Fréttablaðið - 19.07.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 19.07.2008, Blaðsíða 6
6 19. júlí 2008 LAUGARDAGUR Glænýr viltur lax Úrval fi skrétta á grillið Óbreytt fi skverð frá áramótum FORNLEIFAR „Þegar skipulagið var unnið á sínum tíma var gerð úttekt á svæðinu. Þar á meðal fornleifaút- tekt eins og ber að gera samkvæmt lögum,“ segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði. Frétta- blaðið greindi frá því í gær að fær- anlegum kennslustofum við leik- skólann Hvamm í Hafnarfirði hefði líklega verið komið fyrir ofan á fornleifum. Lúðvík segir að eftir úttekt hafi stór hluti svæðisins verið hverfisverndaður og við stað- setningu skólastofanna hafi þess verið gætt að fara ekki inn á þau svæði. „Þá kemur í ljós eftir að búið er að koma húsunum þarna fyrir að það eru óskráðar fornleifar á svæð- inu. Menn voru grandalausir um að þarna væru sérstakar minjar. Þetta er óheppilegt og sýnir okkur að það hefur ekki verið kláruð fullkomin úttekt á þessu svæði,“ segir Lúðvík. Hann segir að tekin hafi verið ákvörðun um að vinna heildarúttekt á svæðinu og fleiri svæðum í bænum. Bærinn starfi nú með sér- stökum fornleifafræðingi sem muni hitta forstöðumann Fornleifavernd- ar á mánudag. „Það er allt jarðrask búið á svæðinu. Það er að sjálfsögðu okkar vilji að bæta þetta enda stóð alltaf til að skila landinu eins og við tókum við því. Þetta er eitthvað til að læra af.“ - þeb Fornleifaúttekt sýndi ekki fornleifarnar við leikskólann Hvamm í Hafnarfirði: Grandalausir um fornleifar BÆJARSTJÓRINN Lúðvík segir athugunar- efni hvort fornleifar við Hvamm verði grafnar upp og komið í þann búning sem þær voru, sýnilegar fólki. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON LÖGFRÆÐI Niðurstöður rannsókna dr. Herdísar Þorgeirsdóttur verða kynntar á ársfundi Forseta Hæstaréttar Bandaríkjanna og dómstjóra æðstu dómstóla landsins eftir rúma viku. Rannsóknina vann hún fyrir Feneyjanefnd Evrópuráðsins. „Það er mikill heiður að rann- sókn íslensks fræðimanns sé kynnt með þessum hætti og fyrir þessum hópi,“ segir dr. Herdís Þorgeirs- dóttir. Rannsóknin fjallar um getu fjölmiðla til að sinna lýðræðislegu hlutverki sínu á þeim markaði og við þær aðstæður sem þeir starfa nú. Helstu niðurstöður voru þær að það sé skylda stjórnvalda að tryggja ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðla. „Það er eins og Mannréttindadómstóll Evrópu bendir á háð efnahag og félagslegum aðstæðum í aðildarríkjum hvernig sú framkvæmd er tryggð í raun,“ segir Herdís. Judith Resnik, lagaprófessor við Yale háskólann í Bandaríkjunum mun kynna niðurstöður Herdísar en Judith var útnefnd fremsti fræðimaður á sviði lögfræði árið 2008 af bandarísku lögmannasamtök- unum. Herdís Þorgeirsdóttir er með doktorsgráðu í stjórnskipunarrétti og mannréttindum frá Háskólan- um í Lundi og er prófessor á Bifröst. - vsp Rannsókn íslensks lagaprófessors verður kynnt æðstu dómurum Bandaríkjanna: Segir þetta mikinn heiður HÆSTARÉTTUR BANDARÍKJANNA Rannsókn Herdísar Þorgeirs- dóttur verður kynnt á ársfundi Réttarforseta. NORDICPHOTOS/GETTY HERDÍS