Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						26  21. október 2008  ÞRIÐJUDAGUR

sport@frettabladid.is

Iceland Express-deild karla

Njarðvík-Grindavík 84-98 (50-53)

Stig Njarðvíkur: Friðrik Stefánsson 20 stig (12 

fráköst, 6 varin), Logi Gunnarsson 20 (7 frák. 5

 stoðs.), Hjörtur Hrafn Einarsson 15, Magnús Þór

Gunnarsson 14 (7 stoðs.), Sigurður Gunnarsson 

8, Sævar Sævarsson 4, Slobodan Subasic 3.

Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 41 (14 

frák., 5 stoðs.), Brenton Birmingham 16, Þorleifur 

Ólafsson 14, Helgi Jónas Guðfinnsson 10 (6 

stoðs.), Páll Kristinsson 8, Arnar Freyr Jónsson 5 

(5 stoðs.), Guðlaugur Eyjólfsson 2, Nökkvi Már 

Jónsson 2.

ÍR-Stjarnan 81-82

Skallagrímur-Snæfell 62-94

Enska úrvalsdeildin

Newcastle-Man. City 2-2

0-1 Robinho (14.), 1-1 Shola Ameobi (44.), 2-1

sjálfsmark (63.), 2-2 Stephen Ireland (86.).

STAÐAN Í DEILDINNI

Chelsea 8 6 2 0 19-3 20

Liverpool 8 6 2 0 13-6 20

Hull City 8 5 2 1 11-11 17

Arsenal 8 5 1 2 16-6 16

Man. Utd 7 4 2 1 12-4 14

Aston Villa 8 4 2 2 12-10 14

Portsmouth 8 4 1 3 9-13 13

West Ham 8 4 0 4 14-14 12

Blackburn 8 3 2 3 8-14 11

Man. City 8 3 1 4 20-14 10

WBA 8 3 1 4 7-11 10

Sunderland 8 2 3 3 7-9 9

M?brough 8 3 0 5 7-14 9

Wigan 8 2 2 4 11-9 8

Bolton 8 2 2 4 8-10 8

Everton 8 2 2 4 12-18 8

Fulham 7 2 1 4 5-7 7

Stoke City 8 2 1 5 10-15 7

Newcastle 8 1 3 4 9-15 6

Tottenham 8 0 2 6 5-12 2

Sænska úrvalsdeildin

GIF Sundsvall-Gefle 2-3

Hannes Þór Sigurðsson lék seinni hálfleikinn 

með Sundsvall og skoraði fyrra mark liðsins en

Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með liðinu.

ÚRSLIT

FÓTBOLTI Gylfi Þór Sigurðsson, 

miðjumaðurinn ungi hjá Reading, 

vill framlengja lánssamning sinn 

hjá Shrewsbury Town en þetta 

staðfesti hann í viðtali við BBC 

Sport í gær. Gylfi skoraði í sínum 

fyrsta leik með Shrewsbury 

Town, sem leikur í fjórðu efstu 

deild á Englandi, en upphaflega 

átti hann að dvelja hjá félaginu í 

einn mánuð.

?Þegar þú færð tækifæri til 

þess að spila viku eftir viku í 

byrjunarliðinu og ert að skora þá 

viltu halda því áfram. Ég er ekki 

búinn að fá jafn mörg tækifæri 

og ég var að vonast eftir hjá 

Reading og ég held að ef ég 

verð áfram hjá 

Shrewsbury Town 

og stend mig vel 

þá gæti ég átt 

betri möguleika 

að brjótast inn í 

liðið hjá Reading 

þegar ég 

sný aftur 

þangað,? 

segir 

Gylfi 

Þór.  - óþ

Gylfi Þór Sigurðsson, Reading:

