Fréttablaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 2
2 5. júlí 2008 LAUGARDAGUR DÓMSMÁL Ákæra fyrir stórfelld skattsvik og bók- haldsbrot hefur verið gefin út á hendur Jóni Ólafssyni, fyrrverandi eiganda Norðurljósa, þar á meðal Stöðvar 2, Skífunnar og fleiri fyrirtækja. Þrír aðrir fyrrum starfsmenn Norðurljósa og undirfyrir- tækja þeirra eru ákærðir með Jóni fyrir eigin skattsvik og brot framin í rekstri fyrirtækjanna. Efnahagsbrotadeild Ríkis lögreglu stjóra hefur rannsakað málið í sex ár. Ákæran verður þingfest 16. júlí. Jóni er gefið að sök að hafa á tímabilinu 1999 til 2002 vanrækt að telja upp til skatts um 350 milljónir af eigin launatekjum, fjármagnstekjur upp á um tvo milljarða og eignir upp á tæpar þrjú hundruð milljónir. Þannig hafi hann komist hjá því að greiða rúma 361 milljón króna í skatt. Jón er jafnframt ákærður, ásamt öðrum, fyrir brot í rekstri þriggja fyrirtækja sem hann stýrði sem stjórnarformaður, Norður ljósa, Skífunnar og Íslenska útvarpsfélagsins. Hreggviður Jónsson, fyrr ver andi framkvæmda- stjóri Norður ljósa, er ákærður fyrir að svíkja rúmar 24 milljónir undan skatti af eigin launum. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa kallað tekjur endurmenntunargjöld sem í raun voru persónuleg útgjöld. Hann er jafnframt ákærður ásamt Jóni fyrir meiriháttar skattalaga brot í störfum sínum fyrir Norðurljós. Ragnar Birgisson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Skífunnar, er ákærður fyrir að hafa svikið tæpar fimm milljónir undan skatti af eigin launum og auk þess fyrir skattalagabrot í rekstri Skífunnar í félagi við Jón. Þá er Símon Ásgeir Gunnarsson, fyrrverandi endurskoðandi Íslenska útvarpsfélagsins, ákærður, líkt og Hreggviður og Jón, fyrir brot gegn skattalög- um í rekstri þess fyrirtækis. stigur@frettabladid.is Arnþór, er embættiskerfið blint á kosti þína? „Já, næstum því alblint.“ Hinn blindi Arnþór Helgason sótti um stöðu mannréttindastjóra Reykjavíkur, en var ekki boðaður í viðtal vegna starfsins. Hann segir vinnubrögð embættiskerf- is Reykjavíkurborgar forkastanleg og ófagleg. SAFARÍKAR KJÚKLINGABRINGUR 869 kr/pk. ÓTRÚLEGT VERÐ! 900g Jón ákærður fyrir stórfelld skattsvik Saksóknari efnahagsbrota hefur gefið út ákæru á hendur Jóni Ólafssyni fyrir að svíkja rúmar 360 milljónir króna undan skatti. Þrír aðrir fyrrverandi starfsmenn Norðurljósa og undirfyrirtækja eru ákærðir. Rannsókn málsins hefur tekið sex ár. Jón Ólafsson er staddur erlendis og hafði ekki séð ákæruna þegar Fréttablaðið hafði samband við hann. Hann vill ekki tjá sig um efnisatriði ákærunnar að svo stöddu en fagnar því að biðin eftir henni sé loks á enda. „Nú fer þessu loksins að ljúka. Núna fæ ég tækifæri til þess að hreinsa mannorð mitt,“ segir hann. Jón gagnrýnir hversu langan tíma rannsóknin hefur tekið. „Það er skýrt mannréttindabrot að ég fjölskylda mín skulum hafa þurft að sitja undir þessu í allan þennan tíma.“ Hann segir málið hafa rýrnað mjög frá því sem lagt var upp með í upphafi rannsóknar. „NÚ FER ÞESSU LOKS AÐ LJÚKA“ Sigurður G. Guðjónsson, annar lögmanna Jóns, segir málið snúast um ágreining um skattalög. „Stærstu tölurn- ar í þessu snúast um ágreining um það hvort þetta eru persónulegar tekjur Jóns eða hvort hann hefur rétt til að taka þær inn í gegnum fyrirtæki,“ segir Sigurður. Hann segir að eftir eigi að fara yfir það hvort Jón muni hafna öllum ákæruatriðunum. „Það er búið að takast á við skattayfirvöld um fjölmörg þessara atriða og greiða þá skatta sem á hafa verið lagðir með álögum. Hins vegar er ekki þar með sagt að Jón hafi sætt sig við þær niðurstöð- ur.