ÞORGEIRSDÓTTIR DÓMSMÁL Tvítugur Ísfirðingur var í Héraðsdómi Vestfjarða á fimmtudag dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni. Maðurinn var handtekinn aðfaranótt föstudagsins 15. febrúar og hótaði í kjölfarið lögreglumönnum ítrekað lífláti og líkamsmeiðingum. Maðurinn hafðist ekkert að til að fylgja eftir hótunum sínum gagnvart lögreglumönnunum, og játaði brot sitt við þingfest- ingu málsins. Hann var því dæmdur í 45 daga skilorðsbund- ið fangelsi. - þeb Tvítugur Ísfirðingur dæmdur: Hótaði lífláti og meiðingum SAMFÉLAGSMÁL Samtökin ´78 og Reykjanesbær hafa gert með sér samning um fræðslu varðandi samkynhneigð. Samningurinn felur í sér að samtökin verða með fræðslufundi fyrir fagaðila hjá bænum. Til fagaðila teljast kennarar, félags- og námsráðgjafar, sálfræðingar og fleiri hópar sem sinna félagslegum stuðningi og ráðgjöf. Stefnt er að því að bjóða upp á allt að þrjá fræðslufundi á ári til ársins 2010. Markmiðið með fræðslunni er að fræða viðkomandi starfsstéttir um samkynhneigð, að því er fram kemur á heimasíðu Reykjanes- bæjar. - þeb Samtökin ´78 gera samning: Reykjanesbær fræddur um samkynhneigð EFNAHAGSMÁL Íbúðalánasjóði er heimilað að lána fjármálafyrir- tækjum fyrir endurfjármögnun íbúðalána, samkvæmt reglugerð sem Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra undirritaði í gær. Varið verður allt að þrjátíu milljörðum króna til lánveitinga í þessum lánaflokki. Setning reglugerðarinnar er í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 19. júní síðastliðnum um aðgerðir til að hleypa lífi í fasteignamarkaðinn. - gh Íbúðalánasjóður: Lánar bönkum ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Ráðherra ætlar í september að leggja fram lagafrumvarp um auknar lánsheimildir Íbúðalánasjóðs til fjármálafyrirtækja. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. MENNTUN „Það er alltaf allra síð- asti valkostur að taka fórnarlamb- ið úr skólanum,“ segir Þorlákur Helgason, framkvæmdastjóri Olweusar-áætlunarinnar gegn ein- elti. Foreldrar Lárusar Stefáns Þrá- inssonar, ungs manns sem svipti sig lífi í lok síðasta mán- aðar, hafa stigið fram og segja dauða hans fyrst og fremst mega rekja til alvar- legs eineltis sem Lárus Stef- án varð fyrir í grunnskóla. Að lokum fór svo að Lárus Stefán skipti um skóla. Kennari Lárusar Stefáns sagði í viðtali við Fréttablaðið að svo gæti farið að eina lausnin á svo erfiðum eineltismálum væri að fórnar- lambið skipti um skóla. „Ef þolandi eineltisins er fluttur um skóla gefur það til kynna að gerandinn hafi haft betur,“ segir Þorlákur og bætir við að til greina geti komið að flytja gerandann í refsiskyni. „Það er hins vegar alls ekki alltaf lausn á málinu því þeir sem leggja í einelti eru oftast færir í því og fljótir að finna nýtt fórnarlamb í nýjum bekk.“ Olweusar-áætlunin leggur áherslu á að barn segi strax frá ef það er lagt í einelti og að tekið sé mjög hratt á vandamálinu áður en það gengur lengra að sögn Þorláks. „Við reynum allt til þess að koma í veg fyrir að stríðni verði að ein- elti.