Fréttablaðið - 24.01.2008, Blaðsíða 59
FIMMTUDAGUR 24. janúar 2008 39
Tvær athyglisverðar sýningar verða
opnaðar á Kjarvalsstöðum á laugar-
dag. Verk eftir samtímamennina
Sámal Mikines og Nínu Sæmunds-
son verða þar undir smásjánni,
hvort í sínu sýningarrýminu þó.
Þau Sámal og Nína eiga það sam-
eiginlegt að hafa sótt menntun sína í
Konunglegu listaakademíuna í
Kaupmannahöfn á fyrri hluta
síðustu aldar og að hafa unnið sér
sess utan síns heimalands.
Mikines hefur svipaðan sess í
færeyskri listasögu og Jóhannes S.
Kjarval hefur í þeirri íslensku. Miki-
nes sótti innblástur til verka sinna
mikið í náttúru Færeyja og lifnaðar-
hætti þjóðar sinnar. Sýningin á Kjar-
valsstöðum verður fyrsta yfirlits-
sýning á verkum hans sem haldin er
hérlendis og því eflaust margir sem
bíða hennar með nokkurri óþreyju.
Til sýnis verða um 50 málverk sem
spanna um hálfrar aldar tímabil í
ferli listamannsins. Mikines átti við
ýmsan krankleika að etja á ævi sinni
en náði þó að vera afkastamikill. Í
tilefni sýningarinnar verður fær-
eyski myndlistarmaðurinn Bárður
Jákupsson með leiðsögn um verk
Mikines á sunnudag kl. 15.
Nína Sæmundsson var af íslensku
bergi brotin og gat sér gott orð vest-
an hafs fyrir list sína. Hún bjó lengst
af erlendis en hélt sínum íslenska
ríkisborgararétti til dauðadags.
Verk Nínu, Móðurást, hefur fyrir
löngu unnið sér sess í borgarlands-
lagi Reykjavíkur. Verkið var sett
upp árið 1928 og var fyrsta listaverk
konu sem var sett upp í almennings-
rými í höfuðborginni. Árið 2004
færði náinn ættingi Nínu, Ríkey
Ríkarðsdóttir, Listasafni Reykjavík-
ur ellefu höggmyndir eftir Nínu til
eignar, en þær eru nú sýndar saman
í fyrsta skipti á safninu.
Nína var víðförul en lengst af bjó
hún í Bandaríkjunum. Meðal opin-
berra verka hennar þar má nefna
höggmynd fyrir Waldorf Astoria-
hótelið í New York en hún var einnig
kunn fyrir brjóstmyndir af frægum
leikurum í Hollywood.
Sýningarnar verða báðar opnaðar
á Kjarvalsstöðum á laugardag kl.
16.
Meistarar á Kjarvalsstöðum
LÍFIÐ Í FÆREYJUM Grindardráp eftir Sámal Mikines.
SINNEP
Atli Ingólfsson
Að hafa efni á vímu
Það fellur að og fjarar síðan út. Þar á milli getum við ímyndað
okkur að vatnsmassinn stoppi eitt augnablik eins og allt sem
þarf að snúa við. Ef tíminn er hreyfing mætti segja að tími
vatnsins nemi staðar á þessum punkti, á liggjandanum áður en
byrjar að fjara. Inni í okkur eru víst lífssveiflur af ýmsu tagi
sem sæta einhverjum sjávarföllum, mismiklum og mistíðum.
Svo er sálin líka sveiflukennd og nokkuð háð umhverfinu. Þar
er flóðið mishátt, en þegar stórstreymt er þá er maðurinn
fullur.
1) Þegar menn fyllast sælu er það eins og augnabliksdvöl á
öldutoppi áður en hún dalar. Þessu fylgir algleymi einmitt
vegna þess að tíminn virðist nema staðar. Þetta heitir líka
víma.
2) Að upplifa það að tíminn stöðvist er óviðjafnanlegt. Þá er
eins og lífið verði skyndilega lóðrétt og hægt að finna allan
mátt þess í einu. Allar spurningar hverfa frammi fyrir
yfirþyrmandi sannleika nú-sins. Tímaleysi er auðvitað sigur
á dauðanum, en bara um stund.
3) Þess vegna sækjast menn eftir vímu.
4) Það sem magnar mönnum vímu er til dæmis mystísk eða
trúarleg upplifun, ást eða erótík, sérstök tengsl við náttúr-
una, dans eða háttbundin hreyfing, tónlist eða listræn
upplifun. Svo er það áfengið og „blessuð“ eiturlyfin.
5) Þetta síðastnefnda er háskalegra en aðrar leiðir að vímunni.
Sá sem reiðir sig á annarlegan aflgjafa til að finna vímuna
missir smám saman hæfileikann til að komast þangað
hjálparlaust. Og ef við verðum með þessari hjálp fyllri en
sálin hefur efni á er hætt við að andhverfan, ógleðin, ríði
okkur að fullu.
6) Tíminn stöðvast nefnilega líka á lágfjöru og þá hellast
angurefnin yfir okkur öll í einu.
7) Það eru innantóm orð að vara menn við vímu. Hins vegar
má benda á að lífið býður upp á hana alveg án lyfja-
meðferðar.
8) Hitt skiptir öllu máli: að næra vímuna, eiga innistæðu fyrir
henni. Allt það sem við hugsum, lesum og upplifum hrærist
saman og litar þessa litlu kjarnorkusprengingu sem
algleymið er. Við getum litið á hversdagslífið sem söfnun í
sprengjuna og því ríkara sem andlegt líf okkar er því
magnaðri verður víman. Hægt er að lifa í ljósi vímunnar,
ekki í skugga hennar.
9) Lífið og listin, þetta eru bestu eiturlyfin.
10) Það hringdi í mig fugl og spurði hvort þetta væri ekki
einum of skáldlegt. Jú, líklega, því þetta er einum of satt.