Tíminn - 01.10.1980, Blaðsíða 5

Tíminn - 01.10.1980, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 1. október .1980. 5 Útgáfubækur Setbergs 1980 AB — Það má vist segja að það verði eitthvað fyrir alla á útgáfu- lista Setbergs nú i ár. 1 bókinni „99 ár” eftir Gylfa Gröndal segir Jóhanna Egilsdótt- ir ævisögu sina. Þetta er hvort tveggja i senn: persónusaga vinnumanns og vinnukonu, sem komu fótgangandi til Reykjavik- ur árið 1904 og byrjuðu að búa með tvær hendur tómar — og sag- an af fyrstu baráttu verkalýðs- hreyfingarinnar. „Jarlinn af Sigtúnum og fleira fólk”erviðtalsbókeftir Guðmund Danielsson. Fyrsta bókin i visna- og ljóða- safni, sem Auðunn Bragi Sveins-- son skólastjóri safnar og velur, kemur nú út. Heitir bókin „1 fjór- um linum”, og hefur hún að geyma um 800 erindi stökunnar eftir u.þ.b. I50höfunda hvarvetna af landinu. Fyrr á árinu komu út tvær bæk- ur, ný matreiðslubók sem heitir „Nú bökum við” Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir húsmæðrakennari þýddi hana og staðfærði, og þá kom út i nýrri útgáfu „Fyrsta orðabókin min”, bók i stóru broti og rikulega myndskreytt, fyrir yngstu börnin. Freysteinn Gunnarsson skólastjóri annaðist útgáfu bókarinnar. tJt kemur 12. bókin eftir Björn J. Blöndal og nefnist hún „Sagnir og sögur”. „Barnið, vöxtur þess og þroski” er handhæg bók með al- mennri fræðslu fyrir foreldra um vöxt, þroska og uppeldi barna. Þórir S. Guðbergsson félagsráð- gjafi annast útgáfu bókarinnar. Tvær skáldsögur af léttara tag- inu koma út hjá forlaginu, „Astin vaknar” eftir Anne Mather, og þýðandi er Guðrún Guðmunds- dóttir, og bók eftir hinn vinsæla ameriska kvenrithöfund Danielle Steel, en hún nefnist „Sumar- auki” og er þýdd af Arngrimi Thorlacius. Þá hefur Simon Sigurjónsson barþjónn i Naustinu annast út- gáfu bókarinnar „300 drykkir”, en þar er að finna hvers konar áfenga og óáfenga.alþjóðlega og islenska verðlaunadrykki. Fyrsta bók Torfa Þorsteinsson- ar bónda i Haga, Höfn, Horna- firði, heitir „Töfrar liðins tima”, og eru þetta 20 frásagnarþættir frá liðinni tið I Austur-Skaftafells- sýslu og næstu sýslum. Ný matreiðslubók, sem kemur út seinni hluta októbermánaðar heitir „Alltaf eitthvað nýtt”, en Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir þýddi hana, breytti staöfærði og prófaöi réttina. Nú kemur önnur bókin i flokki Nóbelshöfunda og er hún eftir Isaac Bashevis Singer. Sögusvið- ið er Pólland á fyrstu áratugum aldarinnar. Þessa dagana sendir Setberg frá sér fyrstu 3 bækurnar i nýjum flokki teiknimyndasagna um Steina sterka.-sterkasta strák i heimi. Bækur þessar eru eftir Peyo, og heita „Steini sterki og Bjössi frændi” (nr. 1) , „Sirkusævintýrið” (nr.2), og „Steini sterki vinnur 12 afrek” (nr.3), en þýðandi bókanna er Vilborg Sigurðardóttir kennari. Aðrar barna- og unglingabækur eru „Húsið -á sléttunni” eftir Laura Ingalls Wilder, þýdd af Herborgu Friðjónsdóttur, ,,Ég vil eignast barnið” norsk unglinga- Hafa skal það er sannara reynist 1 frétt varðandi vinnugalla sem komið hafa fram i lögn Hitaveitu Borgarness, var sagt að tveir aðalverktakar að verkinu hafi verið Borgarverk h.f. og Miðfell hf. Blaðinu hefur nú borist vitneskja um að heimildarmanni hafi orðið nokkuð á i messunni. Það var Véltækni h.f. er var ann- ar aðalverktaka Hitaveitunnar, en Miðfell hefur þar vist hvergi nærri komið. bók i þýðingu Vilborgar Sigurðar- dóttur og ný útgáfa bókarinnar „Svona erum við” i þýðingu Ornólfs Thorlacius. Að lokum má nefna það að á þessu hausti mun Setberg gefa út 14 smábækur fyrir yngstu börnin. 5 titlar eru um Mikka mús Andrés önd og þá félaga, aðrir fimm um drenginn Mógli og siðustu fjórir eru þekkt Grimms- ævintýri: „Oskubuska”, „Stig- vélakötturinn”, „Rauðhetta” og „Hans og Gréta”. Hjónin Brynhildur H Jóhannsdóttir og Albert Guðmundsson alþingUmaðuITaf^enHistasafni lU9r53°rgara Kjarva,SStöðum verk eftir Geríii Helgadóttur, uLið úr steindu f.eH og steypíu fé ■ Hefur þú gert þér grein fyrir þMí... að veró vöru sem liggur á lager í verslun veróurfljótt „gamalt verö“. Þegar varan síöan selst á gamla veróinu og endurnýja þarf lagerinn er nýja varan dýrari í inn- kaupi. Þannig fæst aöeins hluti nýrrar vöru fyrir andviröi þeirrar eldri. Smátt og smátt tæmist slíkur lager. Ef viö viljum þjónustu og vöru- úrval í versluninni verða aö gilda sömu lögmál þar og annars- staöar í þjóðfélaginu. Raunviröi vöru er sjálfsagt, líka í versluninni. Búum beturað versluninni. Það er okkar hagur. viðskipti &verzlun

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.