Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						6  21. október 2008  ÞRIÐJUDAGUR

BÚSETA Leiguverð hefur gefið 

eftir um fimmtán til tuttugu pró-

sent frá því í ágúst að mati Svans 

Guðmundssonar, löggilts leigu-

miðlara hjá Húsaleigu.is. ?Frá 

því eftir verslunarmannahelgi 

hefur orðið geysileg aukning á 

bæði leigjendum og íbúðum til 

leigu hjá okkur. Umferð um vef-

inn hefur tvöfaldast á milli mán-

aða á þessum tíma,? segir hann. 

Hann bætir við að meira komi inn 

af eignum en leigjendum einmitt 

núna. Það rekur hann meðal ann-

ars til þess að leigjendur bíði 

átekta þar sem þeir búist við 

lækkandi verði.  

Guðlaugur Örn Þorsteinsson, 

framkvæmdastjóri leigumiðlun-

arinnar Leigulistans, segist 

merkja gríðarlega aukningu í 

framboði eigna. Sú þróun hafi átt 

sér stað frá því um síðustu ára-

mót. Eftirspurnin aukist ekki að 

sama skapi. ?Nú erum við með á 

skrá margfalt fleiri íbúðir en í 

fyrra. Þær voru yfirleitt um 250. 

Núna eru þær yfir sjö hundruð.? 

Hann segir þá grundvallarbreyt-

ingu hafa orðið á leigumarkaðn-

um að nú séu margir leigusalar 

um hvern leigjanda. Það hafi 

verið öfugt ekki alls fyrir löngu. 

Grundvallarbreyting er því að 

verða á leigumarkaðnum. Sam-

kvæmt upplýsingum frá Hag-

stofu Íslands hafa um 80 til 85 

prósent íslenskra fjölskyldna og  

einstaklinga verið í húsnæði í 

eigin eigu. 

Tíu til fimmtán prósent hafi 

hins vegar verið í leiguhúsnæði. 

Viðbúið er að þetta breytist. Gera 

má ráð fyrir að stærri hópur en 

nokkru sinni muni leigja í stað 

þess að kaupa íbúð á næstu miss-

erum. 

Gert er ráð fyrir að framboð 

íbúða verði áfram töluvert meira 

en eftirspurnin. Þar spilar meðal 

annars inn í að margir sem hafa 

keypt nýjar íbúðir hafa ekki náð 

að selja þær gömlu og neyðist til 

að leigja þær út. Þá eru verktakar 

að koma inn á markaðinn með 

íbúðir sem þeir hafa ekki náð að 

selja.  

Nær ómögulegt er að segja til 

um hversu margar íbúðir eru til 

leigu í Reykjavík. Hvergi er slíkt 

yfirlit að finna. Félagsmálaráðu-

neytið heldur utan um allar 

umsóknir um húsaleigubætur. 

Það gefur hins vegar engan veg-

inn rétta mynd af fjölda leigu-

íbúða, enda margir sem gefa 

leiguna ekki upp til skatts og enn 

fleiri sem sækja ekki um húsa-

leigubætur.  holmfridur@frettabladid.is

BLOKKIR VIÐ MIKLUBRAUT Í REYKJAVÍK Bæði eftirspurn og framboð eftir leiguhús-

næði í Reykjavík hefur tekið kipp á undanförnum mánuðum. Framboðið er þó meira 

en eftirspurnin og því er spáð lækkandi leiguverði.  FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

Barist um leigjendur 

Leiguverð hefur lækkað um fimmtán til tuttugu prósent frá því í ágúst segir 

eigandi Húsaleigu.is. Leigumiðlanir merkja gríðarlega aukningu á framboði 

leiguhúsnæðis. Grundvallarbreyting er að verða á leigumarkaði í Reykjavík. 

            h i d [ c V  j  g Z ^ ` c ^ c \  {        Hefur þú hætt við utanlands-

ferð vegna kreppunnar?

Já   

45,3%

Nei 

54,7%

SPURNING DAGSINS Í DAG:

Vilt þú að Bretar sjái um loft-

rýmiseftirlit við Ísland?

Segðu þína skoðun á 

STJÓRNMÁL Steingrímur J. Sigfús-

son, formaður Vinstri hreyfingar-

innar - græns framboðs, furðar 

sig á að stjórnvöld hafi óskað eftir 

aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 

áður en leitað var til nágranna-

ríkja. Sú staðreynd sé til vitnis um 

að ríkisstjórnin hafi játað sig sigr-

aða enda jafnan litið svo á að 

aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 

sé síðasta úrræðið sem ríkisstjórn-

ir hafi til að koma efnahags- og 

peningamálum sínum í lag. 

Steingrímur segir erfitt fyrir 

þróuð ríki að undirgangast skil-

mála Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 

enda hugsi sjóðurinn ekki um 

hagsmuni almennings. ?Ég hef 

grun um að hann ætlist til að við 

greiðum allar óreiðuskuldir bank-

anna í útlöndum, hann þvingi fram 

að vextir verði áfram háir og beiti 

sér fyrir því að lítill sem enginn 

halli verði á ríkissjóði. Þessi atriði 

eru óhagfelld almenningi,? segir 

Steingrímur.

