Fréttablaðið - 09.07.2008, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 09.07.2008, Blaðsíða 18
[ ]Fornbílar eru vísir með að vekja athygli. Sérstakur fornbíla-klúbbur er starfræktur á Íslandi og halda félagsmenn úti öflugri starfsemi. Nánar á www.fornbill.is. Hjá Lundavespum er hægt að leigja sér vespu í styttri eða lengri tíma. „Hugmyndin var að gefa fólki færi á að kynnast vespum án þess að þurfa að kaupa sér græju upp á 300 til 400 þúsund krónur,“ segir Ásgeir Þórðarson sem stofnaði nýverið vespuleigu ásamt kær- ustu sinni, Soffíu Jóhannesdóttur. Leigan kallast Lundavespur og er staðsett fyrir neðan Hamborgara- búlluna við Reykjavíkurhöfn. Ásgeir kveðst vera búinn að fá sig fullsaddan af fólki á fjallajepp- um innanbæjar. „Reykjavík er ekki nema fimmtán mínútur yfir- ferðar á reiðhjóli. Það „meikar ekki sens“ að keyra á átta tonna jeppa til að fara úr Þingholtunum niður í Glitni í Lækjargötu og eyða svo hálfum deginum í að leita að bílastæði.“ Ásgeir hefur búið í London síð- astliðin tíu ár og segir fólk erlend- is mun meðvitaðra um náttúruna heldur en hérlendis. „Þú getur ímyndað þér ef allir Rómarbúar væru á jeppum. Þar keyra allir um á vespum, meira að segja níræðar konur. Það er fínt veður hérna sex mánuði á ári; þetta ætti að sjálf- sögðu að vera málið hér líka.“ Ásgeir telur vespur umhverfis- vænni og hagkvæmari kost heldur en bíla. „Maður er að horfa á fólk grenjandi yfir bensíndælunum á meðan ég fer flissandi út eftir að hafa fyllt á tankinn fyrir 500 kall. Á því kemst ég 80 kílómetra og er helmingi fljótari að komast um, því ég get lagt hvar sem er.“ Lundavespur eru bæði ætlaðar erlendum ferðamönnum og Íslend- ingum. „Það eru allir blankir og krónan ömurleg. Af hverju fer fólk ekki bara í ferðalag innan- bæjar og uppgötvar Reykjavík upp á nýtt í stað þess að fljúga til London? Fólk getur komið hingað og leigt sér hjól í klukkutíma, tekið einn rúnt og þóst vera í útlöndum á Íslandi.“ Í Lundavespum er mestmegnis að finna 50 cc kínverskar vespur en ekki þarf annað en bílpróf til að keyra þær. „Síðan erum við að bíða eftir hjólum frá Piaggio sem Gunnar Hansson er að flytja inn.“ Hægt er að leigja vespurnar frá klukkustund upp í heila viku og kostar ódýrasta hjólið 1.900 krón- ur í klukkutíma. Sjá www.lunda- vespur.com. mariathora@frettabladid.is Flissandi á bensíndælunni Ásgeir Þórðarson og Soffía Jóhannesdótt- ir eiga vespuleiguna Lundavespur. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VA LLI Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 FJAÐRIR OG GORMAR Í FLESTAR GERÐIR JEPPA Japan/U.S.A. HPI Savage X 4,6 öfl ugur fjarstýrður bensín torfærutrukkur Eigum til bíla á gamla verðinu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.