Tíminn - 08.10.1981, Blaðsíða 13

Tíminn - 08.10.1981, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 8. október 1981 fwtoi- 13 Evrópukeppnin f körfuknattleik: Valur mætti ofjörlum sínum — tapaði 118-80 fyrir Crystal Pala ■ Valsmenn mættu ofjörium sinum þegar þeir léku gegn enska li&inu Crystal Palace i Evrópukeppni bikarhafa i körfuknattleik i gærkvöldi og var leikiö i Lundúnum. Lokatöl- ur leiksins uröu 118-80, eftir aö staöan i leikhléi haföi veriö 60-26 enskum i hag. Aö sögn Einars Matthíssen liöstjóra Vals, var þessi leikur eins og þeir höföu búist viö, þar sem Crystal Pal- ace heföi nýtt sér rétt sinn til aö nota tvo bandariska leikmenn auk þess sem aö i liöi Palace hafi veriö tveir aörir Banda- rikjamenn sem nýlega séu orön- ir enskir rikisborgarar. Aö sögn Einars voru leikmenn Palace sumir hverjir mjög háir vexti og hafi þeir raunar leikiö á annarri hæö en Valsmenn. „Við bjuggumst alltaf viö svo miklu tapi þar sem við gátum aöeins haft einn erlendan leik- mann i liði okkar en nærvera Val Brazy heföi skipt okkur miklu þar sem hann hefði komið út i leik sem þessum þar sem við vorum pressaðir svo stlft I sókn- inni”, sagði Einar. Ef litið er á gang leiksins þá tóku þeir strax mikla forystu og komust til dæmis i 14-2, og höfðu yfir i hálfleik eins og áður segir 60-26. Valsmenn voru mjög slappir á taugum I upphafi leiksins og gekk illa að finna sjálfa sig I sókninni. En þegar i upphafi siðari hálfleiks fóru þeir að átta sig betur á hlutunum og veita meiri mótspyrnu, og má til gamans geta þess að siöari hálfleikurinn tapaðist aðeins með fjögurra stiga mun. Rams- ey, Bandarikjamaðurinn I liöi Vals skoraði þá fjórtán körfur Torfi Magnússon lét mest aö sér kveöa i leik Vals og Crystal Palace úr sautján skotum sem verður aö teljast harla gott gegn jafn sterku liði og Palace. Það var samt Torfi Magnússon sem lét mest að sér kveöa I liði Vals þó aö hann skoraði ekki mest þvi hann hirti f jöldann allan af frá- köstum bæði i vörn og sókn auk þess sem hann gerði mikið af þvi að „blokkera” risana hjá Palace. Stigahæstir leikmanna Vals voru Ramsey með 39 stig, Kristján Ágústsson 18 stig, Rik- haröur Hrafnkelsson 13 stig, Torfi Magnússon 7 stig. Að- spurður um leikinn á föstudag- inn, en þá fer fram seinni leikur liðanna einnig I Lundúnum, sagöi Einar að þeir byggju sig undir svipuð úrslit og i gær- kvöldi þar sem Palace hefði mjög skemmtilegu og góðu liði á að skipa. Valsmenn báöu um kveöjur heim og sögöu að allir væru við hestaheilsu og móttök- ur ytra allar hinar glæsilegustu. HG Valsmenn gabbaðir ■ Reglur F.I.B.A. kveða svo á að lið geti fengið að „lán:” einn leikmann frá öðrr. félagi til að leika i Evrópu mótunum i körfu- knattleik. Þennan möguleika hafa islensk félög stundum nýtt sér með þvi að láta tvo bandariska leikmenn leika með liðum sinum, það er að segja þjálfarann og einn lánsmann. Valur hafði samið við stjórn körfuknattleiksdeild- ar Fram um að fá Banda- rikjamanninn i liði þeirra, Val Brazy til liðs við sig, og fengið það samþykkt af F.I.B.A. En svo bregður svo við að leikmenn Fram neita allir sem einn að Brazy fái að fara þó hann hafi verið búinn að samþykkja það sjálfur og mæta á æfingar með Val. Á- stæða leikmanna Fram var kannski skiljanleg þar sem að næsti leikur þeirra i tJr- valsdeildinni er gegn Is- landsmeisturum Njarðvikur. Valur bauðst þá til að gera það sem i þeirra valdi stæði til að fá þeim leik frestað en Framarar neituðu öllum frekari viðræðum um málið og sátu Valsmenn eftir með sárt ennið, þvi að enginn timi var til að útvega annan mann. HG. ÍS mætir KR I körfunni