Fréttablaðið - 09.04.2008, Blaðsíða 2
2 9. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR
Karlmaður lést í bílslysi á
Eyrarbakkavegi laust fyrir
hádegi í gær.
Tildrög slyssins voru þau að
jepplingi var ekið af hliðarvegi
inn á Eyrarbakkaveg, í veg fyrir
vörubíl á leið til suðurs. Ökumað-
ur jepplingsins var úrskurðaður
látinn á vettvangi og báru
lífgunartilraunir ekki árangur.
Ökumaður vörubílsins slapp
ómeiddur en hlaut áfallahjálp.
Ekki er unnt að greina frá nafni
hins látna að svo stöddu.
Fimm hafa látist í umferðar-
slysum það sem af er árinu. - kg
Harður árekstur á Suðurlandi:
Maður lést í
umferðarslysi
Ýsa í thai green curry Nóatún mælir með
998 kr.kg
noatun.is
LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ
Bakað á staðnum
Árni, lék Gore á Als oddi?
„Já, ég var Al-sæll með hann.“
Al Gore, fyrrverandi varaforseti Banda-
ríkjanna, hélt erindi um loftslagsmál í
Háskólabíói í gær. Árni Þór Sigurðsson
alþingismaður var meðal gesta.
SKIPULAGSMÁL Fjárfestirinn Ing-
unn Wernersdóttir hyggst reisa
viðbyggingu með niðurgröfnum
kjallara og bílskúr við hús sitt á
Þingholtsstræti 29a.
Samkvæmt uppdráttum arki-
tektastofunnar Argosar verður
nýja byggingin í líkum stíl og
gamla húsið sem byggt var árið
1916.
Á efri hæðinni verður bílskúr
með anddyri. Þar fyrir ofan verð-
ur bílastæði með aðkomu frá
Grundarstíg. Undir bílskúrnum
og bílastæðinu verður stórt rými
með heitum potti, gufubaði, bún-
ingsherbergjum og þvottahúsi.
Innangengt verður frá báðum
hæðum nýju byggingarinnar í
gamla húsið.
Eins og fram kom í viðtali við
Ingunni í Fréttablaðinu fyrir
tveimur mánuðum þarfnaðist
Þingholtsstræti 29a mikils við-
halds utan sem innan. Hún hefur
hins vegar verið að láta taka
húsið í gegn hátt og lágt og
hyggst standsetja það sem fjöl-
skylduhús.
Í húsinu voru lengst af höfuð-
stöðvar Borgarbókasafns
Reykjavíkur, allt frá árinu 1952
til ársins 2000. Síðast bjó þar
norski listmálarinn Odd Ner-
drum, sem seldi Ingunni húsið í
fyrra.
Erindi Ingunnar var tekið fyrir
á síðasta fundi skipulagsfulltrú-
ans í Reykjavík. Spurðist Argos
fyrir hönd Ingunnnar fyrir um
það hvort henni yrði heimilað að
reisa umrædda viðbyggingu.
„Ekki eru gerðar athugasemdir
við erindið. Byggingarleyfisum-
sókn verður grenndarkynnt
þegar hún berst,“ segir í
afgreiðslu skipulagsfulltrúa.
Þingholtstræti 29a er sögu-
frægt hús og ein þeirra bygginga
í miðbæ Reykjavíkur sem mest-
an svip setja á umhverfi sitt.
Stefán Örn Stefánsson, arkitekt
hjá Argos, játar því að viðbúið sé
að margir muni láta sig útlit við-
byggingarinnar varða.
„Yfirbragðið verður það sama
og í gamla húsinu, til dæmis
verður kopar á þaki,“ segir Stef-
án, sem ekki væntir andstöðu
við áformin. „Þetta verður nú
ekki fyrir viðbyggingu að sjá.
Ofanjarðar er þetta fyrst og
fremst bílskúr. Þetta verður
voðalega lítið áberandi en bætir
fyrst og fremst aðstöðuna í hús-
inu.“ gar@frettabladid.is
Vill reisa jarðhýsi og
bílskúr við Esjuberg
Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík gerir ekki athugasemdir við áform Ingunnar
Wernersdóttur um að reisa viðbyggingu við hið sögufræga hús Esjuberg á Þing-
holtsstræti 29a. Byggja á bílskúr og jarðhýsi með gufubaði og heitum potti.