Vill vera áfram 

hjá Shrewsbury

> Veigar Páll lék á als oddi

Sigurmark Húsvíkingsins Pálma Rafns Pálmasonar gegn 

Brann í fyrrakvöld nánast gulltryggði Stabæk norska titilinn 

í fyrsta skiptið í sögu félagsins. Hægt er að nálgast mynd-

brot af fagnaðarlátum Stabæk-manna á heimasíðu norska 

dagblaðsins Aftenposten en þar má meðal annars sjá Veig-

ar Pál Gunnarsson hella fullri fötu af vatni yfir þjálfarann 

sinn, Jan Jönsson. ?Mig hefur alltaf langað til þess að prófa 

þetta eftir að ég sá leikmenn í NFL-deildinni 

í Bandaríkjunum fagna titlum á þennan 

hátt. Við höfum reyndar ekki unnið titilinn 

enn sem komið er en mér líður eins og 

og þetta sé í höfn. Það þarf ansi mikið að 

gerast til þess að við missum titilinn í 

hendurnar á Fredrikstad,? segir Veigar 

Páll í viðtali við Aftenposten.

Bryndís Sigurðardóttir verður um áramótin fyrsta íslenska konan 

sem gerist alþjóðlegur FIFA-dómari en dómaranefnd Knatt-

spyrnusambands Íslands hefur tilnefnt hana til FIFA. 

?Nýr FIFA-listi verður birtur um áramótin og hún verður 

á honum. Við erum búnir að senda listann út og það er 

ekki búið að staðfesta hann en það er alltaf gert,? segir 

Magnús Már Jónsson sem er starfsmaður dómaranefndar. 

Hann segir að verið sé að vinna í því að fjölga konum í 

stéttinni. ?Við erum með tvær aðrar í sigtinu en þær eru 

bara of ungar ennþá,? segir Magnús.

Bryndís sjálf var ánægð með að heyra þessar 

fréttir. 

?Þetta er mjög spennandi og ég bíð spennt ef af 

verður. Markmiðið er að komast sem lengst,? sagði 

Bryndís og hún er sátt við tímabilið. ?Það hefur 

gengið mjög vel í sumar. Þetta er búið að vera krefj-

andi og skemmtilegt sumar. Þetta hefur bara legið 

upp á við,? segir Bryndís sem var meðal annars á 

línunni í bikarúrslitaleik kvenna á dögunum.

Bryndís stökk til í vetur þegar hún sá auglýst dómaranámskeið fyrir 

konur en Gylfi Þór Orrason sá um það. 

?Ég sá auglýst námskeið í vor. Ég er búin að vera að spila lengi 

en ætlaði ekki að halda því áfram. Mér fannst þetta vera sniðug 

hugmynd til að halda áfram að vera innan fótboltans,? segir 

Bryndís sem hefur einbeitt sér að vera aðstoðardómari en það 

gæti verið að breytast því hún hefur áhuga á að dæma meira. 

?Ég hef verið lítið í að dæma leiki en maður fer kannski að 

huga að því með vorinu að fara að prófa að flauta eitthvað,? 

segir Bryndís. Hún er reyndar svolítið einmana í þessari 

miklu karlastétt en vonast til að það breytist fljótt.

?Við vorum þrjár konur sem byrjuðum í þessu í sumar. 

Svo meiddist ein og önnur er komin til útlanda. Ég er því 

bara ein eftir en það þarf bara að auglýsa þetta betur upp. 

Þegar ég hitti einhverjar gamlar sem hafa spilað fótbolta 

þá ýja ég þessu að þeim,? segir Bryndís sem mælir með 

því að konur taki upp flautuna. 

?Ég hvet fleiri stelpur að koma að dæma. Þetta er 

mjög skemmtilegt.? 

BRYNDÍS SIGURÐARDÓTTIR: VERÐUR FIFA-AÐSTOÐARDÓMARI UM ÁRAMÓTIN FYRST ÍSLENSKRA KVENNA

Búið að vera krefjandi og skemmtilegt sumar

FÓTBOLTI Einn leikur fór fram í 

ensku úrvalsdeildinni í gærkvöld 

þar sem Newcastle og Manchester 

City skildu jöfn, 2-2.

