Tíminn - 13.01.1982, Blaðsíða 20
VARAHLUTIR Mikið úrval
Sendum um land allt
Kaupum nýleg a Opið virka daga
bíla til niðurrifs ® 19 ' ^a"far
Sími (91) 7- 75-51, (91) 7 - 80-30. daga 101b
HEDD HF. SkeKópaUvo|i 20 HEDD HF.
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
labriel
HÖGGDEYFAR
GJvarahlutir
Armiila 24
Sími 36510
EKKIUM ANNAÐ AÐ
RÆÐA EN LÆRA MAUÐ
— rabbað við Rartdall Hyman, bandarískan Ijósmyndara,
sem hefur ferðast mikið um ísland
■ „Ég kem með þessa ljós-
myndasýningu hingað til tslands,
til þess að sýna þeim fjölmörgu
Islendingum sem aðstoðuðu mig
dyggilega, þegar ég ferðaðist um
ísland til þess aö ljósmynda ýmis
náttúrufyrirbæri landsins, árang-
urinn af starfi minu”, sagði
Kandall Hyman, ungur Banda-
rikjamaður, ljósmyndari og jarð-
fræðingur, i viðtali við Timann,
en Randall verður með sýningu á
ljósmyndum sinum á Kjarvals-
stöðum frá 15. til 31. janúar.
„Sýningin var sett upp í
St. Louis”
— Ljósmyndari og jarðfræð-
ingur — er það ekki fremur ó-
venjuleg samsetning?
„Jú, það má segja það, en ég
fékk að stunda nám i tveimur ó-
likum deildum, þegar ég var við
háskólanám i Bandarikjunum, og
lagði ég þvi jafnhliða stund á
jarðfræði, liffræði og ljósmyndun.
Þessi sýning sem ég kem núna
með hingað til lands var sett upp i
safni i St. Louis og stóð i tvo mán-
uði. Þegar henni lýkur hérna þá
ferðast hún um Bandarikin og
verður sett upp á ýmsum stöð-
um.”
— Frá hvaða tima eru þessar
myndir?
„Ég kom hingað fyrst 1976 og
fyrstu myndirnar eru frá þeim
tima. Ég ferðaðist um allt Island
og tók myndir. Á þessari sýningu
eru 67 litmyndir viðs vegar að á
Islandi, s.s. frá Kröflu, Vest-
mannaeyjum, Grimsey og Vig-
ur.”
Randall sýnir blaðamanni
nokkrar mynda sinna, sem birst
hafa i bandariskum náttúrufræði-
og landafræðitimaritum, og eru
þær vægast sagt stórfallegar.
Randall segist jafnframt skrifa
greinarnar sem birtar eru með
myndum hans sjálfur, enda séu
þessar skoðunarferðir hans, jafn-
framt þvi að vera ljósmyndaferð-
ir, jarðfræðikönnunarferðir.
Blaðamanni leikur hugur á að
vita hvernig standi á þvi að Rand-
all talar lýtalausa islensku, með
örlitlum bandariskum hreim:
„Já.eins og ég sagði,þákom ég
hingað fyrst 1976 og nú er ég
hérna i sjötta sinn. Ég ferðaðist
mikið um landið i þessum heim-
■ Randall Hyraan, ljósmyndarinn og jarðfræðingurinn sem opnar sýningu á ljósmyndum sinum frá tslandi
að Kjarvalsstöðum nú á föstudaginn. — Timamynd — Ella
sóknum minum en dvaldist þó oft
talsverðan tima á hverjum stað.
Þegar ég dvaldist úti á landi, t.d.
á einhverjum bóndabænum, þá
var ekki um neitt annað að ræða
fyrir mig en að læra málið, þvi
heimamenn voru ef til vill ekki
allt of vel að sér i ensku. Ég hef
svo haft tækifæri til þess að við-
halda þessari islenskukunnáttu
minni þegar ég hef komið hingað
aftur.”
Tekur nú myndir fyrir
bókadeild National Geo-
graphic
— Kemur þú eingöngu hingað
út af sýningunni þinni?
„Ég nota tækifærið fyrst ég er
kominn hingað enn einu sinni og
tek eitthvað af myndum fyrir
bókadeild National Geographic,
en eins og ég sagði áðan, þá kem
ég fyrst og fremst hingað til þess
að sýna velgjörðarmönnum min-
um árangur starfs mins hér á
landi.”
