Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						4  21. október 2008  ÞRIÐJUDAGUR

ALÞINGI Ekki er enn frágengið 

hvaða eignir verða færðar úr 

gömlu viðskiptabönkunum þremur 

yfir í nýju bankana sem stofnaðir 

hafa verið á grunni þeirra. Að 

sama skapi ríkir mikil óvissa um 

hvaða verðmætum hægt verður 

að bjarga. 

Þetta kom fram á fundi 

viðskiptanefndar Alþingis með 

skilanefndum bankanna, 

bankastjórum Nýja Glitnis og 

Nýja Landsbankans og fulltrúum 

Tryggingarsjóðs innstæðueigenda 

í gærmorgun.

?Það ríkir enn mikil óvissa um 

þetta og efnahagsreikningarnir 

liggja ekki fyrir,? sagði Ágúst 

Ólafur Ágústsson, formaður 

nefndarinnar, eftir fundinn. ?Hins 

vegar er ljóst að eignir verða ekki 

seldar á brunaútsölu.? 

Starfsstefna bankanna til fram-

tíðar hefur ekki verið mótuð en 

Ágúst segir  bankastjórana hafa 

ítrekað á fundinum að tími ofur-

launa sé liðinn. Jafnframt að þeir 

geri ekki ráð fyrir miklum breyt-

ingum á starfsmannahaldi á næst-

unni. 

Viðskiptanefnd fundar aftur 

síðar í vikunni og ætlar meðal ann-

ars að fjalla um hugsanlega máls-

sókn á hendur breskum stjórn-

völdum vegna yfirtöku á félögum 

Kaupþings í Bretlandi. ?Við erum 

að reyna að fá botn í það mál og þá 

hvort skilanefndin, fyrrverandi 

eigendur eða stjórnvöld munu 

reka málið.  - bþs

Óvissa ríkir um eignastöðu og hvaða verðmætum tekst að bjarga úr bönkunum:

Enn óljóst hvað nýju bankarnir eiga

ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON Eignir bank-

anna verða ekki seldar á brunaútsölu.  

Forsetakjör á föstudag 

Ársfundur ASÍ verður haldinn á 

fimmtudag og föstudag undir yfir-

skriftinni Ungt fólk og framtíðin. Á 

föstudagsmorgun fer fram forsetakjör 

ASÍ en í framboði eru Ingibjörg R. 

Guðmundsdóttir, varaforseti ASÍ, og 

Gylfi Arnbjörnsson framkvæmdastjóri.

VINNUMARKAÐUR

LÖGREGLUMÁL Erlendir ríkisborg-

arar sem flytja frá Íslandi hafa í 

nokkrum tilvikum tekið með sér 

bíla sem þeir hafa haft á kaup-

leigusamningi. 

Nýverið leitaði fjármögnunar-

fyrirtæki til alþjóðadeildar 

ríkislögreglustjóra eftir að hafa 

komist að því að nýlegir bílar í 

eigu fyrirtækisins voru um borð í 

Norrænu á leið til Noregs og 

Danmerkur. Alþjóðadeild tókst í 

samvinnu við norska ríkislög-

reglustjórann, lögregluna í 

Bergen og skipstjóra Norrænu að 

koma í veg fyrir að eigendur 

töpuðu bílunum. Bílarnir verða 

fluttir með Norrænu hingað.  - jss

Útlendingar á leið úr landi:

Taka kaupleigu-

bíla með sér

ORKUMÁL Friðrik Sophusson 

verður áfram forstjóri Lands-

virkjunar í allt að tvö ár þótt hann 

hafi ætlað að 

hætta um 

áramótin. Auglýst 

var eftir nýjum 

forstjóra og 

frestur til að 

sækja um 

framlengdur einu 

sinni áður en 

stjórn Lands-

virkjunar bað 

Friðrik að halda 

áfram.

?Við þessar aðstæður telur 

stjórn Landsvirkjunar afar brýnt 

að viðhalda traustum samskiptum 

við helstu viðskiptavini og 

lánardrottna fyrirtækisins. Þar 

skipta persónuleg tengsl og góð 

viðskipta sambönd meginmáli,? 

segir stjórnin.

Alls sóttu 55 um forstjórastarf-

ið. Nokkrir voru kallaðir í viðtal 

áður en ?aðstæður í þjóðfélaginu 

breyttust á svipstundu?.  - gar

Beðinn um að hætta ekki:

Friðrik áfram í 

Landsvirkjun

FRIÐRIK 

SOPHUSSON

EFNAHAGSMÁL Búist er við að samn-

ingar náist um lán til Íslendinga 

frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og 

fleiri aðilum í dag. Seðlabankar 

Japans og Norðurlandanna eru 

þar nefndir til sögunnar. Óljóst er 

á þessari stundu hver lánsupp-

hæðin verður.

Breska blaðið Financial Times 

sagði frá því í netútgáfu sinni í 

gær að um sex milljarða dollara 

lán væri að ræða, þar af kæmi 

rúmlega milljarður frá Alþjóða-

gjaldeyrissjóðnum. Fréttablaðið 

hefur heimildir fyrir því að í við-

ræðum við sjóðinn hafi talan 1,5 

milljarðar dollara borið á góma.

Sendinefnd frá sjóðnum hefur 

verið hér um hríð og hafa fulltrú-

ar hennar verið starfsmönnum 

Seðlabankans til aðstoðar í þreng-

ingunum.

Vidar Korsbeg Dalsbö, upplýs-

ingafulltrúi norska seðlabankans, 

vildi, í samtali við Stavanger 

Aftenblad í gær, hvorki játa því né 

neita að bankinn kæmi að lánveit-

ingum til Íslendinga.

Í gær komst sá kvittur á kreik 

að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn 

krefðist þess að ríkið ábyrgðist 

ekki hærri innlán en sem nemur 

þremur milljónum króna. Jón Þór 

Sturluson, segir ekkert til í þeim 

orðrómi. ?Nei, það er af og frá. 

Það hefur engin krafa komið frá 

sjóðnum um neitt hámark þar á.?

Jón Þór segir frétt Financial 

Times ekki nógu nákvæma. ?Hún 

er byggð á leka, en augljóslega 

ekki nægum upplýsingum,? segir 

Jón. Hann segir lánsupphæðina 

ekki vera komna á hreint.

Þórólfur Matthíasson, prófessor 

í hagfræði við HÍ, segist vona að 

samningar náist sem fyrst. ?Sex 

milljarðar dollara samsvara hálfri 

landsframleiðslu og er ágætis 

byrjun.?

Þórólfur segir þó mikilvægast 

hvaða ráðstafanir verði gerðar 

hér. ?Menn eru að leggja grund-

völl að efnahagsstefnu næstu ára 

og það þarf að skapa viðskiptaaf-

gang sem stendur undir láninu. 

Við munum búa við veikt gengi 

sem mun til dæmis gagnast sjáv-

arútveginum. Það væri því kannski 

eðlileg krafa að hann kæmi að því 

að greiða lánið niður.?

Ráðamenn hafa ítrekað að þau 

skilyrði sem Alþjóðagjaldeyris-

sjóðurinn setji ráði miklu um 

hvort við hann verður samið. Fin-

ancial Times segir að sjóðurinn 

muni ekki krefjast þess að Íbúða-

lánasjóður verði einkavæddur eða 

dregið verði úr velferðarkerfinu. 

Jón Þór vildi ekkert segja um 

möguleg skilyrði sjóðsins.  

 kolbeinn@frettabladid.is

Búist við að semjist 

við sjóðinn í dag

Reiknað er með að samningar náist um efnahagsaðstoð við Íslendinga í dag 

frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og fleirum. Hagfræðiprófessor telur veikt gengi 

næstu ára gagnast sjávarútvegi sem ætti að taka þátt í að endurgreiða lánið.

SEÐLABANKINN Búist er við því að samningar náist við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og 

nokkra seðlabanka í dag. Rætt er um sex milljarða dollara lán. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA

JÓN ÞÓR

STURLUSON

ÞÓRÓLFUR 

MATTHÍASSON

BANDARÍKIN, AP Rússar hafa neitað 

bandaríska forsetaframbjóðand-

anum John McCain um fé til 

stuðnings kosningabaráttu hans. 

