Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						8  21. október 2008  ÞRIÐJUDAGUR

BANDARÍKIN, AP Barack Obama, for-

setaefni bandarískra demókrata, 

segir hugsanlegt að repúblikaninn 

Colin Powell, fyrrverandi utanríkis-

ráðherra í stjórn George W. Bush, 

fái veigamikið hlutverk í stjórnar-

tíð sinni, fari svo að Obama verði 

næsti forseti Bandaríkjanna.

Eftir að Powell hafði lýst yfir 

stuðningi sínum við framboð Obama, 

sagði Obama að Powell yrði einn af 

ráðgjöfum sínum, en varðandi það 

hvort Powell fái formlega stöðu í 

ríkisstjórninni, þá er það ?nokkuð 

sem við þurfum að ræða?.

Obama sagðist einnig fagna því, 

ef Powell vildi taka þátt í kosninga-

baráttu sinni: ?Það er augljóst, að ef 

hann vill mæta þá er honum boðið 

hvenær sem er.?

Aðeins hálfur mánuður er til for-

setakosninganna. Samkvæmt skoð-

anakönnunum er Obama enn með 

gott forskot á mótframbjóðanda 

sinn, John McCain, sem hefur jafnt 

og þétt misst fylgi undanfarnar 

vikur. 

Obama hefur auk þess enn einu 

sinni slegið met í fjáröflun til kosn-

ingabaráttu sinnar. Í september öfl-

uðust 150 milljónir dala í sjóði 

Obama, en hann afþakkaði í sumar 

opinberan stuðning til kosningabar-

áttu sinnar.

John McCain átti 47 milljónir 

dala í kosningasjóðum sínum í byrj-

un október. Í september varði hann 

37 milljónum dala í kosningabar-

áttu sína. McCain þiggur opinbera 

styrki til kosningabaráttu sinnar, en 

verður í staðinn að takmarka eyðslu 

sína til framboðsins. Síðustu tvo 

mánuðina fyrir kosningarnar má 

McCain ekki eyða meira en 84 millj-

ónum dala, en Obama er aftur á 

móti frjálst að verja eins miklu fé 

til kosningabaráttunnar og honum 

sýnist. Obama ætlar að gera víð-

reist um Flórída þessa viku. Lengi 

vel var talið að McCain væri nokk-

uð öruggur með sigur í í því ríki, en 

undanfarið hefur staða Obama 

styrkst þar. Flórída er fjölmennt 

ríki sem hæglega gæti ráðið úrslit-

um í forsetakosningunum í nóvem-

ber.

McCain er aftur á móti staddur í 

Missouri, þar sem hann taldi sig 

sömuleiðis lengi vel eiga vísan 

sigur, en á þar nú í vök að verjast.

Úrslit kosninganna í Bandaríkj-

unum ráðast ekki af heildarmagni 

atkvæða, sem hvor frambjóðandi 

fær, heldur af heildarfjölda þeirra 

kjörmanna, sem kosið er um í 

hverju ríki fyrir sig.

Samkvæmt útreikningum frétta-

stofunnar AP á Obama nokkuð 

vísan stuðning samtals 264 kjörm-

anna, en McCain þykir nokkuð 

öruggur með stuðning 185 kjörm-

anna. Í sex ríkjum Bandaríkjanna, 

sem samanlagt eru með 80 kjör-

menn, gætu úrslitin fallið á hvorn 

veginn sem er. gudsteinn@frettabladid.is

Obama vill Powell 

sér til ráðgjafar

Barack Obama slær enn eitt metið í fjáröflun til kosningabaráttu sinnar. Hann 

fagnar stuðningi Colins Powell og segir koma til greina að bjóða honum stöðu í 

ríkisstjórn sinni. Obama er enn með gott forskot á McCain.

VEISTU SVARIÐ?

1 Hvaða fyrrverandi ráðherra 

George Bush hefur lýst yfir 

stuðningi við Obama?

2 Hver hélt útgáfutónleika í 

Fríkirkjunni nýverið?

3 Hver var valin best kvenna í 

úrvalsdeild í knattspyrnu?

SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30

?Nú er bara næst á dagskrá að fá 

olíufélögin og fleiri með okkur í 

baráttuna og þá sjáum við vísitöluna 

snarlækka,? segir Vigfús Kr. Hjartar-

son, framkvæmdastjóri Bakarameist-

arans. Fyrirtækið hefur tilkynnt að 

það hafi sagt verðbólgunni stríð á 

hendur með lækkun ýmissa vöru-

flokka. 

