Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						12  21. október 2008  ÞRIÐJUDAGUR

nær og fjær

?ORÐRÉTT

?

? Erfitt er að segja 

hvenær fyrsta teikni-

myndasagan var gerð, 

enda má nefna hella-

málverk og egypskt 

myndletur sem 

nokkurs konar 

teiknimyndasögu. 

Svisslendingurinn 

Rodolphe Töpfer hefur verið 

nefndur faðir teiknimyndasögunnar. 

Hann var uppi á 19. öld og var upp-

hafsmaður andhetjuhefðarinnar.

Árið 1933 komu fyrstu mynda-

sögublöðin út í Bandaríkjunum 

og Tinni leit dagsins ljós 1934 í 

Frakklandi. Á seinni hluta aldarinnar 

blómstruðu franskar/belgískar sögur 

um Ástrík, Sval og Val og Viggó 

við utan, svo einhverjir séu nefndir.

MYNDASAGAN

ALDAGÖMUL SKEMMTUN

?Það er allt fínt að frétta af mér. Ég eyði miklum 

tíma með dætrum mínum þessa dagana en 

einnig fer nokkur tími og orka í að vinna og 

svipast um eftir framtíðarstarfi,? segir Helga Dís 

Sigurðardóttir, matsfræðingur og skipu-

leggjandi námshelga fyrir fólk um og yfir 

miðjum aldri.

?Núna er ég í óða önn að kynna náms-

helgi í Reykholti 28. til 30. nóvember og 

blæs á allar hrakspár um dræma þátttöku 

vegna efnahagsþrenginga. Ég hef sett 

saman þrjú metnaðarfull námskeið og er 

meðal annars í samvinnu við Snorra-

stofu um námskeið um Snorra Sturlu-

son og Reykholt. Einnig er boðið 

upp á jóganámskeið og svo er ég 

að leggja lokahönd á heimasíð-

una hugleiðir.is,? segir Helga Dís, 

sem greinilega hefur nóg að gera.

?Annars er allt í góðu gengi. Ég nýt lífsins 

með fjölskyldunni og stunda ódýra líkamsrækt, 

meðal annars með því að ganga með eldri 

dótturina í skólann á hverjum morgni. Svo 

fer ég í sund með vinkonum mínum 

endrum og eins.?

Spurð hvort ferðalög séu á döfinni 

býst Helga Dís ekki við því frekar en 

margir aðrir þessa dagana. ?Ég fór 

alla leið til Makedóníu í brúðkaup 

vinkonu minnar í sumar og það var 

frábær upplifun, en frekari utanlands-

ferðir eru ekki planaðar á næstunni. 

Svo fer ég í annað brúðkaup á 

morgun og hlakka mikið til,? segir 

Helga, sem má ekki við meira 

spjalli því hún þarf að drífa sig 

að taka þátt í fjöldatrommu-

slætti á Ingólfstorgi.

HVAÐ ER AÐ FRÉTTA?  HELGA DÍS SIGURÐARDÓTTIR MATSFRÆÐINGUR

Nýtur lífsins í ódýrri líkamsrækt 

Ragna Skinner, píanókenn-

ari í Manchester, er með-

limur hljómsveitarinnar 

Sisters of Transistors sem 

nýlega hefur hlotið umfjöll-

un helstu tónlistartímarita 

Breta. Henni þykir erfitt 

að fylgjast með neikvæðri 

umfjöllun breskra fjölmiðla 

um Ísland en kann vel við 

sig í Englandi og er ekki á 

heimleið á næstunni. 

?Það var svolítið erfitt að horfa 

upp á neikvæða umfjöllun um 

Ísland í sjónvarpinu á hverjum 

degi og óþægilegt að hafa áhyggj-

ur af fjölskyldu og vinum heima á 

Íslandi. Svo fjalla íslenskir fjöl-

miðlar á neikvæðan hátt um Breta 

í þessari fjármáladeilu. Það eru 

allir að verja sig og sína. Fjölmiðl-

ar hafa svo mikil völd,? segir 

Ragna Skinner píanókennari og 

meðlimur hljómsveitarinnar Sist-

ers of Transistors sem fengið 

hefur jákvæða umfjöllun helstu 

tónlistartímarita Bretlands upp á 

síðkastið. Ragna hefur verið  

búsett í Manchester í Norður-Eng-

landi í nærri tíu ár.