“ Hann segir að refsimálið snúist nær eingöngu um atriði sem skráð eru í bókhaldi. Allt sé það uppi á yfirborðinu. ÁGREININGUR UM SKATTALÖG LÖGREGLUMÁL Maður sem hand tek- inn var í fyrradag grunaður um að hafa stolið felgum undan bíl Páls Stefánssonar ljósmyndara reyndist hafa fengið felgurnar hjá öðrum manni, sem nú er grunaður um þjófnaðinn. Á heimili þess manns fannst umtalsvert magn af öðru þýfi, meðal annars tölvum og mynda - vélum. Farið hefur verið fram á gæsluvarðhald yfir meintum þjófi. Nokkuð hefur verið um þjófnaði á felgum og hjólbörðum undan bílum upp á síðkastið og rannsak- ar lögregla hvort málin tengist. - sh Farið fram á gæsluvarðhald: Mikið þýfi hjá felguþjófnum JÓN ÓLAFSSON Jón segir það mannréttindabrot að þurfa að sæta rann- sókn svo árum skipti. Hann tjáir sig ekki um efnisatriði ákærunnar að svo stöddu. FR ÉTTA B LA Ð IÐ / VA LLI Abramovitsj hættur Dmítrí Medvedev, forseti Rússlands, hefur leyst auðjöfurinn Roman Abramovitsj, eiganda Chelsea-knatt- spyrnufélagsins, frá embætti héraðs- stjóra í Tsjúkotka, austlægasta og einu minnst þróaða héraði Rússlands. Kvað Abramovitsj sjálfur hafa óskað eftir að hætta. Hann hefur fest mikið fé úr eigin sjóðum í innviðum Tsjúkotka. RÚSSLAND HEILBRIGÐISMÁL Læknavaktin á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja verður að loka vegna fjár- skorts. Sigríður Snæbjörnsdótt- ir, forstöðumað- ur stofnunar- innar, segir fjárveitingar mjög lágar í samanburði við aðrar stofnanir, Heilbrigðis- stofnunin fái um 50 til 75 prósent af því sem aðrar stofnan- ir fái. „Við berum okkur saman við heilbrigðisstofnanir um allt land. Til dæmis á Ísafirði, Selfossi og Akranesi.“ Frá og með 10. júní var hraðmóttöku heilsugæslunnar lokað og stefnt er á að loka læknavaktinni þann 16. júlí. „Vegna þess hve illa sett heilsu- gæslan er verður þeim sem þurfa á hefðbundinni þjónustu lækna- vaktar að halda vísað til Reykja- víkur,“ segir Sigríður. - hþj Lokun á Suðurnesjum: Sjúkum vísað til Reykjavíkur SIGRÍÐUR SNÆ- BJÖRNSDÓTTIR VIÐSKIPTI Þinglýstum kaupsamn- ingum um fasteignir hefur fækkað um 80 prósent frá því í fyrra. Þetta kemur fram á vef Fasteignamats ríkisins. Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í júní var 208 og nam heildarvelta 7,4 milljörðum króna. Í júní á síðasta ári voru kaupsamningar 1.037 og var heildarveltan 28,8 milljarðar. Kaupsamningum fækkaði um tæp átján prósent frá því í maí og fram í júní en heildarveltan var sú sama í báðum mánuðum. Meðalupphæð kaupsamninga í júní í fyrra var 27,8 milljónir en í júní í ár er hún 35,5 milljónir króna. - hþj 80 prósenta samdráttur: Kaupsamning- um fækkar enn FISKVEIÐAR Verstu úthafskarfa- vertíð skipa HB Granda frá upphafi er nýlokið. Skipin veiddu um 3.200 tonn en á vertíðinni í fyrra veiddust 5.770 tonn. Birkir Hrannar Birkisson, rekstrarstjóri togarafélagsins, segir að erfitt hafi verið að komast að torfunni. „Það varð aldrei nein veiði, torfan gekk ekki inn eins og í fyrra nema að litlu leyti.“ Sökum hækkunar á olíuverði var ekki hægt að leita eins mikið að fiski og áður. „Þetta þýðir að sjálfsögðu eitthvert fjárhagstjón en sem betur fer erum við það kvótasterkir að við höfum getað sett skipin í önnur verkefni.