Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						2  21. október 2008  ÞRIÐJUDAGUR

ÍSRAEL, AP Tzipi Livni, arftaki 

Ehuds Olmert, fær tvær vikur í 

viðbót til að mynda ríkisstjórn. 

Í gær rann út fjögurra vikna 

frestur sem Livni hafði til að 

tryggja nýrri ríkisstjórn nægan 

meirihluta á þingi. Nauðsynlegt er 

að stjórnin hafi öruggan meiri-

hluta, að öðrum kosti væri enginn 

möguleiki á að hún gæti samið við 

Palestínumenn, sem yrði þó helsta 

verkefni stjórnarinnar.

Livni tók í síðasta mánuði við af 

Olmert sem leiðtogi Kadima-

flokksins, en hann sagði af sér 

vegna spillingarmála sem rekin 

eru á hendur honum fyrir dómstól-

um. Olmert er þó áfram forsætis-

ráðherra bráðabirgðastjórnar sem 

starfar þar til ný stjórn hefur verið 

mynduð.

Takist Livni ekki að mynda 

stjórn þarf að boða til þingkosn-

inga.

Livni hefur reynt að halda í 

núverandi stjórnarflokka, og hefur 

þegar tryggt sér áframhaldandi 

stjórnarþátttöku Verkamanna-

flokksins. Einnig er líklegt að hún 

haldi Lífeyrisþegaflokknum, en 

óvissan er mest um Shas-flokkinn, 

sem er flokkur rétttrúaðra gyð-

inga.

Shas-flokkurinn hefur staðið 

harður á móti því að veita Palest-

ínumönnum tilkall til hluta Jerús-

alemborgar, en án samnings um 

framtíðarstöðu Jerúsalem er úti-

lokað að gera friðarsamninga við 

Palestínumenn. - gb

Tzipi Livni fær lengri frest til stjórnarmyndunar í Ísrael:

Illa gengur að mynda stjórn

LÖGREGLUMÁL Menn úr hópnum 

sem réðst á tvo lögreglumenn í 

Hraunbæ aðfaranótt sunnudags 

hafa margoft komið við sögu lög-

reglu hér á landi, einkum vegna 

ofbeldisbrota. Um er að ræða 

gengi Filippseyinga, sem kom 

meðal annars við sögu í síendur-

teknum átökum hópa í Breiðholti 

fyrir nokkrum árum. Að auki var í 

hópnum nú einstaklingur frá 

Nepal. Sumir þessara manna eru 

íslenskir ríkisborgarar, aðrir ekki. 

Þeir eru á þrítugs- og fertugs-

aldri. 

Lögreglumennirnir tveir fóru í 

hús í Hraunbæ, þar sem nágrann-

ar höfðu kvartað undan hávaða. 

Lögreglumennirnir ræddu við hús-

ráðendur og yfirgáfu húsnæðið að 

því búnu. Einn þeirra sem voru í 

húsinu elti þá og réðst á þá. Er þeir 

ætluðu að handtaka árásarmann-

inn, réðust sex félagar hans á þá 

með höggum og spörkum. Annar 

lögreglumaðurinn, kona, var með 

kylfu og úða. Hinn lögreglumaður-

inn, sem er afleysingamaður, hafði 

ekki lokið prófi og var því ekki 

með réttindi til að bera kylfu og 

piparúða. Hann hlaut skurð á höfuð 

sem sauma þurfti saman. Báðir 

lögreglumennirnir voru með 

skrámur og mar eftir högg og 

spörk. Þeir voru bornir ofurliði í 

átökunum en náðu að ýta á neyðar-

hnapp á talstöð og barst því liðs-

auki eftir örfáar mínútur. Árásar-

mennirnir voru þá flúnir, en 

lögreglan hafði fljótlega upp á sjö 

þeirra. Sá áttundi gaf sig svo fram 

nokkru síðar. 

Fjórir árásarmannanna voru 

úrskurðaðir í gæsluvarðhald þar 

til á miðvikudag. Hinum fjórum 

var sleppt. Síðdegis í gær handtók 

svo lögregla á höfuðborgarsvæð-

inu þrjá menn til viðbótar, sem eru 

taldir hafa átt hlut að árásinni.

Samkvæmt upplýsingum Frétta-

blaðsins hefur þessi hópur komið 

oft við sögu lögreglu á undanförn-

um árum. Þar má nefna slagsmála-

öldu í Breiðholti árið 2003, þegar 

tveimur hópum laust saman í 

Eddufelli, sem endaði með að 

menn meiddust. Skömmu síðar var 

ráðist á ungan mann við Select í 

Breiðholti og hann barinn með 

hafnaboltakylfu. Hann slasaðist 

töluvert. 

