Fréttablaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 4
4 20. ágúst 2008 MIÐVIKUDAGUR
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Létt og lipur. Kirsuberjarauð. Stillanlegt
3 lítra poki. Vinnuradíus: 8 m.
Vinnuhollt handfang.
Stillanleg lengd á sogröri.
Ryksuga VS 01E1800
A
T
A
R
N
A
9.900Tilboðsverð: kr. stgr.
(Verð áður: 12.700 kr.)
BANDARÍKIN, AP Í Bandaríkjunum
reikna menn með því að Barack
Obama skýri á næstu dögum frá
því, hvern hann hyggst hafa
með sér sem varaforsetaefni.
Hann hefur þó gætt þess vel að
láta ekkert uppi um val sitt,
hvorki við kjósendur á kosn-
ingafundum né við flesta
aðstoðarmenn sína.
Fjórir eru þó taldir líklegast-
ir: ríkisstjórarnir Tim Kaine og
Kathleen Sebelius, og öldunga-
deildarþingmennirnir Joe Biden
og Evan Bayh. Þá telja ein-
hverjir enn að hann muni koma
öllum á óvart og velja með sér
Hillary Clinton. - gb
Varaforsetaefni Obama:
Tilkynning á
næstu dögum
VIÐURKENNING „Flest árin hef ég
gert eitthvað þó svo að ég dugi
ekki í nein stórverk lengur,“ segir
María Ásgeirsdóttir, ein þriggja
kvenna sem í gær tóku við
viðurkenningu fyrir fegurstu
fjölbýlislóð Reykjavíkur fyrir
hönd íbúa Birkimels 6. María
verður 93 ára á árinu en hún
hefur búið í húsinu frá byggingu
þess árið 1948.
Auk Birkimels fengu lóðir
Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu
og 1912 ehf. við Klettagarða
viðurkenningar. Húsin við
Þingholtsstræti 7, Mjóuhlíð 4 og 6
og Birkimel 8 hlutu viðurkenn-
ingu vegna endurbóta á eldri
húsum. - ges
Fallegir garðar í Reykjavík:
Hefur sinnt lóð-
inni í sextíu ár
VERÐLAUNAHAFAR Í HÖFÐA María
Ásgeirsdóttir stendur við hlið borgar-
stjóra fyrir miðju. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
LÖGREGLUMÁL Hjón á áttræðisaldri
slösuðust alvarlega í bílslysi á
Krýsuvíkur vegi um klukkan tíu í
gærmorgun. Þau voru bæði flutt
á slysa deild og þaðan á
gjör gæslu, en eru ekki í lífs-
hættu.
Fólkið var í jeppa sem ekið var
í veg fyrir malarflutningabíl á
gatnamótum ofan við Vallahverfi
í Hafnarfirði. Kalla þurfti til
tækjabíl slökkviliðsins og beita
klippum við að ná fólkinu úr
jeppanum. Ökumaður flutninga-
bílsins slasaðist ekki alvarlega.
Vegurinn var lokaður á aðra
klukkustund vegna slyssins, en
ekki liggur nákvæmlega fyrir
hvernig slysið bar að. - sh
Árekstur á Krýsuvíkurvegi:
Eldri hjón slös-
uðust í bílslysi
Á SLYSSTAÐ Töluverðan tíma tók að ná
fólkinu úr jeppanum.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Marsibil ekki í Samfylkingu
Marsibil Sæmundardóttir, varaborgar-
fulltrúinn sem gekk úr Framsókn,
ræddi í gær við Dag B. Eggertsson,
oddvita Samfylkingar. Marsibil verður
óháð í vetur, en segir að þau hafi rætt
um samstarf í minnihluta. Ekki um að
hún gengi í Samfylkinguna.
REYKJAVÍK
VIÐSKIPTI Landic Property hefur
rift samningi við Stones Invest um
söluna á Keops Development og
yfirtekið á ný eignarhald sitt á
félaginu. Er það gert með það
fyrir augum að vernda fjárhags-
lega hagsmuni Landic Property,
viðskiptafélaga og viðskiptabanka
Keops sem og verðmæti þess.
Í tilkynningu sem Landic sendi
frá sér í gær kemur fram að fyrir-
tækið hafi uppfyllt allar skyldur
sínar samkvæmt kaupsamningi en
Stones Invest hafi hins vegar ekki
staðið við ákvæði kaupsamnings-
ins, meðal annars að losa Landic
Property undan ábyrgðum sínum.
Framkvæmdastjóri Keops
Development sendi frá sér til-
kynningu í gær þar sem hann
greindi frá því að Stones Invest
hafi tekið til sín endurgreiðslur á
virðisaukaskatti upp á tæpar 360
milljónir íslenskra króna sem með
réttu hefðu átt að fara inn á banka-
reikning Keops Development.
„Það var dropinn sem fyllti
mælinn að vita af því að það væri
búið að vera að taka peninga út úr
félaginu þegar það hefur ekki
verið aflögufært. Það er síðasta
sort,“ segir Skarphéðinn Berg
Steinarsson, forstjóri Landic Prop-
erty. Hann segir einnig að farið
verði ítarlega yfir stöðu Keops
Development á næstu dögum og
gripið verði til viðeigandi ráðstaf-
ana til að tryggja að reksturinn
komist á rétta braut.
-ghh
Landic Property yfirtekur Keops Development á ný:
Treysta ekki Stones Invest
SKARPHÉÐINN BERG Forstjóri Landic
Property segir nú gengið í að ógilda
viðskiptin með Keops Development.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
Helsinki
Eindhofen
Amsterdam
London
Berlín
Frankfurt
Friedrichshafen
París
Basel
Barcelona
Alicante
Algarve
Tenerife
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
21°
19°
17°
21°
20°
21°
21°
21°
21°
22°
20°
20°
22°
22°
27°
32°
32°
26°
10
Á MORGUN
Vaxandi sunnanátt vest-
an til, 5-10 síðdegis.
5
FÖSTUDAGUR
5-10 m/s, stífastur
vestan til.
10
12
14
12
12
12
5
5
5
5
5
13 16
14
1413
VÆTA FRAM-
UNDAN VESTAN TIL
Góðviðri er í kortum
dagsins. Yfi rleitt
hægviðri og milt og
sólin er líkleg víða
um land eftir hádegi,
síst þó reyndar
eystra. Á hinn bóginn
eru horfur á tölu-
verðum breytingum
á morgun þegar
vindur fer vaxandi af
suðri við vestanvert
landið með vætu
síðdegis. Rigning
sunnan til og vestan
á föstudag.
12
13
12
5
5
5
9
12 15
17
1412
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
REYKJAVÍK „Ólafur F. Magnússon
hefur ekki átt samleið með Frjáls-
lynda flokknum undanfarin ár og
ég sé ekki að hann eigi það í dag,“
segir Jón Magnússon þingmaður
flokksins í Reykjavík.
Ólafur tilkynnti í gær að hann
væri að nýju genginn til liðs við F-
lista frjálslyndra og óháðra, en
hann tilheyrði áður Íslandshreyf-
ingunni. Ásta Þorleifsdóttir verður
enn sem fyrr óháð.
Ólafur segist hafa rætt þetta við
formann flokksins, Guðjón Arnar
Kristjánsson, og hefði Ólafur full-
an stuðning hans.
„Það eru samningar sem ég
þekki ekki og í mín eyru hefur for-
maðurinn afneitað því,“ segir Jón
hins vegar. Guðjón Arnar Kristj-
ánsson, formaður flokksins, segir
ákvörðun um framboðsmál verða
tekna á borgarmálavettvangi
þegar þar að
kemur.
Spurður hvort
stefni í prófkjör
hjá frjáls-
lyndum í borg-
inni, kveður Jón
mestu skipta að
flokksmenn ráði
því hverjir séu
oddvitar, með
prófkjöri eða
ekki. Jón er formaður nýs borgar-
málafélags flokksins. „Frjálslyndi
flokkurinn mun bjóða fram hér í
Reykjavík, en nei, ég mun ekki
styðja Ólaf. Það kemur ekki til
nokkurra greina,“ segir hann.
