ATVINNA SUNNUDAGUR 23. september 2007 11 Starfsfólk óskast á tannlæknastofu Tannlæknastofan Hlíðasmára 14 óskar eftir tveimur starfskröftum til að aðstoða tannlækna. Um er að ræða 60-70% starf með fríi annan hvern föstudag og hins vegar 100% starf. Viðkomandi þarf að vera sjálfstæð, skipulögð, snör í snúningum og með ljúft viðmót. Umsóknum skal skila á stofuna, Hlíðasmára 14 til 1.október 2007. www.marelfoodsystems.com Marel ehf er dótturfélag Marel Food Systems hf sem er alþjóðlegt hátæknifyrirtæki í fararbroddi í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og lausna fyrir matvælaiðnað. Hjá Marel Food Systems starfa yfir 2100 starfsmenn í 5 heimsálfum, þar af um 370 manns hjá Marel ehf á Íslandi. Verkefnisstjóri Verkefnisstjóra vantar á verkefnasvið til að vinna í sölutengdum verkum. Um er að ræða stýringu á stærri söluverkum fyrir vél- og hugbúnaðarlausnir frá sölu til afhendingar. Í því felst m.a. að skipuleggja samstarf við viðskiptavini, dótturfélög og undirverktaka vegna uppsetninga og innleiðinga. Viðkomandi þarf að geta unnið á skipulegan hátt undir álagi og tekið ábyrgð. Starfinu fylgja ferðalög erlendis. Þú hefur: ? reynslu af verkefnastjórnun ? menntun í verkfræði, tæknifræði eða öðru sem nýtist í starfi ? innsýn í notkun teikniforrita Við bjóðum: ? afbragðs vinnuaðstöðu og mötuneyti ? fjölskylduvænt vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma ? aðgang að íþróttaaðstöðu og gott félagslíf ? styrki til símenntunar og íþróttaiðkunar Nánari upplýsingar um starf verkefnisstjóra veitir Björgvin Benediktsson, sviðsstjóri verkefnasviðs, bjorgvin@marel.is, í síma 563 8000. Fylla skal út umsóknir á heimasíðu Marel ehf., www.marel.com fyrir 28. september nk. Öllum umsóknum verður svarað og fullum trúnaði heitið gagnvart umsækjendum. Neytendastofa óskar eftir að ráða metnaðarfullan tækni- menntaðan mann til starfa á Öryggissviði stofnunarinnar. Um er að ræða faglega krefjandi starf þar sem reynir á tæknilega ráðgjöf um reglur er varða rafmagnsöryggismál, framkvæmd eftirlits með rafverktökum og neysluveitum, fræðslu og kynningu á reglum er gilda um öryggi fagfólks og neytenda á starfssviði sínu. Um er að ræða margvísleg áhugaverð verkefni er varða löggjöf á sviði rafmagns- öryggis og eftirlit með framkvæmd þeirra. Umsjón með eftirfarandi starfsþáttum: ? Tæknileg ráðgjöf og fræðsla um reglur er varða öryggisstjórnun rafverktaka og neysluveitna, túlkun og framkvæmd reglna er gilda um rafmagnsöryggismál. ? Skipulagning og framkvæmd lögbundins eftirlits með rafverktökum og öryggi neysluveitna, þ.m.t. veitingu starfsréttinda og samskipti við skoðunarstofur. ? Þátttaka í mótun og viðhaldi á gæðastjórnunar- og öryggiskerfum í samræmi við reglur á rafmagnsöryggis- sviði og annarra almennra krafna í starfsumhverfi Neytendastofu. ? Þátttaka í samstarfi í þróun laga og reglna sem gilda um öryggi neysluveitna og öryggisstjórnun rafverktaka o.fl. Menntun: ? Rafmagnsiðnfræði (sterkstraumssvið) ? Sveinsbréf í rafvirkjun. ? Reynsla af störfum sem lúta að hönnun og uppsetningu lágspennuvirkja. Almenn þekking og hæfniskröfur: ? Góð almenn þekking á tölvum og skrifstofuhugbúnaði ? Góð íslensku- og enskukunnátta og færni í einu Norðurlandamáli. ? Almenn þekking á íslensku stjórnkerfi og regluumhverfi. ? Skipulags- og samskiptahæfni ? Frumkvæði Nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Vakin er athygli á 20. gr. laga nr. 96/2000, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Umsóknir óskast sendar Neytendastofu, Borgartúni 21, 105 Reykjavík, eða rafrænt á póstfang stofnunarinnar, postur@neytendastofa.is, eigi síðar en 9. október 2007. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar um starfið veita Tryggvi Axelsson for- stjóri og Jóhann Ólafsson, sviðsstjóri Öryggissviðs, í síma 510 1100. Netföng: tryggvi@neytendastofa.is og johann@neytendastofa.is. Öryggissvið Neytendastofu hefur umsjón með rafmagnsöryggismálum á Íslandi, skoðunum á neyslu- veitum, öryggisstjórnunarkerfum rafveitna og rafverktaka. Öryggissvið annast markaðseftirlit með rafföngum, almennum vörum og annast skipulagningu þess í samstarfi við önnur stjórnvöld. TÆKNILEGUR SÉRFRÆÐINGUR Á ÖRYGGISSVIÐI Borgartúni 21 ? 105 Reykjavík ? Sími 510 1100 ? Bréfasími 510 1101 postur@neytendastofa.is ? www.neytendastofa.is