Fréttablaðið - 22.07.2008, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 22.07.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 ÞRIÐJUDAGUR 22. júlí 2008 — 198. tölublað — 8. árgangur THEÓDÓRA KOLBRÚN JÓNSDÓTTIR Hjólar, syndir, borðar hollt og sefur vel • heilsa • sumar Í MIÐJU BLAÐSINS HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA SUMAR VINNUVÉLAR O.FL. Hreyfing nærin Theódóra Kolbrún, eða Kolla eins og hún er kölluð af fjölskyldu og vinum, festi kaup á þessu forláta hjóli í Danmörku þegar hún var þar við vinnu síðastliðið sumar. Hefur það komið að mjög góðum notum hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN EKKERT STRESSAlls konar geisladiskar eru til með slökunartónlist og slökunarhugleiðslu fyrir þá sem eiga erfitt með að festa svefn eða slaka á í amstri dagsins. HEILSA 2 LEIKIÐ Í FRÍINUGott er að eiga bæði útileikföng og innileikföng eða spil í sumarbústaðnum svo börnin hafi eitthvað við að vera í fríinu. SUMAR 3 LH HESTAR Landsmót hestamanna fjölmennast til þessa Sérblað frá Landssambandi hestamannafélaga FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG ÍÞRÓTT • MENNING • LÍFSSTÍLL lh hestar ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ 2008 Stóðhesturinn Aris frá Akureyri varð efstur í A-flokki gæðinga á Landsmóti hestamanna á Gaddstaðaflötum. Knapi var Árni Björn Pálsson. Bættust þeir félagar þar með í hóp fárra útvaldra sem unnið hafa þennan titil, sem þykir einn sá eftirsóknarverðasti í hesta-mennskunni. Úrslitin í A-flokki voru dramat-ísk. Fyrirfram spáðu flestir hinum reynda knapa Sigurbirni Bárð-arsyni fyrsta sætinu. Er það eini stóri titillinn sem hann hefur ekki unnið á löngum og litríkum ferli og því mikið í húfi. Hann hafði úr að spila tveimur úrvals gæðing-um, þeim Stakki frá Halldórsstöð-um, sem er í eigu Kára Stefánsson-ar, og Kolskeggi frá Oddhóli, sem er stóðhestur úr hans eigin rækt-un. Kolskeggur var efstur bæði í forkeppni og milliriðli og þar með efstur inn í úrslit. Stakkur þurfti að keppa í B-úrslitum, vann þau og þar með réttinn til að keppa í A-úr-slitum. ÆÐRI MÁTTARVÖLD GRÍPA Í TAUMANAÞað ríkti mikil eftirvænting um það hvorn hestinn Sigurbjörn myndi velja. Stakkur er óhemju sterkur í úrslitum. Það fór klið-ur um brekkuna þegar hann reið Kolskeggi inn á völlinn. Það voru að sama skapi mikil vonbrigði þegar ljóst varð að Stakkur var ekki með í úrslitunum. Þótti mörg-um það óvirðing við hestinn og mótsgesti. Kolskeggur byrjaði vel, var efstur þegar keppnin var hálfnuð. Hann varð hins vegar fyrir því óhappi að missa undan sér skeifu á brokkinu og átti enga möguleika eftir það. Þóttust margir skynja að þar hefðu æðri máttarvöld gripið í taumana. Sig-urbirni hefði verið refsað fyrir að velja ekki Stakk. Árni Björn hélt hins vegar sínu striki á Aris. En það var mjótt á munum og úrslit-in ekki ljós fyrr en síðustu tölur höfðu verið lesnar upp. Sjá viðtal við Árna Björn á síðu 10. Dramatísk úrslit í A-flokki á Landsmóti Árni Björn Pálsson fagnar sigri í A-flokki gæðinga á Aris frá Akureyri. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra afhenti verðlaunin. MYND/JENS EINARSSON Íslandsmótið í h Átjánda Landsmót hestamanna var haldið á Gaddstaðaflötum við Hellu fyrstu viku júlímánaðar. Mótið er það fjölmennasta til þessa. Talið er að um fjórtán þús-und manns hafi verið á svæðinu þegar flest var. Sunnlenskir vind-ar gerðu hressilega vart við sig á Rangárvöllum fyrstu daga móts-ins. Í tvígang gerði storm sem stóð yfir í nokkrar klukkustundir í hvort skipti. Ætlaði þá allt um koll að keyra. Flugbjörgunarsveit-in á Hellu kom fólki til aðstoðar sem þurfti að taka niður tjöld sín. Nokkrir fengu gistingu í íþrótta-húsinu á Hellu. Sem betur fer varð þó ekkert úr slagviðri sem spáð var. Veðurguðirnir gengu síðan til liðs við hestamenn og þrjá síð-ustu daga mótsins naut fólk hverr-ar stundar í sól og blíðu. Síðan skein sól Sólin skín á efsta stóðhest í fimm vetra flokki, Óm frá Kvistum. MYND/JENS EINARSSON „Ég tel nauðsynlegt að vekja upp meiri félagsvitund á meðal hesta-manna. Það eru hestamannafélög-in í landinu sem standa að Lands-mótinu. Þau ættu að vera sýnilegri á þeim vettvangi,“ segir Haraldur Þórarinsson, formaður LH.