Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						ÞRIÐJUDAGUR  21. október 2008 27

FÓTBOLTI Ensku félögin Manchest-

er United og Arsenal verða í eld-

línunni í kvöld þegar þriðja umferð 

í riðlakeppni Meistaradeildar Evr-

ópu hefst. United fær Celtic í 

heimsókn á Old Trafford en Ars-

enal mætir Fenerbahçe í Ístanbul.

Meistaradeildarmeistarar Unit-

ed hafa ærna ástæðu til að mæta 

fullir sjálfstrausts í leikinn gegn 

Celtic á Old Trafford, enda hafa 

Sir Alex Ferguson og læri-

sveinar hans ekki tapað 

þar í Meistaradeildinni í 

síðustu sextán leikjum. 

?Það er gríðarlega 

mikilvægt að vinna 

heimaleikina ef þú 

ætlar að ná góðum 

árangri í Meistara-

deildinni. Ég er 

bjartsýnn fyrir leik-

inn gegn Celtic þar 

sem ég hef úr góðum 

leikmannahópi að 

velja og ég tel að við 

séum á réttri leið til 

þess að komast áfram 

upp úr riðlinum,? segir Ferguson.

Ferguson er þó minnugur þess 

þegar Celtic gerði United talsvert 

erfitt fyrir í Meistaradeildinni 

árið 2006 þegar United vann naum-

lega 3-2 á Old Trafford.

?Leikurinn árið 2006 var mjög 

opinn vegna þess að Celtic komst 

yfir og við verðum því að passa að 

það endurtaki sig ekki,? segir 

Ferguson.

Celtic situr reyndar uppi 

með óhemju vonda tölfræði 

á útivöllum 

í Meistara-

deildinni. Stað-

reyndin er sú að félagið hefur 

ekki unnið í síðustu átján leikjum 

sínum.

Arsene Wenger, knattspyrnu-

stjóri Arsenal, hlakkar til að mæta 

Fenerbahçe og hefur trú á því að 

leikmenn sínir muni ekki bugast 

þrátt fyrir mótlætið á erfiðum úti-

velli, en Fenerbahçe vann alla 

fimm heimaleiki sína í keppn-

inni í fyrra.

?Það er sérstök upplifun 

að spila í Ístanbul hvort 

sem það er gegn Fener-

bahçe, Besiktas eða Galat-

asaray því tyrkneskir 

áhorfendur eru sér á 

báti í Evrópu og ná allt-

af að skapa mjög erfið-

ar aðstæður fyrir gest-

ina. Ég á vissulega von 

á erfiðum leik en ég 

tel leikmenn mína til-

búna og þeir munu 

ekki láta mótlætið 

á sig fá,? segir 

Wenger.  

 - óþ

Man. Utd og Arsenal geta komist með annan fótinn í næstu umferð Meistaradeildarinnar með sigri í kvöld:

United hefur ærna ástæðu til bjartsýni

ÓSMEYKUR  Wenger 

telur að leikmenn sínir 

muni ekki láta óvingjarn-

legt andrúmsloft í Ístanbul 

hafa áhrif á sig.

NORDIC PHOTOS/GETTY

BJARTSÝNN Ferguson 

hefur fulla trú á því að 

United geti haldið áfram 

góðu gengi á heimavelli 

þegar Celtic kemur í heim-

sókn. NORDIC PHOTOS/GETTY

FÓTBOLTI Elísabet Gunnarsdóttir, 

annar þjálfara Íslandsmeistara 

Vals, verður næsti þjálfari 

sænska liðsins Kristianstad en 

liðið endaði í níunda sæti sænsku 

deildarinnar í ár. Elísabet verður 

tveggja manna maki hjá félaginu 

því þeir Thomas Mårtensson og 

Ulf Palmquist hafa þjálfað liðið í 

sameiningu undanfarin sex ár. 

Þeir náðu að halda liðinu uppi á 

sínu fyrsta ári í deildinni. 

