Fréttablaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 65

Fréttablaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 65
LAUGARDAGUR 5. júlí 2008 43 FÓTBOLTI Marel Jóhann Baldvins- son og Magnús Páll Gunnarsson eiga gull- (Marel) og bronsskó (Magnús) eftir síðustu tímabil sín með Breiðabliki en þessir marka- kóngar eru líklega búnir að týna skotskónum ef marka má marka- þurrð þeirra á þessu tímabili. Hvorugur þeirra hefur náð að skora í fyrstu níu umferðunum í Landsbankadeild karla og það þarf að fara langt inn á undirbúnings- tímabil til þess að grafa upp síð- asta mark þeirra félaga. Kórinn, 7. mars 2008. Þetta er kannski ekki eftirminnilegur stað- ur eða stund fyrir marga nema þá kannski Marel Jóhann Baldvins- son, framherja Breiðabliks í Landsbankadeild karla. Þarna skoraði kappinn nefnilega sitt síðasta mark fyrir Breiðablik. Markið skoraði hann gegn 1. deildarliði Selfossi í upphafi deildabikarleiks liðanna. Marel skoraði þá með góðum skalla eftir fyr- irgjöf frá Arnóri Sveini Aðalsteins- syni. Síðan þá eru liðnir rétt tæpir fjórir mánuðir. Marel er nú búinn að spila 10 leiki og í samtals 759 mínútur án þess að finna net- möskvana á nýjan leik. Marel skoraði 11 mörk í 13 leikjum þegar hann lék síðast í Landsbankadeildinni sumarið 2006. Marel skoraði þá í þremur síð- ustu leikjum sínum, þar af tvö mörk í þeim síð- asta. Hann fór síðan út til Molde í Noregi þar sem hann skoraði 7 mörk í 24 leikjum í A- og B-deild áður en hann kom aftur heim í Smárann í vetur. Kollegi hans í framherjasveit Breiðabliks, Magnús Páll Gunn- arsson, hefur þurft að bíða enn lengur en Marel því hann skoraði síðast í 5-1 stórsigri á Grindavík í deildabikarleik liðanna í Reykja- neshöllinni 23. febrúar. Magnús Páll hefur verið meira eða minna varamaður í allt sumar og hefur því leikið mun minna en Marel. Nú eru samt liðnar 450 mínútur síðan að hann skoraði en líkt og hjá Marel var það bakvörðurinn Arnór Sveinn Aðalsteinsson sem lagði upp markið fyrir hann. Magnús Páll fékk bronsskóinn í fyrra fyrir að skora 7 mörk í 17 leikjum en hann fékk auk þess eitt sjálfsmark skráð á sig og var því með átta mörk hjá KSÍ. Þessir tveir markakóngar hafa nú leikið samanlagt í 1.163 mínút- ur án þess að skora mark. Sem betur fer fyrir Blika hafa þó ellefu aðrir leikmenn liðsins náð að skora á þessum fjórum mánuðum og þar á meðal eru miðvörðurinn Srdjan Gasic, bakvörðurinn Árni Krist- inn Gunnarsson og nýlið- inn Haukur Baldvinsson sem skoraði eftir aðeins 14 mínútur í sínum fyrsta leik. Næsti leikur Blika er gegn Fylki á útivelli á mánudags- kvöldið og þá verður gaman að sjá hvort skot- skórnir verði komnir í leit- irnar. - óój Blikarnir Marel Baldvinsson og Magnús Gunnarsson búnir að týna skotskónum: Hafa ekki skorað í 1.163 mínútur BEÐIÐ FYRIR MARKI Marel Jóhann Baldvinsson hefur verið að komast í betra form upp á síðkastið en gengur samt ekkert betur að nýta dauðafærin. Hér til hægri er Magnús Páll Gunnarsson með upp- skeru síðasta sumars. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Dregið var í 8 liða úrslitum VISA-bikars karla í gær. Stórleikur 8 liða úrslita er klárlega viðureign bikarmeistara- bana Keflavíkur, sem sló FH út úr 16-liða úrslitunum, og Breiðabliks sem sló Íslandsmeistara Vals út. KR og Grindavík mætast í öðrum Landsbankadeildarslag og fer leikurinn fram á KR-vellinum. Fyrstudeildarlið Hauka úr Hafnarfirði kom á óvart í 16 liða úrslitunum á dögunum þegar það sló Landsbankadeildarlið HK út úr keppninni. Þetta er reyndar annað árið í röð sem Haukar komast í 8 liða úrslit VISA- bikarsins og á leið sinni þangað í fyrra lá Landsbankadeildarlið Framara í valnum. Haukar mæta nú Fylki og fer leikurinn fram að Ásvöllum. Annað 1. deilarlið var í pottinum í gær, Víkingur Reykja- vík, sem fær það verðuga verkefni að leika gegn bikar- spútnikliði síðasta sumars, Fjölni, á Fjölnisvelli. Leikirnir fara fram fimmtudag- inn 24. júlí og hefjast kl. 19:15. - óþ 8 liða úrslit VISA-bikars karla: Keflvíkingar og Blikar mætast EFTIRVÆNTING Sonur Ólafs Kristjáns- sonar, þjálfara Breiðabliks, dró mótherja Kópavogsliðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN HANDBOLTI Í gær var dregið í riðla í Meistaradeild Evrópu í hand- bolta. Haukar voru með í drættinum en þeir eiga eftir að spila við Cyprus College í undankeppninni. Vinni þeir háskólaliðið í tveimur leikjum í byrjun september verða þeir í F- riðli með ungversku meisturun- um í Veszprem, Zaporoshje frá Úkraínu og stórliði Flensburg frá Þýskalandi. Með Flensburg leikur landsliðsmaðurinn Alexander Petersson. Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel eru með Barcelona í riðli og Snorri Steinn Guðjónsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson mæta Ólafi Stefánssyni og félögum hans í Ciudad Real með GOG. Arnór Atlason mætir meðal annars Hamburg frá Þýskalandi með FCK. - hþh Haukar í Evrópukeppninni: Yrðu með Flensburg í riðli HAUKAR Verða í mjög erfiðum riðli komist þeir í gegnum undankeppnina. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL - lífið er leikur www.motormax.is Mótormax Reykjavík - Kletthálsi 13 - Sími 563-4400 Mótormax Egilsstöðum - Sími 470-5080 / 470-5070 Mótormax Akureyri - Sími 460-6060 Lífið er leikur Mesta úrval landsins af fjórhjólum Leiktæki og ferðahjól,- þú fi nnur fjórhjólið hjá Mótormax Sea-Doo hraðbátar og sæþotur Magnaður kraftur og glæsileg hönnun. Einnig margar gerðir af bátum og utanborðsmótorum. Mótormax er á kafi í vatnasportinu! FRJÁLSAR FH er með forystu eftir fyrri keppnisdaginn í Bikarkeppni FRÍ sem fram fer í Kópavogi. FH hefur orðið meistari fjórtán ár í röð en fimm lið taka þátt að þessu sinni. Gauti Ásbjörnsson (UMSS) vann stangarstökkið með stökki upp á 4,40 metra, Sveinn Elías Elíasson (Ármann/Fjölni) stökk einnig 4,40 í annarri tilraun líkt og Gauti en hann felldi 4 metra í tvígang og því vann Gauti. Jón Arnar Magn- ússon (FH) stökk 4,20 metra. Íslandsmethafinn Pétur Guð- mundsson varð annar í kúluvarpi, um fimm metrum frá gömlu meti sínu upp á 21,26 metra. Óðinn Björn Þorsteinsson sá við honum og kastaði 17,69 metra. Sveinn Elías vann 100 metra hlaupið á 10,92 sekúndum og sveit Ármanns/Fjölnis vann 4*100 metra boðhlaupið. Það sama gerði FH hjá stelpunum. Ásdísi Hjálmsdóttur (Ármanni/ Fjölni) tókst ekki að bæta Íslands- met sitt í spjótkasti eins og hún ætlaði sér. Hún kastaði best 56,50 og vann örugglega en metið er 57,10 metrar. Hún vann einnig kúluvarpið með 12,98 metra kasti. Silja Úlfarsdóttir úr FH vann þrjár greinar, 100 metra hlaupið á 12,32 sekúndum, 400 metra hlaup- ið á 56,82 sekúndum og 400 metra grindahlaup á 59,91 sekúndum. Jóhanna Ingadóttir (ÍR) vann þrí- stökkið með 11,90 metra stökki. Keppni heldur áfram í dag og lýkur mótinu seinni partinn. - hþh 43. bikarmót Íslands í frjálsum íþróttum hófst í Kópavogi í gær: Góð stefna FH á 15. titilinn í röð SVEINN ELÍAS Fer hér fremstur í flokki í 100 metra hlaupinu. FLJÓT Silja Úlfarsdóttir var hlutskörp í hlaupunum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ÚRSLITIN Í GÆR: Karlaflokkur: Kúluvarp (7,26kg.): Óðinn Þorsteinss. (FH) Langstökk: Kristinn Torfason (FH) Spjótkast: Jón Ásgrímsson (FH) Stangarstökk: Gauti Ásbjörnsson (HSÞ) 100m hl.: Sveinn E. Elíasson (Árm./Fjö) 4*100m boðhlaup: Ármann/Fjölnir 400m hlaup: Björgvin Víkingsson (FH) 400m grindahl.: Björgvin Víkingss. (FH) 1500m hlaup: Kári S. Karlsson (Brei.) 3000m hindrunarhlaup: Stefán Guð- mundsson (Breiðablik) Kvennaflokkur: Hástökk: Berglind Ó. Kristjánsd. (HSÞ) Kúluvarp (4 kg.): Ásdís Hjálms. (Árm./Fjö) Spjótkast: Ásdís Hjálmsd. (Árm./Fjö) Þrístökk: Jóhanna Ingadóttir (ÍR) 100m hlaup: Silja Úlfarsdóttir (FH) 4*100m boðhlaup: FH 400m hlaup: Silja Úlfarsdóttir (FH 400m grindahlaup: Silja Úlfarsd. (FH) 1500m hl.: Arndís Hafþórsd. (Árm./Fjö) NÁLÆGT METINU Ásdís Hjálmsdóttir kastar hér spjóti sínu yfir 56 metra í gær. Hún var stutt frá Íslandsmeti sínu í greininni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI STAÐAN EFTIR FYRRI DAG: FH: 44,5 stig ÍR: 40 stig Breiðablik: 32,5 stig Ármann/Fjölnir: 29 stig HSÞ: 26 stig UMSS 13 stig
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.