Leikurinn fór fjörlega af stað á 

St. James? Park leikvanginum og 

það dró til tíðinda strax á 12. mín-

útu þegar Habib Beye, varnar-

maður Newcastle, fékk að líta 

rautt spjald fyrir tæklingu á City-

manninum Robinho innan víta-

teigs heimamanna. Leikmenn 

Newcastle mótmæltu harðlega 

enda virtist Beye fara í boltann 

áður en hann fór í Robinho en 

dómarinn Rob Styles var viss sinni 

sök rak Beye út af og dæmdi víta-

spyrnu. Hinn brasilíski Robinho 

fór sjálfur á vítapunktinn og skor-

aði af öryggi, 0-1.

Leikmenn Newcastle misstu þó 

ekki móðinn þrátt fyrir mótlætið 

og á 44. mínútu náðu þeir að jafna 

metin þegar boltinn barst til fram-

herjans Shola Ameobi eftir klaufa-

gang í vörn City og hann skoraði 

af stuttu færi, 1-1 en skömmu 

síðar var flautað til hálfleiks.

Lukkudísirnar gengu svo til liðs 

við Newcastle á 63. mínútu þegar 

Richard Dunne, varnarmaður 

City, skoraði sjálfsmark sem flest-

ir framherjar hefðu verið stoltir 

af að skora í mark andstæðings. 

Föst innanfótarafgreiðsla efst í 

markhornið en eins og fyrr segir í 

vitlaust mark og Newcastle komið 

með forystu, 2-1.

Flest benti til þess að Newcastle 

myndi halda þetta út þegar Step-

hen Ireland jafnaði leikinn fyrir 

City á 86. mínútu, 2-2, eftir laglegt 

samspil og þar við sat.

Jafnteflið þýðir að City færist 

upp í tíunda sæti deildarinnar en 

Newcastle, sem hefur nú aðeins 

náð í tvö stig af síðustu átján stig-

um mögulegum, situr áfram í næst 

neðsta sætinu.  

 - óþ

Newcastle var nálægt því að landa sigri gegn Man. City þrátt fyrir að vera einum færri frá tólftu mínútu:

Tíu leikmenn Newcastle héldu velli 

UMDEILT ATVIK Leikmenn New-

castle mótmæltu harðlega þegar 

Habib Beye fékk að líta rautt spjald 

fyrir þessa tæklingu á Robinho. 

Sjónvarpsupptökur sýndu að Beye 

kom við boltann. NORDIC PHOTOS/GETTY

KÖRFUBOLTI Páll Axel Vilbergsson, 

fyrirliði Grindavíkur, er gjörsam-

lega óstöðvandi þessa daganna. 

Kappinn er kominn með 80 stig, 29 

fráköst og 10 stoðsendingar í 

fyrstu tveimur leikjum Grindvík-

inga og hefur hitt úr 13 af 18 

þriggja stiga skotum sínum í þess-

um tveimur sigurleikjum liðsins. 

Páll Axel hitti úr 15 af 22 skotum 

sínum  í 98-84 útisigri á Njarðvík í 

gær og var með 41 stig, 14 fráköst 

og 5 stoðsendingar.

Njarðvík byrjaði betur í gær og 

komst mest átta stigum yfir í 

öðrum leikhluta en Páll Axel hélt 

sínum mönnum inni í leiknum og 

Grindavík var síðan komin þrem-

ur stigum yfir í hálfleik, 50-53. 

Njarðvíkingar reyndu allt til að 

stoppa Pál Axel en um leið losnaði 

um aðra Grindvíkinga og þá sér-

staklega Brenton Birmingham og 

Helga Jónas Guðfinnsson sem 

skoruðu 19 af 16 stigum sínum í 

seinni hálfleik. Grindavík seig 

síðan fram úr og sigur liðsins var 

nokkuð öruggur í seinni hálfleik.

