Fréttablaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 6
6 28. júlí 2008 MÁNUDAGUR
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
KJÖRKASSINN
ATVINNUMÁL Vinnustöðvun verður í hádeginu í dag
hjá leiðbeinendum Vinnuskóla Reykjavíkur.
Tilefnið er að krefjast leiðréttingu launa sinna.
„Launakjörin gátu hreinlega ekki staðist þegar
farið var að skoða þetta,“ segir Markús Bjarnason,
einn forsprakka þrýstihóps leiðbeinenda.
Leiðbeinendur á aldrinum 20-25 ára, sem eru í
launaflokki 127 hjá Reykjavíkurborg fá um 150.000
krónur á mánuði. Fyrir sama starf í Hafnarfirði
eru greiddar 180.000 krónur og 190.000 krónur í
Kópavogi. Aðstoðarleiðbeinendur, sem oft eru
undir tuttugu ára aldri, eru með um 130.000
krónur. Það er lægra en atvinnuleysisbætur, sem
eru um 136.000.
„Við erum ekki í þessari vinnu vegna launanna.
Margir sækja í þetta til að fá reynslu þótt launin
séu léleg. Þetta eru hins vegar alltof lág laun,“
segir Markús.
Starfsfólk ÍTR, sem vinnur í félagsmiðstöðvum
grunnskóla á veturna, sækja oft í leiðbeinenda-
störf á sumrin. Þá halda þau laununum sem þau
voru með um veturinn, sem eru um 30.000 krónur
hærri.
„Okkur hreinlega blöskraði að fólk sem vinnur
nákvæmlega sömu vinnu er með svona mikið
hærri laun,“ segir Markús en ein krafa leiðbein-
enda er að leiðbeinendur fari í sama launaflokk og
þeir sem vinna í félagsmiðstöðvum á veturna.
Safnast verður saman klukkan 14 í dag fyrir
utan Ráðhúsið þar sem borgarstjóra og mannauðs-
stjóra Reykjavíkur verða afhentar kröfur leiðbein-
enda sem og undirskriftalistar með 130 nöfnum
leiðbeinenda hjá Reykjavíkurborg.
Kröfurnar eru að launaflokkurinn verði sá sami
og hjá leiðbeinendum í félagsmiðstöðvum og
reiknist afturvirkt fyrir allt sumarið, að það fari
fram starfsmat sem allra fyrst á vinnu leiðbein-
enda og að leiðbeinendur fái trúnaðarmann í
ráðum og nefndum Starfsmannafélags Reykjavík-
urborgar.
„Við viljum fá skýr svör,“ segir Markús. Ef ekki
verður brugðist við kröfum þeirra munu þau halda
áfram að vinna að þessu máli í vetur. „Við munum
ekki ráða okkur aftur sem leiðbeinendur aftur ef
þetta verður ekki leiðrétt. Þá missir Reykjavíkur-
borg töluvert af reyndu fólki. Einnig munum við
hvetja fólk til þess að sniðganga þessi störf,“ segir
Markús.
vidirp@frettabladid.is
Leiðbeinendur æfir
vegna lágra launa
Leiðbeinendur hjá Vinnuskóla Reykjavíkur munu stöðva vinnu á hádegi í dag.
Þeir vilja fá leiðréttingu launa sinna og krefjast þess að vera í hærri launa-
flokki. Lægstu laun leiðbeinenda eru lægri en atvinnuleysisbætur.
1. „Við leiðbeinendur Vinnuskólans í Reykjavík krefj-
umst þess að við séum sett í réttan launaflokk sem
miðast við sambærileg störf hjá Reykjavíkurborg,
sem er launaflokkur 139. Þá krefjumst við þess að
breytingin verði gerð afturvirk fyrir að minnsta kosti
þetta launaár.
2. Að það fari fram starfsmat sem allra fyrst á vinnu
leiðbeinenda í Vinnuskólanum.
3. Að leiðbeinendur Vinnuskólans fái trúnaðarmann
eða/og fulltrúa í ráð og nefndir Starfsmannafélags
Reykjavíkur.“
KRÖFUR LEIÐBEINENDA
VINNUSKÓLINN Ekki verður mikið um glaðbeitta unglinga í
vinnu eftir hádegi hjá Vinnuskóla Reykjavíkur í dag því leið-
beinendur munu leggja niður vinnu. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Styður þú sigurtillöguna um
nýja byggingu Listaháskólans?
