Tíminn - 03.10.1981, Blaðsíða 3

Tíminn - 03.10.1981, Blaðsíða 3
Laugardagur 3. október 1981 f réttir Guðmundur Axelsson, eigandi „Lífshlaupsiris”: VILL FA 3.1 MILLIÓN KRÓNA FYRIR VERKH) — eða 1.2 milljónir króna og átta málverk að auki ■ „Málið er það að við getum fengið „Lifshlaupið" keypt annað hvort á 3,1 milljón króna, eða 1.2 milijónir króna og látið 8 málverk i eigu borgarinnar ganga upp i kaupin”, sagði Björn Friðfinns- son fjármáiastjóri borgarinnar, þegar hann var spurður upp á hvað tilboð Guðmundar i Klausturhólum, til borgarinnar hljóðaði. „Viðhöfum boðið Guðmundi 1.4 milljónir króna og ekkert annað. Þar stendur málið i dag”, sagði Björn. Borgarráð fjallaði um þetta mál á fundi sinum i gær og var engin ákvörðun tekin i máli þessu. Eins og málið litur út i skýrslu þeirri sem Björn lagði fram á fundinum i gær, kemur fram að Guðmundur vill láta borgina borga sér ákveðna upp- hæð og auk þess vill hann að borgin bæti honum allar skatta- greiðslur sem hann þyrfti að greiða af sölunni”. Borgarsjóður gerði i tilboði sinu til Guðmundar þann 30.9. Guð- mundi boð um að hann tryggði honum að hann þyrfti ekki að standa skil á söluskatti vegna þessara viðskipta, en Guðmundur hafði farið fram á að borgin greiddi fleiri skattliði, eins og t.d. tekjuskattog útsvar. Guðmundur hafnaði tilboðinu umsvifalaust. Sagði hann fyrri tilboð sin gilda, þ.e. að annaðhvort greiddi borgarsjóður honum 3,1 milljón króna fyrir myndverkið eða 1.2 milljónir króna auk 8 málverka. Borgarsjóður tjáði Guðmundi að hann hefði nú boðið honum eins og samningsumboð þeirra frekast leyfði og yrði ekki um frekari boð að sinni. Oskuðu fulltrúar borgar- sjóðsþóeftir þvi að samningaum- leitunum yrði ekki alveg slitið. Fóru þeir þess á leit við Guð- mund aö þeir fengju að fylgjast með ef tilboð bærust i verkið sem Guðmundur teldi viðunandi og borgarsjóði þá gefinn kostur á að ganga inn i slikt tilboö. Guö- mundur vildi ekki að svo stöddu taka afstöðu til þeirrar beiðni. — AB Flutningaskipinu Mávinum siglt í strand á Vopnafirði: „EINA LEIÐIN TIL AÐ FORÐA SKIPINU FRÁ ÞVÍ AÐ SÖKKVA” — segir Sigurður Gudbjartsson, skipstjóri ■ Flutningaskipiö Mávur, sigldi upp á land I innanveröum Vopna- firöi um fimmieytiö i gærmorgun. Giftusamlega tókst aö bjarga 15 manna áhöfn skipsins, þrátt fyrir stólpabrim og erfiöar aöstæöur. „Viö vorum á leiðinni út frá Vopnafiröi og lentum uppi á skeri sem er i innsiglingarennunni utan við höfnina. Eftir um fimm minútur var skipið laust af sker- inu og hélt ég þá með skipiö út á fjörö. Þaö var mikil kvika og þungur sjór og þegar út á fjörðinn kom varð ég þess var aö skipið var farið að siga mikið og mikill sjór var kominn i tanka og lestar. Ég sá mér aöeins eina leið færa tii aö forða skipinu frá þvi að sökkva úti á firðinum en hún var að sigla þvi á land”, sagöi Siguröur Guö- bjartsson, skipstjóri á Mávinum i samtali viö Timann i gær. „Um sjö leytið komu svo björgunarsveitarmenn á vett- vang og þeir voru búnir að koma öllum heilu og höldnu á land á innan við klukkutima. Þeir eiga þakkir skildar fyrir vasklega framgöngu, þvi aðstæöur voru mjög erfiðar”. „Skipið liggur núna undir áföll- um á sandfjörunni i fjarðarbotn- inum, svo það er erfitt aö' segja um likur til aö hægt sé að bjarga þvi. En ég held aö björgun muni reynast erfið, vegna þess að þarna er sandbotn og hætt við að skipiö sogi sig fast niður i sand- inn”. „Hér hafa verið menn frá tryggingafélagi skipsins, en þeir hafa ekki enn farið að skipinu, til að kanna aðstæður. Þvi enn er mikill sjór og erfitt um vik”. „Stærstur hluti áhafnarinnar fer flugleiðis til Reykjavikur nú á eftir, en viö verðum fjórir eftir hérna fyrir austan meðan verið er að kanna aðstæður”, sagði Sigurður. —Sjó Fjölbrautaskólinn í Breiðholti: ■ 1 gær var tekinn upp sá háttur I innanlandsflugi Flugleiöa aö bjóöa farþegum upp á hressingu. Er