Tíminn - 02.04.1980, Blaðsíða 1

Tíminn - 02.04.1980, Blaðsíða 1
^Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsimar 86387 & 86392 Stjórn Verkfræðingafélags íslands: Verkfræðingar „stræki” á Kópavog HEI — Aöalstjórn Verk- fræöingafélags islands sam- þykkti á fundi sinum 17. mars aö beina þeirri áksorun tii félags- manna, aö þeir ráöi sig ekki til starfa eöa sæki um stööu hjá Kópavogskaupstaö án samráös viö stjórn félagsins. Tilefni þessarar samþykktar er, aö bæjarstjóri Kópavogs hefur i engu sinnt bréfi er stjórn Verkfræöingafélagsins sendi bæjarstjórninni 1. mars s.l., þar sem stjórn VFÍ lét i ljós van- þóknun á meöhöndlun bæjar- ráös Kópavogs á umsókn félagsmanns úr VFl um stööu deildarverkfræöings hjá kaupstaönum. En sú staöa haföi veriö auglýst 2. des. s.l. og um- sækjanda siöan hafnaö af bæjarráöi meö þeim viöbárum m.a. aö bæjarfélagiö heföi ekki efniá aö ráöa I stööuna um sinn. í bréfi VFI til bæjarstjórnar- innar er sagt, aö vinnubrögö opinbers aöila, sem veröi til þess aö kasta rýrö á hæfni manns og jafnvel stéttar, séu vissulega ámælisverö og jafn- framt til þess fallin aö rýra álit þeirra stjórnenda, sem slikum vinnubrögöum beita. Meöferö bæjarráös beri tvlmælalausan keim af valdbeitingu án ábyrgöar. Þvi óskaöi stjórn VFl eftir aö Kópavogskaupstaöur endursköaöi afstööu sína i þessu máli. En bréfi þessu, sem undirritaö er af formanni og framkvæmdastjóra VFl, þeim Agli Skúla Ingibergssyni og Hinrik Guömundssyni, hefur, sem fyrr segir ekki veriösinnt af stjórn Kópavogskaupstaöar. Eins og viö sögöum frá fyrir skömmu var geysimikil veiöi I fyrri viku á Grundarfiröi I net og rak hver metafladagurinn annan fram aö netaveiöibanninu sl. iaugardag. Frf var gefiö f skólanum til þess aö bjarga afianum og hér sjáum viö ungan Grundfiröing, Rúnar aö nafni, sem er 14 ára gamall, klkja I námsbækurnar f fiskmóttökunni, þegar stund gefst á millistriöa. (Ljósm. Arie Lieberman) Takast samn ingar um kaup á I hvammsland i’ífu- i? Sjá nánar i Suð-Vesturlandsblaði bls. 9-12 Stjórnarflokkarnir breyta orku j öf nunarf rum varpinu: Söluskattur hækkar um U% — verður ekki afgreitt fyrir páska JSG — Stjórnarflokkarnir komu sér I gær saman um aö breyta frumvarpi rikisstjórnarinnar um orkujöfnunargjald. Náöist sam- komulag um aö gjaldiö næmi ekki tveimur söluskattsstigum, heldur 1 1/2%, enda lágu fyrir nýir út- reikningar um þær tekjur sem af gjaldinu fengjust á þessu ári. i frumvarpinu var gert ráö fyrir aö tvö söluskattsstig gæfu 7 mill- jaröa þaö sem eftir er ársins, en nú er taliö liklegra að þau gæfu 8,2 milljaröa. Hálft annaö sölu- skattsstig er hins vegar taliö gefa 6 milljaröa tekjur. Af þessum 6 milljöröum er gert ráö fyrir aö 4 milljarðar fari beint til greiöslu oliustyrks, 500 milljónir renni til orkusparandi verkefna, en 1500 milljónir renni I rlkissjóð til styrktar stööu hans. Nokkur ágreiningur kom I gær og fyrradag upp innan stjórnar- flokkanna um