?Þetta var betra en síðast hjá 

okkur. Það vantar enn svolítið upp 

á varnarleikinn. Hann kom aðeins 

í seinni hálfleik en hann var skelfi-

legur í fyrri hálfleik. Við erum 

með fullt af vopnum sem geta sett 

boltann í körfuna en við þurfum 

bara að hysja aðeins upp um okkur 

í vörninni,? sagði Páll Axel Vil-

bergsson, fyrirliði Grindavíkur, 

eftir leik. ?Þetta er alls ekki spurn-

ing um mig heldur er þetta spurn-

ing um hvernig liðið er að spila. 

Við erum sæmilega sáttir og það 

er bara aukatriði hvort ég sé eitt-

hvað góður,? sagði Páll Axel hóg-

vær í leikslok en það er ljóst að 

Njarðvíkingum fannst það ekkert 

aukaatriði að Páll Axel raðaði 

niður skotunum í gær en flest 

þeirra tók hann úr mjög erfiðri 

aðstöðu en það skipti litlu. Páll 

Axel setti að meðaltali niður 8 af 

10 þriggja stiga skotum sínum.

?Eins og sagt er á góðri íslensku 

þá er hann í bullinu. Hann er bara 

funheitur þessa daganna og það 

léttir okkur rosalega lífið í sókn-

inni þegar hann er svona heitur. 

Það liggur við að aðrir geti verið í 

þriðja gír á meðan hann er í 

fimmta gírnum,? sagði Friðrik 

Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur, 

um Pál Axel eftir sigurinn í Njarð-

vík í gær. ?Svo er þetta bara spurn-

ing um að ná upp liðsvörninni eins 

og við náðum í seinni hálfleik. 

Vörnin í fyrri hálfleik var léleg, 

þar sem við fórum og skoruðum 

og biðum síðan eftir að fara í sókn. 

Í seinni hálfleik hertum við vörn-

ina og þá var þetta í fínu lagi,? 

sagði Friðrik en Njarðvík hékk 

lengi í Grindvíkingum og úr varð 

baráttuleikur þó svo að gestirnir 

úr Grindavík hafi lengstum haft 

frumkvæðið.

?Mér fannst margt í þessum leik 

þrælgott hjá báðum liðum. Njarð-

vík var líka að spila flottan bolta 

og þeir eru mun sterkari en fólk 

gerir sér grein fyrir. Við erum 

með fína breidd og ég held að  við 

höfum tekið þetta á breiddinni,? 

segir Friðrik en fram undan er 

leikur á móti Tindastól sem hefur 

einnig unnið tvo fyrstu leiki sína á 

tímabilinu. ?Það verður hörkuleik-

ur og við þurfum að eiga toppleik 

til þess að taka þá,? sagði Friðrik 

að lokum.

Friðrik Stefánsson (20 stig, 12 

fráköst, 6 varin) var besti maður 

Njarðvíkinga í gær og þeir Hjört-

ur Hrafn Einarsson (15 stig), Logi 

Gunnarsson (20 stig, 7 fráköst, 5 

stoðsendingar) og Magnús Þór 

Gunnarsson (14 stig, 7 stoðsend-

ingar) áttu líka ágæta spretti en 

liðið þarf betri framlög hjá fleir-

um.

Hjá Grindavíki var Páll Axel 

stórskostlegur, Brenton var mjög 

góður í seinni hálfleik og Helgi 

Jónas Guðfinnsson er líka að kom-

ast í sitt besta form sem eru góðar 

fréttir fyrir Grindvíkinga.

 ooj@frettabladid.is

Páll Axel er bara í  bullinu

Páll Axel Vilbergsson setti á svið sýningu í Ljónagryfjunni í gærkvöldi og skoraði 41 stig í 98-84 sigri 

Grindavíkur á Njarðvík. Njarðvíkingar sýndu allt annan og betri leik en á móti FSU en það dugði skammt. 

FRÁBÆR Grindvíkingurinn Páll Axel Vilbergsson fór á kostum í gærkvöld og skaut 

Njarðvíkinga algjörlega í kaf með 41 stigi í 84-98 sigri Grindvíkinga í Ljónagryfjunni í 

Njarðvík í gærkvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41