Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						ÞRIÐJUDAGUR  21. október 2008 21

Nú er gaman að fara í leikhús, 

varð fullorðinni konu að orði að 

sýningu lokinni. 

Gunnar Eyjólfsson lék á alla 

sína strengi í túlkuninni á hinum 

brjóstumkennanlega aldraða Jón-

atan sem blindur lítur til baka á 

sín eigin stóru mistök í lífinu. 

Okkur er það líklega mjög hollt 

að líta aðeins í baksýnisspegilinn, 

kynnast aftur því fólki sem ein-

hvern veginn hvarf í skugga kaup-

hallanna. 

Og mikið væri það nú gott núna 

ef einhver einn og aðeins einn risi 

upp og tæki á sig ábyrgðina á því 

að hafa siglt þjóðarskútunni í 

strand, blindur eða siðblindur. 

Í hinu ágæta leikriti Jökuls Jak-

obssonar, Hart í bak,  sem frum-

sýnt var í Þjóðleikhúsinu á föstu-

daginn, segir frá skipstjóranum 

Jónatan sem orðinn er nær elliær 

og blindur, en á fjörutíu árum fyrr 

að hafa siglt flaggskipi íslenska 

flotans í strand, sjálfri þjóðar-

skútunni. Jónatan var á skip-

stjórnartíma sínum í góðum 

efnum og bjó í fínu tvílyftu húsi 

en þegar við kynnumst honum 

hokrar hann hjá dóttur sinni sem 

framfleytir sér með spádómum 

og vændi. Á heimilinu býr einnig 

nítján ára sonur spákonunnar 

Áróru, Láki, sem flosnað hefur úr 

námi og helst ekki í vinnu. Hann 

kennir mistökum afans og líferni 

mömmunnar um uppgjöfina. Þau 

búa í kofa niður við slipp en höfðu 

áður búið á Stýrimannastíg eða 

einhvers staðar þar um slóðir. 

Spákonan Áróra hegðar sér þrátt 

fyrir fátæktina eins og hún sé enn 

ríkimannsprinsessan sem allir 

piltar bæjarins þráðu á sínum 

tíma. Hún er í slagtogi við Finn-

björn ruslasala sem hefur efnast 

á þrotlausu basli svona til þess að 

sýna hinum, og var bara fátækur 

þræll meðan hún var skipstjóra-

dóttirin fína en nú hafa hlutverkin 

snúist við þannig að hann er ekki 

aðeins bjargvættur hennar heldur 

einnig kúgari. 

Stígur er skósmiður og mikill 

guðsmaður. Líklega kynntur til 

leiksins til að sýna okkur að Jón-

atan vill engum skulda þar sem 

hann getur ekki borgað fyrir skó-

viðgerð og heimtar að Stígur fari 

aftur með skóna, en einnig er 

Stígur notaður sem eins konar 

trúður eða upplyfting í hinu ann-

ars nokkuð tilbreytingarlausa og 

vonlausa lífi hinna persónanna. 

Austan af landi birtist allt í einu 

ung stúlka hvers móðir hafði 

þekkt Áróru og þar sem hún þekk-

ir engan í bænum æxlast hlutirn-

ir þannig að hún flytur inn til 

þeirra. 

Hjalti Rögnvaldsson fer með 

hlutverk kennarans Péturs, mið-

aldra piparsveins sem trúir á 

Láka og gerir allt til þess að 

hjálpa honum. Hjalti nær hér 

fantagóðum tökum á þessum 

gegnheila korrekt manni og faðm-

lag þeirra Láka, þegar hann lofar 

að kosta hann til liðsforingja-

námsins er eitt af eftirminnileg-

ustu atriðum þessarar uppfærslu,  

Elva Ósk Ólafsdóttir túlkar hlut-

verk Áróru af innsæi og festu og 

lögn á þessari sterku persónu hjá 

leikstjóra er að hún stendur allan 

tímann með ákvörðunum sínum, 

hverjar sem þær eru. Elva sýnir 

hér að vanda að í henni er glóð 

sem þarf ekki nema að blása í til 

þess að allt hitni. 

Kjartan Guðjónsson hefur 

mikla kómíska hæfileika og eng-

inn vandi að láta hann sprella. Hér 

er leikstjórinn greinilega með 

dempara á honum sem gerir það 

að verkum að túlkun hans á Stíg 

skósmið og furðufugli verður 

hreinlega eitt það besta sem hann 

hefur tekist á við. Engar öfgar, 

bara ótrúlega ámátlegur og fynd-

inn. 

Jökull Jakobsson hefði orðið 

sjötíu og fimm ára í ár og sjálf-

sagt að heiðra hann og minnast 

sem leikritaskálds og það er eng-

inn vafi á því að endursýning Hart 

í bak á einkar vel við þótt leikritið 

sem slíkt sé meira eintal margra 

persóna heldur en eiginlegt fram-

vinduverk. 