hér um aö ræöa litla pakka sem inni- halda dós af ávaxtasafa, kex, súkkulaöiog smurost. A myndinni heldur ein Flugleiöarósin á kræsingunum. TimamyndEUa Vinnueftirlitið lokar hluta kennsluhúsnæðis ■ „Við fórum í Fjöl- brautaskólann í Breiðholti í gær og innsigluðum sprautuklefann í smiðj- unni" sagði Pétur Reimarsson hjá Vinnu- eftirliti ríkisins í viðtali við Tímann i gær. Pétur sagði að aðdrag- Mistök í prentsmiðju ■ Vegna mistaka i prentsmiöju var Geröi Steinþórsdóttur rang- lega eignuö greinin „Ofbeldi I framhaldsskólum” sem birtist i Timanum i gær undir yfirskrift- inni „Borgarmál”. Haukur Ingi- bergsson skrifaði umrædda grein og yfirskriftin átti að vera „Meöal annarra orða” en sá þátt- ur Hauks er i Timanum á föstu- dögum. andi þessarar lokunar væri orðinn talsvert langur, eða hálfs árs, því í byrjun apríl sl. hefði Vinnueftirlitið framkvæmt mjög itarlega skoðun á þessum stað og þá hefði komið í Ijós að sprautuklefinn og þurrk- klefi væru ákaflega óhentugir. Pétur sagði að þegar nemendurnir væru búnir að sprauta hlutina þá legðu þeir þá i rekka til hliðar og þá færi fram mettuð uppgufun af þess- um lifrænu leysiefnum sem væru í lakkinu. Þetta sagði Pétur vera hættu- legar eiturgufur og eins og aö málum væri staðið i Fjölbraut, þá stæöu menn I þessum eiturgufum allan timann sem þeir væru þarna inni. Eins sagði Pétur að komiö hefði i ljós að loftræsting i þessari smiðju væri óhentug. Vegna ofangreindrar skoöunar hefði Vinnueftirlitið skrifað skólastjórninni bréf 8. april, þar sem bannað var að nota þennan lakkklefa og auk þess heföu þeir hjá Vinnueftirlitinu gert kröfur i einum 15eöa 16liöum, til úrbóta á vinnuaöstöðunni, auk þess sem þeir heföu boöið upp á viðræður á milli Fjölbrautaskólans og Vinnueftirlitsins. Pétur sagði að engin viðbrögð heföu borist frá skólanum eftir þetta, og þegar farið hefði veriö i skólann i gær, þá heföi komiö i ljós aö ekkert hafði verið gert. Þaö heföi þvi ekki veriö um annaö að ræöa en að innsigla sprautu- klefann. Pétur sagði að varðandi aörar úrbótakröfur, sem ekki heföu verið teknar til greina, yrðu tekn- ar ákvarðanir um frekari að- gerðir af hálfu Vinnueftirlits rikisins i næstu viku. —AB Samkomulag um skólamálin í Kópavogi: Hluti Þinghóls skóla notaður fyrir fram- haldsskóla ■ Skólanefnd Kópavogs hefur komist að samkomulagi um bráðabirgðalausn á húsnæöis- vanda Menntaskólans i Kópavogi sem felur i sér að hluti Þinghóls- skóla verður lagöur undir fram- haldsskóla. 1 bókun frá nefndinni segir meðal annars aö menr.tun á framhaldsskólastigi i Kópavogi verði i samræmdum framhalds- skóla (fjölbrautaskóla) með ein- inga og áfangakerfi sem taki til starfa i upphafi næsta skólaárs, undireinni stjórn M.K. veröi hluti þess skóla og húsnæöisvandi hans leystur til bráöabirgða svo við megi una. „Ég tel afskaplega mikilvægt að skólanefnd hafi náö samkomu- lagi um stefnumörkun skólamála bæjarins þó að ekki sé fariö út i flókin framkvæmdaratriöi enda álit ég þaö verkefni bæjarstjórnar að vinna að þeim og viö hljótum aö treysta henni til aö ráöa fram úr þeim málum”, sagði Hákon Sigurgrimsson, fulltrúi fram- sóknarmanna i skólanefnd. „1 bókuninni felst i raun megin- kjarni tillagna framhaldsskóla- nefndar. Enda var ágreiningur um aðalatriöi ekki eins mikill og á horfði og menn báru gæfu til aö komast aö sameiginlegri niður- stöðu. Að sjálfsögðu eru ekki allir ánægöir með bókunina. Kennarar þeirra skóla sem um er rætt eiga mikilla hagsmuna að gæta og mér er kunnugt um óánægju i þeirra hópi”, sagði Hákon. „Þaö sem mér finnst mikilvæg- ast viö þessa samþykkt skóla- nefndar er aö ef hún veröur stefnumarkandi fyrir skólamála- þróun bæjarins i framtiðinni. Aö hún beinir framhaldsskólanum aö fjölbrautasniöi”, sagði ólafur Jens Pétursson, fulltrúi Alþýðu- bandalagsins i skólanefnd. Sjó

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.