Fáeinum dögum síðar braust 

hópur manna inn hjá ungum manni. 

Hann var barinn með golfkylfu og 

allt brotið og bramlað innandyra, 

áður en mennirnir létu sig hverfa.

Ofbeldismennirnir hafa síðan 

haldið hópinn og verið fyrirferðar-

miklir. 

Þekkt ofbeldisgengi 

réðst á lögregluna

Mennirnir sem réðust á tvo lögreglumenn í Hraunbæ tilheyra ofbeldisgengi 

sem margoft hefur komið við sögu lögreglunnar á undanförnum árum, meðal 

annars vegna ítrekaðra hópslagsmála. Sjö manns sitja nú inni vegna málsins.

LÖGREGLUMÁL Lögreglan á 

Akureyri handtók fyrir helgi 

tæplega tvítugan mann með tvö 

grömm af amfetamíni í fórum 

sínum. Í kjölfarið fundust þrjú 

grömm af kókaíni og þrjú grömm 

af kannabisefnum við húsleit á 

heimili hans. Maðurinn viður-

kenndi að hafa selt og dreift 

fíkniefnum á Akureyri.

Nýverið gerði lögreglan einnig 

húsleit í íbúð á Akureyri. Þar var 

lagt hald lagt á sex kannabis-

plöntur í ræktun. Tveir voru 

handteknir í tengslum við málið 

sem telst upplýst.

Lögreglan minnir á fíkniefna-

símann 800 5005 þar sem koma 

má á framfæri upplýsingum um 

fíkniefnamál.  - jss

Lögreglan á Akureyri:

Fíkniefnasali 

tekinn höndum

TZIPI LIVNI OG SHIMON PERES Peres 

forseti veitti henni lengri frest.

FRÉTTABLAÐIÐ/AP

Halla, áttu hvergi höfði þínu 

að halla?

?Jú, jú. Halla fer til margra halla og 

eldar fyrir alla, til undrunar sinna 

stalla. Ekki er hún fyrr komin innan 

um kalla en hafi hún handa hafist 

við að malla.?

Leikkonan Halla Vilhjálmsdóttir er nú 

heimilislaus í London eftir að leigusali 

hennar, W. Ahmed, trassaði að borga 

skuldir sínar við hið opinbera.

                 ÁRÁSARSTAÐURINN Mennirn-

ir  réðust á lögreglumennina á 

þessum stað í Hraunbænum. Þeir 

eru búsettir Í Hraunbæ og víðar á 

höfuðborgarsvæðinu.

VIÐSKIPTI Viðskipti milli Íslands og 

Bretlands voru í sama ólaginu í 

gær og í síðustu viku, þrátt fyrir 

sérstakar aðgerðir Seðlabanka 

Íslands og yfirlýsingu stjórnvalda 

í Bretlandi sem ætlað var að liðka 

fyrir eðlilegu fjármagnsstreymi 

milli ríkjanna. Þá er gjaldeyrir 

enn skammtaður.

?Þetta hefur ekkert batnað,? 

segir Andrés Magnússon, fram-

kvæmdastjóri Samtaka verslunar 

og þjónustu.  ?Fyrirtæki hafa 

orðið fyrir gríðarlegu tjóni sem 

ekki er hægt að mæla. Viðskipta-

sambönd hafa trosnað, greiðslu-

frestur felldur niður og stað-

greiðslu krafist. Ofan á þetta 

bætist gríðarleg veiking á gengi 

krónunnar,? segir Andrés sem sér 

fram á hrinu uppsagna í verslun 

og þjónustu fyrir mánaðamót. 

?Menn reyna að tóra og hagræða 

eins og þeir lifandi geta en við ótt-

umst uppsagnahrinu. Spurningin 

er aðeins hversu stórkostleg hún 

verður.?

Andrés furðar sig á að yfirlýs-

ing breskra stjórnvalda hafi ekki 

liðkað fyrir viðskiptum og segir 

engu líkara en að þrátt fyrir hana  

séu Íslendingar enn höndlaðir 

sem hryðjuverkamenn.

Margvísleg vandamál fylgja 

lömuðum milliríkjaviðskiptum.  

