Fréttablaðið - 09.01.2008, Blaðsíða 14
MARKAÐURINN 9. JANÚAR 2008 MIÐVIKUDAGUR14
S K O Ð U N
ÚT GÁFU FÉ LAG: 365 – prentmiðlar RIT STJÓRI: Björgvin Guðmundsson RITSTJÓRN: Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, Ingimar Karl Helgason, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, Óli Kristján
Ármannsson, Sindri Sindrason AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal RIT STJÓRN OG AUGLÝSING AR: Skaftahlíð 24, 105 Reykja vík AÐ AL SÍMI: 512 5000 SÍMBRÉF: 512 5301 NETFÖNG: rit stjorn@
markadurinn.is og aug lys ing ar@markadurinn.is VEFFANG: visir.is UM BROT: 365 – prentmiðlar PRENT VINNSLA: Ísa fold arprent smiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.
is Markaðinum er dreift ókeyp is með Fréttablaðinu á heim ili á höf uðborg ar svæð inu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands byggðinni. Markaðurinn
áskil ur sér rétt til að birta allt efni blaðs ins í staf rænu formi og í gagna bönk um án end ur gjalds.
bjorgvin@markadurinn.is l holmfridur@markadurinn.is l ingimar@markadurinn.is l jonab@
markadurinn.is l olikr@markadurinn.is l sindri@markadurinn.is
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
U M V Í Ð A V E R Ö L D
Björgólfur Thor Björgólfsson, fjárfestir og stjórnarformaður Straums-
Burðaráss og Actavis, sagði í síðasta Markaði að margir álitu að svipt-
ingar undanfarinna vikna mörkuðu upphaf endaloka bankabólunnar
svokölluðu, en hún tók við af netbólunni fyrir fimm árum.
„Bankabólan byggir á þeirri ranghugmynd að fjármálafyrirtækin
skipti mestu máli í heiminum við sköpun verðmæta og að skilvirkari
nýting fjármuna geti ein knúið áfram aukinn hagvöxt. Dæmi eru um
efnahagskerfi á Vesturlöndum þar sem hagvöxtur undanfarinna ára
hefur verið knúinn áfram af skuldsetningu einni en ekki með betrum-
bótum á innviðum eða framleiðsluaukningu,“ sagði Björgólfur Thor.
Ljóst er að stór fjármálafyrirtæki úti í heimi hafa orðið fyrir nokkr-
um álitshnekki síðustu mánuði. Menn hafa farið of geyst í að búa til það
sem kallað er flóknar fjármálaafurðir til að fjármagna skuldsett kaup.
Áhættan var misreiknuð. Fyrir vikið var
lánsfé ódýrt og lánin ótrygg og markað-
ir með ýmsa fjármálavafninga hrundu í
kjölfarið. Það mun taka tíma fyrir sér-
fræðinga að átta sig á hvaða pappírar
viðhalda verðmæti sínu. Á meðan ríkir
mikil tortryggni á markaðnum sem bitn-
ar á lánamarkaðnum í heild.
Tryggvi Þór Herbertsson, forstjóri
Askar Capital, hefur sagt í Markaðn-
um að vantraustið sé nú algjört. „Allir
trúa því að mótaðilinn hafi Svarta Pétur
á hendi og það verður ekki fyrr en upp-
gjör og afskriftir ársins líta dagsins ljós
sem menn fara að slaka á og þá fyrst
mun lausafé aukast á ný og fjármála-
kerfið leita í eðlilegra horf.“
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarfor-
maður Baugs Group, og Ágúst Guð-
mundsson, forstjóri Bakkavarar Group,
hafa lýst þessum tíma sem afturhvarfs
til raunveruleikans. Mönnum hafi verið
kippt niður á jörðina. Svipuð afstaða er fólgin í því viðhorfi og sýn
Björgólfs Thors á ástandinu. Framleiðslufyrirtækin eru aftur komin
í tísku.
Björgólfur Thor segir umrótið á seinni hluta ársins 2007 hafa
dregið fram tvíþætt umskipti á fjármálamörkuðum. Annars vegar
að framleiðslufyrirtækin og grunnvörur eins og vatn, orka, prótín og
byggingar efni séu aftur að verða ráðandi þættir á fjármálamörkuðum.
Hins vegar að fjármagnið leiti í ríkari mæli frá gamla heiminum til
hinna nýju, stóru hagkerfanna í Asíu og Suður-Ameríku.
Myndinni sem þessir forystumenn mála af mörkuðum í dag svipar
til þeirrar sem sást í kjölfar netbólunnar. Menn missa sjónar á hinum
raunverulegu verðmætum og því sem knýr áfram hagvöxt til lengri
tíma þegar bólan er að þenjast út.
Vissulega skipta alþjóðleg fjármálafyrirtæki gríðarlega miklu máli
við að beina fjármagni í skilvirkan farveg. Það skiptir máli þegar sí-
fellt þarf að bæta nýtingu fjármuna og auka hagvöxt. En vandamál
fjármálamarkaða undanfarinna vikna sýna að grundvöllur lánveitinga
verður að vera traustur.
Áhætta í öllum eignaflokkum hefur nú verið endurmetin. Lítið skuld-
settir fjárfestar, sem eiga traust eignasafn og fyrirtæki sem skila góðu
sjóðstreymi, standa sterkast að vígi. Tími framleiðslufyrirtækja, sem
geta bætt innviði sína og aukið framleiðslu, er kominn. Aftur.
Sterk staða framleiðslufyrirtækja með gott sjóðstreymi:
Ranghugmyndin um
bankabólu og hagvöxt
Björgvin Guðmundsson
FORSETI ÍSLANDS Á DEGI ÍSLENSKRAR TUNGU Nemendur í Þelamerkurskóla mynduðu fánaskjaldborg um Ólaf Ragnar Grímsson,
forseta Íslands, í heimsókn hans þangað á degi íslenskrar tungu í nóvember síðastliðnum. Greinarhöfundur segir viðskiptalífið eiga forset-
anum margt að þakka og fagnar því að hann gefi áfram kost á sér í embættið. MARKAÐURINN/HEIÐA.IS
Fagnaðarefni er að Ólafur
Ragnar Grímsson skuli gefa kost
á sér til áframhaldandi setu sem
forseti Íslands. Ekki síst er þetta
sérstakt fagnaðarefni fyrir ís-
lenskt viðskiptalíf sem hefur átt
sterkan bakhjarl í Ólafi Ragnari,
en forsetinn hefur verið einstak-
lega duglegur að veita íslenskum
fyrirtækjum aðstoð og stuðning í
útrás þeirra.
Ólafur Ragnar stendur svo
sannarlega ekki einn því við hlið
hans stendur glæsileg eiginkona,
Dorrit Moussaieff, sem hefur
opnað ýmsar dyr erlendis á sviði
menningar, lista og viðskipta.
VIÐSKIPTALÍFINU ÓMETANLEGT
Ég gef ekki mikið fyrir þá gagn-
rýni að forsetinn hafi fjarlægst
þjóðina, mörgum finnst að hann
hafi nálgast fólkið og atvinnulífið
betur en aðrir forsetar. Ferðalög
forsetans erlendis eru alls ekki
merki um að hann hafi fjarlægst
þjóðina, miklu frekar merki um
mikinn dugnað hans og metnað
fyrir hönd þjóðarinnar.
Íslensku viðskiptalífi hefur
verið ómetanlegt hve markvisst
Ólafur Ragnar hefur unnið að því
að leggja íslenskum fyrirtækjum
lið á alþjóðavettvangi. Hann
hefur opnað ýmsar dyr erlendis
sem ella væru íslenskum fyrir-
tækjum enn lokaðar.
Ég hef sjálfur í nokkur skipti
fylgt forsetanum erlendis og
hlustað á hann flytja tækifæris-
ræður, nú síðast í Rúmeníu í
september 2007. Alls staðar
vekur hann mikla athygli og að-
dáun, frábær ræðumaður, talar
af þekkingu og innsæi um þau
mál sem efst eru á baugi. Hann
er alþýðlegur og á gott með að
blanda sér í samræður við ókunn-
ugt fólk. Það var eins og dagur og
nótt að hitta forseta Rúmeníu
og Íslands hvað Ólafur Ragnar
bar af í þeim samanburði. Enda
spurði rúmenskur sessunautur
mig í einni veislunni hvort þeir
gætu ekki fengið Ólaf Ragnar
sem forseta Rúmeníu. Ég taldi
það af og frá því hann ætti eftir
að spila eitt kjörtímabil enn.
Á AÐ TJÁ SIG UM ÞJÓÐFÉLAGS-
MÁL
Íslenskt viðskiptalíf hefur átt
hauk í horni þar sem Ólafur
Ragnar er og viðskiptalífið
treystir á hann og veit að hann
mun á næstu árum leggja því enn
frekara lið. Útrás íslenskra fyrir-
tækja er ekki stopp, þó að gefið
hafi á bátinn um stund, menn
munu slá af eins og góðir sigl-
ingamenn myndu gera, en það
mun gefa byr í seglin á nýjan
leik. Við eigum mörg tækifæri
erlendis þó að sennilega muni
bera hæst frekari fjárfestingar í
fjármálageiranum og í orkugeir-
anum, en í orkumálum er for-
setinn á heimavelli. Ísland mun
á næstu árum verða mjög áber-
andi í umræðunni um vistvæna
orkugjafa.
Síðastliðið haust flutti for-
setinn mjög merkilega ræðu í
Bandaríkjunum um vistvæna
orkugjafa og var tekið vel eftir
henni í þarlendum fjölmiðlum.
Það er ekkert að því að for-
setinn tjái sig um þjóðfélags-
mál. Það sýnir þekkingu hans og
áhuga og ef hann gerði það ekki
mætti líta svo á að hann væri yfir
það hafinn að hafa skoðun á þeim
málum sem hæst ber.
Umræðan um hvort takmarka
skuli kjörtíma forseta er út í
hött. Völd forsetans eru ekki slík
að nokkur þörf sé á því að tak-
marka kjörtímann. Það mætti
miklu frekar ræða hvort tak-
marka ætti kjörtíma alþingis-
manna eða setu á ráðherrastóli.
Áfram Ólafur Ragnar
Áhætta í öllum
eignaflokkurm
hefur nú verið
endurmetin. Lítið
skuldsettir fjár-
festar, sem eiga
traust eignasafn
og fyrirtæki sem
skila góðu sjóð-
streymi standa
sterkast að vígi.
O R Ð Í B E L G
Jafet S.
Ólafsson
framkvæmdastjóri
Veigs ehf.
fjárfestingarfélags
Þrýst á seðlabankann
Guardian | Breskir verslanaeigendur þrýsta þessa
dagana á Englandsbanka, seðlabanka Bretlands,
að lækka stýrivexti sína um allt að 50 punkta.
Banka-
stjórnin
kemur
saman á vaxtaákvörðunardegi á morgun og reikna
flestir með að þvert á vonir manna verði ákveðið
að halda vöxtum óbreyttum að sinni í 5,25 prósent-
um í skugga óróleika á fjármálamörkuðum og tak-
markaðs aðgengis að lánsfé. Útlit er fyrir heldur
lélega veltu í jólamánuðinum í flestum verslunum
í Bretlandi. Breska dagblaðið Guardian bendir á
að velta hafi einungis aukist um 0,3 prósent á milli
ára samanborið við 2,5 prósent í desember í hitti-
fyrra. Blaðið hefur eftir Kevin Hawkins, fram-
kvæmdastjóra samtaka verslunar og þjónustu
(BRC), að dregið hafi úr veltu í kjölfar snarpra
stýrivaxtahækkana frá þarsíðasta ári og dökkt sé
fram undan verði ekkert að gert.
Flatbaka um jólin, heillin
Telegraph | Mitt í harmakveinum nokkurra versl-
anaeigenda í Bretlandi brosa stjórnendur skyndi-
bitastaðarins Domino‘s Pizza hinu breiðasta. Sala
á heit-
um
flat-
bökum með áleggi jókst um 17,6 prósent á milli ára
frá miðjum nóvember í fyrra til enda jólamánað-
ar. Breska blaðið Telegraph hafði í gær eftir Chris
Moore, sem tók við forstjórastólnum hjá Domino‘s
um áramótin, að neytendur hefðu í raun áttað sig
á því um jólaleytið að um helmingi ódýrara væri
að bjóða kjarnafjölskyldunni upp á heimsenda
pitsu en að fara á veitingastaði með tilheyrandi
umstangi. Hann tekur undir með kollegum sínum
í verslunarrekstri og segir útlit fyrir krefjandi
ár, haldi fram sem horfi í efnahagsmálum. Þrengi
enn frekar að megi hins vegar reikna með að fólk
fari sjaldnar út að borða. Slíkt ætti að koma Dom-
ino‘s vel, að hans mati. Moore sagði engu að síður
ekkert til um hvort reikna mætti með flatbökum á
borðum Breta um næstu jól.
Fjárfestar A.T.H
Er að fara stað með eitt merkilegasta og
stæðsta verkefni sem sögur fara af. Þetta
verkefni er nýjungur á hér á landi og víða.
Það sem við erum að leyta að er
fjárfestum sem hafa áhuga að gerast
hluthafar í þessu fjárfestingarfélagi.
Umsóknir og spurningar eru veittar á
fjarfesting@internet.is.