Og gátu ekki stillt sig um að 

hlæja svolítið í leiðinni.

Sendiráði Rússlands hjá 

Sameinuðu þjóðunum í New York 

barst beiðnin nýverið, en augljóst 

þótti reyndar að þarna hafi 

einhver í stuðningsliði McCains 

sent til Rússanna dreifibréf, sem 

ekki hafi átt að berast þangað.

Rússneska sendiráðið tók samt 

fram í yfirlýsingu sinni að 

rússneskir embættismenn 

fjármögnuðu ekki stjórnmála-

starf í öðrum löndum. - gb

Mistök í kosningaslag:

Rússar neituðu 

McCain um lán

SAMFÉLAGSMÁL Samræður um 

hvernig Íslendingar geta treyst 

undirstöður efnahagslífs og 

samfélags, var meðal þess sem 

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti 

Íslands, lagði áherslu á í heimsókn 

sinni til Háskólans á Akureyri í 

gær.

Hann sagði Íslendinga geta sótt 

fram til nýrra og betri tíma, nýtt 

margvíslegar auðlindir landsins og 

fjölþættan mannauð sem þjóðin 

býr yfir. 

Þá lagði forsetinn ríka áherslu á 

mikilvægi menntunar á erfiðum 

tímum og sagði framtíðina bjarta 

vegna þeirrar kynslóðar sem nú er 

að alast upp.  - ovd

Forsetinn heimsækir HA:

Mikilvægi 

menntunar

Jörð skalf í Öxarfirði

Jarðskjálfti sem mældist 4,2 á Richter 

varð klukkan 02.35 í gær í Öxarfirði. 

Skjálftinn varð um sautján kílómetra 

vestur af Kópaskeri. Jarðskjálftans 

varð meðal annars vart í Laxárvirkjun.  

Veðurstofa Íslands segir að yfir 40 

eftirskjálftar hafa þegar mælst, þeir 

stærstu tæplega þrjú stig á Richter. 

NÁTTÚRA

FORSETI ÍSLANDS Sagði Íslendinga geta 

sótt fram til nýrra og betri tíma. 

GENGIÐ 20.10.2008

GJALDMIÐLAR 

KAUP SALA

HEIMILD: Seðlabanki Íslands

 200,5673

GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR

 111,56  112,1

 194,52  195,46

 150,08  150,92

 20,133  20,251

 17,062  17,162

 15,222  15,312

 1,0934  1,0998

 169,66  170,68

Bandaríkjadalur 

Sterlingspund 

Evra 

Dönsk króna

Norsk króna

Sænsk króna 

Japanskt jen 

SDR 

VEÐURSPÁ

Kaupmannahöfn

Billund

Ósló

Stokkhólmur

Gautaborg

London

París

Frankfurt

Friedrichshafen

Berlín

Alicante

Mallorca

Basel

Eindhoven

Las Palmas

New York

Orlando

San Francisco

HEIMURINN

Vindhraði er í m/s. 

Hitastig eru í °C.  

Gildistími korta er um hádegi.

13°

13°

11°

13°

13°

13°

15°

16°

17°

18°

24°

24°

20°

15°

23°

15°

28°

21°

Á MORGUN 

3-10 m/s.

FIMMTUDAGUR

Stíf suðlæg átt.

0

0

-1

-1

1

-1

2

0

1

1

-6

4

3

2

6

6

3

6

12

14

15

8

2

0

1

2

0

0

-1

0

2

2

LÆGÐAGANGUR 

Í VIKUNNI               

Það verður hið 

fínasta veður  á 

landinu í dag en 

best er að njóta 

þess því að á morg-

un kemur lægð upp 

að SV-ströndinni  

með talsverðri 

úrkomu um landið 

sunnan og vestan-

vert.        Á fi mmtu-

dag má búast við 

krappari lægð sem 

fylgir fremur stífur 

vindur.  

Elísabet

Margeirsdóttir

Veður-

fréttamaður

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41