Útflutningsfyrirtæki sem ekki 

hafa fengið greitt fyrir vörur 

sínar gætu til dæmis lent í erfið-

leikum með að greiða út laun um 

næstu mánaðamót. Innflytjendur 

í almennri verslun gætu svo stað-

ið frammi fyrir að fá ekki jólavör-

ur til landsins sem er ávísun á 

gríðarlegt tekjutap.  - bþs

Gjaldeyrisviðskipti enn í lamasessi og uppsagnir yfirvofandi í verslun og þjónustu: 

Ekki hægt að mæla tjónið

ANDRÉS MAGNÚSSON Stórkostleg vand-

ræði blasa við fyrirtækjum í verslun og 

þjónustu vegna erfiðleika í viðskiptum 

milli ríkja.

UTANRÍKISMÁL Ingibjörg Sólrún 

Gísladóttir utanríkisráðherra 

ræddi ítarlega við Jens Stolten-

berg, forsætisráðherra Noregs, 

og Jonas Gahr Störe, utanríkis-

ráðherra Noregs, um helgina. 

Fyrir liggur vilji Norðmanna til 

að liðsinna Íslandi vegna stöðunn-

ar í efnahagsmálum, en forsenda 

liðsinnis er samkomulag við 

Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og á hið 

sama við um aðrar vinaþjóðir 

Íslendinga. Jonas Gahr Störe er 

væntanlegur hingað til lands í 

opinbera heimsókn í byrjun 

nóvembermánaðar. 

Þá ræddi Ingibjörg Sólrún við 

Bernard Kouchner, utanríkisráð-

herra Frakka, á laugardag. 

Fullvissaði Kouchner Ingibjörgu 

Sólrúnu um vináttu Frakka og 

samstöðu í þeirri erfiðu stöðu 

sem Ísland er í núna. Ráðherrarn-

ir tveir ákváðu að hittast eins 

fljótt og því yrði við komið og 

dagskrá þeirra leyfði.   - shá

Utanríkisráðherra:

Ræðir vanda 

við vinaþjóðir 

VIÐSKIPTI Landsbanki Íslands er á 

sérstökum lista breska fjármála-

ráðuneytisins yfir þá sem 

viðskiptabann nær yfir.

Meðal annarra á lista fjármála-

ráðuneytisins eru hryðjuverka-

menn og fjármagnsaðilar 

hryðjuverkasamtaka eins og al-

Kaída, aðilar frá Íran, Írak og 

Líberíu.

Rúmlega 7.400 einstaklingar og 

stofnanir eru á þessum lista. Einu 

vestrænu aðilarnir á listanum 

sem ekki eru taldir tengjast 

hryðjuverkasamtökum, eru 

Landsbankinn og fjölskylda 

Slobodans Milosevic, fyrrverandi 

forseta Serbíu. - ss

Landsbanki Íslands:

Í sama flokki 

og al-Kaída

NOREGUR Mette-Marit, krónprins-

essa Noregs, er rúmliggjandi í 

Kænugarði í Úkraínu og verður 

að aflýsa 

opinberri 

heimsókn þar í 

landi eftir að 

hafa dottið 

þegar hún var á 

leið í heimsókn 

hjá samtökum 

sem vinna að 

málstað fólks 

með HIV eða 

AIDS, að sögn 

norska ríkisútvarpsins NRK.

Mette-Marit var rannsökuð 

eftir fallið og kom þá í ljós að hún 

er með vægan heilahristing. Hún 

verður því að vera rúmliggjandi í 

tvo daga. Þar sem heimsókninni 

til Úkraínu lýkur á miðvikudag er 

útséð með að krónprinsessan geti 

haldið heimsókninni áfram.  - ghs

Norska krónprinsessan:

Datt og fékk 

heilahristing

METTE-MARIT

EFNAHAGSMÁL ?Sjóðurinn er ekki 

með endurtryggingu,? segir 

Eiríkur Elís Þorláksson, lögmað-

ur Tryggingasjóðs innstæðueig-

enda.

Fram kom í blaðinu á dögun-

um að ætla megi að innistæður í 

stóru bönkunum þremur hafi 

numið yfir 4.000 milljörðum 

króna um mitt árið, mest 

erlendis. Því mætti búast við að 

yfir 40 milljarðar ættu að vera í 

tryggingasjóðnum. Þar eru 

nítján milljarðar króna nú.

?Bankarnir eru ekki í vanskil-

um við sjóðinn,? segir Eiríkur 

Elís, sem bendir á að ekki eigi 

að gera upp fyrr en 1. mars, 

fyrir almanaksárið á undan.  

Þá hafi verið gert upp við 

sjóðinn vegna ársins 2007. - ikh

Lögmaður Tryggingasjóðs:

Er ekki með 

endurtryggingu

SPURNING DAGSINS

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41