Sisters of Transistors er skipuð 

fjórum stelpum sem spila á orgel 

frá sjöunda og áttunda áratugn-

um, auk trommarans Grahams 

Massey sem gerði garðinn frægan 

með Manchester-sveitinni 808 

State á tíunda áratugnum. 808 

State vann töluvert með Björk á 

sínum tíma, hélt tónleika á Íslandi 

og var meðal annars í miklu upp-

áhaldi hjá öðrum kunnum 

Manchester-búa, Noel Gallagher, 

höfuðpaur Oasis. 

Ragna segir sveitina, sem leikur 

framsækna diskóhústónlist með 

brimbrettaívafi, hafa orðið til 

vegna sameiginlegs áhuga meðli-

manna á hljóðgervlum og gömlum 

hljómborðum. ?Graham hefur 

komið sér upp safni af slíkum 

hljóðfærum, sem hann kallar 

SMMOKT (South Manchester 

Museum of Keyboard Technol-

ogy). Það er bannað að leika á 

hljóðfæri sem eru yngri en þrjátíu 

ára í hljómsveitinni, en að öðru 

leyti er þetta mjög afslöppuð sveit. 

Við hittumst venjulega yfir tebolla 

á þriðjudagsmorgnum heima hjá 

Graham og spilum í svona tvo 

tíma. Við erum öll að dunda okkur 

við aðra hluti og því er tónleika-

hald oft óreglulegt,? segir Ragna.

Fyrsta smáskífa sveitarinnar, 

This is Music, kom út fyrir stuttu 

hjá plötufyrirtækinu Floor Bang-

ers í London. Samhliða því var 

gert myndband við lagið ?The 

Don?, sem er gert í þrívídd og því 

fylgja þrívíddargleraugu með 

smáskífunni. Sveitin hefur hlotið 

töluverða umfjöllun hjá breskum 

fjölmiðlum og lög hennar meðal 

annars verið leikin á útvarps-

stöðvum BBC auk umfjallana í 

víðlesnum tónlistartímaritum á 

borð við Q, Uncut og NME.

Ásamt því að spila með Sisters 

of Transistors sinnir Ragna píanó-

kennslu í fullu starfi. Hún segist 

vera píanókennari upp á gamla 

mátann, hjóli um bæinn og kenni í 

heimahúsum auk þess að kenna 

nokkra daga í viku í litlum tónlist-

arskóla í úthverfi Manchester. 

Hún á von á sínu fyrsta barni í 

byrjun desember með kærasta 

sínum David sem er frá Þýska-

landi. Hún hyggur því á gott jóla-

frí áður en hljómsveitin fer í hljóð-

ver til að taka upp plötu sem 

kemur líklega út í apríl. Spurð 

hvort til greina kæmi að flytjast 

aftur til Íslands býst Ragna varla 

við því í bráð. ?Endrum og eins 

hellist yfir mig söknuður eftir 

fjölskyldu og vinum, en ég leysi 

það með heimsóknum til Íslands 

þrisvar til fjórum sinnum á ári. Ég 

kann afskaplega vel við mig í 

Manchester og samheldnin hér er 

mikil. Ég er því ekki á heimleið 

strax að minnsta kosti. En það 

væri gaman ef einhver tónleika-

haldarinn vildi fá okkur til að spila 

á Íslandi,? segir Ragna. Því er hér 

með komið á framfæri. 

 kjartan@frettabladid.is

Allir að verja sig og sína

Í MANCHESTER Ásamt því að spila með Sisters of Transistors kennir Ragna á píanó í 

þriðju stærstu borg Bretlands.

