Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						?Við hvetjum fólk til að hjóla 

áfram þótt dimmasti tími ársins sé 

framundan og allra veðra von. 

Reiðhjólum þarf ekki að ýta í gegn-

um skafla og þau festa sig ekki, en 

létt er að hlaupa með þau yfir. Það 

er því betra að hjóla en í bíl að 

spóla,? segir Magnús Bergsson, 

rafvirki og fjallahjólagarpur, sem 

stofnaði Íslenska fjallahjólaklúbb-

inn fyrir tveimur áratugum og var 

formaður hans fyrstu tíu árin. 

Magnús er með leiðsögn í stand-

setningu reiðhjóla fyrir veturinn á 

fimmtudagskvöld klukkan 20 í 

húsi Íslenska fjallahjólaklúbbsins 

að Brekkustíg 2 í Reykjavík.

?Þar fer ég yfir öruggan vetrar-

búnað reiðhjóla sem og fatnað hjól-

reiðafólks, sem yfirleitt klæðir sig 

of vel. Fatnaður, drif og hjól fara 

illa á saltpækli gatnanna og ég 

upplýsi hvernig best er að verja 

það allt ásamt því að kynna mis-

munandi tegundir nagladekkja og 

ljósabúnaðar svo eitthvað sé 

nefnt,? segir Magnús sem brýnir 

fyrir hjólreiðamönnum að taka 

með í reikning hvar þeir búa og við 

hvaða aðstæður þeir ferðast.

?Það er mikilvægt að velja vetr-

ardekk undir hjól eftir búsetu. 

Dekk með miklum nöglum eru 

óhentug fyrir þá sem fara ferða 

sinna í miðbænum, en þeir sem 

þurfa um lengri veg að fara, í snjó 

og hálku, þurfa á öðruvísi dekkj-

um að halda. Þá þarf að velja ljósa-

búnað af gaumgæfni. Lítið úrval 

fæst hérlendis af góðum slíkum, 

en auðvelt er að panta að utan 

ljósabúnað sem veitir fullkomið 

öryggi,? segir Magnús og staðfest-

ir að hjólreiðamönnum hafi fjölgað 

mikið á síðustu árum; mestmegnis 

vegna betra veðurfars suðvestan-

lands.

?Hjól hafa breyst til mikils batn-

aðar á undanförnum árum, og  

útkoman orðið auðveldari og þægi-

legri fararmáti. Slys eru fátíðari, 

og bremsur farnar að virka þannig 

að nú geta menn stoppað á punkt-

inum þótt sumir fari þá fram fyrir 

sig. Þetta verður alltaf spurning 

um hæfni, varkárni og að kunna á 

hlutina. Reiðhjól í dag eru ekki 

lengur barnaleikföng heldur 

alvörufarartæki sem krefjast 

kunnáttu þeirra sem á þeim ferð-

ast. Dýrari hjól eru hönnuð til betri 

afkasta og betri nýtingu orku og 

fara yfirleitt um fimmtán kíló-

metrum hraðar en áður, sem þýðir 

um þrjátíu kílómetra á klukku-

stund á jafnsléttu,? segir Magnús 

sem vill sjá betri aðbúnað hjól-

reiðafólks á höfuðborgarsvæðinu.

?Því miður hefur samgöngu-

stefna Reykjavíkur gengið út á að 

auka flæði bílaumferðar. Fyrir 

hjólreiðafólk er umferðarmenning 

mjög vanþróuð, sem er synd því 

það ætti að vera hagur stjórnvalda 

að sem flestir hjóli en aki ekki. Það 

sparar ekki aðeins einstaklingnum 

sem hjólar stórfé heldur bætir 

heilsu hans og dregur úr umhverf-

ismengun, og þetta er geysilegur 

heilsufarslegur ávinningur fyrir 

samfélagið í heild.?

Um námskeiðin má lesa á vef-

síðunni www.fjallahjolaklubbur-

inn.is. Allir eru velkomnir á meðan 

húsrúm leyfir. thordis@frettabladid.is

Hjóla í stað bíl að spóla

Þótt Vetur konungur hafi formlega boðað komu sína næstkomandi laugardag er engin ástæða til að 

leggja niður hjólreiðar í höfuðstað lýðveldisins yfir vetrartímann, svo framarlega sem hjólið er vel búið.

LÍKAMSSTAÐA  skrifstofuumhverfið og æfingar er heiti nám-

skeiðs sem haldið verður hjá Manni lifandi þriðjudaginn 4. nóv-

ember frá klukkan 17.30 til 19.00. Námskeiðsgjald er 1.500 

krónur og skráning er á madurlifandi@madurlifandi.is.

Magnús Bergsson er þaulreyndur fjallahjólagarpur og sést hér á sérstæðu hjóli 

sínu, tilbúinn í veturinn. Magnús segir fólki til um vetrarútbúnað reiðhjóla á vegum 

Íslenska fjallahjólaklúbbsins á fimmtudagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR

Engin bein tengsl eru 

milli þess að verða 

kalt og að fá kvef. 