„Við þurfum að taka þessa um-ræðu. Vera vakandi yfir því hvert við stefnum. Það er alveg ljóst að ímynd hestamannafélaganna sjálfra hefur farið halloka í móts-haldinu. Þetta er ólíkt því sem ger-ist í flestum öðrum íþróttagrein-um. Þar er meiri áhersla lögð á gildi þess að vera í íþróttafélagi; að menn séu að keppa fyrir sitt félag, í félagsbúningi. Við getum litið til heimsmeistaramótanna. Þar á hvert land sitt svæði í áhorf-endastúkunni. Það er keppni milli þjóða og mikil stemning. Allt í mesta bróðerni, en þetta þjappar fólki saman og gerir alla að virk-ari þátttakendum,“ segir Harald-ur. Vill auka félagsvitund Á heimsmeistaramótum styður hver þjóð sína menn. MYND/JENS EINARSSON Fyrir skömmu fór fjöldi hrossa í WorldFeng, upprunaættbók ís-lenska hestsins, yfir 300.000 hrossa múrinn. Alls eru 300.200 hross skráð í upprunaættbókinni hinn 17. júní síðastliðinn. Um 74 prósent hrossanna voru fædd á Ís-landi, eða 222.459, og næstflest ís-lensk hross eru skráð fædd í Dan-mörku um 9 prósent, eða 26.762 hross. Þegar Fengur, forveri WorldFengs, var opnaður árið 1991 fyrir 17 árum, þá voru um 9 000hross í gag Upprunabók stækkar Söngkonan Elísabet Allasló í gegn á Landsmóti hestamannaBLS. 14 FJÖLMIÐLAR Tilkynnt verður um aðkomu nýrra fjárfesta að Ny hedsavisen í dag, samkvæmt heimildum Markaðarins. Morten Lund, aðaleigandi blaðsins, hefur undanfarið leitað leiða til að fá nýtt fjármagn inn í reksturinn. Meðal þeirra fjárfesta sem nefndir hafa verið eru Lars Seier Christiansen, einn af stjórnend- um Saxo Bank og fjárfestingar- sjóðirnir 3i og General Atlantic. Mikið var fjallað um Nyheds- avisen í dönskum fjölmiðlum í gær og staða blaðsins máluð svörtum litum. Nú virðist lausn hins vegar í sjónmáli. Lars Lindstrøm, fjármálastjóri Ny hedsavisen, sagði í dönskum fjölmiðlum í gær að samkomulag hefði náðst milli eigenda blaðs- ins og því muni útgáfa þess halda áfram eftir sumarfrí. Í samtali við Markaðinn vildi Morten Lund ekki tjá sig um málið en sagði þó að yfirlýsing frá honum væri væntanleg. Þór- dís Sigurðardóttir, stjórnarfor- maður Stoða Invest, hafði heldur ekkert um málið að segja þegar haft var samband við hana. Danskar eftirlitsstofnanir höfðu hótað að leysa útgáfuna upp ef Nyhedsavisen skilaði ekki ársreikningi fyrir miðnætti í gær. Að því er fram kemur í Bør- sen ætla fjórir stjórnarmenn að segja af sér ef ársreikningi verði ekki skilað á tilsettum tíma. - ghh NYHEDSAVISEN Fjárfesting Stoða Invest í Nyhedsavisen nemur um 450 milljónum danskra króna. FRÉTTBLAÐIÐ/NORDIC PHOTOS Búist er við tilkynningu frá Morten Lund, aðaleiganda Nyhedsavisen í dag: Nýir fjárfestar að Nyhedsavisen 2,25%með ánægju Vodafonehöllinni 24. júlí Miðasala á midi.is Iceland Express kynnir Buena Vista Social Club BRAGI VALDIMAR SKÚLASON Vesturheimsk drauma- ferð Baggalúts Heimsækja Íslendingabyggðir í Gimli FÓLK 30 Þróun tónlistar Anna Hildur Hildi- brandsdóttir skipu- leggur ráðstefnu þar sem þróun tónlistarheimsins verður rædd. FÓLK 24 Stolt móðir Dragkóngurinn og Idolsöngkonan Ylfa Lind Gylfadótt- ir eignaðist son á dögunum. FÓLK 30 STYTTIR UPP Í dag verða vest- lægar áttir, 5-10 m/s. Léttskýjað suðaustan og austan til eftir hádegi annars skúrir en styttir víðast upp eftir hádegi. Hiti 10-22 stig, hlýjast á austanverðu landinu. VEÐUR 4 22 19 10 16 12 STÓRIÐJA „Það er meiri háttar óskammfeilni af hálfu Landsvirkjunar að ætla að nota þetta álit iðnaðarráðuneytisins um umhverf- is mat á Gjástykki sem skálkaskjól til að afsaka eigin seinagang til þess að afla orku fyrir stóriðju á Bakka,“ segir Össur Skarp- héðinsson iðnaðarráðherra. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjun- ar, sagði í Fréttablaðinu á laugardag að seinagangur hins opinbera við að afgreiða erindi fyrirtækisins þess efnis hvort borun á rannsóknarholum í Gjástykki yrði að fara í umhverfismat hefði aukið á áhættu verkefn- isins. Erindið var sent í apríl en iðnaðarráðu- neytið veitti Skipulagsstofnun umsögn sína 8. þessa mánaðar og í síðustu viku upplýsti stofnunin að borunin væri umhverfismats- skyld. „Landsvirkjun hefur sjálf sagt að aðeins 30 megavött af þeim 400 sem þarf til álversins á Bakka eigi að koma frá Gjá- stykki. Og sveitarfélögin sem málið varðar hafa þá skýru stefnu að Gjástykki eigi að vera aftast í röðinni og að það eigi ekki að virkja þar ef næg orka fæst annars staðar. Svo að spurningin um það hvort borað verði í Gjástykki á þessu ári eða því næsta skiptir ekki nokkru máli þegar á heildina er litið. Staðreyndin er hins vegar sú að það er Landsvirkjun til vansa að hún hefur látið Húsvíkinga sitja á hakanum meðan hún hefur verið upptekin af því að afla orku til miklu umdeildari stóriðju sunnanlands. Og það er mín skoðun að þar hafi minni hags- munir þéttbýlisins verið teknir fram fyrir meiri hagsmuni Húsvíkinga. Fyrir hönd Húsvíkinga þá hefði ég áhyggjur af því hvernig þeir ætla að finna nægilega orku fyrir álverið á Bakka meðan áherslurnar eru svona.“ Friðrik Sophusson segir það af og frá að Landsvirkjun sinni verkefnunum sunnan- lands frekar en þeim fyrir norðan. „Það sést best á því að við höfum eytt tæpum fjórum milljörðum til undirbúnings jarðhitavirkjana á Norðurlandi en rúmlega tveimur milljörð- um vegna undirbúnings nýrra virkjana í Þjórsá.“ Össur játar að vissulega hafi afgreiðsla erindis Landsvirkjunar tekið langan tíma. „En málið var flókið og upplýsingar sem ég og ráðuneytið þurftum til að komast að málefnalegri niðurstöðu var ekki að finna í tilkynningu Landsvirkjunar.“ - jse Segir Suðurland ganga fyrir Iðnaðarráðherra segir Landsvirkjun nota vinnubrögð ráðuneytisins sem skálkaskjól til að afsaka eigin seinagang. Hann segir enn fremur ástæðu fyrir Húsvíkinga að óttast þar sem Landsvirkjun láti meiri hags- muni þeirra víkja fyrir minni hagsmunum þéttbýlisins. Forstjóri Landsvirkjunar segir það af og frá. MINJAGRIPIR UM MIKIÐ AFREK Starfsfólk á Ylströndinni færir Benedikt Hjartarsyni sundkappa ljósmyndir sem teknar voru í vetur þegar hann æfði sjósund á köldum degi. Hitastig sjávar mældist -1,9 stig daginn þann. Afhending myndanna fór fram síðdegis í gær þegar blásið var til veislu í tilefni af því að Benedikt synti nýverið fyrstur Íslendinga yfir Ermarsund. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR FÓLK Benedikt Hjartarson sund- garpur var heiðraður í Nauthólsvík síðdegis í gær að viðstöddu fjölmenni. Starfsfólk Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur á Ylströndinni í Nauthólsvík og Siglingaklúbburinn Siglunes stóð fyrir hátíðarhöldunum. Boðið var upp á kaffi og með því. Benedikt vann það einstæða afrek að synda fyrstur Íslendinga yfir Ermarsund í síðustu viku. Vegalengdin sem Benedikt synti var 61 kílómetri og tók sundið alls sextán klukkustundir. Sundið tók mjög á enda straumar svo miklir að Benedikt bar af leið á tímabili. Ástæðan var sú að Benedikt missti af höfðanum þar sem sundfólk kemur yfirleitt í land. Þurfti hann því að synda tveggja kílómetra leið áður en hann náði landi í lítilli vík skammt frá. Starfsfólkið í Nauthólsvík hefur fylgst með stífum æfingum Benedikts en hann æfði síðusta árið allt að sex daga í viku og stundum þrisvar sinnum á dag. - hþj Móttaka í Nauthólsvík: Benedikt sund- hetju fagnaðTvíburarnir taka við ÍA Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir stýra liði ÍA út tímabilið eftir að Guðjón Þórðarson var rekinn í gær. ÍÞRÓTTIR 26 VEÐRIÐ Í DAG Hafskip var ævintýri Höfundar Hafskipsævintýrsins koma sárir frá því en uppréttir og með fullri reisn,“ segir Jónína Michaelsdóttir. UMRÆÐAN 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.