SUNNUDAGUR 23. september 2007 Önnur prentun af myndabók- inni Riceboy Sleeps eftir Jón Þór Birgisson úr Sigur Rós og kærasta hans Alex Sommers er komin út á vegum íslenska útgáfufyrirtækisins Moss Stories. Þessi nýja prentun er alveg eins og sú fyrri nema það að hver bók er ekki lengur handnúmeruð. Bókin, sem er 48 blaðsíður, kom út hér á landi á síðasta ári í eitt þúsund eintökum. Haldin var sýning í Gallerí Turpentine í Reykjavík í nóvember þar sem sýndar voru myndir úr bókinni auk myndbands. Í október verður nýtt mynd- bandsverk tengt bókinni sýnt í Gallerí Turpentine. Hægt er að panta bókina í gegnum heimasíðuna moss- stories.com. Ný prentun af bók Jónsa og Alex jónsi og sommers Jón Þór Birgisson og Alex Sommers á sýningunni í Gallerí Turpentine í fyrra. fréTTABlAðið/GvA Stílisti leikarans Colin Farrell í myndinni Miami vice hefur komist að samkomulagi við framleiðanda myndarinnar vegna skaðabótamáls sem hún höfðaði eftir að hún braut á sér kjálkann á tökustað. Slysið átti sér stað á hraðbát þar sem hún fékk aðskotahlut í andlitið og þurfti að gangast undir aðgerð á kjálkanum. Taldi hún að framleiðend- urnir hefðu ekki tryggt öryggi sitt nægilega vel og virðist hafa haft nokkuð til síns máls. Tíunda sólóplata söngkonunnar Kylie Minogue nefnist X. Kemur hún út í nóvember og hefur að geyma þrettán glæný lög sem voru tekin upp í london, Stokkhólmi og á ibiza. Nefnist fyrsta smáskífulagið 2 Hearts. Þetta er fyrsta sólóplata Kylie í fjögur ár en hún er óðum að jafna sig eftir að hafa greinst með brjóstakrabba- mein. Dave Grohl, liðsmaður foo fighters, segist ekki hafa verið léttvægur aukamaður í Nirvana. forsprakki Nirvana var Kurt Coba- in en Grohl vill að litið sé á hann sem stóran hluta af hljómsveitinni. ?ég var fimmti trommarinn í Nir- vana og ef þú hlustaðir á upptök- urnar með hinum náungunum og síðan með mér myndirðu sjá að trommuleikurinn er öðruvísi. ég og Krist Novoselic höfum verið kallaðir aukamenn í fjölda ára og ég er orðinn þreyttur á því. Allir sem hafa verið í hljómsveit vita hvað gerist ef einhver hljómur er tekinn út. Það hrynur allt,? sagði hann. The Rolling Stones er tekjuhæsta hljómsveit ársins. Þénaði hún rúma 5,4 milljarða frá því í júní í fyrra þangað til í júní á þessu ári. Stærstur hluti teknanna kom úr vel heppnaðri tónleikaferð Stones, A Bigger Bang. Í næstu sætum á listanum voru Jay-Z, Madonna og Bon Jovi. fréttir af fólki LANG MEST SÓTTA MYNDIN Á ÍSLANDI YFIR 40.000 MANNS -AS, MBL -RÁS 2 -JIS, FILM.IS SÝND Í REYKJAVÍK, AKUREYRI OG FJARÐABYGGÐ. FRÁBÆR ÍSLENSK AFÞREYING / PÉTUR OG SVEPPI HAFA ALDREI VERIÐ FYNDNARI SÚ SKEMMTILEGASTA SÍÐAN SÓDÓMA