Guðjón Arnar segist bjóða Ólaf
velkominn í flokkinn. „Menn verða
hins vegar að starfa þar til að vinna
sér traust. Borgarmálafélagið er
vettvangur til að upplýsa flokks-
fólk um borgarmál og taka sameig-
inlegar ákvarðanir. Við skulum
vona að hann geri það.“
Ólafur telur mikilvægt að F-listi
bjóði fram sameinaður og að hann
haldi þar um stýrið. „Annars verð-
ur unnið að því að flytja flugvöll-
inn burt, í bága við vilja Reykvík-
inga.“ Hann vilji ekki dreifa
atkvæðum flugvallarsinna milli
framboða. Þetta kallar Jón Magn-
ússon „bull og kjaftæði“.
Ólafur tók fram að milli hans og
Ómars Ragnarssonar, formanns
Íslandshreyfingarinnar, ríkti trún-
aður. Ólafur er að mati Ómars
„einn mesti umhverfisverndar-
maður sem við höfum átt. Jón er
aftur eindreginn fylgismaður
Bitruvirkjunar og stóriðju,“ segir
Ómar. klemens@frettabladid.is
kolbeinn@frettabladid.is
Jón segir ekki koma til
greina að styðja Ólaf
Formaður Frjálslynda flokksins býður Ólaf F. Magnússon velkominn í flokkinn.
Ólafur þurfi þó að vinna sér inn traust flokksmanna. Borgarstjóri gekk í gær til
liðs við flokkinn til að dreifa ekki atkvæðum andstæðinga flugvallarins.
FLUG Í KEFLAVÍK
Jón Magnússon segist vilja hafa
innanlandsflugið í Keflavík, verði
flugvöllurinn færður á annað borð.
En þangað til að viðunandi lausn
finnist eigi völlurinn að vera á
sínum stað.
Ólafur F. Magnússon borgar-
stjóri hefur hins vegar útilokað,
fyrir sitt leyti, að innanlandsflug
fari til Keflavíkur.
ÓLAFUR TILKYNNIR ÁKVÖRÐUN SÍNA Í RÁÐHÚSINU Í GÆR Af F-listanum gamla hafa
horfið þær Margrét Sverrisdóttir og Guðrún Ásmundsdóttir. Einnig dóttir Ólafs, Anna
Sigríður, enda mun hún hafa fengið nóg af látunum í kringum borgarmálin.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
JÓN MAGNÚSSON
Kveikt í jeppakerru
Kveikt var í lítilli jeppakerru á Dalvík í
gær. Þrír átta og níu ára krakkar höfðu
fundið flugeldablys, helltu bensíni yfir
kerruna og skutu af blysinu á hana.
Kerran brann til kaldra kola. Engan
sakaði og ekki varð frekara tjón.
LÖGREGLUMÁL
VINNUMARKAÐUR Samninganefnd
fiskimanna í Sjómannafélagi
Íslands hefur vísað kjaradeilu
sinni við Landsamband Íslenskra
Útvegsmanna, LÍÚ, til embættis
ríkissáttasemjara.
Birgir Björgvinsson, fram-
kvæmdastjóri Sjómannafélags-
ins, segir að samninganefndin
hafi setið nokkra fundi með LÍÚ
en mikið beri í milli og því hafi
sjómenn viljað koma viðræðunum
í þennan farveg. Hann á von á því
að það taki „óratíma“ að ná
samkomulagi. - ghs
Sjómannafélag Íslands:
Vísar kjaradeilu
til sáttasemjara
GENGIÐ 19.08.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
158,2334
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
82,35 82,75
153,30 154,04
120,86 121,54
16,202 16,296
15,188 15,278
12,915 12,991
0,7495 0,7539
129,19 129,95
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR