælisveislurnar sínar undanfarið og hvernig þeir virð- ast alltaf vera að reyna að toppa hver annan. Halda dýr- ari veislur og fá fræg- ari skemmtikrafta. Út frá þessu fór ég að spá í hvernig það yrði eiginlega þegar Jón Ásgeir héldi upp á afmælið sitt en hann verður fertugur á næsta ári. Hann verð- ur augljóslega að toppa alla hina.“ Óttar hefur áður gefið út skáld- sögu, ljóða- bæk- ur og tveggja blaðsíðna metsölu„bók- ina“ Hannes – Nóttin er blá, mamma, um uppvaxtarár Hann- esar Hólmsteins Gissurarsonar sem vakti mikla athygli fyrir síð- ustu jól. Þetta er fyrsta teiknimynda- saga Óttars. „Ég datt niður á teiknimyndaformið þegar ég var að velta því fyrir mér hvern- ig væri best að koma sögunni frá mér. Það er svo auðvelt að nota teiknimyndir til að fara alla leið. Jón Ásgeir og pabbi hans búa til að mynda í kastala og eru með kór- ónur og Kári Stefánsson er orðinn brjálaður vísindamaður sem býr í geimstöð og er búinn að skapa alls konar óskapnað úr þekktu íslensku fólki. Eftir að hafa prófað mig áfram fann ég út að besta leiðin væri að klippa út hausinn af fólkinu og teikna svo restina.“ ...Á STÆRÐ VIÐ HNETU ! DIANE KEATON MANDY MOORE Háskólabíó ANNAR ÞESSARA TVEGGJA HEFUR HEILA.... Saga öflugustu leyniþjónustu fyrr og síðar, CIA. Úrvalslið leikara í magnaðri kvikmynd undir tryggri leikstjórn Robert DeNiro / KRINGLUNNI / KEFLAVÍK/ ÁLFABAKKA / AKUREYRI DIGITAL-3D DIGITAL-3D MÖGNUÐ SPENNUMYND FRÁ LEIKSTJÓRA TRAINING DAY Börn sjá meira en fullorðnir gera sér grein fyrir! HVER ÞARF UPPHÆÐIN AÐ VERA SVO ÞÚ SVÍKIR ÞJÓÐ ÞÍNA... SANNSÖGULEG MYND UM STÆRSTA HNEYKSLISMÁL Í SÖGU FBI SHOOTER kl. 8 - 10:20 B.i. 16 HOT FUZZ kl. 8 - 10:20 B.i. 16 BECAUSE I SAID SO kl. 8 Leyfð MEET THE ROBINSSON kl 6 Leyfð MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 6 Leyfð THE MESSENGERS kl. 8 B.i.16 MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 Leyfð ROBINSON FJ... M/- ÍSL TAL kl. 3:40 - 5:50 Leyfð WILD HOGS kl. 5:50 - 8 - 10:20 b.i 7 SHOOTER kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i.16 SHOOTER VIP kl. 5:30 - 8 - 10:40 THE GOOD SHEPERD kl. 8 - 10:40 B.i.12 THE MESSENGERS kl. 6 - 8 - 10:20 B.i.16 BREACH kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.12 THE MESSENGERS kl. 6 - 8 - 10:20 B.i.16 ROBINSON FJ... M/- ÍSL TAL kl. 6 Leyfð MEET THE R... M/- ENSKU kl. 8:10 Leyfð www.SAMbio.is BECAUSE I SAID SO kl. 5:50 - 8:10 Leyfð MRS POTTER Engin sýning í dag Leyfð 300. kl.10:30 B.i.16 BREACH kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i.12 TÍMAMÓT kl. 6 - 8 - 10 Leyfð THE GOOD SHEPERD kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i.12 SV MBL MMJ KVIKMYNDIR.COM “Fyrsti sumarsmellurinn í ár”“Líflegur og hugvitssa- mlegur spennutryllir” SV MBL HJ MBL ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is Rafstöðvar Bensín- og díselrafstöðvar í stærðum 2,5 kW -4,2 kW. HAGSTÆTT VERÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.