Fréttablaðið - 31.07.2008, Blaðsíða 20
20 31. júlí 2008 FIMMTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 173
4.094 -1,09% Velta: 2.406 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 6,96 +0,00% ... Atorka 5,50
+0,73% ... Bakkavör 25,00 +0,00% ... Eimskipafélagið 14,25 -0,35%
... Exista 6,28 +2,28% ... Glitnir 14,76 -1,01% ... Icelandair Group
16,95 +0,00% ... Kaupþing 710,00 -1,93% ... Landsbankinn 22,70
-0,87% ... Marel 84,50 +0,00% ... SPRON 3,03 +0,67% ... Straumur-
Burðarás 9,06 -1,84% ... Teymi 1,52 +0,00% ... Össur 84,30 +0,00%
MESTA HÆKKUN
CENTURY ALUM. +9,28%
EXISTA +2,28%
FÆREYJA BANKI +2,17%
MESTA LÆKKUN
KAUPÞING -1,93%
STRAUMUR BURÐ. -1,84%
GLITNIR -1,01%
Merrill Lynch tilkynnti á þriðju-
dag um hlutafjáraukningu upp á
átta og hálfan milljarð Banda-
ríkjadala. Í fréttatilkynningu
félagsins er þetta kynnt sem
„stærsta hlutafjáraukning í sögu
Bandaríkjanna“. Hlutafjáraukn-
ingin er nauðsynleg til að bæta
eiginfjárstöðu bankans, sem hefur
tapað miklu á undirmálslánum.
Á mánudag tilkynnti Merrill
Lynch um sölu á 30,6 milljörðum
af skuldavafningum til Lone Star
Funds. Salan vakti athygli því
söluverðið var 22 cent fyrir hvern
dollar af þessum bréfum, sem er
mun lægra en í fyrri sölum af
þessum toga.
Bankar hafa bókfært skulda-
vafninga sína mun hærra. Stærsti
banki Bandaríkjanna, Citigroup,
bókfærir skuldvafninga sína á 53
cent fyrir dollarinn. Citigroup
staðhæfir að skuldavafningar
þeirra séu öruggari en bréf sem
Merrill Lynch seldi.
Skuldavafningar eru mjög ólík-
ir innbyrðis og því erfitt að verð-
leggja þá. Greiningardeildir rýna
því nú í sölu Merrill Lynch til að
sjá hvort endurmeta þurfi bók-
fært verð skuldavafninga annarra
fjármálastofnana.
Greiningardeild Deutsche Bank
telur að Citigroup þurfi að auka
afskriftir sínar um 8 milljarða á
þriðja ársfjórðungi vegna þessa.
- msh
BRUNAÚTSALA Sala Merrill Lynch á skulda-
vafningum hefur vakið ótta um stórauknar
afskriftir banka vestan hafs. MARKAÐURINN/AFP
Brunaútsala á eign-
um Merrill Lynch
Vísitala framleiðsluverðs hækk-
aði um 3,7 prósent frá maí til júní
2008. Vísitala framleiðsluverðs
fyrir sjávarafurðir hækkaði um
7,4 prósent frá fyrri mánuði og
vísitala fyrir stóriðju hækkaði um
3,4 prósent.
Vísitala framleiðsluverðs sýnir
verðbreytingu á framleiðsluvör-
um þegar þær eru seldar frá fram-
leiðendum án skatta, en að teknu
tilliti til afslátta og annarra frá-
dráttarliða.
Frá júní 2007 hefur vísitala
framleiðsluverðs hækkað um 29,5
prósent og verðvísitala sjávaraf-
urða um 44,7 prósent. Á sama tíma
hefur matvælaverð hækkað um
14,1 prósent. - bþa
Framleiðslu-
kostnaður eykst
Sá hluti fyrirtækisins Mest, sem
nýverið hlaut nafnið Tæki, tól og
byggingavörur ehf., verður tekið til
gjaldþrotaskipta, að ósk stjórnenda.
Hátt í 60 manns störfuðu hjá fyrir-
tækinu og var þeim tjáð í gær að
ekki verði hægt að greiða þeim laun
fyrir júlímánuð.
„Við óttumst að fram undan séu
erfiðir mánuðir. Ég á frekar von á
því að svona tilfellum muni fjölga á
næstunni miðað við umræðuna í
samfélaginu,“ segir Gunnar Páll Pálsson,
formaður VR. Hann segir að svona mál hafi
ekki verið algeng undanfarin ár, þó hafi ein-
hver tilvik verið í lok árs 2006 og 2007.
Gunnar Páll segir líklegt að starfsmenn fái
ekki ógreidd laun borguð fyrr en eftir sex til
átta mánuði. Hvort VR eða ábyrgðar-
sjóður launa muni borga eigi eftir að
koma í ljós.