Já 36,9%
Nei 63,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Finnst þér textinn við nýtt
lag Baggalúts, Þjóðhátíð ´93,
ósmekklegur?
Segðu þína skoðun á vísir.is
LÖGREGLUMÁL Ungur maður
meiddist nokkuð þegar hann féll
fimm metra til jarðar við hús á
Skólavörðustíg snemma í
gær morgun.
Maðurinn hugðist heimsækja
félaga sinn, sem býr í húsinu.
Hann brá á það ráð að reyna að
klifra upp á svalir og komast
þannig inn til vinarins.
Þegar maðurinn var kominn í
töluvert mikla hæð, um fimm
metra, missti hann takið, skrikaði
fótur og féll til jarðar. Hann
slasaðist á mjöðm og ökkla við
fallið. Maðurinn var fluttur á
slysadeild þar sem gert var að
sárum hans. - sh
Vildi vera óboðinn gestur:
Klifurköttur
féll og slasaðist
SKIPULAGSMÁL „Þegar litið er á inn-
viði byggingarinnar og þá viðbót,
sem hún færir mannlífi við Lauga-
veginn, er enginn vafi á því að
með henni yrði stigið stórt skref
til að losa miðborgina úr núver-
andi klakaböndum,“ segir Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra á
heimasíðu sinni um vinningstil-
lögu +Arkitekta að nýbyggingu
Listaháskólans við Laugaveg.
Hann segir miðborg Reykjavík-
ur hafa frosið á tímum R-listans.
„Að óreyndu hefði mátt ætla, að
borgarstjóri og aðrir málsvarar
blómstrandi og friðsamlegs mann-
lífs í miðborginni hefðu hrópað
yfir sig af fögnuði, þegar í ljós
kom, að unnt yrði að hýsa listahá-
skólann á þennan glæsilega hátt
við Laugaveginn,“ segir Björn.
Þetta hafi því miður ekki gerst.
„Bitinn virðist vera of stór fyrir
borgarstjóra, Torfusamtökin og
aðra, sem vilja halda Laugavegin-
um í núverandi mynd, hvað sem
tautar og raular.“
Björn segir Laugaveginn ekki
hafa fengið aðra eins lyftistöng í
marga áratugi og með Listahá-
skólanum gengi Laugavegurinn í
endurnýjun lífdaga.
Tillaga +Arkitekta gerir ráð
fyrir að tvö hús við Laugaveg
þurfi að víkja. „Standi valið milli
þess að halda í gömlu húsin tvö,
vel ég Listaháskólann í þeirri
umgjörð, sem hefur verið kynnt,“
segir Björn.
- ovd
Dómsmálaráðherra skýtur föstum skotum að borgarstjóra Reykjavíkurborgar:
Of stór biti fyrir borgarstjóra
VINNINGSTILLAGAN Hús Listaháskólans
við Laugaveg samkvæmt vinningstillögu
+Arkitekta.
SKELFING Á GÖTUM ÚTI Margir særðust
þegar þeir hlúðu að þeim sem slösuðust
í fyrri sprengingunni.
SJÁVARÚTVEGUR „Ég sé ekki fyrir
mér að hægt sé að vera með segl,“
segir Einar Sigurðsson, útgerðar-
maður á Þorlákshöfn. Fréttablaðið
greindi frá því í gær að Landssam-
band íslenskra útvegsmanna, LÍÚ,
sé að kanna það hvort hagkvæmt
sé að nota segl á íslensk fiskiskip
til að draga úr eldsneytiskostnaði.
Útgerðarmenn virðast almennt
ekki bjartsýnir.
„Það er nokkurn veginn af og frá
að þetta geti gengið,“ segir Þor-
steinn Bárðarson, útgerðarmaður
á Hellissandi. „Við erum að sækja í
svo breytilegum vindáttum svo það
er mjög hæpið. Hins vegar ef ein-
hverjar tækninýjungar koma til
sögunnar gæti þetta verið mögu-
legt. Ég held samt að við finnum
einhverja aðra leið en þessa,“ segir
Þorsteinn.