Aftur á móti er talið 

að kvefveiran 

geti smitast á 

milli manna í 

köldum lönd-

um. Ástæðan 

er mögulega 

sú að við 

eyðum meiri 

tíma innan-

dyra og í meiri nálægð 

við hvort annað til að 

halda á okkur hita.

www.lyfja.is, 

svar við spurn-

ingunni hvert er 

samhengið milli 

þess að verða 

kalt og fá kvef.

Mataræðið skiptir öllu máli fyrir heilsuna enda 

erum við það sem við borðum. 

Á vef Berlingske Tidende er nú greint frá því að 

prófessor nokkur í næringarfræði við Leeds-

háskóla, Gary Williamson, hafi sent frá sér lista yfir 

æskilegar matartegundir.

Listinn inniheldur til dæmis súkkulaði og kaffi, 

sem er gleðiefni fyrir þá sem vilja gera vel við sig. 

Á honum má líka finna svart og grænt te, epli, blá-

ber, spergilkál, appelsínur og rauðlauk svo eitthvað 

sé nefnt.

Tekið er fram að þeir sem borða ekki mat með 

nógu af andoxunarefnum eigi fremur á 

hættu að fá króníska hjarta- og 

æðasjúkdóma.

Sjá www.berlingsketidende.dk. 

 - rat

Súkkulaði lengir lífið

Kaffi og súkkulaði er á lista prófess-

ors í næringarfræði.

Slys á börnum

? námskeið

Kópavogsdeild Rauða krossins heldur námskeiðið 

Slys á börnum 20. og 22. okt kl. 18-21 í Hamraborg 11, 2 hæð. 

orsakir slysa almennt, þroska barna og slys sem tengjast aldri. 

Leiðbeint er í skyndihjálp við barnaslysum og áverkum af ýmsu

tagi, endurlífgun barna, andlegum undirbúningi við komu barna

á sjúkrahús o .

Námskeiðið getur gagnast öllum þeim sem umgangast börn

hvort sem er í sta eða daglegu lí .

Námskeiðsgjald: 6.500 kr. á mann en 5.000 krónur ef maki eða

eldra systkini tekur líka þátt.

Leiðbeinandi er Sigríður K. Sverrisdóttir, hjúkrunarfræðingur.

Innifalin eru námskeiðsgögn og þátttökuskírteini.

Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11    www.redcross.is/kopavogur     opið virka daga kl. 10-16

Frekari upplýsingar má fá með því að hringja í síma 554 6626

eða senda tölvupóst á kopavogur@redcross.is.

Skráning er til 14.mars

Kópavogsdeild Rauða krossins heldur námskeiðið

slys á börnum 27. og 30. október í Hamraborg 11, 2 hæð.

orsakir slysa almennt, þroska barna og slys sem tengjast aldri.

Leiðbeint er í skyndihjálp við barnaslysum og áverkum af ýmsu

tagi, endurlífgun barna, andlegum undirbúningi við komu barna

Námskeiðið getur gagnast öllum þeim sem umgangast börn

Frekari upplýsingar fást í síma 554 6626 eða

með tölvupósti á kopavogur   redcross.is.

Skráning er til 24. október.

@

KULDASKÓRNIR ERU AÐ KLÁRAST!

TAKMARKAÐ MAGN

VERTU KLÁR FYRIR

VETURINN Í ECCO

GORE-TEX SKÓM

72962 54783

Lig415r: Fjólublág425

Stærðir: 27-35

Winter Queen

70241 51228

Lig415r: Hvíg425/Silfur

Stærðir: 20-26

Track Uno

70381 50620

Lig415r: Raug425

Stærðir: 20-28

Track Uno

78512 54000

Lig415r: Svart

Stærðir: 27-35 | 36-39

Ice Breaker

73261 51052

Lig415r: Svart

Stærðir: 22-30

Snowride

KRINGLAN

SMÁRALIND

LAUGAVEGUR

T

AKMARKAÐ MAGN

73291 50667

Lig415r: Raug425

Stærðir: 22-30

Snowride

72962 51052

Lig415r: Svart

Stærðir: 27-40

Winter Queen

Næstu fyrirlestrar og námskeið

21. okt. Fitur í mataræði

Haraldur Magnússon osteópati 

 

28. okt. Erum við andleg og líkamleg eiturefna-

úrgangs-ruslaskrímsli

Edda Björgvins leikari

 

29. okt. Hvað á ég að gefa litla barninu mínu að borða?

Ebba Guðný Guðmundsdóttir kennari

 

30.okt.  Hollusta og hagkvæmni - Matreiðslunámskeið

Auður I. Konráðsdóttir heilsukokkur  

 

04. nóv. Líkamsstaða, skrifstofuumhverfið og æfingar

Haraldur Magnússon osteópati

 

11. nóv. Góð heilsa er auðveldari en þú heldur

Matti Ósvald heilsuráðgjafi 

www.madurlifandi.is

Á

rs

k

o

rt í t

æ

k

ja

sa

l 

að

e

in

s 3

.3

3

3

 k

r.

 

á

 m

á

n

u

ð

i*

  W W W  H E I L S U A K A D E M I A N  I S   

  

 

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41