?Ég er mjög ánægð með þetta 

en ég veit að þetta verður erfitt,? 

segir Elísabet en sænska deildin 

er af mörgum talin vera sú sterk-

asta í heimi. 

Elísabet segist samt ekki sætta 

sig við það markmið að ætla að 

bara að halda sér í deildinni. ?Það 

er mikill metnaður í klúbbnum 

og það hafði líka mikið að segja 

að það er mikill áhugi á kvenna-

knattspyrnu í bænum. Forráða-

menn félagsins tala um að taka 

lítil skref í átt að því að koma lið-

inu í hóp þeirra bestu og mér líst 

vel á það,? segir Elísabet en hún 

er á því að það henti sér vel að 

byrja að þjálfa hjá ungu og 

reynslulitlu félagi eins og Kristi-

anstad. 

Valur hefur unnið Íslands-

meistaratitilinn þrjú ár í röð og 

alls fjórum sinnum undir stjórn 

Elísabetar en í sumar vann hún 

með Frey Alexanderssyni sem er 

núna tekinn við Valsliðinu. 

Hún segir árangur Vals í 

Evrópukeppninni og það að 

hún hafi verið dugleg að 

kynna sig á ferðum sínum 

erlendis eiga mestan þátt í 

því að hún fékk þetta 

tækifæri.

Með sænska lið-

inu spilar landsliðs-

konan Erla Steina 

Arnardóttir og 

það kom fram í 

sænskum fjöl-

miðlum að bæði 

hún og Sigurður Jónsson, þjálf-

ari Djurgården, hafi mælt með 

Elísabetu við forráðamenn 

félagsins.

Það er öruggt að Margrét Lára 

Viðarsdóttir mun ekki koma með 

Elísabetu til Kristianstad en það 

má samt búast við því að Elísa-

bet leiti til annarra íslenskra 

leikmanna til að styrkja liðið 

fyrir næsta tímabil.  

?Ég hef áhuga á að fá til 

mín nokkra leikmenn frá 

Íslandi en þetta verður 

samt ekkert lítið útibú frá 

Val. Það hafði samt mikil 

áhrif að liðið spilar í rauð-

um búningum,? segir 

Elísabet í léttum tón. 

Hún ætlar að fara að 

vinna í leikmanna-

málum á næstunni 

en fyrst á dagskrá 

er að fara út og 

skrifa undir 

samninginn.   - óój

Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar Kristianstad í sænsku deildinni á næsta tímabili:

Ætlar sér ekki að stofna lítið 

Valsútibú í sænsku deildinni

KÁT Elísabet Gunnars-

dóttir.  FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR

KÖRFUBOLTI Kvennalið Hamars 

hefur vakið mikla athygli í upp-

hafi Iceland Express-deildar 

kvenna. Liðið er á toppnum eftir 

tvo góða sigra, fyrst 83-59 á móti 

Snæfelli á heimavelli og svo 76-65 

á móti KR í DHL-höllinni á laugar-

daginn.

Þetta er besta byrjun Hamars-

liðsins í sögu félagsins í efstu 

deild en á fyrstu tveimur tímabil-

um liðsins í efstu deild kom fyrsti 

sigur vetrarins ekki fyrr en í 

fimmta leik liðsins. 

?Ég er alveg himinlifandi yfir 

þessu,? segir Ari Gunnarsson, 

þjálfari liðsins, en hann segir að 

góður undirbúningur eigi mikinn 

þátt í velgengni liðsins nú. ?Stelp-

urnar eru orðnar reyndari og svo 

komu líka lykilleikmenn betur 

undirbúnir eftir landsliðsverkefn-

in,? segir Ari. Þær Fanney Lind 

Guðmundsdóttir og Jóhanna Björk 

Sveinsdóttir léku sína fyrstu A-

landsleiki í haust og Hafrún Hálf-

dánardóttir æfði líka með A-lands-

liðinu í sumar. 

