Fréttablaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 8
8 5. júlí 2008 LAUGARDAGUR NOREGUR, AP Talsmenn norsku her- gagnasmiðjunnar Kongsberg Gruppen ASA upplýstu í gær að fyrirtækið hefði landað samningi við Lockheed Martin í Bandaríkj- unum um að smíða íhluti í orrustu- þotuna F-35 Joint Strike Fighter. Umfang samningsins nemur um einum milljarði norskra króna, andvirði rúmlega 15 milljarða íslenskra króna. Framleiðendur F-35-þotunnar og hinnar sænsku JAS Gripen keppast nú um að fá samning við norska ríkið um endurnýjun orrustuþotuflota norska flughers- ins fyrir sem svarar um 1.000 milljörðum íslenskra króna. Þriðji keppinauturinn, framleiðendur hinnar evrópsku Eurofighter Typ- hoon, hættu við þátttöku í útboðinu í vor, að sögn vegna þess að hann taldi útboðsferlið allt miða að því að hin bandaríska F-35 yrði keypt. Norsk stjórnvöld hafa sagt að það muni hafa mikið að segja um það hvaða valkostur verður ofan á hve mikil verkefni norsk fyrir- tæki fá í tengslum við orrustu- þotukaupin. Talsmenn Kongsberg segja að verði F-35-þotan keypt geti hinn nýgerði samningur vaxið í allt að sex milljarða norskra króna, 93 milljarða íslenskra. Samningurinn væri þó óháður því hvort F-35 verði valin eða ekki. Ákvörðun um þotukaupin verð- ur jafnvel tekin fyrir lok þessa árs, annars á því næsta. - aa Norska hergagnasmiðjan Kongsberg gerir íhlutasamning við Lockheed Martin: Keppnin harðnar um þotukaup F-35 Samið um norska íhlutasmíði. NORDICPHOTOS/AFP FÉLAGMÁL „Þetta er mjög slæmt mál. Leigan hefur verið að hækka í samræmi við vísitöluna, svo kemur þetta reiðarslag ofan á það,“ segir Björg Magnúsdóttir formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Stjórn Félagsstofnunar stúdenta ákvað nýlega að hækka leigu á stúdentagörðum um 5,25 prósent. Hækk- anir á stúdentaíbúðunum taka gildi í ágúst og septemb- er. Að sögn Bjargar er ástæðan rakin til þverrandi stuðnings Reykjavíkurborgar við Félagsstofnun stúdenta en samkvæmt ályktun Stúdentaráðs hefur sá stuðningur dregist saman um því sem nemur 24 millj- ónum. Að sögn Jórunnar Frímannsdóttur formanns Vel- ferðarráðs Reykjavíkurborgar var þessi ákvörðun tekin í tíð fyrri meirihluta Samfylkingar, Vinstri grænna og Frjálslynda flokksins. „Hundrað daga meirihlutinn ákvað að styrkurinn yrði föst upphæð á hverja íbúð, 500 krónur á mánuði. Við ákváðum að breyta því ekki,“ segir Jórunn. Björg segist hafa farið á fund Jórunnar og óskað eftir endurskoðun á því að skera niður fasteignagjöld- in. „Það var ekki orðið við þeirri beiðni. Mér finnst verið að sauma mjög harkalega að stúdentum,“ segir Björg. - vsp Félagsstofnun stúdenta hækkar leigu á stúdentagörðum um 5,25 prósent: Kemur ofan á vísitöluhækkun BJÖRG MAGNÚSDÓTTIR Formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands er ósáttur við hækkun leigu á stúdentagörðum. NEYTENDUR Mjólkursamsalan hefur sett á markað ávaxtaríkt, sykurskert skyr sem er kallað Krakkaskyr. Í Krakkaskyrinu er þriðjungi minna af viðbættum hvítum sykri og ávaxtasykri en í sambærilegum vörum, að því er segir í tilkynningu frá Mjólkur- samsölunni. Krakkaskyrið inniheldur engin sætuefni. Hægt er að fá Krakkaskyr í fjórum bragðtegundum. Í bragðbættu tegundunum er þrisvar sinnum meira af ávöxtum en í sambærilegum vörum og eru ávextirnir maukaðir. Sykurinni- hald Krakkaskyrsins er misjafnt eftir bragðtegundum. - ghs Mjólkursamsalan: Nýtt skyr með minni sykri FRAKKLAND, AP Fyrrum gíslinn Ingrid Betancourt er komin til Frakklands. Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti og eiginkona hans Carla Bruni tóku á móti henni á herflugvelli við París síðdegis í gær. „Ég græt af gleði,“ sagði Betancourt á þessari tilfinninga- þrungnu stundu. Betancourt og fjórtán öðrum gíslum var á miðvikudag bjargað úr höndum kólumbísku uppreisn- arhreyfingarinnar FARC. Betan- court, sem ólst upp í París og er franskur og kólumbískur ríkis- borgari, var rænt árið 2002 þegar hún att kappi við Alvaro Uribe í forsetakosningum í Kólumbíu. - gh Betancourt lent í Frakklandi: Grætur af gleði FAGNAÐARFUNDIR Nicolas Sarkozy og Ingrid Betancourt heilsast á Villacou- blay-herflugvellinum við París í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SAMFÉLAGSMÁL Samtökin Almannaheill hafa formlega verið stofnuð. Markmið samtakanna er að vinna að sameiginlegum hagsmunamál- um almanna- heillasamtaka og sjálfseignar- stofnana sem starfa í almannaþágu og bæta starfsumhverfi þeirra. „Helstu áhersluverkefni samtakanna eru að einfalda og bæta skattaumhverfi félaganna, setja heildarlög um réttarstöðu og rekstrarumhverfi þeirra og kynna starfsemi þeirra og mikilvægi fyrir almenningi og stjórnvöldum,“ segir Guðrún Agnarsdóttir, formaður nýju samtakanna. - ges Setja lög og bæta skattamál: Ný samtök um almannaheill GUÐRÚN AGNARSDÓTTIR VINNUMARKAÐUR Skurðlæknafélag Íslands hefur samið við samn- inganefnd ríkisins um 20.300 króna hækkun launa, 3,3 pró- senta hækkun á yfirvinnu og 50 prósenta hækkun á greiðslu til styrktar- og sjúkrasjóðs. Samningurinn gildir frá 1. júní og rennur út 30. apríl á næsta ári. Tryggvi Stefánsson, formaður samninganefndar skurðlækna, segir að skurðlæknar meti stöðuna svo að samninga- umhverfið sé erfitt. Kröfugerðin byggi á sérstöðu skurðlækna og miði að miklum breytingum á kjörum þeirra. Ástandið nú sé ekki hentugt til að fara út í svo miklar breytingar. - ghs Skurðlæknafélagið: Samdi um 20.300 krónur Með hass um borð í Herjólfi Áttatíu grömm af efni sem talið er hass fundust í farangri ungs manns við komu Herjólfs til Vestmannaeyja í fyrrakvöld. Maðurinn var handtekinn og játaði brot sitt við yfirheyrslur. Hann hefur áður komið við sögu lögreglu vegna fíkniefnabrota. LÖGREGLUFRÉTTIR Óska eftir að kaupa enskt Lingafon námskeið Óska eftir að kaupa enskt Lingafon námskeið útgefi ð árið 1977 eða síðar. Útgáfuár bóka er skráð áberandi fremst í bókum. Upplýsingar í síma 865 7013 Björgvin Ómar Ólafsson Auglýsingasími – Mest lesið 1 Hvaða stjórnmálamaður var nýlega frelsaður frá kólumbísku uppreisnarhreyfingunni FARC? 2 Hver leikur ofurhetjuna Han- cock í samnefndri kvikmynd? 