Tíminn - 27.11.1981, Blaðsíða 13
Föstudagur 27. nóvember 1981
21
fþróttir
Stúdent-
ar enn
án stiga
— töpuðu í gærkvöldi 82-97
fyrir Njarðvík í úrvalsdeildinni
í körfuknattleik
■ Stúdentar höföu ekki mikiö að
gera i íslandsmeistara Njarð-
vikur er félögin mættust i úvais-
deildinni i körfuknattleik i
iþróttahúsi Kennaraháskólans i
gærkvöldi. Njarðvik sigraði 97-82
eftir að hafa haft 57-45 yfir I hálf-
leik.
UMFN
leikur
gegn
Þór
■ Islandsmeistarar Njarðvikur i
körfuknattleik halda um helgina
norður til Akureyrar þar sem þeir
munuleika tvoleikivið 1. deildar
lið Þórs. Fyrri leikurinn verður i
kvöld og hefst hann kl. 20 og með
Þór i þeim leik mun Bandarikja-
maðurinn Tim Higgins leika en
hann leikur annars með Keflvik-
ingum. Siðari leikurinn verður
siðan á morgun og hefst hann kl.
15 og þá mun Danny Shouse leika
með Þór ásamt Higgins. Báðir
leikirnir verða i Iþróttaskemm-
unni.
Aðalfundur
■ Aðalfundur Goifkiúbbs
Reykjavikur verður haldinn á
sunnudaginn og verður fundurinn
i golfskáianum i Grafarholti og
hefst hann kl. 14.
Þó munurinn hafi aðeins verið
15 stig i lokin á m illi félaganna þá
var munurinn á liðinum enn
meiri. Njarðvikingar hefðu getað
unnið þennan leik enn stærra
heldur en raun bar vitni.
Eins og svo oft áður i leikjum
Stúdenta, þá leiddu þeir leikinn i
upphafi, en i flestum leikjum er
það aðeins fyrstu minúturnar og
svo varð einnig i leiknum i gær-
kvöldi. Þegar 10. min. voru liðnar
af leiknum náðu Njarðvikingar að
jafna 22-22 og tóku siðan for-
ystunasem þeirmisstu ekki niður
það sem eftir var, bættu við og
gátu að þvi er virtist bætt enn
meira við, þvi ekki var keyrt á
fullu i þvi liði og ungu leik-
mennirnir fengu mikið að vera
með i leiknum.
Um lið Stúdenta er litið að segja;
litlar likur eru á að þeir nái að
forðast fall niður i 1. deild, enn
hafa þeir ekkert stig hlotið og að
mati undirritaðs verða þau fá, ef
nokkur, sem þeir innbyrða. Svo
virðist sem helmingur úthalds
sumra leikmanna Stúdenta liðs-
insfariiþaðað nöldra i dómurun-
um og þá er ekki að leikslokum að
spyrja.
Danny Shouse skoraði mest
fyrir Njarðvikinga 29 stig. Valur
kom honum næstur með 20 stig og
Július skoraði 15 stig. Dennis
McGuire skoraði 25 stig fyrir IS
Bjarni Gunnar 16 og Gisli 11.
röp.—
Staðan
■ Staðan i úrvaisdeildinni i
körfuknattleik er nú þessi:
1S — Njarðvík 82-97
Njarðvik..........8 7 1 648-594 14
Fram ............7 6 1 597-533 12
Valur ...........7 4 3 553-534 8
KR................6 2 4 430-459 4
ÍR................7 2 5 524-553 4
ÍS..............7 0 7 0524-592 0
Fyrsti sigur-
inn gegn
Finnum
— Island sigraði Finna 4-2
í landsleik í badminton
■ Siðastliðið mánudagskvöld
var leikinn landsleikur i bad-
minton á milli lslands og Finn-
lands og fór leikurinn fram i TBR
húsinu. Þetta var fjórði landsleik-
urinn á milli þjóðanna og lauk
honum með sigri íslands 4-2.
Þrem fyrri landsleikjunum lauk
öllum með sigri Finna og var
þetta þvi kærkominn sigur fyrir
islenska badmintonfólkið. Hér á
eftir fara siðan úrslitin i lands-
leiknum:
Einli. kvenna (DS):
Nina Sundberg, Kristin Magnús-
dóttir, 11/7-5/11-4/11
Tvill. karla (HD):
Pekka Sarasjarvi, Ronald V.
Hertzen, Sigfús Ægir Arnason,
Viðir Bragason, 7/15-15/5-15/5
Tvili. kvenna (DD):
Nina Sundberg, Jaana Ellia,
Kristin Magnúsdóttir, Kristin B.
Kristjánsdóttir, 5/15-4/15
Einll. karla (HS)
Tony Tuominen, Pekka
Sarasjarvi, Broddi Kristjánsson,
Jóhann Kjartansson, 11/5-15/6-
12/15 — 5/15-15/13-13/18.