Í gær birtist grein eftir Stein-

grím í norska dagblaðinu Aften-

posten þar sem hann óskar eftir 

aðstoð norskra stjórnvalda svo 

Ísland þurfi ekki á hjálp frá 

Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að 

halda. Aðspurður segir Steingrím-

ur hafa fengið talsverð viðbrögð 

við greininni, ekki síst frá norsk-

um blaðamönnum. Steingrímur 

kveðst vita að norsk stjórnvöld 

myndu taka vel í ósk um að aðstoða 

Íslendinga en þau aðhafist ekkert 

nema formleg málaleitan berist. 

 - bþs

Segir skilmála gjaldeyrissjóðsins óhagfellda og undrast forgangsröð stjórnvalda:

Ríkisstjórnin játar sig sigraða

STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON telur 

skilmála Alþjóðagjaldeyrissjóðsins óhag-

fellda almenningi.

NOREGUR Björg Þórhallsdóttir, 

myndlistarmaður í Noregi, hefur 

aflýst myndlistarsýningu í 

Reykjavík vegna kreppunnar. 

?Það er ekkert vit að setja fullt af 

peningum og orku í ferðalag til 

Íslands til að halda sýningu þegar 

fólk óttast að geta ekki keypt 

bleiur,? hefur norska ríkisútvarp-

ið eftir henni.

Íslenskir listamenn munu finna 

fyrir kreppunni á undan öðrum. 

?Björg Þórhallsdóttir ætlar að 

bíða með sýninguna í nokkur ár 

en hún er samt bjartsýn fyrir 

hönd íslenskra listamanna,? segir 

í frétt norska ríkisútvarpsins. 

 - ghs

Fjármálakreppan:

Listamaður af-

lýsir sýningu

BÓLIVÍA, AP Evo Morales, forseti 

Bólivíu, fór í fararbroddi 

mótmælagöngu inn í höfuðborg-

ina La Paz, þar sem tugir þúsunda 

stuðningsmanna hans kröfðust 

þess að þjóðþing landsins efndi til 

þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja 

stjórnarskrá.

Nýja stjórnarskráin myndi 

veita frumbyggjum landsins 

aukin völd. Stjórnarskrárbreyt-

ingin fæli einnig í sér að Morales 

mætti bjóða sig fram til endur-

kjörs þegar núverandi kjörtíma-

bil rennur út.

Sjálfur er Morales úr röðum 

frumbyggja sem lengi hafa mátt 

lúta yfirráðum hins auðuga 

minnihluta afkomenda aðfluttra 

Evrópumanna. - gb

Tugir þúsunda Bólivíubúa:

Krefjast þjóðar-

atkvæðagreiðslu

FORSETINN Í FARARBRODDI Evo Morales 

í mótmælagöngu.  NORDICPHOTOS/AFP

EFNAHAGSMÁL Stoðir óskuðu í gær 

eftir framlengdri greiðslustöðvun 

til 20. janúar næstkomandi en 

þriggja vikna greiðslustöðvun 

félagsins rann út í gær. 

Héraðsdómur hefur vikufrest 

til að afgreiða málið. Samkvæmt 

síðasta uppgjöri voru skuldir 265 

milljarðar króna. Þrír stærstu 

lánadrottnar Stoða eru Glitnir, 

Kaupþing og Landsbankinn en 

vegna þjóðnýtingar þeirra og 

erfiðleika hafa lítil færi gefist til 

að fara yfir vandamál fyrirtækis-

ins. Búist er við að sú vinna fari 

fram næstu daga.  - ovd

Vandamál bankanna tefja:

Stoðir áfram í 

greiðslustöðvun

UMHVERFISMÁL Hægt verður ráðast 

í tilraunaboranir við Kröflu og 

Þeistareyki næsta sumar, þrátt 

fyrir úrskurð umhverfisráðherra 

um heildstætt mat á umhverfis-

áhrifum vegna álversframkvæmda 

á Bakka. 

Þeistareykir ehf. og Landsvirkj-

un hafa til þessa talið að úrskurður 

ráðherra tefði tilraunaboranir um 

eitt ár. Skipulagsstofnun hefur nú 

sent Þeistareykjum ehf. og 

Landsvirkjun bréf, þar sem fram 

kemur að leggja þurfi fram tillögu 

að matsáætlun til stofnunarinnar 

fyrir rannsóknarboranirnar. 

Stefán Thors skipulagsstjóri segir 

að þar með verði hægt að bora við 

Þeistareyki og Kröflu næsta 

sumar.  - shá

Skipulagsstofnun:

Grænt ljós á til-

raunaboranir

LÖGREGLUMÁL Lögregla og 

tollverðir á Keflavíkurflugvelli 

fengu til meðferðar mál þriggja 

manna í gær.

Einn þeirra kom frá Ósló í 

Noregi og óskaði hann eftir hæli 

við komuna til landsins. Annar 

maðurinn framvísaði skandin-

avísku vegabréfi og kom hann að 

sögn lögreglu að öllum líkindum 

frá Svíþjóð eða Danmörku. Þriðji 

maðurinn kom frá París en hann, 

ásamt öðrum manninum, var á 

leið til Torontó í Kanada. Rann-

sóknarlögregla fer með mál 

mannanna.  - ovd

Lögregan á Keflavíkurvelli:

Þrír hælisleit-

endur í Keflavík

ÞEISTAREYKIR Boranir eiga að hefjast 

næsta sumar.

KJÖRKASSINN

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41