Glitnir tók nýverið yfir rekstur
steypustöðva Mest, auk hellugerðar
og múrvöruverslunar og var þá fyrir-
tækið Tæki, tól og byggingavörur
stofnað um rekstur á því sem eftir var
sem nú verður tekið til gjaldþrota-
skipta.
Elías Magnússon, forstöðumaður
kjarasviðs VR, telur að ástandið á
næstunni verði ekki verra en í síðustu niður-
sveiflu á árunum 2001 og 2002. „Þetta er hins
vegar að fara miklu hraðar niður en það
gerðist þá. Það sem gerðist á tólf mánaða
tímabili síðast gerist nú á örfáum mánuð-
um,“ segir Elías. - as
Erfiðir mánuðir fram undan
Nokkrir tugir missa vinnu hjá Tækjum, tólum og byggingavörum ehf.
GUNNAR PÁLL
PÁLSSON
Viltu skjól á veröndina?
www.markisur.com og www.markisur.is
Veðrið verður ekkert vandamál
Hrein fjárfesting ehf, Dalbraut 3, 105 Reykjavík
Upplýsingar í síma 567 7773 og 893 6337 um kvöld og helgar
Spron tapaði fimm milljörðum á
öðrum ársfjórðungi samanborið
við 5,5 milljarða hagnað á sama
tímabili í fyrra. Tap Spron nam
1,03 krónum á hlut. „Rekstrar-
staða Spron hefur farið batnandi,“
segir Guðmundur Hauksson. Hann
segir að vaxtatekjur hafi verið að
aukast og rekstrarkostnaður hefur
dregist saman. Starfsmönnum
hefur fækkað um 21 frá áramót-
um.
„Líkt og undanfarna ársfjórð-
unga líður rekstur SPRON fyrir
óhagstæðar markaðsaðstæður,“
segir Guðmundur. Gengistap
vegna hlutabréfaeignar félagsins
á öðrum ársfjórðungi nam 4,9
milljörðum króna. Eignarhlutur
Spron í Existu hefur lækkað um
tíu milljarða á fyrstu sex mánuð-
um ársins.
Spurður um stöðu Spron segir
Guðmundur Hauksson að vissu-
lega kalli núverandi aðstæður á
hagræðingu í rekstri.
Athygli vekur að bankinn tekur
frá um 770 milljónir í afskriftir.
„Við teljum að við séum að búa
okkur undir það sem koma skal,“
segir Guðmundur. Hann segir að
raunin hafi gjarnan verið sú að
menn hafi ekki gengið nægilega
langt í að búa sig undir erfiða
tíma.
Hann segir að verið sé að skoða
frekari útfærslur á verðbréfum
íbúðalánasafns Spron. Tilkynnt
var um 21 milljarða útgáfu í fyrra-
dag. Hann segir mögulegt að gefa
út fyrir nokkra tugi milljarða
umfram það sem nú þegar hafi
verið gefið út. Hann segir að um
hagstæða fjármögnun sé að ræða
þar sem bréfin eru veðhæf í við-
skiptum við Seðlabanka Evrópu.
bjornthor@markadurinn.is
Tap Spron nemur
fimm milljörðum
Spron hefur lokið svokallaðri „verð-
bréfun“ á íbúðalánasafni fyrir um 21
milljarð króna. Spron er fyrstur banka
hér á landi til að gefa út RMBS-
skuldabréf (e. Residential Mort-
gage-Backed Securities), sem eru
eignavarin skuldabréf með veðum
í undirliggjandi safni húsnæðislána.
Skuldabréfin eru gefin út í evrum.
Stofnað var sérstakt dótturfyrirtæki,
Geysir 2008-I Institutional Invest-
or Fund, sem kaupir íbúðalánin af
Spron. Um 78,5 prósent af útgáfunni
hafa fengið hæstu lánshæfiseinkunn,
Aaa, frá matsfyrirtækinu Moody’s.
Bréfin eru gjaldgeng í endur-
hverfum viðskiptum hjá Seðlabanka
Íslands og Seðlabanka Evrópu.
Greining Glitnis bendir á að Glitnir
og Kaupþing hafa gefið út sérvarin
skuldabréf (e. structured covered
bonds) þar sem undirliggjandi safn
húsnæðislána er einnig sett sem veð
en með öðrum hætti.
ÍBÚÐALÁNASAFN SPRON „VERÐBRÉFAГ
UPPGJÖR SPRON Guðmundur Hauks-
son, forstjóri SPRON, segir búið í haginn
með afskriftarreikningi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Straumur-Burðarás tapaði
1,4 milljónum evra (179
milljónum króna) eftir skatt
á öðrum ársfjórðungi. Mis-
tök sem gerð voru í stöku
fjárfestingarverkefni valda
vonbrigðum, segir forstjóri
bankans.
