Fréttablaðið - 01.07.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
1. júlí 2008 — 177. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Mikið úrval af
upphengdum salernum
Baldursnesi 6
Akureyri
Sími 414 1050
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
Opið virka daga frá 8 -18
Masterklass
Girnileg nýjung
með 2 í pakka.
Fæst í næstu verslun.
Meistara-
flokkssúpur
Nýjung
GUNNAR INGI SIGURÐSSON
Notar hverja stund til
að hreyfa sig
• heilsa • sumar
Í MIÐJU BLAÐSINS
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Á annasömum vinnudegi er oft erfitt að finna
tíma fyrir heilsuna. Gunnar Ingi Si ðframkv d
Hleypur upp og niður stiga
Vinnufélagarnir veðja um það hvenær Gunnar dettur í stiganum en hann notar hverja stund til að hreyfa sig. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÚTIGRILL FYRIR ALLAAlmenningsútigrill er að finna víða um borgina. Mikil-vægt er að ganga vel um.SUMAR 3
STRANDBLAK Í SUMAR
Fáir vita að strandblak er þó nokkuð stundað hér á landi.
HEILSA 2
MAGNÚS OG ÁRNI JÓN
Líður vel í skugganum
Bræður þekktra grínista gerast handrits-
höfundar
FÓLK 22
Yrkir um golf
Öreigaskáldið Kristján
Hreinsson yrkir vísur og
sögur um golf, íþrótt
sem kölluð hefur
verið ríkra manna
sport.
FÓLK 24
LH HESTAR
Landsmót
hestamanna 2008
Sérblað frá Landssambandi hestamanna-
félaga
Aftur opið almenningi
Keldur hafa verið opnaðar á ný
eftir veigamiklar viðgerðir.
TÍMAMÓT 18
Með kvæntum
manni
Sienna Miller heldur áfram
að hneyksla og slær
sér nú upp með
kvæntum manni.
FÓLK 22
ÍÞRÓTT • MENNING • LÍFSSTÍLL
lh hestar
ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2008
Frægasti stóðhestur landsins, Orri frá Þúfu, verður til sýnis fyrir Landsmótsgesti á Hestatorgi á LM2008. Einnig Kraflar og Keilir frá Miðsitju. Allir hafa þeir hlotið Sleipnisbikarinn og heiðursverð-laun fyrir afkvæmi. Hestatorg er samstarfsverkefni félagasamtaka, stofnana og skóla sem tengjast hestamennskunni og er staðsett í Rangárhöllinni, nýrri reiðhöll sem risin er á Gaddstaðaflötum. Dag-skrá verður á Hestatorginu frá fimmtudegi til sunnudags. Þar munu aðilar torgsins kynna starf-semi sína. Þekktir reiðkennarar stíga á stokk, og á bak, og miðla af reynslu sinni. Síðast en ekki síst verður hægt að berja þar augum hinn fræga Sleipnisbikar, æðstu verðlaun mótsins.
Orri frá Þúfu á Hestatorgi
Orri frá Þúfu.
MYND/JENS EINARSSON
Börnum mun ekki leiðast á LM2008. Húsasmiðjan hefur í samvinnu við LM2008 sett upp leiksvæði fyrir börn á Gadd-staðaflötum, Húsasmiðjugarð-inn. Þar verður stanslaus dag-skrá fyrir börn á öllum aldri frá morgni til kvölds. Í garðinum verða kindur og hestar, rólur og vegasölt, sandkassar og renni-brautir, heybaggar, sparkvöllur og leiktjöld. Jónsi mætir í garð-inn með „Landsmótshreystina“ og Sveppi mætir líka. Halla og Gulli syngja lög úr söngleikn-um Abbababb og Búri og Bína syngja lög sem allir krakkar kunna. Og svo verður söngva-keppni þar sem jafnvel ÞÚ getur unnið!
Þess má geta að frítt er inn í Húsasmiðjugarðinn og barna-gæsla er í boði Húsasmiðjunnar.