Að sögn Vigfúsar gerir Bakara-

meistarinn sér grein fyrir að ef ekki 

verði komið böndum á verðbólguna án 

tafar muni það þýða gríðarlega 

lífskjaraskerðingu fyrir íslensku 

þjóðina. Ekki megi á nokkurn hátt líta 

á lækkanirnar sem verðstríð við 

önnur bakarí eða verslanir heldur sé 

ætlunin fyrst og fremst sú að ýta við 

fólki og fyrirtækjum og sýna gott 

fordæmi sem gæti orðið öðrum 

fyrirtækjum hvatning.

Aðgerðirnar sem um ræðir eru 

eftirfarandi: Í öllum verslunum 

Bakarameistarans er hafin sala á 

Íslandsbrauði, sem er stórt og 

milligróft brauð sem kostar 199 

krónur, en sambærileg brauð kostuðu 

áður um 390 krónur, að sögn Vigfúsar. 

Þá hefur verðið á hinum séríslensku 

snúðum verið lækkað úr 190 krónum í 

99 krónur, og súpa og brauð með 

smjöri kostar nú 399 krónur í stað 690 

króna áður.

Bakarameistarinn hefur einnig 

heitið því að draga úr innflutningi 

eins og frekast er unnt, til að hrófla 

sem minnst við gjaldeyrisforða 

Íslendinga.

Neytendur: Bakarameistarinn segir verðbólgunni stríð á hendur og lækkar vörutegundir:

Vilja sjá vísitöluna snarlækka

KJARTAN 

GUÐMUNDSSON

Staðgengill 

umboðsmanns 

neytenda

? Sendið 

umboðsmanni 

neytenda 

ábendingar eða 

sparnaðarráð 

á neytendur@

frettabladid.is

Á KOSNINGAFUNDI Barack Obama ávarpar stuðningsmenn í Norður-Karólínu. 

Obama hefur gott forskot á mótherja sinn, John McCain, nú þegar tvær vikur eru til 

kosninga.  FRÉTTABLAÐIÐ/AP

ALÞINGI Fram eru komin á 

Alþingi frumvörp um að sala á 

léttu víni og bjór verði heimil í 

almennum 

verslunum og 

að leyft verði 

að auglýsa bjór 

og léttvín. 

Sigurður 

Kári Kristjáns-

son, þingmaður 

Sjálfstæðis-

flokksins, er 

fyrsti flutn-

ingsmaður 

beggja frumvarpa. 

Bæði hafa verið lögð fram 

nokkrum sinnum áður, frum-

varpið um söluna fimm sinnum 

og frumvarpið um auglýsingarn-

ar þrisvar sinnum. Þau hafa ekki 

hlotið afgreiðslu á fyrri þingum.

 - bþs

Sigurður Kári Kristjánsson:

Vín í búðir og 

leyft að auglýsa

SIGURÐUR KÁRI 

KRISTJÁNSSON

FINNLAND Hópur finnskra 

ferðamanna tók sig til um 

daginn og meig um hábjartan 

dag á sjálfstæðisstyttu Eistlend-

inga til minningar um sjálfstæð-

isstríðið 1918-1920, að sögn 

finnska dagblaðsins Helsingin 

Sanomat. 

Sjónarvottar segja að rúta 

hafi stöðvað við styttuna sem er 

gegnt lögreglustöðinni á eyjunni 

Saaremaa, út hafi komið sjö 

drukknir herramenn og sex 

þeirra hafi raðað sér hringinn í 

kringum styttuna og migið á 

hana. 

Því miður er engin eftirlits-

myndavél fyrir framan lög-

reglustöðina og því ekki hægt að 

sekta mennina. Hámarkssekt er 

383 evrur. - ghs

Finnskir ferðamenn:

Herramenn 

migu á styttu

JOHN MCCAIN Frambjóðandi Rep-

úblikana hefur átt í vök að verjast að 

undanförnu.  FRÉTTABLAÐIÐ/AP

ATVINNULÍF Bankastjórar Nýja 

Landsbankans og Nýja Glitnis 

svara engu um launakjör innan 

bankanna tveggja.

Elín Sigfúsdóttir, bankastjóri 

Nýja Landsbankans, vísaði á 

starfsmannastjórann Atla Atla-

son sem kveðst engu vilja svara 

um þau kjör sem starfsmönnum 

eru boðin. Enn sé verið að ræða 

við Landsbankafólk um áfram-

haldandi störf.

Birna Einarsdóttir, banka-

stjóri Nýja Glitnis, hefur ekki 

svarað skilaboðum Fréttablaðs-

ins. Í viðtali í sjónvarpsþættin-

um Markaðnum á laugardaginn 

sagði Birna aðeins að ekki yrði 

um ofurlaun að ræða. Samkvæmt 

heimildum Fréttablaðsins bjóð-

ast starfsmönnum nýju bank-

anna hvorki kaupréttarsamning-

ar né bónus á borð við það sem 

tíðkast hefur síðustu árin hjá 

vissum hópi. 