Mistök í fjárfestingu á sviði eigin
viðskipta (e. proprietary trading)
urðu til þess að á öðrum ársfjórð-
ungi féll til kostnaður upp á 44
milljónir evra (tæpa 5,5 milljarða
króna) hjá fjárfestingarbankan-
um Straumi-Burðarási. „Við gerð-
um mistök en höfum gripið til ráð-
stafana til þess að þau endurtaki
sig ekki,“ segir William Fall, for-
stjóri Straums. „Við lentum þarna
í sértækum vanda sem tekið hefur
verið á.“
Tap til hluthafa Straums á öðrum
ársfjórðungi nemur 2,81 milljón
evra (rúmum 349 milljónum
króna), en 1,37 milljóna evra (170
milljóna króna) hlutdeild minni-
hluta gerir að endanlegt tap verð-
ur 1,44 milljónir evra (179 milljón-
ir króna). Niðurstaðan er töluvert
undir meðalspá greiningardeilda
Landsbankans, Glitnis og Kaup-
þings sem hljóðar upp á 2,1 millj-
arðs evra hagnað. Einungis Glitnir
spáði tapi, 5,2 milljónum evra.
Tap fyrir skatt nemur 20,2 millj-
ónum evra (2,5 milljörðum króna).
Inni í jákvæðri skattafærslu hefur
svo áhrif tekjufærsla, einskiptis-
leiðrétting, upp á 10,6 milljónir
evra (1,3 milljarða króna) vegna
breytinga á lögum um söluhagnað
hlutabréfa. Stephen Jack, fjár-
málastjóri Straums, segir mat
bankans hafa verið að leiðrétta
bækurnar strax, en ný lög voru
samþykkt í maí.
Arðsemi eigin fjár var 2,7 pró-
sent á ársgrundvelli og eiginfjár-
hlutfall samkvæmt CAD reglum
25,4 prósent.
William Fall forstjóri segir að
utan taps af eigin viðskiptum sé
uppgjörið viðunandi þótt jafnmik-
ið tap valdi vitanlega vonbrigðum.
„Við töpuðum á stórri stöðu og
brenndum okkur á henni. Ég á hins
vegar ekki von á frekari vanda-
málum á þessum vígstöðvum. Ann-
ars staðar ganga hlutir vel og við í
uppbyggingarfasa á ýmsum svið-
um,“ segir hann og bendir einnig á
styrka eiginfjárstöðu bankans.
Hún geri það að verkum að bank-
inn þyki ákjósanlegur til sam-
starfs og jafnvel sé inni í mynd-
inni að fara í kaup eða samruna á
smærra fjármálafyrirtæki. „Við
höfum augun opin fyrir tækifær-
um sem kunna að vera til staðar,
en lengra eru þessi mál ekki
komin.“
Hann segir bankann einnig vel
fjármagnaðan og bendir á að lausa-
fé nægi til að standa við skuld-
bindingar á gjalddaga 12 mánuði
fram í tímann. Þess utan séu gjald-
dagar á næsta ári tiltölulega létt-
vægir, en þá eru á gjalddaga um
263 milljónir evra (tæpir 33 millj-
arðar króna).
Bankinn stefnir enn á að skrá
hlutabréf sín í evrum og segir
Willam Fall að grannt sé fylgst
með þróun þeirra mála. „Eftir á að
hyggja hefði náttúrlega verið lang-
hagkvæmast hvað verðþróun
bréfa okkar að gera þetta þegar
við ætluðum í fyrra.“
olikr@markadurinn.is
Vonbrigði með tap
Straums-Burðaráss
TÖLUR ÚR UPPGJÖRI
STRAUMS-BURÐARÁSS
Tímabil hagnaður á hlut
Janúar - júní 2008 0,002 evrur
Janúar - júní 2007 0,017 evrur
Tímabil hagnaður/tap eftir skatt
Apríl - júní 2008 -1,44 milljónir evra
Apríl - júní 2007 94,19 milljónir evra
Skráðar eignir virði í lok júní
Netia 132 milljónir evra
Landsbanki Íslands 53 milljónir evra
Net Entertainment 25 milljónir evra
Hungarian Telephone
& Cable 21 milljón evra
Funkom N.V. 15 milljónir evra
Annað 82 milljónir evra
Alls: 328 milljónir evra
Óskráðar eignir virði í lok júní
Play 253 milljónir evra
Novator Pharma
Holding 1 hf. 80 milljónir evra
Novator Credit Fund 19 milljónir evra
Boreas Capital Fund 18 milljónir evra
Altima Global 15 milljónir evra
Annað 150 milljónir evra
Alls: 535 milljónir evra
WILLIAM FALL Straumur-Burðarás
fjárfestingabanki kynnti í gærmorgun
uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA