Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 . . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						2  23. september 2007  SUNNUDAGUR

LöGReGLUmáL Skútan sem ferjaði  

rúmlega 60 kílógrömm af fíkni-

efnum frá Noregi til Fáskrúðs-

fjarðar var flutt í flugskýli á Kefla-

víkurflugvelli til nákvæmrar 

rannsóknar á fimmtudagskvöld. 

Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á 

höfuðborgarsvæðinu, sagði rann-

sóknina enn sem komið er ekki hafa 

leitt neitt nýtt í ljós.

Kafarar á vegum sérsveitar 

lögreglunnar skoðuðu skipið að utan 

og hafsbotninn í kring strax á 

fimmtudag, en fundu ekkert 

markvert.

Átta manns eru í haldi lögreglu í 

þremur löndum vegna málsins, en 

engar nýjar handtökur hafa átt sér 

stað. Enginn hefur verið leystur úr 

haldi, en yfirheyrslur eru stutt á 

veg komnar. Formleg skýrslutaka 

er ekki hafin að fullu sakir þess að 

einn verjenda í málinu er erlendis.

Stefán segir ekki tímabært að 

segja til um hvort framsals verði 

krafist á þeim þremur sem 

handteknir voru erlendis. Tveir 

voru handteknir í Færeyjum, annar 

þeirra Íslendingur, en hinn Dani.

Einn Íslendingur, Logi Freyr 

Einarsson, var handtekinn í Noregi, 

en hann er talinn vera einn 

skipuleggjenda smygltilraunar-

innar. Hinir eru bróðir hans Einar 

Jökull Einarsson og Bjarni Hrafn-

kelsson, sem báðir voru handteknir 

á heimilum sínum á höfuðborgar-

svæðinu. Báðir hafa komið áður 

við sögu lögreglu. Einar Jökull 

hefur dvalið í Tékklandi og var 

eftirlýstur af tékknesku lögreglunni 

eins og kom fram á vefsíðu 

hennar.

 steindor@frettabladid.is

Menning, nýtt blað um 

menningu og listir, fylgir 

Fréttablaðinu í dag og kemur 

út mánaðarlega hér eftir. 

Páll Baldvin Baldvinsson, 

ritstjóri blaðsins, segir það vera 

tilraun til að 

auka 

ítarlegri 

umfjöllun um  

menningar-

líf, ekki síst 

íslenskt.

?Umræða 

um þennan 

mikilvæga 

þátt 

þjóðlífsins 

vill oft vera 

flaustursleg og við viljum reyna 

að bæta úr því með umfjöllun 

og skrifum á mannamáli.? Fyrir 

var eitt mánaðarlegt fylgirit 

gefið út með Fréttablaðinu, 

íþróttablaðið Sport, sem er í 

ritstjórn Vignis Guðjónssonar.

 - sh

Sýningin er opin

alla daga frá 10?17

Aðalstræti 16 

101 Reykjavík

www.reykjavik871.is

Lífið á 

landnámsöld

 - % . . ) . '   ' Å S L I   ® R N   S E G I R   F R ¹   Ò T R ¹ S   6 E S T U R 


         líka

bara

BRetLAND Ákvörðun næturklúbbs 

í Bretlandi um að meina tvítugri 

fatlaðri stúlku inngöngu hefur 

vakið reiði hagsmunasamtaka í 

landinu. Dyraverðir skemmtistað-

arins sögðu að hækjur stúlkunnar 

mætti nota sem árásarvopn.

Stúlkan hafði tvisvar áður 

farið á skemmtistaðinn án 

vandkvæða. ?Það má nota hvað 

sem er sem vopn, háhælaða skó, 

gleraugu, stóla og fleira,? sagði 

hún. ?Ég varð mjög reið og 

niðurlægð. Þetta fór alveg með 

sjálfstraustið.?  - sgj

Skemmtistaður í Bretlandi:

Sögðu hækjur 

vera árásarvopn

LöGReGLUmáL Ölvaður karlmaður 

var handtekinn í fyrrinótt eftir að 

hafa reynt að komast undan 

lögreglu á bíl. Lögregla veitti 

manninum eftirför eftir að hann 

fór yfir á rauðu ljósi á mótum 

Sæbrautar og Skeiðarvogs. Fór 

svo að maðurinn keyrði út af við 

Skeiðarvog. Hann reyndi að 

hlaupa undan lögreglu og 

reyndist viðskotaillur þegar 

lögreglumenn handtóku hann 

skömmu síðar.  

