Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						2  15. október 2008  MIÐVIKUDAGUR

         EFNAHAGSMÁL ?Allt það sem 

íslenska þjóðin upplifir í dag er 

afleiðing Seðlabankans,? segir 

Sigurður G. Guðjónsson, fyrrver-

andi stjórnarmaður í Glitni. Hann 

segir stjórnmálamenn hafa sam-

þykkt inngrip í bankann án þess 

að kynna sér aðgerðina að nokkru 

marki.

?Það að ríkið lánaði ekki þessa 

peninga [600 milljónir evra] á 

þessum tíma, sem hefði gert Glitni 

kleift að anda og mæta þeim 

hremmingum sem voru augljós-

lega að ríða yfir bankakerfi heims-

ins, hefur skapað það ófremdar-

ástand sem er á Íslandi í dag. 

Beint í kjölfar inngripsins á Glitni 

var mati á öllum bönkunum koll-

varpað og dregið yfir lánalínur.?

Ólafur Ísleifsson, prófessor í 

hagfræði við HR, spyr í grein í 

Markaðnum í dag hvort málin 

hafi þurft að þróast með þessum 

hætti. Í lokaorðum sínum segir 

hann:

?En líkindi má telja til þess að 

önnur afgreiðsla á máli Glitnis 

hefði gefið bönkunum svigrúm til 

að mæta lausafjárþurrðinni, 

hugsanlega nógu lengi til að kom-

ast í það skjól sem vænta má af 

samræmdum alþjóðlegum 

aðgerðum til stuðnings fjármála-

kerfinu. Kannski var þetta spurn-

ing um tvær eða þrjár vikur. Við 

því fæst ekki svar héðan af. 

Afgreiðslan á erindi Glitnis 

tæmdi stundaglasið.?

 - kóp, jsa / Sjá Markaðinn

Spurningum velt upp um réttmæti þjóðnýtingar Glitnis:

Þjóðnýting Glitnis orsökin

ÓLAFUR 

ÍSLEIFSSON

SIGURÐUR G. 

GUÐJÓNSSON

VIÐSKIPTI ?Ekkert kom fram sem 

veitti Fjármálaeftirlitinu ástæðu til 

að afturkalla starfsleyfi Lands-

bankans,? segir Jónas Fr. Jónsson, 

forstjóri Fjármálaeftirlitsins, þegar 

hann er spurður um erlenda starf-

semi bankans sem gerði út Icesave-

reikningana.

Breskir og hollenskir sparifjár-

eigendur lögðu sem nemur hundr-

uðum milljarða króna inn á reikn-

ingana, en þeir hafa verið lokaðir 

um nokkurra daga skeið. Íslensk 

stjórnvöld ræða enn við Breta um 

lausn mála. ?Heimild til að banna 

stofnun útibús getur aðeins komið 

til ef Fjármálaeftirlitið hefur rétt-

mæta ástæðu til að ætla að stjórnun 

eða fjárhagsstaða fjármálafyrir-

tækis í heild sinni sé ekki traust er 

tilkynning um opnun útibús berst 

eftirlitinu,? segir Jónas. Hafi Fjár-

málaeftirlitið réttmæta ástæðu til 

að ætla að stjórnun og fjárhags-

staða sé ekki traust komi mögulega 

til afturköllunar á starfsleyfi að 

heild eða hluta. ?Eftir að útibú hefur 

tekið til starfa hefur Fjármálaeftir-

litið ekki lagaleg úrræði til að 

breyta starfsemi nema í samráði 

við viðeigandi fjármálafyrirtæki og 

yfirvöld í viðkomandi ríki.?

Hann bendir á að aðrar þjóðir 

gangi í gegnum efnahagserfiðleika 

og aðrar þjóðir hafi gert það áður. 

?Það er kannski skemmst að minn-

ast annarra Norðurlanda. Þau fóru í 

gegnum mjög erfiða fjármálakrísu 

í upphafi tíunda áratugarins og þau 

náðu með samstilltu átaki að koma 

sér út úr henni og halda í raun og 

veru sínu þjóðfélagskerfi óbreyttu.? 

Jónas segir að Íslendingar eigi auð-

vitað að reyna að draga lærdóm ef 

þeim hremmingum. 

 - ikh / sjá Markaðinn

Forstjóri Fjármálaeftirlitsins segir að ekki hefði verið hægt að loka Icesave:

Engar réttmætar ástæður 

til að afturkalla starfsleyfið

JÓNAS FR. JÓNSSON  Forstjóri Fjármála-

eftirlitsins.

EFNAHAGSMÁL Skynsamlegt er að 

stjórn Seðlabankans víki og veiti 

Geir H. Haarde forsætisráðherra 

þar með nægjanlegt svigrúm til 

breytinga. Þetta kom fram í máli 

Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, 

utanríkisráðherra og formanns 

Samfylkingarinnar, í viðtali á RÚV 

í gær. Áður hefur Ágúst Ólafur 

Ágústsson, varaformaður flokks-

ins, látið þessa skoðun sína í ljós. 

Á þriðjudag fyrir viku var Davíð 

Oddsson seðlabankastjóri spurður 

að því í Kastljósi hvort til greina 

kæmi að hann léti af embætti. Því 

svaraði Davíð á þessa leið: ?Það 

hefur enginn nefnt það við mig en 

ég hef bara svona séð þetta en ef 

ég teldi mig hafa unnið til þess þá 

væri það sjálfsagt. Eins og ég segi 

þá er það þannig að það hefur 

verið nokkuð velrekin hérna 

sjoppa sem hefur haldið uppi lát-

lausum árásum á mig í þrjú, fjög-

ur ár, það gerir mér ekkert til en 

einhvern tímann verður þetta 

skoðað og þá kemur fram að þar 

hefur mikil ósanngirni verið á 

ferðinni.?

?Maður skyldi ætla að skilaboð-

in séu búin að berast núna,? segir 

Ágúst Ólafur um svar Davíðs að 

enginn hefði nefnt það við hann að 

til greina kæmi að hann hætti. 

?Það þarf að auka trúverðug-

leika Seðlabankans, menn sjá það 

að peningastefna Seðlabankans er 

gjaldþrota,? segir Ágúst Ólafur. 

Hann segir eina af þeim leiðum 

sem þurfi að grípa til svo bæta 

megi trúverðugleika stofnunar-

innar að skipta þar um stjórn. ?Það 

mega engar heilagar kýr verða í 

veginum fyrir því að bæta ástand-

ið, jafnvel þótt þær heiti Davíð 

Oddsson,? segir Ágúst Ólafur. 

Þegar Fréttablaðið leitaði við-

bragða Geirs H. Haarde forsætis-

ráðherra í gær og leitaði viðbragða 

hans við ummælum Ingibjargar 

sagði Gréta Ingþórsdóttir, aðstoð-

arkona hans, að hann hefði þegar 

komið fram skoðun sinni um þetta 

mál á framfæri.

Ekki fengust svör frá Þorgerði 

Katrínu Gunnarsdóttur, mennta-

málaráðherra og varaformanni 

Sjálfstæðisflokksins, í gær. Ágúst 

Ólafur segist hvorki ætla að svara 

fyrir skoðanir allra Sjálfstæði-

manna né allra Samfylkingar-

manna á þessu máli. Hann viti þó 

að mikill skilningur ríki á mikil-

vægi þess að endurvekja traust á 

Seðlabankanum. Ekki hrikti í stoð-

um ríkisstjórnarinnar vegna þessa 

máls. ?Davíð Oddsson hvorki sam-

einar né sundrar þessari ríkis-

stjórn,? segir Ágúst Ólafur.

 karen@frettabladid.is

Vilja að stjórn Seðla-

banka víki sem fyrst 

Formaður Samfylkingar segir að skynsamlegt sé að seðlabankastjórar víki.   

Ágúst Ólafur Ágústsson segir að skilaboð til Davíðs Oddssonar ættu að hafa 

borist honum.  Geir H. Haarde stendur enn með stjórn Seðlabankans. 

GEIR H. HAARDEÞORGERÐUR KATR-

ÍN GUNNARSDÓTTIR 

INGIBJÖRG SÓL-

RÚN GÍSLADÓTTIR

ÁGÚST ÓLAFUR 

ÁGÚSTSSON 

ÞRÝSTINGURINN ÞYNGIST  Svo megi endurvekja traust á Seðlabankanum vilja 

forystumenn Samfylkingar að seðlabankastjórarnir Ingimundur Friðriksson, Eiríkur 

Guðnason og Davíð Oddsson víki þegar í stað. Davíð hefur ekki ljáð máls á því. 

BJÖRGUN Kettlingur, sem sat 

fastur í þakrennu húss í Reykja-

vík í gær, fékk hjálp slökkviliðs-

manna við að komast niður. Það 

varð honum til happs að fólk sem 

var að bíða eftir strætó tók eftir 

honum vandræðast í rennunni og 

hafði samband við slökkviliðið. 

Slökkviliðsmenn sinna útköllum 

á borð við þetta þegar tími gefst 

til. ?Við höfum reyndar aldrei 

fundið dauðan kött uppi í tré eða í 

þakrennu. Þeir koma sér niður á 

endanum. En það er okkar 

hlutverk að slökkva elda, stóra 

sem smáa,? sagði Eyþór Leifsson, 

slökkviliðsmaður á vakt í gær. - hhs

MJÁLMANDI KÖTTUR Kettir fá stundum 

hjálp frá slökkviliðsmönnum þegar þeir 

hafa komið sér í ógöngur. 

Slökkviliðið gerir góðverk:

Kettlingi hjálpað 

úr þakrennu

EFNAHAGSMÁL Ríkisstjórnin vill að 

Nýi Landsbankinn og Nýi Glitnir 

frysti afborganir myntkörfulána, 

sérstaklega vegna húsnæðislána, 

þar til ró kemst á gjaldeyris-

markaðinn. 

Þetta kom fram í tilkynningu 

sem viðskiptaráðuneytið sendi 

fjölmiðlum í gær. 

Einnig er þeim tilmælum beint 

til sömu aðila um að fólki í 

greiðsluerfiðleikum verði boðin 

sömu úrræði og til staðar eru hjá 

Íbúðalánasjóði vegna greiðslu-

erfiðleika. Auk þess eru önnur 

fjármálafyrirtæki beðin um að 

veita sömu fyrirgreiðslu.

  - kdk 

Tilmæli frá ríkisstjórn Íslands:

Vilja frysta 

afborganir lána 

EFNAHAGSMÁL ?Ég er mjög 

bjartsýnn á viðræður við Rússa 

um lán. Skýr skilaboð hafa komið 

um vilja þeirra til viðræðna þótt 

málið hafi ekki verið eins fast í 

gadda slegið og ætla mætti af 

fyrstu yfirlýsingum Seðlabank-

ans,? segir Össur Skarphéðinsson 

iðnaðarráðherra.

Íslensk sendinefnd fundaði í 

Moskvu í gær um gjaldeyrislán. 

Ekkert liggur fyrir eftir þær 

viðræður. Össur segir að gangi 

þær vel verði þess skammt að 

bíða að fyrstu greiðslur berist.

?Ég átti von á að aðrir hefðu 

komið okkur fyrr til hjálpar, en 

vinir okkar í Rússlandi hafa áður 

komið og aðstoðað okkur.? - kóp

Össur Skarphéðinsson:

Ráðherra bjart-

sýnn á viðræð-

ur við Rússa

VÆNTIR ÁRANGURS Össur væntir árang-

urs af viðræðum íslensku sendinefndar-

innar sem nú er í Rússlandi.

 FRÉTABLAÐIÐ/STEFÁN

Stal nærbuxum og ilmvatni 

Kona hefur verið dæmd í fjögurra 

mánaða fangelsi, þar af þrjá skilorðs-

bundna, fyrir að stela tvennum nær-

buxum og ilmvatnsglasi í Hagkaupum 

í Skeifunni. Verðmæti þýfisins nam 

6.677 krónum. 

DÓMSTÓLAR

Sodann í forsetaframboð

Þýski Vinstriflokkurinn, Die Linke, 

hefur tilnefnt leikarann Peter Sodann 

sem frambjóðanda sinn til embættis 

forseta landsins. Forsetinn er kjörinn 

af kjörmannasamkomu sem skipuð 

er þingmönnum bæði af Sambands-

þinginu og héraðsþingum þýsku 

sambandslandanna 16. Kjörið fer 

fram 23. maí í vor. Horst Köhler, sem 

gegnt hefur embættinu undanfarið 

kjörtímabil, gefur kost á sér áfram. 

ÞÝSKALAND

Stefán, ertu fær í flestan sjó?

Já, nema kannski í bankabrælu.

Stefán Máni rithöfundur stundar sjósund 

og segir það vera allra meina bót.

SPURNING DAGSINS

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48