Óljóst er hvort þessir starfs-

menn ganga að verulega skert-

um kjörum eða kjósi að hverfa 

til annarra starfa. Litlum sögum 

fer af því að menn fái sambæri-

leg störf í útlöndum enda er bent 

á að kreppa sé einnig í banka-

heiminum erlendis.

Þá hafa heldur engin svör bor-

ist frá nýju bönkunum um eignir 

sem flytjast til þeirra frá forver-

unum. Fyrirspurn um þetta var 

send bönkunum á miðvikudag í 

síðustu viku.  - gar

Nýju bankastjórarnir gefa engar upplýsingar um ráðningarkjör og eignatilfærslu:

Svara engu um laun og eignir

ALÞINGI Steingrímur J. Sigfússon, 

formaður VG, hefur lagt fram 

fyrirspurn í tíu liðum til við-

skiptaráðherra um stöðu 

Tryggingar-

sjóðs innstæðu-

eigenda og 

fjárfesta.

Steingrímur 

vill meðal 

annars vita 

hvernig 

greiðslum í 

sjóðinn hefur 

verið háttað frá 

árinu 2000, 

hlutfall 

raunverulegra inngreiðslna og 

ábyrgðaryfirlýsinga og hvort 

komið hafi til vanskila á inn-

greiðslum.

Þá spyr hann um fjárfestingar-

stefnu sjóðsins og hvort hann 

hafi tapað fé sem ávaxtað var í 

erlendum hlutabréfum. 

 - bþs

Tryggingarsjóður innstæðna:

Steingrímur vill 

allt upp á borð

STEINGRÍMUR J. 

SIGFÚSSON

TÓNLIST ?Sú staða gæti komið upp 

að við færum að borga með 

tónlistinni,? segir Lárus Jóhann-

esson, annar eigenda plötubúðar-

innar 12 tóna. ?Við tökum 

sveiflur með inn í okkar áætlana-

gerð og veltum þeim ekki út í 

verðlagið. Nú er hins vegar mjög 

erfitt að gera áætlanir, enda 

vitum við ekki við hvaða gengi á 

að miða.?  

Ein jákvæð hlið er þó á málinu. 

Í 12 tóna koma nú útlendingar í 

stríðum straumum og spara ekki 

við sig geisladiskana, enda 

nokkuð ódýrir hér á landi um 

þessar mundir ? fyrir aðra en 

Íslendinga.  - hhs

12 tónar finna fyrir gengisruglinu:

Útlendingar 

kaupa mikið

UTANRÍKISMÁL ?Það er ekkert 

skrítið að menn séu gramir í 

garð Breta en við höfum ekki 

sagt NATO að Bretar séu 

óvelkomnir hingað,? segir Geir 

H. Haarde forsætisráðherra. 

Hann segist ekki vilja blanda 

umræðum um loftrýmisgæslu 

við Ísland við umræður um 

efnahagsmál. Geir telur ummæli 

Össurar Skarphéðinssonar, 

starfandi utanríkisráðherra, 

byggð á misskilningi en Össur 

sagði á föstudaginn að það 

myndi misbjóða Íslendingum ef 

Bretar tækju að sér loftrýmis-

gæsluna eins og til stendur.  - ovd

Gramir í garð Breta:

Bretar ekki 

óvelkomnir

FORSÆTISRÁÐHERRAR Geir H. Haarde, 

forsætisráðherra ásamt Yves Leterme, 

forsætisráðherra Belgíu, á fundi þeirra á 

föstudaginn.  FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

BRAUÐMETI Hafin er sala á Íslandsbrauði í 

verslunum Bakarameistarans. Stykkið kostar 

199 krónur. 

BIRNA 

EINARSDÓTTIR

ELÍN 

SIGFÚSDÓTTIR

Fækkar um rúm tíu prósent

Tilkynningum í barnaverndarmálum 

fækkaði um rúm tíu prósent á fyrri 

helmingi þessa árs samanborið við 

fyrstu sex mánuði ársins í fyrra. Á vef 

Barnaverndarstofu segir að fækkun-

ina megi einkum skýra með fækkun 

tilkynninga frá lögreglu. Tilkynningum 

fækkar úr 4.383 í 3.940 en flestar 

tilkynningar, 51,4 prósent eru vegna 

áhættuhegðunar barna.

BARNAVERNDARMÁL

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41