“ Þorlákur gagnrýnir að ekki vinni allir skólar eftir skipulagðri einelt- isáætlun sem sýnt hafi verið fram á að skili árangri. Til að mynda hafi einungis einn skóli í Hafnarfirði tekið Olweusar-verkefnið upp. „Börn og foreldrar eiga rétt á því að skólar á Íslandi vinni eftir aðferð sem sýnt hefur verið fram á að skil- ar bestum árangri gegn einelti og börnin séu ekki höfð í tilraunastarf- semi.“ Þorlákur segir að vitundarvakn- ingu þurfi meðal þjóðarinnar varð- andi það hversu alvarlegt vandamál einelti er. „Eitt barn sem lendir í einelti er einu barni of mikið.“ Þorlákur segir málefni Lárusar Stefáns síður en svo einsdæmi. „Fjöldi unglinga útskrifast eftir ein- elti í grunnskóla á hverju ári og mörgum líður illa áfram,“ segir Þorlákur. „Margir flosna upp úr framhaldsskóla en í raun veit eng- inn hvað um þessa krakka verður.“ helgat@frettabladid.is Fórnarlömb eineltis ættu ekki að víkja Fórnarlömb eineltis eiga ekki að skipta um skóla nema allt annað hafi verið reynt, segir framkvæmdastjóri Olweusar-verkefnisins. Til greina kemur að ger- andi þurfi að víkja. Einungis einn skóli í Hafnarfirði vinnur eftir verkefninu. EINELTI Fórnarlömb eineltis ættu ekki að skipta um skóla nema allt annað hafi verið reynt til að leysa vandamálið. Auglýsingasími – Mest lesið Olweusar-áætlunin byggir á: • hlýlegum og jákvæðum áhuga og alúð frá fullorðnum • ákveðnum römmum vegna óvið- unandi hegðunar • stefnufastri beitingu refsinga sem hvorki eru líkamlegar né óvinveittar, brjóti nemandi gegn þeim reglum sem ákveðnar hafa verið • að fullorðnir gegni hlutverki yfir- boðara við vissar aðstæður. LYKILREGLUR GEGN EINELTI INNFLYTJENDUR „Auðvitað viljum við að þeir sem sækja um vinnu sem lögfræðingar fái réttláta meðferð á sínum umsóknum,“ segir Eyþóra Kristín Geirsdóttir formaður stéttarfélags lögfræð- inga. Xavier Rodríguez er spænskur lögfræðingur með tvöfalda meistaragráðu sem talar góða íslensku, en var ekki boðaður í viðtal vegna starfs hjá Umhverfis- stofnun. „Við getum ekki brugðist við máli sem þessu nema hjá okkar félagsmönnum,“ segir Eyþóra. Til að vera félagi í stéttarfélaginu þarf viðkomandi að vinna sem lögfræð- ingur. Það gerir Xavier ekki. - vsp Stéttarfélag lögfræðinga: Fjallar aðeins um mál félaga KAMBÓDÍA, AP Kambódía og Taíland hafa sent nokkur hundruð hermenn að landamærum ríkjanna vegna deilna um yfirráð yfir fornu hindúahofi. Hofið tilheyrir Kambódíu samkvæmt dómi Alþjóðadómstóls frá 1962 en ríkin deila enn um yfirráðin. Hafa taílenskir þjóðernissinnar, sem viðurkenna ekki yfirráð Kambódíumanna, mótmælt við hofið síðustu daga eftir að það var sett á heimsminja- skrá Sameinuðu þjóðanna. Ráðamenn í báðum ríkum hafa sagst vilja forðast átök og ætla að ræða ástandið á mánudag - gh Kambódía og Taíland: Deila um hof PREA VIHEAR Hindúahofið frá 11. öld var nýlega sett á heimsminjaskrá Samein- uðu þjóðanna. NORDICPHOTOS/AFP Styður þú aðgerðir Ásmundar Jóhannssonar sem veitt hefur án veiðileyfa? Já 72,5% Nei 27,5% SPURNING DAGSINS Í DAG Er iPod-spilari upptökutæki? Segðu skoðun þína á vísir.is ÞORLÁKUR HELGASON KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.