Tvenndarleikur (MD):
Tony Tuominen, Guðmundur
Adolfsson, Jaana Ellila, Kristin
B. Kristjánsdóttir, 16/18-15/13-
15/8
■ Bjarni Gunnar og félagar hans i la hafa enn ekkert stig hlotið I
úrvalsdeildinni
Tómas er með
góða forystu
um gullspaðann í borðtennis
— í keppninni
■ Um siðustu helgi fór frá á
HUsavfk punktamót i borðtennis
og var það fyrsta punktamótið i
borðtennis sem haldið er á
Norðurlandi. GuðimundurMarius-
son, KR sigraði i meistaraflokki
karla, Bjarni Kristjánsson,
UMFK varð annar og í þriðja sæti
varð Jóhannes Hauksson, KR.
Kristján Viðar Haráldsson HSÞ
sigraði i 2. flokki.
Punktastaðan i meistaraflokki
karla i keppninni um Stiga gull-
spaðans er nú þessi:
1. Tómas Guðjónsson KR 48
punktar
2. Bjarni Kristjánsson UMFK 17
P-
3. Guðmundur Mariusson KR 13
P-
4. -5. Gunnar Finnbjömsson Em-
inum 12
4.-5. Kristján Jónasson Vikingi 12
P-
6. Tómas Sölvason KR 9 p.
7. Jóhannes Hauksson KR 8 p.
8. -9. Hilmar Konráðsson Vikingi 3
P-
8.-9. Stefán Konráðsson Vikingi 3
P-
10.-12. Davið Pálsson Eminum 1
P
10.-12. Ragnar Ragnarsson
Erninum 1 p.
10.-12. Þorfinnur Guðmundsson
Vikingi 1 p.
Þykir Hörður
ekki hæfur?
— Dómaranefnd KKÍ hefur sett Hörð
Tuliníus alþjóðlegan
körf uknattleiksdómara út í kuldann
■ ,,Þaö er of vægt til orða tekiö
að segja að ég sé undrandi ég er
svo hissa á þessari framkomu
að ég á ekki til eitt einasta orð
yfir þetta, sagði Hörður Tulinius
körfuknattleiksdómari I samtali
við Timann, en Höröur sem er
okkar reyndasti dómari i körfu-
knattleik hefur vægast sagt sætt
undarlegri meðhöndlun starfs-
bræðra sinna sem sjá um niður-
röðun dómara á leiki i tslands-
mótinu.
Þegar Hörður var á sjúkra-
húsi i Reykjavik i sumar tók
hann að að sér að raða niður
dómurum á leiki I úrvalsdeild-
inni fram aö áramótum og skil-
aði niðurröðun sinni til réttra
aðila.
Þar sem hann átti við sjúk-
leika að striöa siðastliðiö sumar
setti hann sjálfan sig ekki sem
dómara nema á einn Urvals-
deildarleik fram að áramót-
um,en hugðist siðan dæma af
fullum krafti eftir áramótin.
Nýlega barst honum siöan i
hendur niðurröðun dómara-
nefndar á leikjum sem fram
eiga að fara eftir áramótin.
Kom þá i ljós að hann var ekki
settur á einn einasta leik i Ur-
valsdeildinni og ekki heldur á
neinn 1. deild. Hann þykir að
mati þeirra sem sjá um þessi
mál hjá KKl aöeins vera hæfur
til að dæma leiki i 2. deiid hér
nyröra!
Auk þess sem Höröur hefur
mesta reynslu allra dómara
islenskra sem dæma körfu-
knattleik er hann annar tveggja
dómara okkar sem hafa alþjóð-
leg réttindi. Hann hefur kostaö
miklu til, til að öðlast þau
réttindi og viöhalda þekkingu
sinni.Og siöan siðastliðið sumar
fór hann á eigin vegum á nám-
skeið fyrir alþjóðadómara sem
haldiö var i Austurriki. Þvi
kemur þessi framkoma ráða-
manna hjá KKI eins og köld
vatnsgusa framan i hann enda
ekki nema von. A sama tima og
dómaramál virðast vera I
ólestri i höfuðborginni og
nágrenni hennar ef marka má
blaðaskrif er Höröur settur Ut i
kuldann. Hafa þeir sem þessu
ráða efni á slikri framkomu og
hafa þeir siöferðislegan rétt á
að koma svona fram viö mann
sem ávallt hefur verið boðinn og
búinn til að dæma hvar og hven-
ær sem þess hefur verið þörf?
Þaö ersvo sannarlega ástæöa
til þess að dómaranefnd KKÍ
geri hreint fyrir sinum dyrum.
Það sem þeim ber að gera er aö
biöja Hörö afsökunar á þessu
óskiljanlega athæfi og siöan að
taka niðurröðunina til endur-
skoðunar. Geri þeir það ekki er
ekki víst aö þeir geti I fram-
tiðinni stólað á Hörð Tulimus
eins og hingað til hvað þá að
þeir fái annaö tækifæri til aö
traðka á honum eins og þeir
hafa nú gert.
GK-Akureyri