Tíminn - 14.02.1981, Blaðsíða 16
Gagnkvæmt
tryggingafélag
Nútíma búskapur þarfnast
BAUER
haugsugu
Guðbjörn Guðjónsson
heildverslun, Kornagarði
Simi 85677
Laugardagur 14. febrúar 1981
m jm ■■ * wm
Landbúnaöarráöstefna Framsóknarflokksins i gær og dag:
Landbúnaður og atvinnulíf í sveitum
HEI— „Þessi mál eru mér kær.
Ég hafði mikia ánægju af sam-
starfi minu við bændur og
forystumenn þeirra”, sagði
Steingrimur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins
ma. I ávarpsoröum minum við
setningu ráðstefnu um landbún-
aöinn og atvinnulif i sveitum er
hófst i gær. Ráðstefnan er hald-
in á vegum þingflokks og
framkvæmdastjórnar Fram-
sóknarflokksins.
„bað er meira en timabært aö
halda svona ráðstefnu til að
glöggva okkur á stöðu landbún-
aðarmálanna. Þótt það sé
nauðsynlegt hverjum
stjórnmálaflokki aö setja fram
stefnu i hinum ýmsu málum er
ekki siður nauðsynlegt að benda
á leiðir til að ná þeim stefnu-
miðum,” sagði Stefán Valgeirs-
son, sem tilnefndur var tundar-
stjóri r á ðs te f n u n n a r .
F ram s öguerin di um
framleiðslu og sölu á kjöti flutti
Jón R. Björnsson, um mjólkur-
framleiðsluna Guðmundur
Stefánsson og Hákon Sigur-
grimsson um Stööu landbúnað-
arins. Framsöguerindi um
fjölgun atvinnutækifæra i sveit-
um fluttu: Sveinn Hallgrimsson
um feldfjárrækt, Aðalbjörn
Benediktsson og Bjarni Einars-
son um iðnaö I sveitum,
Hallgrimur Indriðason um
skógbúskap og Arni G. Péturs-
son um nýtingu hlunninda. Ráð-
stefnan var fjölsótt i gær, þrátt
fyrir að eitthvað af ráöstefnu-
gestum hafði þá ekki komist á
staðinn sökum erfiðra
samgangna.
Ráðstefnunni verður fram
haldið i dag. Þá ræða Brynjólfur
Sæmundsson og Valgerður
Sverrisdóttir um loðdýrarækt,
Guðbjartur Gunnarsson, Guðni
AgUstsson og Jónas Jónsson
ræða um framtið landbúnaðar-
ins og auk þess veröa umræöur.
Landbúnaðarráðstefna Framsóknarflokksins er fjölsótt. Hér sést hiuti ráðstefnugesta hlýöa á framsöguræður. TimamyndG.E.
Frá skirnarathöfninni
Ný Skaftá
Föstudaginn 13. febrúar s.l.
bættist nýtt skip i islenska versl-
unarskipaflotann, en þá var fjöl-
hæfnisskipinu M/V Borre gefið
nafnið M/S Skaftá og islenski fán-
inn dreginn um hún I skipinu.
Er þetta seinna af þéim
tveimur fjölhæfniskipum sem
Hafskip hf. hefur nú fest kaup á
frá Fred Olsen linunni i Norégi,
en fyrra skipið M/S Selá (áður
Bomma) var formlega yfirtekið i
ágúst s.l. Samtals kaupverð skip-
anna var 4.700.000.- bandarikja-
dalir.
Skipin sem eru 2828 tonn
(dauðvikt) eru búin ópnanlegum
skut, tveimur stórum vörulúgum
á hlið og færanlegum millidekkj-
um. Möguleikar á hleðslunýtingu
eru þvi mjög góðir og afgreiðslu-
hraði vegna lestunar og losunar
mun meiri en á hinum eldri, hefð-
bundnu skipum.
M/S Skaftá er annað skip
félagsins sem ber það nafn, en
M/S Skaftá fyrri var seld
griskum kaupendum nýverið og
afhent i Hamborg um miðjan
janúar. Var söluverð þess skips
3.8 milljónir danskra króna.
Skipstjórihinnar nýju Skaftár
er Sveinn Valdimarsson og var
skipið formlega móttekið af
honum auk fulltrúum útgerðar-
innar þeim Alberti Guðmunds-
syni, stjórnarformanni og fram-
kvæmdastjórum félagsins þeim
Björgólfi Guðmundssyni og
Ragnari Kjartanssyni.