ÞINGHOLTSSTRÆTI 29A Húsið reisulega sem byggt var árið 1916 og nú er verið að
endurnýja og stækka með viðbyggingu við norðurgaflinn vinstra megin á myndinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
UPPDRÁTTUR Vinstra megin á þessum
uppdrætti sem Argos hefur sent skipu-
lagsfulltrúa sést hvernig nýja viðbygg-
ingin er hugsuð hægra megin við eldra
húsið séð frá Þingholtsstræti.
MYND/ARGOS
Viðbygging
LÖGREGLUMÁL Íslenskur maður um
tvítugt situr nú í gæsluvarðhaldi
eftir að hafa gert tilraun til að
smygla þremur kílóum af amfet-
amíni til landsins. Efnin faldi hann
í fölskum töskubotni.
Það voru tollgæslan og lögregl-
an á Suðurnesjum sem komu upp
um þessa tilraun mannsins. Hann
var að koma frá París á mánudag
þegar hann var stöðvaður í Leifs-
stöð, þar sem efnin fundust í
fórum hans. Hann var úrskurðað-
ur í þriggja vikna gæsluvarðhald í
gær. Maðurinn hefur komið við
sögu lögreglu áður, samkvæmt
upplýsingum Fréttablaðsins. Lög-
reglan á Suðurnesjum vinnur nú
að rannsókn málsins af fullum
krafti.
Lögreglan og tollgæslan á Suð-
urnesjum hafa í sameiningu stöðv-
að allmarga fíkniefnasmyglara og
gert upptæk nær átta kíló af fíkni-
efnum það sem af er þessu ári.
Sex manns sitja nú í gæsluvarð-
haldi eftir að hafa verið stöðvaðir
með fíkniefni í Leifsstöð. Auk pilt-
sins sem tekinn var á mánudag
situr inni Þjóðverji sem reyndi að
smygla inn 23 þúsund e-töflum.
Einnig þrír Pólverjar sem teknir
voru fyrir skemmstu með kíló af
amfetamíni, auk þess sem einn
þeirra var í endurkomubanni.
Loks situr einn maður í gæslu-
varðhaldi vegna svokallaðs hrað-
sendingarmáls, þar sem lögregla
og tollgæsla tóku fimm og hálft
kíló af hörðum fíkniefnum. - jss
Tvítugur maður í þriggja vikna gæsluvarðhaldi:
Var með þrjú kíló af amfet-
amíni í fölskum töskubotni
AMFETAMÍN Lögregla og tollur á
Suðurnesjum hafa tekið nær átta kíló af
fíkniefnum það sem af er ári.
LÖGREGLUMÁL Körfuboltamaður frá
Makedóníu sem leikið hefur hér á
landi frá árinu 2005 hefur verið rek-
inn frá Stjörnunni í Garðabæ vegna
gruns um stórfelldan þjófnað.
Lögreglan handtók manninn, sem
heitir Dimitar Karadzovski, ásamt
kærustu hans á mánudaginn. Dimit-
ar er grunaður um að hafa farið
ránshendi um búningsklefa í
íþróttahúsi Stjörnunnar og jafnvel
víðar, til dæmis í samkvæmum.
Hann hefur leikið með Garðbæing-
um í vetur en lék þar á undan í tvö
ár með Skallagrími í Borgarnesi.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins komst upp um Dimitar
þegar hann hafði falið samlöndu
sinni að koma fyrir hann tösku til
heimalandsins. Í töskunni reyndust
vera farsímar, skartgripir og þess
háttar góss.
Leikmenn Stjörnunnar funduðu í
fyrradag án Dimitars og fóru að því
búnu að heimili hans. Ætlunin var
að freista þess að endurheimta
þýfið en Dimitar framvísaði ekki
nema broti af því sem saknað var.
Við svo búið gerði lögregla húsleit
hjá Dimitar og mun hafa hirt þar
nokkuð af meintu þýfi auk þess að
handtaka leikmanninn. Kærust-
unni, sem leikur með körfuboltaliði
í Reykjavík, var sleppt eftir yfir-
heyrslur. Dimitar var látinn laus í
gær.