Húsasmiðju-
garðurinn slær öll met
Leiktæki af öllum stærðum og gerðum
verða í Húsasmiðjugarðinum.
MYND/JENS EINARSSON
Landsmót hestamanna hófst á Gaddstaðaflötum við Hellu í gær. Mótið nær hápunkti um helgina. Búist er við tólf til fjórtán þúsund áhorfendum, þar af nokkur þúsund erlendum gestum.
LUKKA KOM EKKI Á ÓVARTEitt þeirra hrossa sem Landsmóts-gestir fá að njóta er hryssan Lukkafrá Stóra-Vatnssk ð
eru með 8,81 í aðaleinkunn. Það sem ekki síst hefur vakið athygli varðandi þennan mikla og fagra gæðing, er að hún á ekki til frægra né hátt dæmdra hrossa að telja. Benedikt G. Benediktsson, eig-andi Lukku, segir að hún hafi ekki komið sér á óvart.
„Lukka kom mér ekki á óvart. Ég þekki það sem að henni stend-ur. Það er hins vegar einstök heppni þegar hross verður svoafburð
TVÆR SVARTAR STJÖRNUR Fleiri stjörnur verða á LM2008. Kappi frá Kommu og Seiður frá Flugumýri II eru báðir kolsvartir fjögra vetra stóðhestar. Þeir settu báðir heimsmet í einkunn í for-skoðun, báðir sýndir af hinni snjöllu Mette Mannseth. Marg-ir bíða spenntir eftir að sjá þessa fola. Þá er búist við afar harðri og spennandi keppni í
Lukka á Landsmóti
Lukka frá Stóra-Vatnsskarði. Knapi Hans Þór Hilmarsson.
MYND/JENS EINARSSON
Rúnar Geir Ólafssoner með búfjárræktardelluBLS. 6
HANDBOLTI Alfreð Gíslason var í
gær ráðinn þjálfari Þýskalands-
meistara Kiel til næstu þriggja
ára. Kiel greiddi Gummersbach
um 100 milljónir króna fyrir að
fá Alfreð, sem gerir hann að
dýrasta þjálfara heims.
„Þetta er mikill heiður og
stórkostlegt tækifæri fyrir mig
að fá að þjálfa þetta lið. Ef menn
í boltanum hafa ekki áhuga á því
að þjálfa Kiel þá geta þeir allt
eins hætt,“ sagði Alfreð. Hann
tekur við af hinum farsæla Noka
Serdarusic sem stýrði liðinu
ellefu sinnum til sigurs í þýsku
deildinni á fimmtán árum.
- hbg / sjá síðu 26
Alfreð Gíslason:
Dýrasti þjálf-
ari í heimi
SKRIFAÐ UNDIR Alfreð sést hér skrifa
undir samninginn í gær ásamt Uwe
Schwenker, framkvæmdastjóra Kiel.
MYND/LIVING SPORTS
VINDASAMT Í dag verða víða
norðaustan 10-15m/s, hvassast
undan SA-ströndinni. Vætusamt
NA- og A-til en vaxandi úrkoma
með kvöldinu annars staðar. Hiti
8-16 stig, hlýjast suðvestanlands.
VEÐUR 4
8 8
8
13
15
HEILBRIGÐISMÁL Hópur vísindamanna á vegum
National Institute on Drug Abuse (NIDA), fíkniefna-
rannsóknarstofnunar sem heyrir undir Heilbrigðis-
stofnun Bandaríkjanna, er nú í heimsókn á Íslandi á
vegum SÁÁ, Samtaka áhugafólks um áfengis- og
vímuefnavandann.
Hópurinn kannar möguleika á rannsóknarsam-
vinnu við SÁÁ, Íslenska erfðagreiningu og Landspít-
alann.
Einkum verða kannaðir möguleikar á rannsóknum
á áhrifum vímuefnameðferðar SÁÁ, helstu líffræði-
legu áhættuþáttum sem verða til þess að ungt fólk
leiðist út í vímuefni, áhrifum vímuefna og næringar-
ástands á heilsu vímuefnafíkla og smitsjúkdómum
meðal fíkla.