Þess má geta hér, að sýning
Randalls að Kjarvalsstöðum
verður opin daglega frá 14 til 22,
nema opnunardaginn þvi sýning-
un verður opnuð kl.20 nú á föstu-
daginn og verður aðgangur ó-
keypis og öllum heimill.
— AB
Miðvikudagur 13. janúar 1982.
fréttir
Tvö gömul timb-
urhús ónýt eftir
bruna á Suðureyri
■ Um hálf sjöleytið i
gærmorgun vöknuðu
ibúar á Suðureyri við
Súgandafjörð upp við
illan draum þegar
brunalúður staðarins
fór af stað. Kom i ljós
að kViknað hafði i
gömlum timburhúsum
við Rómarstig 3 og 3a.
Eru þetta sambyggð
hús, annab þeirra for-
skalað en hitt járn-
kiætt að utan.
Mikill reykur var
þegar að var komið,
og gekk erfiðiega að
finna eldinn tii að
byrja með. Eftir að
búið var að rjúfa þekj-
una af húsunum og
járnklæðningu af gafli
annars hússins kom
eidurinn þó loksins i
ljós í miliiþilinu á milli
húsanna. Siökkvi-
starfið gekk vel upp
frá þvi, og var iokið
fyrir kiukkan átta ár-
degis.
Húsin eru nær ónýt
eftir brunann. „Þau
voru jú, léieg fyrir, en
ég held að þetta hafi
riðið þeim að fullu”,
sagði Gestur Krstins-
son, hreppstjóri á Suð-
ureyri, i samtaii við
Timann i gær. Það var
siökkvilið Suðureyrar-
hrepps sem annaðist
slökkvistarfið.
— Kás
Blaöburöarbörn
óskast
Timann
vantar
fólk til
blaðburðar
i eftirtalin
hverfi:
TONGÖTU
GARÐASTRÆTI
SKJÓLIN
SÖRLASKJÓL
Simi 86-300
dropar
Forvitnar
sálir og
rSamtök ’78’
■ Skömmu fyrir jólin
héldu „Samtök ’78” árs-
hátið í Manhattan i Kópa-
vogi, en sem kunnugt er
þá eru umrædd samtök
félagsskapur þeirra, sem
fremur kjósa að sam-
rekkja með einstakling-
um af sama kynferði og
þeir eru sjálfir.
Arshátiðin var augiýst I
útvarpinu, sem olli þvf að
ýmsar forvitnar sálir
komu sér fyrir i námunda
viö veitingahúsið i þvi
skyni að svala löngun
sinni til þess að fá barið
augum félaga i ofan-
greindum samtökum. Um
ellefuleytið um kvöldið lá
við sjálft að augun dyttu
úr þeim sem lágu á gægj-
um, en þá tóku ýmsir
þekktir broddborgarar að
tinast út af veitingastaðn-
um. Þótti gægjurunum
sem nú hefðu þeir heldur
en ekki komist i fcitan
bita.
Skýringin fékkst ekki
fyrr en nokkru seinna, en
hún var sem sé sú, að
virðulegur rotary-klúbb-
ur hafði haft húsið á leigu
fyrri hluta kvöldsins —
„Samtök ’78” mættu ekki
til ieiks fyrr en seinna um
kvöldið.
Áskorun til
Moggans
■ Ritstjórar Morgun-
blaðsins gera sér ýmis-
legt til dundurs þessa
dagana, þótt ekki hafi
þeir árangur sem erfiði
við að ala á sundrungu og
óánægju I islensku þjóðfé-
lagi. 1 Mogganum f gær
var áskorun á Timann um
að taka þátt i þeim Ijóta
leik, en að sjálfsögðu
verður Mogginn látinn
einn um slika iðju.
Hins vegar telur TÍm-
inn rétt að svara áskorun
með annarri áskorun.
Þeir Moggamenn eru sem
sagt mjög hvattir til þess
að birta I blaði sinu, ó-
stytta og óbreytta ræðu
þá sem borgarstjóraefni
Sjálfstæðismanna, Davið
Oddsson, flutti f borgar-
stjórn Reykjavikur síðla
nætur aðfaranótt siðast-
liðins föstudags, þegar
umræða um fjárhagsá-
ætiun borgarinnar var á
dagskránni.
Krummi ...
sér i Alþýðublaðinu að
Jón Baldvin hefur tekiö á-
kvörðun um að Sigurjón
Pétursson hafi „kveikt á
norska jólatrénu f sfðasta
sinn”. Er endanlega
slokknað á Jóni?