Átta manns voru teknir fyrir 

ölvunarakstur í fyrrinótt. Þá voru 

fjórtán handteknir fyrir brot á 

lögreglusamþykkt. Þeir voru allir 

sektaðir og sváfu sumir úr sér í 

fangageymslum lögreglunnar.  - eb

Átta stútar undir stýri:

Tveir keyrðu út 

af í Reykjavík

LöGReGLUmáL Héraðsdómur 

Reykjavíkur úrskurðaði í gær 

tvo menn í gæsluvarðhald fram á 

miðvikudag fyrir meint smygl á 

um 1.800 millilítrum af fljótandi 

kókaíni, sem barst til landsins í 

hraðsendingu frá Bandaríkjun-

um. Annar mannanna er á fer-

tugsaldri, en hinn er um fertugt. 

Mennirnir tveir hafa ekki 

komið við sögu lögreglu áður svo 

vitað sé. Kona á fertugsaldri var 

einnig handtekin en sleppt fljót-

lega. Hún er ekki talin tengjast 

málinu.Efnið fannst við húsleit 

lögreglunnar í húsi í Laugarnes-

hverfi í Reykjavík á föstudags-

kvöld og er talið að fíkniefnin 

hafi komið frá Suður-Ameríku í 

gegnum Bandaríkin. Lögreglan 

hefur rannsakað málið í sam-

vinnu við bandarísku fíkniefna-

lögregluna. Tollayfirvöld í Reykj-

avík og á Suðurnesjum tóku 

einnig þátt í því auk lögregluyf-

irvalda á Suðurnesjum.

Að sögn Þórarins Tyrfingsson-

ar, yfirlæknis á Vogi, er fljótandi 

kókaín einfaldlega kókaín sem 

leyst hefur verið upp í vatni. Úr 

því má vinna kókaín í hefð-

bundnu formi en ekki er ljóst 

hversu mikið þar sem styrkleiki 

vökvans liggur ekki fyrir. 

Einnig segir Þórarinn mögu-

legt að sprauta vökvanum í æð, 

taka í nef eins og nefdropa eða 

jafnvel drekka. - sgj / - sh

Tveir karlmenn dæmdir í gæsluvarðhald fyrir að smygla fljótandi kókaíni:

Tóku 1,8 lítra af fljótandi kókaíni

Á leið úr réttarsal Mönnunum er 

gefið að sök að hafa smyglað fíkniefnum 

frá Bandaríkjunum. FréttaBlaðið/Daníel

Menning fylgir 

Fréttablaðinu

Skútan rannsökuð á 

Keflavíkurflugvelli

Fíkniefnaskútan úr Pólstjörnumálinu er til rannsóknar í flugskýli á Keflavíkur-

flugvelli, en ekkert nýtt hefur enn komið fram. Skýrslutökur eru stutt á veg 

komnar og ekki hefur verið rætt um framsal þeirra sem handteknir voru erlendis.

eitt stærsta fíkniefnamÁlið frÁ upphafi Hald var lagt á rúmlega sextíu 

kílógrömm af fíkniefnum þegar skútan var skoðuð á Fáskrúðsfirði.

einar Jökull einarsson og alvar 

Óskarsson, annar tveggja mannanna 

sem sigldu skútunni, urðu fyrir 

árás vegna deilna við dæmda 

glæpamenn í júní á síðasta ári.

að morgni dags 21. júní í fyrra 

braust maður inn á heimili alvars 

og sló hann í höfuðið með kúbeini. 

Um kvöldið fór maðurinn ásamt 

tveimur öðrum að Burknavöllum 10 

í Hafnarfirði, þar sem alvar og einar 

voru staddir ásamt einum öðrum, 

og skaut tveimur skotum úr hagla-

byssu inn í húsið. alvar fékk högl í 

höfuð og hægri handlegg. Ástæða 

árásarinnar var að 

forsprakki hennar 

?taldi sig eiga 

óuppgerðar sakir 

við einar Jökul? 

að því fram kom í 

réttarsal.

Daginn eftir 

sneri sami maður 

aftur að húsinu í Hafnarfirði og kast-

aði eldsprengju inn í það í því skyni 

að brenna það til grunna.

Árásarmennirnir þrír áttu allir að 

afbrotaferil að baki, meðal annars 

fyrir fíkniefnamisferli.

urðu fyrir skotÁrÁs í hafnarfirði

chiLe, Ap Fyrrverandi forseti 

Perú, Alberto Fujimori, hefur 

verið framseldur til heimalands 

síns eftir tveggja ára dvöl í Chile. 