3 Hvaða stjórnmálamaður vakti nýverið athygli fyrir að skrifa grein um mögulega úrsögn Íslands úr EES? SJÁ SÍÐU 46 Byggt segir upp 30 Verktakafyrirtækið Byggt á Suð- urnesjum hefur sagt upp þrjátíu starfsmönnum sem að meirihluta til eru erlendir, að sögn RÚV. Ekki náðist í Hjalta Guðjónsson, forsvarsmann Byggt í gær. VINNUMARKAÐUR EFNAHAGSMÁL „Við teljum að tíma- setningin hafi verið óheppileg í ljósi markmiða og aðgerða Seðla- bankans í baráttunni við verð- bólguna. Aðgerðir á borð við hækkun lána Íbúðalánasjóðs og breytingu á veðrými stefna í aðra átt. Þær voru því ekki hjálplegar í þessu tilliti,“ segir Petya Koeva, formaður sendinefndar Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Sendinefndin hefur verið hér á landi undanfarinn hálfan mánuð og rætt við fulltrúa stjórnvalda og atvinnulífs um stöðu efnahags- mála hér á landi og horfur. Niður- stöður sendinefndarinnar voru kynntar á blaðamannafundi í gær. Petya Koeva segir að þótt útlitið sé ekki bjart í augnablikinu, séu horfurnar í íslenskum efnahag til lengri tíma öfundsverðar. Tekjur á mann séu með því mesta sem ger- ist, ójöfnuður sé lítill og markaðir opnir og sveigjanlegir. Hún býst við að verulega hægi á í efnahagslífinu. Það dragi úr neyslu samfara minna aðgengi fólks að lánum, fasteignaverð lækki, efnahagur einkafyrirtækja dragist saman og kaupmáttur minnki. Opinberar framkvæmdir og álverstengdar framkvæmdir vegi ekki nema að hluta á móti minnkandi fjárfestingu annars staðar. „Seðlabankinn ætti áfram að halda fast við stefnu sína um að ná verðbólgunni niður,“ segir Petya. „Umbætur á Íbúðalánasjóði eru hins vegar gríðarlega mikilvægar til þess að auka skilvirkni pen- ingastefnunnar,“ segir Petya og á þar við að skilið verði á milli almennra lána sjóðsins og félags- legra. Hún segir að fasteignamarkað- urinn hér hafi ofhitnað og aðlögun sé brýn. Aðgerð ríkisstjórnarinn- ar hafi hægt á þeirri þróun. „Enn fremur þurfa bæði stjórn- völd og sveitarstjórnir að hægja á fyrirhugðum fjárfestingum og standast þrýsting um að auka útgjöld, bæði hvað varðar laun og bætur.“ Petya var spurð hvort íslenska krónan væri heppilegur gjaldmið- ill. Hún svaraði því til að peninga- málaumhverfi hér væri gott og að mikilvægt væri að innanlands væru stjórntæki til að hafa áhrif á þróun mála. „Við fögnum viðleitni stjórn- valda til að auka gjaldeyrisforða Seðlabankans. Það eykur traustið út á við. Ríkisstjórnin þarf sjálf að ákveða hvort gjaldeyrisforðinn verður styrktur frekar. Lánsheim- ild stjórnarinnar er frekara skref í þessa átt.“ ingimar@markadurinn.is Ríkisstjórnin vinnur gegn Seðlabankanum Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir að breytingar á lánum Íbúðalánasjóðs vinni gegn Seðlabankanum í baráttu við verðbólgu. Aðgerðirnar fresti verðlækkun á húsnæðismarkaði. Sjóðurinn vill að hið opinbera dragi saman seglin. FORMAÐUR SENDINEFNDAR ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐSINS Petya Koeva telur að breytingar á lánum Íbúðalánasjóðs hafi verið gerðar á óheppilegum tíma og vinni gegn baráttu Seðlabankans við verðbólguna. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.