í kvöld ■ Einn leikur fer fram i Úr- valsdeildinni i körfuknattleik i kvöld og leika þá Stúdentar og KR-ingar i tþróttahúsi Kenn- araháskólans klukkan 20. Þar gæti orðið um spennandi viður- eign að ræða þar sem KR leikur nú án Bandarikjamanns, en eru samt þekktir fyrir allt annað en að gefast átkalaust upp, eins og þeir sýndu i leik siðastliðinn laugardag er þeir sigruðu lið IR. HG. ■ Markvörðurinn snjalli óli Ben leikur sinn fyrsta deildarleik með Þrótti gegn Vikingi I kvöld. Timamynd Ella RISASLAGUR í FYRSTA LEIK ■ tslandsmótið i 1. deild hefst i kvöld með stórleik i Laugardals- höll og eigast þar við tslands- meistarar Vikings og bikarmeist- arar Þróttar, þannig aö örugg- lega verður um hörkuleik að ■ ræða. Aðrir leikir i fyrstu umferð eru þeir að KA og Valur leika á Akureyriá laugardaginn og einn- ig Fram og KR, en á sunnudaginn leika svo HK og FH að Varmá. HG. Evrópukeppni unglingalandslida í knattspyrnu: ísland ■ A morgun fer fram fyrri leikur tslands og Belgiu I Evrópukeppni unglingalandsliða skipuöum leik- mönnum 16-18 ára og verður leik- ið á Laugardalsvelli klukkan 16.15. Knattspyrnusambandið vill leggja sitt afi mörkunum til að gefa unglingum og öðrum þeim sem áhuga hafa á að koma og styðja við bakið á strákunum, meðþviaðstillamiðaverðimjög I hóf. Aðgangseyrir verður aðeins Belgía á morgun 10 krónur, og ætti það þvi ekki að hindra neinn i að mæta á völlinn og njóta ódýrrar en góðrar skemmtunar. Siðari leikur lið- anna veröur svo i Belgiu 28. októ- ber en það lið sem sigrar fer i úr- slitakeppni U.E.F.A. sem haldin verður næsta vor. Þjálfari unglingalandsliðsins er Jóhannes Atlason og hefur hann valið eftirtalda leikmenn til að leika fyrir hönd Islands á morg- un: Guðmund Erlingsson, Þrótti Stefán Arnarson, KR, Björn Rafnsson, Snæfelli Davið Egilsson, KR, Einar Björnsson, Fram Gisla Hjálmtýsson, Fylki, fyrir- liði, Halldór Áskelsson, Þór Hannes Jóhannsson, KR, Ingvar Guðmundson, IBK, Jón Halldór Garðarsson, FH, Kristin Jónsson, Fram Kristján Jónsson, Þrótti, Stein Guðjónsson, Fram Sverri Pétursson, Þrótti, Valdimar Stefánsson, Fram Þorstein Þorsteinsson, Fram Dómari verður J.B. Worrall frá Englandi. HG. Ármenn- ingar fá frest ■ Stjórn körfuknattleiks. - sambands Islands ákvað á fundi sinum að gefa Ar- menningum frest til klukkan fimm i dag til að greiöa skuldir sinar við sambandiö og gefa skýringu á þeirri ó- virðingu sem þeir sýndu Keflvikingum með þvi að mæta ekki til leiks siðasta sunnudag. Hafi Armann ekki gert upp sakir sinar við KKI seinnipartinn i dag litur Körfuknattleikssambandið á það sem beina Ursögn úr Is- landsmótinu. Það mundi hinsvegar koma sér mjög illa fyrir hin liðin i deildinni þvi að leikin er fjórföld um- ferð og við að eitt lið heltist úr lestinni myndast miklar eyður. Nær óhugsandi er að nokkurt 2. deildar félag vilji nú taka sæti Armanns i deildinni, þar sem þetta • kemur svo seint upp á og bú- iö að raða niður i riðla 2. deildar. hg. Haukar fá þjálfara ■ Sovétmaöur sá er hand- knattleiksdeild Hauka hafði ráðið til starfa frá og með júli, tilkynnti Haukum fyrir tveimur vikum að af komu hans gæti ekki orðið af óvið- ráöanlegum orsökum. I hans staö kemur hins vegar annar Sovétmaður Kolsov að nafni, og er hann væntanlegur seinnipartinn i desember. ' Kolsov sem er þekktur þjálf- ari i heimalandi sinu hefur gerttveggja ára samning við Hauka og mun hann þjálfa alla flokka félagsins. Þetta kemur sér mjög illa fyrir Haukana að fá þessar fréttir á þessum tima þar sem nú hafa allir þjálfarar ráðið sig til starfa. HG

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.