Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						10  21. október 2008  ÞRIÐJUDAGUR

STJÓRNMÁL Ungir jafnaðarmenn 

krefjast þess að ríkisstjórnin 

tryggi að námsmönnum verði 

gert kleift að kaupa gjaldeyri. 

Þá vilja þeir að reglum LÍN 

verði breytt og að námslán verði 

greidd út mánaðarlega.

Þeir gera jafnframt þá kröfu 

að lánin haldi í við verðbólgu. 

Ljóst er að lánin munu lækka að 

raunvirði verði ekkert aðhafst. 

Í ályktun sem ungir jafnaðar-

menn hafa sent frá sér segir að 

háskólamenntað fólk muni 

gegna lykilhlutverki í uppbygg-

ingu landsins og því sé mikil-

vægt að hvetja fólk til náms 

erlendis.  - ks

Kröfur ungra jafnaðarmanna:

Námsmenn 

treysta á lán

SAMFÉLAGSMÁL 66° Norður hefur 

gefið flóttafólkinu á Akranesi 

hlýjan vetrarfatnað. 

Að sögn mun fólkið afskaplega 

fegið aðstoðinni. Það voru þær 

Shyamali Gitosh verkefnisstjóri 

og Anna Lára Steindal fram-

kvæmdastjóri sem tóku á móti 

gjöfunum. Þetta er ekki í fyrsta 

sinn sem fyrirtækið lætur gott af 

sér leiða með fatagjöfum, meðal 

annars hafa Mæðrastyrksnefnd á 

Akureyri og Fjölskylduhjálpin 

fengið fatnað gefins.  - þg

Veglegar gjafir á Skagann:

Flóttafólk fær 

vetrarfatnað

SKIPULAGSMÁL ?Þessu var mjög vel 

tekið,? segir Sigurður Magnússon, 

bæjarstjóri á Álftanesi, sem á 

fimmtudagskvöld kynnti breyting-

ar á umdeildri tillögu um skipulag 

við Vestur-Skógtjörn.

Íbúar á Skógtjarnarsvæðinu 

gerðu margir athugasemdir við 

fyrirhugað deiliskipulag. Fyrst og 

fremst voru eigendur húsa á sjávar-

lóðum ósáttir við áform um göngu-

stíga í fjörukambinum. Sigurður 

bæjarstjóri segir að strandstígar 

hafi lengi verið á aðalskipulagi en 

að slíkt sé viðkvæmt þar sem 

gömul og þétt byggð sé fyrir.

?Eftir að hafa hlustað á íbúana 

tókum við ákvörðun um að leggja 

ekki stíga í fjörkantinum heldur 

gera það sem kallað er stiklur. Þær 

leiða fólk um ströndina með upp-

lýsingum um náttúrufar og það 

sem gaman er skoða á svæðinu án 

þess að raska jarðvegi með því að 

leggja stíga,? útskýrir Sigurður.

Uppnám varð á fundinum þegar 

eigendur sjávarlóðar í Miðskógum 

8 gerðu harða hríð að bæjarstjór-

anum vegna deilu við bæjaryfir-

völd sem ekki hafa viljað heimila 

byggingu húss á lóðinni. Sló í svo 

heiftarlega brýnu að margir gestir 

hurfu frá fundinum sem leystist 

upp í kjölfarið.

?Íbúarnir voru ósköp leiðir yfir 

því hvernig þetta fólk kom fram en 

það má segja að það hafi verið búið 

að kynna flest af því sem þurfti,? 

segir bæjarstjórinn.  - gar

Öldur lægðar við sjávarlóðir hjá Skógtjörn á Álftanesi:

Hætt við umdeilda fjörustíga

FUNDARMENN Á ÁLFTANESI Kynning-

arfundur sem Sigurður Magnússon 

bæjarstjóri boðaði til um deiliskipulag 

Vestur-Skógtjarnarsvæðis var mjög vel 

sóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

FJÖLDASKÍRN Í JÓRDAN Þessur kristnu 

pílagrímar frá Brasilíu gerðu sér ferð til 

Ísraels nú í vikunni til að láta skíra sig í 

ánni Jórdan. NORDICPHOTOS/AFP

Kynjajafnræði í bankaráðum 

Stjórn kvennahreyfingar Samfylking-

arinnar skorar á forystu flokksins og 

ríkisstjórn að hafa jafnræði kynja að 

leiðarljósi við skipan í bankaráð hinna 

nýju banka.

STJÓRNMÁL 

DANMÖRK Átökin milli Hell?s Ang-

els og nokkurra innflytjendaklíkna 

í Danmörku virðast engan enda 

ætla að taka. Að minnsta kosti 

þremur byssukúlum var skotið á 

höfuðstöðvar Hell?s Angels á Svan-

evej í Kaupmannahöfn á mánu-

dagskvöld. Enginn særðist í 

árásinni. 

Deilurnar milli gengjanna hófust 

formlega í ágúst með morðinu á 

hinum nítján ára gamla Osman 

Nuri Dogan, sem var skotinn niður 

í Tingbjerg-hverfinu. Síðan hafa 

átökin geisað linnulítið og hafa 

gengin meðal annars gripið til skot-

vopna og handsprengna. 

Í síðustu viku sagði Danny 

Abdalla, leiðtogi innflytjendaklík-

unnar Den Internationale Klub 

(DIK), sem afplánar nú átta ára 

dóm fyrir ofbeldi og fjárkúgun, að 

átökin gætu aðeins tekið enda ef 

Hell?s Angels framseldu þrjá með-

limi sína sem grunaðir eru um 

morðið á Dogan. Abdalla vill þó 

ekki selja Vítisenglana í hendur 

lögreglunnar, heldur innflytjenda í 

Tingbjerg-hverfinu þar sem Dogan 

var skotinn, því þeir eigi rétt á að 

ákveða hver örlög morðingjanna 

verði. Abdalla vill auk þess að 

Hell?s Angels greiði fjölskyldu 

Dogans skaðabætur upp á fjórar 

milljónir danskra króna, andvirði 

um 73 milljóna íslenskra króna.

Talsmenn Hell?s Angels láta ekk-

ert hafa eftir sér um málið. 

 - kg

Leiðtogi innflytjendaklíku í Danmörku hefur lausn á deilunni við Hell?s Angels:

Fer fram á framsal og skaðabætur

UPPHAF ÁTAKANNA Osman Nuri Dogan 

var myrtur í Tingbjerg-hverfinu í Kaup-

mannahöfn. Leiðtogi DIK-klíkunnar vill 

að þeir sem grunaðir eru um morðið 

verði framseldir til íbúa hverfisins.

MYND/TEITUR JÓNASSON

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41