Fujimori er sakaður um ýmis 

mannréttindabrot, morð og 

spillingu.  

Hann var fluttur með lögreglu-

flugvél frá Santiago í Chile til 

Lima, höfuðborgar Perú, rétt eftir 

hádegi í gær. 

Fujimori flúði Perú árið 2000 

og fór til Japan. Þar var hann 

undir verndarvæng japanskra 

stjórnvalda í fimm ár. Allt frá því 

hann flúði heimalandið hafa 

stjórnvöld þar reynt að fá hann 

framseldan. Fujimori heldur þó 

fram sakleysi sínu. - þeb

Fyrrverandi forseti Perú:

Framseldur til 

heimalandsins

menning Forsíða 

fyrsta tölublaðsins.

SAmGöNGUR Í tvígang punkteraði á reiðfáki Elvars 

Arnar Reynissonar í sérstakri samgönguviku. 

Elvar hjólar flesta daga að heiman í vinnuna; úr 

Grafarvogi í Nauthólsvík. Reykjavíkurborg stóð að 

samgönguvikunni og voru borgarbúar hvattir til að 

hjóla í vinnu og skóla.

?Á sumrin eru stígarnir sópaðir einu sinni til 

þrisvar og leiðin sem ég hjóla í vinnuna hefur 

aldrei verið laus við glerbrot,? segir Elvar Örn. 

Hann segir ástandið á leið sinni verst í Grafarvogi, 

þar sem stígurinn liggi við sjoppur og bensínstöðv-

ar. Fossvogsdalur sé skárri enda helst notaður til 

útivistar. ?Það er ekki nóg að gera hjólastíga, það 

verður líka að hirða um þá,? segir Elvar Örn og 

bendir á að sjálfsagt myndu allir leggja bílum 

sínum í byrjun vetrar ef göturnar væru hvorki 

saltaðar né ruddar.

Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi, segir 

ríkan vilja hjá borgaryfirvöldum að bæta ástand 

hjólreiðastíganna. Hann segir vinnuhóp munu taka 

út hjólastígana og jafnframt muni borgaryfirvöld 

gæta þess að hjólastígar verði ruddir í vetur svo 

fólk komist hjólandi til og frá vinnu.   - eb

Hjólreiðamaður undrast að ekki sé hirt betur um hjólreiðastíga Reykjavíkur:

Tvísprakk í samgönguviku

elvar Örn reynisson Hjóla- og göngustígar borgarinnar eru 

sjaldan sópaðir og mikið er um glerbrot á þeim.

FréttaBlaðið/rÓsa  

KúBA, Ap Fidel Castro, forseti 

Kúbu, birtist óvænt í löngu 

sjónvarpsviðtali á föstudag. Er það 

í fyrsta skipti sem hann hefur sést 

opinberlega í meira en þrjá 

mánuði. 

Sögusagnir um að Castro, sem er 

81 árs gamall, sé látinn hafa verið 

þrálátar lengi. Hann talaði lágt og 

hægt en virtist þó hress og vel með 

á nótunum. Sögusögnunum svaraði 

hann með orðunum ?hér er ég?.

Castro ræddi meðal annars um 

að Bandaríkjastjórn gæti farið í 

stríð við Írani. Þá talaði hann um 

afleiðingar Íraksstríðsins, hátt 

olíuverð og stöðu evru gagnvart 

Bandaríkjadal.  - þeb

Castro kom fram í sjónvarpi:

Hress í sjón-

varpsviðtali

Albert, eru olíufélögin of 

litlaus?

?Það mætti bæta lituðu bensíni við 

flóruna.?

atlantsolía hefur sóst eftir að fá að selja 

litað bensín, sem ber ekki sömu skatta 

og venjulegt bensín. albert Þór Magnús-

son er framkvæmdastjóri atlantsolíu.

fujimori er sakaður um mannréttinda-

brot, morð og spillingu. 

spurning dagsins

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92
Blašsķša 93
Blašsķša 93
Blašsķša 94
Blašsķša 94
Blašsķša 95
Blašsķša 95
Blašsķša 96
Blašsķša 96
Blašsķša 97
Blašsķša 97
Blašsķša 98
Blašsķša 98
Blašsķša 99
Blašsķša 99
Blašsķša 100
Blašsķša 100
Blašsķša 101
Blašsķša 101
Blašsķša 102
Blašsķša 102
Blašsķša 103
Blašsķša 103
Blašsķša 104
Blašsķša 104