FJÓRAR OG EINN Sisters of Transistors 

hafa hlotið jákvæða umfjöllun hjá tón-

listartímaritum á borð við Q, Uncut og 

NME upp á síðkastið.

Margir eru sannfærðir um að gjörn-

ingaveðrið sem gengur yfir Ísland 

um þessar mundir 

eigi eftir að leiða til 

róttækra breytinga. 

En í hverju ættu þær 

verið fólgnar? ?Það 

sem ég held að fari 

verst með fólk er 

óvissan,? segir Hrafn-

hildur Heba Júlíus-

dóttir háskólanemi. 

?Ég held að það hafi 

aldrei verið brýnna 

en einmitt núna að standa vörð um 

velferðarkerfið, og sjá til þess að 

grunnstoðir íslensks samfélags hvíli 

áfram á gömlum grunngildum á borð 

við samtryggingu og samkennd.? 

Hrafnhildur Heba segir að á sama 

tíma sé mikilvægt að reisa íslenskt 

efnahagslíf til vegs og virðingar á ný. 

Íslendingar ættu að leggjast í ræki-

lega sjálfsskoðun og kanna hvað þeir 

hafa í raun og veru fram að færa. 

?Gleymum ekki að kaupsýslumenn 

eru ekki þeir einu sem hafa verið í 

útrás, það hafa íslenskir listamenn 

verið líka og þótt fjármálageirinn hafi 

siglt í strand verður það sama ekki 

sagt um listirnar. Þess vegna ættum 

við að halda áfram að styðja við 

bakið á listamönnum, tónlistarmönn-

um og þar fram eftir götunum. Það 

er heilbrigð útrás til lengri tíma litið.? 

SJÓNARHÓLL

NÝ SAMFÉLAGSGILDI

Samkennd og 

heilbrigð útrás

HRAFNHILDUR 

HEBA JÚLÍUS-

DÓTTIR 

Markaðurinn fylgir Fréttablaðinu á morgun

Orðskýring Markaðarins leysir

lesendur úr viðjum flókinna

fjármálahugtaka.

Í Markaðnum á morgun

Hvað verður um sprotana í fárviðri 

fjármálaheimsins?

Markaðurinn fundar með frumkvöðlum.

Miklar endurbætur eru fyrirhug-

aðar á göngustígnum sem liggur 

meðfram baklóðum húsa við 

Framnesveg í vesturbæ Reykja-

víkur. 

Framkvæmda- og eignaráð 

Reykjavíkurborgar hefur sam-

þykkt ýmsar breytingar á göngu-

stígnum. Meðal annars verður lýs-

ing bætt, lægri og minna truflandi 

ljósastaurar settir upp, svæði 

hellulögð, bekkjum komið fyrir og 

dregið úr truflun af bílaumferð. 

Þá verður ?hljóðvist, næði og 

öryggi á svæðinu stórbætt? eins 

og segir í tilkynningu.  - hhs

Göngustígar við Framnesveg fegraður:

Meira næði á bekkjum við baklóðir

FRAMNESVEGUR Göngustíginn sem liggur meðfram baklóðum húsa við Framnesveg 

á að fegra og bæta. 

Kaldur vogunarsjóður

?Hver vissi að Ísland væri 

bara vogunarsjóður með 

jöklum.?

THOMAS L. FRIEDMAN, DÁLKA-

HÖFUNDUR NEW YORK TIMES, UM 

ÁSTAND EFNAHAGSMÁLA.

Fréttablaðið, 20. október

Til í að tala

?Ég hef ekki verið hlynntur 

Evrópusambandsaðild en ég 

er áhugamaður um umræð-

una.?

BJARNI HARÐARSON ALÞINGISMAÐ-

UR UM UMRÆÐUR UM EVRÓPU-

SAMBANDSAÐILD HJÁ FRAMSÓKN-

ARFLOKKNUM.

Fréttablaðið, 20. október

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41