Fréttablaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 90
Ánægjan kraumaði á Kjarvals-
stöðum á laugardaginn þegar
hönnunarsýningin Magma/Kvika
var opnuð. Sýningin hefur sam-
tímahönnun að viðfangsefni sínu
og er ein sú viðamesta sem sett
hefur verið upp. Um áttatíu hönn-
uðir sýna verk sín á Kjarvalsstöð-
um og miðað við undirtektir á
laugardag var ekki annað að sjá en
að sýningarinnar hefði verið beðið
með eftirvæntingu.
Kraftur á Kjarvalsstöðum
Meistari Magnús – Magnús Þorlákur
Lúðvíksson – var sá yngsti sem tók
þátt í Meistaranum, sigraði og fór frá
sem sigurvegari með fimm milljónir í
verðlaun.
„Ég var búinn að lofa því áður en Meistarinn
hófst og ég myndi vinna, að gefa öllum, en ég
er að fara í útskriftarferð til Tenerife með MR,
fyrsta bjórinn í ferðinni. Ég verð að standa við
það og þetta er náttúrlega tóm vitleysa,“ segir
Magnús Þorlákur Lúðvíksson og vonar að Logi
verði ánægður með það. Magnús hafði sigur í
Meistaranum. Hann sigraði Pálma Óskarsson í
æsispennandi viðureign í þætti sem sýndur var
í gærkvöldi.
Magnús Þorlákur, sem hér eftir verður varla
kallaður annað en Meistari Magnús, en sæmdar-
heitið fær hann til eignar í ár, hafði að auki í sig-
urlaun heilar fimm milljónir króna. Stóra spurn-
ingin er náttúrlega sú hvað hann ætli að gera við
peninginn en Logi Bergmann Eiðsson hefur látið
þess svo getið í viðtali við Fréttablaðið að hann
vonaðist til þess að sigurvegarinn eyddi verð-
launafénu í tóma vitleysu. Honum verður ekki að
ósk sinni, fyrir utan bjór á línuna fyrir útskrift-
arárgang MR, því Magnús er skynsamur mennt-
skælingur og hyggst leggja megnið fyrir. Enda á
þeim aldri að fyrir dyrum standa á næstu árum
ýmsar fjárfestingar. En ekkert er fyrirliggjandi
í þeim efnum. En Magnús segir þetta gefa sér
frelsi til að gera það sem sig langi til að gera.
Framtíðin er óráðin enda liggur ekkert á með að
ákveða eitt né neitt í þeim efnum.
Aðspurður sagðist hann reikna með því, eftir
sýningu úrslitaþáttarins, að einhverjir yrðu til
að sníkja af sér pening. Eða biðja um lán. Og því
ágætt að binda sem mest í banka.
Magnús lýkur stúdentsprófi frá MR á næsta
ári en hann er einnig í sigurliði skólans í Gettu
betur.
„Ég vil nú ekki orða það svo að ég sé spurn-
ingaleikjaóður en ég hef gaman af þessu og þetta
hefur gefist mér vel hingað til. En ætli maður
leggi þetta ekki á hilluna þegar maður útskrif-
ast úr menntaskóla. Reikna ekki með að ég verði
endalaust í spurningakeppnum en við sjáum til,“
segir Magnús og hlær við aðspurður hvort það að
vera spurningagarpur gefist ekki vel á kvenna-
fari en Magnús er ólofaður. „Eigum við ekki bara
að segja það.“
Magnús er yngsti keppandinn sem tekið hefur
þátt í Meistaranum. Og þar með langyngsti sig-
urvegarinn, sem er met sem varla verður sleg-
ið. Hann hafði aðeins verið 18 ára í tvær vikur
þegar hann fór í forprófið fyrir Meistarann en
aldurstakmark er einmitt 18 ár. Á leið sinni að
Meistara-titlinum lagði Magnús Pálma, Helga
Árnason skólastjóra (föður sigurvegarans frá í
fyrra), Björn Guðbrand Jónsson líffræðing og
Baldvin Má Baldvinsson sem einnig er Gettu
betur-strákur.
Að sögn sigurvegarans voru allir mótherjar
skæðir en Pálmi sýnu erfiðastur.
„Það leit ekki út fyrir að ég myndi hafa þetta
fyrr en í lokin. Ég lenti upp við vegg og var í
óþægilegri stöðu. Lenti mest undir níu stig en
hafði þetta á síðustu spurningunni.“ Þar var
spurt um bernskubrek David Cameron, for-
manns breska íhaldsflokksins, en hann hafði
þá reykt marijúana. Magnús segir oft talað um
hversu skaðlegt það efni sé en ekki hafi svo
reynst í þessu tilfelli hvað sig varði.
Magnús er búsettur í Vesturbænum í Reykja-
vík, að sögn örverpi en hann á tvö eldri systkini
í kringum þrjátíu ára aldurinn en foreldrar eru
Lúðvík Sigurður Georgsson, sem starfar fyrir
Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna, og Sonja
Garðarsdóttir, sem starfar hjá Heilsuverndar-
miðstöðinni.
„Og ef þú vilt spyrja mig hvað ég ætli að gera í
sumar þá svara ég því að ég er ekki kominn með
vinnu enn. Og auglýsi hér með eftir henni. Jújú,
ég hef kannski alveg efni á því að gera ekki neitt
en það hlýtur að vera leiðigjarnt að flatmaga í
allt sumar,“ segir Meistari Magnús.
Dre
gi›
í
ásk
rift
arle
ikn
um
á la
uga
rda
ginn