Arekstrar, árekstrar
AM — Ófærðin á götum Reykja-
vikur dregur dilk á eftir sér, þvi I
gær voru árekstrar orðnir 36 kl.
18,þegar viðræddum við lögreglu,
frá þvi kl. 6 um morguninn. Um-
ferð gekk mjög hægt vegna
ástands gatnanna, en þykkir
svellbunkar lágu á götum og för I
þeim viða svo djúp aö bilar kom-
ust varla upp úr þeim.
Verðlagsstofnun hefur útgáfu „Verðkynningar”:
Reynt að örva
verðskyn neytenda
HEI — Markmiðiö með útgáfu
þessa biaðs er m.a. að örva verð-
skyn neytenda og gera þeim betur
kleift að sýna aðgætni i innkaup-
um, segir I frétt frá Verölags-
stofnun þar sem kynnt er útgáfa
1. tölublaðs „Verðkynningar”
sem stofnunin hefur nu útgáfu á.
En aukin fjárveiting rikissjóös
samkvæmt efnahagsáætlun rikis-
stjórnarinnar geri þetta kleift.
I þessu fyrsta tölublaði eru
birtar niðurstöður af heimsókn
verðgæslumanna stofnunarinnar
i 19 bilaumboð, þar sem kannað
var verð 48 varahluta. Fram
kemur að verulegur verðmunur
er á varahlutum i hinar ýmsu teg-
undir bifreiða. Þar skiptir gæða-
munur að sjálfsögðu máli, en ekki
er lagt mat á hann i könnuninni.
1 verðkynningu segir, að vara-
hlutirnir i hinar ýmsu tegundir
bila séu að meginhluta þeir sömu,
þótt um smávægileg frávik sé að
ræða. Neytendum er ráðlagt að
nota hana á tvennan hátt. I fyrsta
lagi með almennum verðsaman-
burði á varahlutum á milli
bifreiðategunda, þar sem oft
muni stórum upphæðum. Sjá
megi að alloft séu sömu tegundir
með bæði hæsta og lægsta verðið.
1 öðru lagi megi sjá framboð
varahlutanna hjá einstökum um-
boðum, þvi ekki sé nóg að verðið
sé hagstætt, hlutirnir verði lika
helst að vera til. Hvað það atriði
snertir kemur i ljós að umboðin
eru mjög misjöfn. Þrjú umboð
eru áberandi best að þessu leyti:
Lada 1600 (Bifreiðar og landbún-
aðarvélar) Skoda 105 (Jöfur h.f.)
sem aðeins vantaði einn af þess-
um 48 varahlutum hvort og
Mazda 626 (Bilaborg) sem
vantaði tvo þeirra.
Bileigendum og áhugamönnum
skal bent á að Verðkynningu geta
þeir fengið ókeypis á skrifstofu
Verðlagsstofnunar að Borgartúni
7.
Trabant-sölumenn óhressir með „Verðkynningu”:
„Um 20 hlutanna
ekki í Trabant”
— og því eðlilega ekki til sem varahlutir
HEI — „Við erum sáróánægðir
með Jjessa Verökynningu Verð
lagsstofnunar og frásögn út-
varpsins af henni I dag”, sagði
sölumaður hjá Ingvari Helga-
syni, sem hafði samband við
blaðið eftir hádegisfréttir
Útvarpsins I gærdag.
I fréttum útvarpsins hefði
verið sagt að Trabant umboðið
stæði sig einna laklegast meö
varhlutaframboðið, þvi þar
hefði vantað 23 af þeim 48 hlut-
um sem spurt var um. Þetta
sagði sölumaður eiga sér þær
skýringar að um 20 þessara
hluta væru alls ekki til i bilnum
og þá eðlilega ekki sem vara-
hlutír heldur. Margir þessara
hluta eru i sambandi við vatns-
kerfiö, en Trabant er hinsvegar
loftkældur. I ljósi þessa virðist
eðlilegt að sölumaðurinn væri
hálf óhress.
1 Verökynningu er verðupp-
hæða getið á þeim hlutum sem
til voru f umboðunum, en siðan
O á öðrum stöðum I dálkinum án
neinna frekari skýringa. Varð-
andi sumar aðrar tegundir en
Trabant er hinsvegar á nokkr-
um stööum tekið fram, að hlut-
urinn sé ekki i bilnum, eöa
athugasemdin „loftkældur”.
Sem sárabætur fyrir Trabant
er rétt að geta þess, að af þeim
25 varahlutum sem getið er um
frá umboðinu voru 17 á lægst að
verði á þessari könnun. 1 hæsta
verðflokknum var Trabants
ekki getið.