Til greina kemur að NIDA styrki rannsóknarsam-
vinnu bandarísku vísindamannanna og SÁÁ.
Fyrir hópnum fer Nora D. Volkow, forstöðumaður
NIDA, sem er margverðlaunaður fræðimaður á
sviði fíkniefnarannsókna. Bandaríska vikuritið Time
útnefndi hana nýlega eina af hundrað áhrifamestu
manneskjum heims. - gh
Vísindamenn á vegum Heilbrigðisstofnunar Bandaríkjanna heimsækja Ísland:
Kanna samstarf við SÁÁ
KJARAMÁL Stór hluti íslenskra ljós-
mæðra hefur sagt störfum sínum
lausum vegna óánægju með launa-
kjör. Að sögn deildarstjóra á
sjúkrahúsum voru uppsagnir enn
að berast þegar Fréttablaðið fór í
prentun í gærkvöld.
Tíu af þrettán ljósmæðrum við
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
sögðu upp í gær, meirihluti á Akra-
nesi og á Ísafirði, tugir ljósmæðra
á Landspítala Háskólasjúkrahúsi í
Reykjavík og talsvert margar á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri, samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins. Uppsagnarfrestur-
inn er þrír mánuðir, en verði deilan
ekki til lykta leidd í byrjun októ ber
geta stofnanir lögum sam kvæmt
gripið til þess neyðarúrræðis að
framlengja hann um þrjá mánuði
til viðbótar.
Þórunn Benediktsdóttir, deildar-
stjóri kvennadeildar á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja, segir starfsemi
fæðingar- og mæðra verndardeilda
munu leggjast af ef uppsagnirnar
gangi í gegn.
Ljósmæður neituðu á laugardag
að skrifa undir kjarasamning BHM
og ríkisins. Þær funda með ríkis-
sáttasemjara á föstudag. Samn-
inganefnd ríkisins hefur hins vegar
ekki umboð ráðherra fyrir því að
semja um sérkjör við ljósmæður.
Í stjórnarsáttmála Sjálfstæðis-
flokks og Samfylkingar er kveðið
á að um að endurmeta skuli laun
hefðbundinna kvennastétta í við-
leitni til að útrýma kynbundnum
launamun.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar,
segir að til standi að efna loforðið
á kjörtímabilinu og bendir á að
félagsmálaráðherra hafi lýst því
yfir að áætlun um leiðréttingu
kynbundins launamunar verði lögð
fram í haust. Hún bætir þó við að
ljóst sé að deiluna þurfi að leysa.
„Það þolir enga bið,“ segir hún.
Ekki náðist í Guðlaug Þór Þórðar-
son heilbrigðisráðherra, Árna
Mathiesen fjármálaráðherra,
Jóhönnu Sigurðardóttur félags-
málaráðherra, Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur, formann Samfylk-
ingar innar, eða Ástu Möller, for-
mann heilbrigðisnefndar Alþing-
is, í gær. - sh
Fjöldi ljósmæðra segir upp
Tugir ljósmæðra um land allt sögðu upp störfum í gær vegna óánægju með kjör. Þær gagnrýna að sex ára
menntun þeirra sé ekki metin að verðleikum. Þingmaður Samfylkingar segir lausn deilunnar ekki þola bið.
SIGURJÓN BRAGI Á FENG Landsmót hestamanna hófst á Hellu í gær. Á þriðja þúsund var komið til að berja knapa og gæðinga
augum en búist er við að allt að fimmtán þúsund manns mæti á landsmótið. Hér sést knapinn Sigurjón Bragi Geirsson hjá hesta-
félaginu Gusti ríða hestinum Feng frá Hofsstöðum. Sjá síðu 4 MYND/JENS EINARSSON
Landsbankadeild karla
Sigurganga KR hélt
áfram í viðburðaríkum
leik í gær-
kvöld.
ÍÞRÓTTIR 26-27