Það er greinilegt að mikil vinna 

hefur verið lögð í persónusköpun 

og textavinnu enda verður það 

nokkuð á kostnað búninga og lýs-

ingar. Ungu stúlkurnar þrjár, vin-

konur Láka, sem þær Þórunn Lár-

usdóttir og Esther Talía Casey 

leika, og Árdís eru í nútímadress-

um, sem er svo sem ekkert nýtt 

innan leiklistarsögunnar, meðan 

aðrir eru búningum frá fimmta 

eða sjötta áratugnum. Þetta val að 

láta þær skoppa um í þessum lit-

skrúðugu spútnik-klæðum er 

kannski til að fá einhvers konar 

tímaleysi og sýna að unglingar 

eru alltaf nákvæmlega eins. 

Árdísi leikur Þóra Karítas Árna-

dóttir af mannlegri hlýju og þó 

svo að hún hafi einnig verið leit-

andi, kom til þess að finna föður 

sinn, er hlutverk hennar þó eins 

konar andstæða hinna, því henni 

er ekki nuddað upp úr því að hafa 

siglt þjóðarskútunni í strand. 

Jónatan verður eins og þjónn-

inn í Kirsuberjagarðinum, aleinn 

eftir þegar allir eru farnir. Skver-

ar sig upp í úniformið og hyggst 

hitta þá menn sem nú ráða á 

kontórnum eins og hann er búinn 

að vera að skipuleggja með sjálf-

um sér síðustu hálfa öld. Þegar 

leiknum lýkur, Áróra farin til 

Friðbjarnar, Láki á leið í liðsfor-

ingjanám og Jónatan leiddur út úr 

sinni veröld af byggingaverka-

mönnum, en hans bíður elliheimil-

ið sem hann er ekki par hrifinn af, 

er eins og nýr tími taki við. 

Gamli tíminn víkur fyrir hinum 

nýja og er ekki að vita nema hægt 

væri síðar að snúa einmitt þessu 

lokaatriði við, það er: vistmenn 

elliheimila bera út byggingaverk-

taka. 

Það eru ýmis gullkorn í texta 

Jökuls Jakobssonar sem fellur 

einstaklega vel að ástandi líðandi 

stundar, enda sýndu viðbrögð 

áhorfenda það. Þetta er vel unnin 

og vönduð sýning af hendi leik-

stjórans Þórhalls Sigurðssonar, 

þó hún hafi verið full hæg í fyrri 

hlutanum, en stjarna kvöldsins 

var tvímælalaust einn elsti starf-

andi leikari landsins, Gunnar Eyj-

ólfsson. Gunnar svíkur engan í 

túlkun sinni, með varfærnislegri 

nálgun af virðingu og elsku á 

manni sem haldinn er þráhyggju 

iðrunar. Engar öfgar í hreyfing-

um hins sjónskerta og þrátt fyrir 

angistina skilaði sér hvert orð og 

atkvæði út í öll horn Þjóðleikhúss-

ins.    Elísabet Brekkan 

Ég skulda ekki Guði, ég skulda fólkinu

LEIKLIST Stjarna kvöldsins er Gunnar Eyjólfsson. MYND ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ/EDDI

LEIKLIST

Hart í bak 

eftir Jökul Jakobsson 

Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson

Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson 

Búningar: Margrét Sigurðar og Sigur-

jón Jóhannsson 

Tónlist: Jóhann G. Jóhannsson 

Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason

Leikarar: Gunnar Eyjólfsson, Elva Ósk 

Ólafsdóttir, Þórir Sæmundsson, Hjalti 

Rögnvaldsson, Þóra Karítas Árnadótt-

ir, Pálmi Gestsson, Esther Talía Casey, 

Þórunn Lárusdóttir og Baldur Trausti 

Hreinsson.

????

Vel unnin og vönduð sýning

 3 A M E I N I N G A R   S V E I T A R F Á L A G A   

            + L             + L               + L                    ? S K E L L   ( E I È A R   ? S G E I R S S O N    S V I È S S T J Ë R I   - A R K A È S 

  + L               + L              + L               + L              + L             + L              + L                      + L              + L           í sam

starfi

 við B

orgarle

ikhú

sið k

ynnir:

Höfundar og flytjendur:

Margrét Sara Guðjónsdóttir

Sveinbjörg Þórhallsdóttir

Jared Gradinger

30. október kl. 20 - UPPSELT

1. nóvember kl. 15 

2. nóvember kl. 20

Aðeins þessar 3 sýningar!

Sýnt á Stóra sviði 

Borgarleikhússins

Tryggðu þér miða núna!

568 8000 / midi.is

PRIV

A

TE D

A

N

CER

www.panicproductions.is

MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ

www.takk.is

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41