Auk þess að leika með Stjörnunni
starfaði Dimitar hálfan daginn á
dagheimili. Kannað er hvort hann
kunni að hafi tekið hluti þar og í
Borgarnesi ófrjálsri hendi. - gar
Fingralangur Makedóníumaður rekinn frá körfuboltaliði Stjörnunnar í Garðabæ:
Neitaði að skila ránsfengnum
DIMITAR KARADZOVSKI Liðsmenn
Stjörnunnar grunaði ekki Dimitar um
græsku. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SVÍÞJÓÐ Evrópudómstóllinn hefur
komist að þeirri niðurstöðu að
skattlagning Svía á bjór brjóti
ekki gegn reglum Evrópusam-
bandsins. Sænsk stjórnvöld
hefðu því ekki þurft að breyta
skattlagningu sinni eins og þau
gerðu eftir að hafa fengið
athugasemd frá Evrópuráðinu,
að því er fram kemur á vefút-
gáfu Expressen.
Í rökstuðningi Evrópudóm-
stólsins kemur fram það mat að
skattlagningin hafi ekki fengið
neytendur til að velja frekar
sænskan bjór í staðinn fyrir
innflutt vín sem þó voru aðalrök
Evrópuráðsins. Dómstóllinn
telur að verðmunurinn á einum
lítra af víni og einum lítra af
bjór sé svo mikill hvort sem er
að neytendur hefðu varla farið
að velja vín í staðinn.
- ghs
Evrópudómstóllinn:
Bjórskattur
Svía var í lagi
SAMGÖNGUR Framkvæmdastjóri
Bílastæðasjóðs vill hækka gjald í
stöðumæla í Reykjavík. Hæsta
gjald fyrir bílastæði í Reykjavík
er 150 krónur á klukkustund en í
Kaupmannahöfn eru teknar
rúmar 400 krónur fyrir sambæri-
legt stæði, að því er fram kemur í
tilkynningu frá Umhverfissviði.
„Gjaldskrá þarf að hækka í
Reykjavík og ökumenn þurfa að
huga betur að umgengni sinni
gagnvart gangandi og hjólandi
vegfarendum,“ segir Kolbrún
Jónatansdóttir framkvæmda-
stjóri Bílastæðasjóðs Reykjavík-
urborgar, í tilkynningu á vef
Reykjavíkurborgar. - kh
Yfirmaður Bílastæðasjóðs:
Vill hækka
stöðumælagjald
VINNUMARKAÐUR Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga, FÍH, hvetur
íslenska hjúkrunarfræðinga til
að sýna samstöðu og sækja ekki
um vinnu í Danmörku, Noregi
og Svíþjóð meðan á kjarabar-
áttu og verkfallsaðgerðum
hjúkrunarfræðinga í þessum
löndum stendur. Þetta kemur
fram á vefsvæði FÍH.
Stéttarfélag danskra hjúkrun-
arfræðinga hefur tilkynnt
viðsemjendum sínum að gripið
verði til aðgerða í ljósi þess að
ekki hafi náðst saman um nýja
samninga. Verkfallsaðgerðirnar
ná til um 40 þúsund hjúkrunar-
og geislafræðinga. Aðgerðir eru
boðaðar í Svíþjóð frá 21. apríl
og verkfall hefst í lok maí náist
samkomulag ekki.
- ghs
Hjúkrunarfræðingar:
Vilja samstöðu
á Norðurlöndum
Dylan verðlaunaður
Blaðamenn á bandaríska dagblaðinu
Washington Post fengu Pulitzer-verð-
launin í sex flokkum fyrir árið 2007,
meðal annars í flokknum almanna-
þjónusta og fréttir. New York Times
fékk einnig verðlaun fyrir rann-
sóknablaðamennsku og upplýsandi
umfjöllun. Söngvarinn Bob Dylan fékk
heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til
alþýðutónlistar.
PULITZER VERÐLAUNIN
Banaslys varð í skýli Flugfraktar-
innar við Reykjavíkurflugvöll um
klukkan hálfsjö í gærkvöld. Bíll,
sem hafði verið lyft upp og verið
var að gera við, féll ofan á mann
sem lá undir honum. Ekki var
vitað nánar um slysið þegar
Fréttablaðið fór í prentun í
gærkvöldi.
Þetta er í annað sinn á stuttum
tíma sem banaslys verður með
þessum hætti en maður lést í
Hafnarfirði nýlega þegar bíll,
sem hann var að gera við, féll
ofan á hann. - ghs
Reykjavíkurflugvöllur:
Banaslys þegar
bíll féll á mann
SPURNING DAGSINS