LÍÚ hefur látið þýska fyrirtækið
SkySails gera úttekt á þessu en
samkvæmt SkySails á búnaðurinn
að geta sparað eldsneytiskostnað
útgerða um tíu til 35 prósent.
Kostnaður við að koma þessu í
1.300 brúttórúmlesta skip getur
kostað um 35 milljónir króna.
„Ég held þetta sé bara rugl. Ég
hef enga trú á þessu og held að
þetta komi aldrei til greina því það
er alltof misvinda hérna. Ég mundi
alla vega ekki setja þetta á bátinn
minn, það er alveg á tæru,“ segir
Þorsteinn Guðbjörnsson, útgerðar-
maður á Suðureyri.
- vsp
Útgerðarmenn ekki bjartsýnir á að notkun segla í fiskiskip sé möguleg:
Segja þetta ekki geta gengið
MEÐBYRINN LÍTILL Útgerðarmenn segja of misvinda á Íslandi til þess að segl geti
virkað í fiskiskipunum. MYND/COPYRIGHT SKYSAILS
LÖGREGLUFRÉTTIR
Hópslagsmál á Mærudögum
Þrír leituðu sér læknisaðstoðar vegna
hópslagsmála sem brutust út á
Mærudögum á Húsavík. Einn hefur
verið kærður vegna slagsmálanna.
Talsvert var um drykkju á hátíðinni.
Þrjú innbrot í Þórshöfn
Brotist var inn í þrjú fyrirtæki á Þórs-
höfn um helgina, Hraðfrystistöðina,
vöruafgreiðslu á svæðinu og Fána-
smiðjuna. Lögregla veit hver var að
verki og er rannsókn langt komin.
NÁTTÚRUVERND Mótmælt var á
nokkrum stöðum í Sviss og á
Ítalíu í síðustu viku þar sem
stuðningi og samstöðu var lýst
yfir við baráttu Saving Iceland
fyrir verndun íslenskrar náttúru.
Fyrir utan íslenska sendiráðið í
Róm, á mánudaginn í síðustu viku,
voru mótmæli þar sem fordæmd
var þátttaka Impregilo í virkjana-
framkvæmdum á Kára hnjúkum.
Einnig var mótmælt fyrir utan
ræðismannaskrifstofuna í Mílanó
og við höfuðstöðvar Impregilo.
Á miðvikudeginum voru
mótmæli fyrir utan höfuðstöðvar
Alcoa í Genf. - vsp
Kárahnjúkum mótmælt:
Mótmæli í Sviss
og á Ítalíu
MÓTMÆLT Í GENF Svisslendingar sýndu
Saving Iceland samstöðu og mótmæltu
virkjuninni á Kárahnjúkum.
TYRKLAND Hæstiréttur Tyrklands
kveður upp dóm í dag hvort
banna skuli stjórnarflokkinn og
forsætisráðherrann fyrir að stýra
þjóðinni í átt að íslam.
Rétturinn hefur bannað tvo
flokka síðan 1963. Stjórnarand-
staðan krefst að auki þess að
félagar flokksins fái ekki að vera
í þingflokki næstu fimm ár. Ríkið
er ekki tengt trú í Tyrklandi. Ef
sitjandi stjórn hlýtur dóm verða
Tyrkir að kjósa að nýju og
markaðir gætu riðlast. Einnig er
ófyrirséð hvaða áhrif það hefur á
samband þeirra við ESB. - kbs
Stjórn Tyrklands bíður dóms:
Ásakaðir um að
boða íslam
TYRKLAND Þrettán manns létust og
70 særðust í tveimur spengingum
í Istanbúl í Tyrklandi í gærkvöldi.
Haft er eftir ríkisstjóra Istanbúl
að um hryðjuverkaárásir sé að
ræða en sprengjurnar sprungu
með um 10 mínútna millibili. Var
seinni sprengjan mun öflugri en
sú síðari. Segja sjónarvottar
marga þeirra sem hlúðu að
særðum eftir fyrri sprengjuna
hafa særst þegar seinni
sprengjan sprakk.
Sprengjunum hafði verið komið
fyrir í ruslatunnum í Gungoren
hverfinu. Verkafólk er fjölmennt
í hverfinu auk þess sem það er
vinsælt til gönguferða á heitum
kvöldum. - ovd
Sprengjur sprungu í Istanbúl:
Þrettán manns
biðu bana í árás