orkujöfnunarfrum- varp rlkisstjórnarinnar. Töldu sumir þingmenn stjórnarflokk- anna of langt gengiö meö að leggja á tvö söluskattsstig til orkujöfnunarinnar, enda var þá gert ráö fyrir aö stór hluti tekn- anna rynni til annarra aögeröa en þeirra sem varöa jöfnun húsahit- unarkostnaöar. óttuöust nokkrir þingmenn áhrif söluskattshækk- unarinnar á vlsitölu og laun, og einnig á fyrirliggjandi kjara- samninga. Þessi uppákoma með orkujöfn- unarfrumvarpiö stefndi af- greiöslu mála fyrir páskaleyfi I nokkra tvisýnu, og var á timabili ekki séö hvaö yröi um fjárlaga- frumvarpiö, þar sem aöeins átti eftir aö fara gegnum þriðju um- ræöu. Gera þurfti breytingar á fjárlagafrumvarpinu til sam- ræmis viö breytingar á tekjum af söluskatti. Þegar samkomulag haföináöst um breytingar á orku- frumvarpinu, og séö var aö þaö nyti öruggs stuönings i þinginu, þá gat meirihluti fjárveitinga- nefndar lagt til viöeigandi breyt- ingar á fjárlagafrumvarpinu. Meö þessum breytingum veröur fjárlagafrumvarpiö afgreitt, og þaö þó orkufrumvarpiö biöi, enda munu mörg fordæmi fyrir aö tekjuöflunarfrumvörp sem liggja óafgreidd fyrir Alþingi, séu tekin meö óbeinum hætti inn I fjárlög. Engar llkur eru taldar á að orkujöfnunarfrumvarpiö veröi afgreitt fyrir páska. Reyndar munu engin þingmál utan fjár- iaga hljóta afgreiöslu, en hug- myndir höföu veriö uppi um aö afgreiöa einnig ollugjald til fiski- skipa, og frumvarp um skatt- stiga. Fjárlögin veröa afgreidd formlega I dag meö atkvæöa- greiðslu. Nýjar reglur um gjaldeyrisviðskipti: Ferðagjaldeyrir hækkar í 430 þús. HEI —í gær tóku gildi nýjar regl- ur um gjaldeyrisviöskipti, sem veita gjaldeyrisbönkunum víö- tækar heimildir til afgreiðslu allra venjulegra yfirfærslna. En Samstarfsnefnd um gjaldeyris- mái —sem skipuö var í jan. s.l. — fjallar siöan um erindi sem fara út fyrir heimildir bankanna og berast henni fyrir milligöngu þeirra. Hinsvegar leggst Gjald- eyrisdeild bankanna niöur, en hana þekkja sennilega fiestir vegna uinsókna um feröamanna- gjaldeyri. 1 frétt frá viöskiptaráöuneytinu segir, aö vonir standi til að með þessu móti fái gjaldeyriserindi skjótari afgreiöslu en veriö hefur. Bankarnir fá viöari heimildir til afgreiðslu á þjónustu — og fjár- magnsgreiðslum, enda liggi f»umrit skjala, reikninga, far- seöla og annarra heimilda fyrir. Tekiö er fram aö feröagjaldeyrir miðist viö jafnviröi 1000 Banda- rikjadollara, eöa nú tæp 430 þús. Isl. krónur. En 10% sérstakt gjald af þeim gjaldeyri er óbreytt. Ráöuneytið vill vekja athygli á reglugerð og auglýsingum um þessi mál, sem veriö er aö birta um þessar mundir en þaö eru: Reglugerö um innflutnings- og gjaldeyrisleyfi og auglýsingar um greiöslufrest, um gjaldeyris- viðskipti viö erlenda feröamenn og um yfirfærslu vinnulauna til útlendinga. Aö ööru leyti er visaö á gjaldeyrisafgreiöslur Lands- bankans og Útvegsbankans um alla daglega framkvæmd.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.