“ - hþj Lítið fiskað af úthafskarfa: Versta vertíðin hjá HB Granda SLYS Ekið var á átta ára dreng við gangbraut á Fjallkonuvegi í Grafarvogi laust eftir hádegi í gær. Drengurinn var fluttur á slysadeild með hraði en meiðsl hans voru ekki talin alvarleg að sögn lögreglu. Þó var grunur um að hann hefði hlotið heilahristing og lítilsháttar blæðing var úr eyra. Ökumaðurinn hafði stöðvað bifreið sína við gangbraut en varð ekki drengsins var þegar hann ók af stað að nýju. Drengurinn varð því fyrir bílnum sem ekið var á litlum hraða þegar slysið varð. - ht Umferðarslys í Grafarvogi: Ekið á átta ára dreng á hjóli FÓLK Óprúttnir aðilar stálu í gær iPod-tónlistarspilara af Ásdísi Jennu Ástráðsdóttur sem er fjöl- fötluð og bundin við hjólastól sem hún þarf að keyra með hökunni. Þetta er annar iPodinn sem stolið er af henni á árinu auk þess sem stolið var af henni síma fyrir nokkrum árum. „Það er ekki hægt að leggjast lægra en að stela af manneskju sem getur enga björg sér veitt,“ segir Ástráður B. Hreiðarsson, faðir Ásdísar. „Það er ömurlegt að vita að til sé fólk sem er svo sam- viskulaust að það geti gert svona.“ „Mér þótti vænt um þennan iPod bæði af því að hann var gjöf frá bróður mínum en aðallega af því ég var byrjuð að heyra aftur,“ segir Jenna sem er mjög heyrnar- skert en eignaðist í janúar sér- stakt heyrnartæki sem hægt er að tengja við svona spilara. Það var mikið áfall þegar fyrri spilaranum var stolið í febrúar en þjófnaður- inn í gær var þó sárastur. „Ég skil ekki að báðum iPodun- um mínum hafi verið stolið strax og ég fékk þá. Ég er svo fötluð að ég get ekkert gert til að verja mig. Afhverju er ekki hægt að láta mig í friði?“ Ástráður hvetur hinn seka til að sína iðrun og skila spilaranum, en nafn Ásdísar og símanúmer er grafið aftan á hann. „Annars er verðið ekkert stórmál. Aðalatriðið er að einhver fái sig til að gera svona lagað.“ - ges Öðrum iPod-spilara ársins var stolið af Ásdísi Jennu sem er mikið fötluð: Fjölfötluð stúlka ítrekað rænd ÁSDÍS JENNA ÁSTRÁÐSDÓTTIR Tveim iPod-spilurum hefur verið stolið frá henni. Þann síðari fékk hún að gjöf frá bróður sínum. DÓMSMÁL Lífeyrissjóðnum Gildi var óheimilt að draga frá örorku- lífeyri Margrétar Ingibjargar Marelsdóttur þann örorkulífeyri og tekjutryggingu er hún fær frá Tryggingastofnun ríkisins. Þetta kom fram í dómi sem kveðinn var upp í gær í prófmáli Öryrkjabandalags Íslands fyrir hönd Margrétar gegn sjóðnum. Verði dómnum ekki áfrýjað ber sjóðnum, og sömuleiðis öðrum lífeyrissjóðum sem drógu sam- bærilegar upphæðir frá örorku- lífeyrisþegum, að leiðrétta þær greiðslur. Alls voru sextán þúsund einstaklingar sem fengu skerðingu eða niðurfellingu á rétti sínum. Þetta felur þó ekki í sér að bannað sé að breyta samþykktum lífeyrisþega héðan í frá þar sem dómurinn miðast við atburði sem gerst hafa en ekki það sem síðar kann að gerast. Baldur Guðlaugsson ráðuneyt- isstjóri og undirmenn hans voru samkvæmt dómnum vanhæfir til þess að staðfesta breytingar á samþykktum lífeyrissjóðanna vegna setu í stjórn Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda að mati dómsins. Lífeyrissjóðnum Gildi ber að greiða Margréti sjö hundruð þús- und krónur í málskostnað. - ges Dómur féll í prófmáli Öryrkjabandalagsins gegn lífeyrissjóðnum Gildi í gær: Öryrkjar sigra lífeyrissjóðina BALDUR GUÐLAUGSSON Ráðuneytis- stjórinn og undirmenn hans voru vanhæfir að mati dómsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.