11 MENNING að þar eystra eru menn nú teknir að líta til baka. Gagnrýnandi Aftenposten, Truls Ramber, segir sýninguna í Osló benda til að yngri myndlistarmenn nálgist nú jafnaldra sína í vestur- álfu, áherslan hafi í kínverskri list flust frá málverkinu til verka sem lýsi stökki Kína inn í tæknisamfé- lagið, með öllum sínum skruðning- um og fjörbrotum hins gamla, svo ótrúlegt sem það sé: öll verkin sem hann tilnefnir í gagnrýni sinni bendi til þess að heimar sem lengst af voru langt frá hvor öðrum nálgist nú hratt: vestrið og austrið. Hann hrósar Gunnari og félögum fyrir framkvæmdasemina. Það er raun- ar synd að það samstarf sem var komið á milli Aastrup Fernley, Serpentine og Listasafns Reykja- víkur skuli ekki hafa fært okkur fleiri samtímasýningar, en þá má ekki gleyma að hingað er að koma yfirlitssýning frá Serpentine með safni verka Hreins Friðfinnssonar sem verður sett upp í Listasafni Reykjavíkur í haust. Cao Fei: China Tracy, 2007. Myndbandsinnsetning. Birt meÐ leyfi Vitamin CreatiVe SpaCe. mynd/anderS Valde Xu Zhen: 18 days, 2006. Blönduð tækni Birt meÐ leyfi liStamannSinS og Shanghart, Shanghai mynd/anderS Valde Gunnar Kvaran listfræðingur og safnstjóri í hinu virta Astrup Fernley safni í Osló. um, andlitsmyndum og þaðan er nafnið á sýninguna komið: við stöndum augliti til auglitis við andlit Kína.? Verkin eru bæði úr einkaeigu aðila sem tók snemma að safna kínverskri list eftir að hennar tók að gæta á Vesturlöndum, í þann tíma þegar kaupa mátti stór og máttug málverk þar eystra fyrir smáaura en verðmæti verka eftir marga þá sem eiga verk á sýningunni hefur margfaldast á síðustu misserum eftir því sem alþjóðlegur listaverkamarkaður hefur áttað sig á nýnæmi og erindi þessa hóps málara á heimsvísu. ?Þetta hefur hlaðið utan á sig og er orðinn öflugur bolti, hingað koma menn á borð við Zhang Xioagang, Liu Ye, Fang Lijun og Yue Minjun, allt eru þetta stór nöfn orðin í málverkinu. Það sem kom mest á óvart var hvað hefðin í handverkinu stendur á fornum grunni, gríðarleg tæknikunnátta er í málun. Menn áttu von á því þegar Rússland opnaðist að þaðan kæmi stór hópur listamanna, en það varð ekki, allir þeir sem skiptu máli voru þegar búnir að ná athygli. Öðru gegnir um Kína. Þaðan er enn straumur af athyglis- verðum verkum, enda eru sýningar með kínverskum verkum út um allt. Ósló og Louisiana í Humlebæk eru þær næastu. Og nú Akureyri.? Samhliða sýningunni verður gefin út stór sýningarskrá með myndum af helstu verkum á sýningunni og ritar Li Xianting, einn helsti fræðimaður um kínverska samtímalist, þar inngang. Afar fátítt er að hingað berist sýningar sem byggja á verkum á striga og er verðmætið oft þröskuldur sökum trygginga- kostnar. Listasafnið á Akureyri er komið yfir þann þröskuld og mun sýningin koma mörgum á óvart. Þegar hafa komið fram óskir frá erlendum söfnum um að hún fari víðar. FRUMSÝNING Í DAG Í KÚLUNNI Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur Leikstjóri Þórhallur Sigurðsson Kúlan er nýtt leiksvið á Lindargötu 7 sem sérstaklega er ætlað yngstu leikhúsgestunum