?Við stefnum í hóp fjögurra 

efstu liða og þar liggur okkar 

markmið,? segir Ari en hann segir 

mestan muninn á liðinu frá því í 

fyrra liggja í betri varnarleik. 

Ari er líka sáttur við að liðið 

hafi náð að sýna stöðugleika með 

því að vinna tvo góða sigra í röð. 

Hann vill samt sjá smá hugarfars-

breytingu hjá sínum stelpum.

?Það sem við þurfum að fara að 

gera er að fara að læra að vinna 

leiki,? segir Ari sem vildi sjá sínar 

stelpur fagna meira sigrinum á 

móti KR. ?Ég sagði við þær eftir 

KR-sigurinn að það væri allt í lagi 

að sleppa sér aðeins. Mér finnst 

þetta vera mikið takmark að ná að 

vinna KR á útivelli og ég var mjög 

ánægður,? sagði Ari en Hamri var 

spáð 5. sæti fyrir tímabilið á sama 

tíma og KR var spáð 2. sætinu.

Hamarsliðið er enn þá með tvo 

erlenda leikmenn þrátt fyrir efna-

hagsástandið og þær Lakiste Bark-

us og Julia Demirer verða áfram 

hjá liðinu, að minnsta kosti í viku í 

viðbót. 

?Við tökum bara viku fyrir viku 

og endurskoðum þetta í hverri 

viku,? sagði Ari um framtíð þeirra 

í Hamri en hann fékk flott fram-

lag frá erlendu stúlkunum í sigrin-

um á KR þar sem Barkus var með 

22 stig, 10 fráköst og 5 stoðsend-

ingar en Demirer bætti við 20 stig-

um, 6 fráköstum og 5 vörðum skot-

um. 

Næsti leikur Hamars er á móti 

Fjölni á miðvikudaginn og Ari 

vonast til að Hvergerðingar mæti 

á leikinn og sýni stelpunum sínum 

stuðning því þær sjálfar séu búnar 

að leggja mikið á sig til að reyna 

að koma Hamri í efri hluta deild-

arinnar í fyrsta sinn. - óój

Hamarskonur hafa aldrei byrjað betur og þjálfarinn Ari Gunnarsson er himinlifandi:

Þurfa að læra það að vinna leiki

ÁKVEÐIN Hamarskonan Fanney Lind 

Guðmundsdóttir spilaði sína fyrstu þrjá 

landsleiki í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

LEIKIR KVÖLDSINS

E-riðill:

Man. Utd-Celtic  Stöð 2 Sport

Villarreal-AaB

F-riðill:

Bayern München-Fiorentina

Steaua Búkarest-Lyon

G-riðill:

Fenerbahçe-Arsenal  Stöð 2 Sport 3

Porto-Dynamo Kiev

H-riðill:

Juventus-Real Madrid  Stöð 2 Sport 4

Zenit-Bate Borisov

FÓTBOLTI Enska knattspyrnusam-

bandið ætlar að rannsaka ummæli 

sem Didier Drogba, framherji 

Chelsea, lætur falla í nýrri 

ævisögu sinni. Drogba fékk rautt 

spjald fyrir að klappa á kinnina á 

Vidic í úrslitaleik Meistaradeild-

arinnar en segir í ævisögunni að 

hann sjái eftir því að hafa bara 

ekki lamið Serbann almennilega.

?Ef ég hefði lamið hann 

almennilega þá hefði ég alltént 

átt rauða spjaldið skilið og ég sé 

eftir að hafa ekki gert það þá,? 

segir Drogba.  - óþ

Didier Drogba, Chelsea:

Hefði átt að 

lemja Vidic

RAUTT SPJALD Drogba fékk rautt spjald 

eftir samskipti sín við Vidic í úrslitaleik 

Meistaradeildarinnnar. NORDIC PHOTOS/GETTY

Alcoa Fjarðaál býður íbúum á Austurlandi til 

kynningarfunda 21., 22. og 23. október næstkomandi.

Á fundunum kynna starfsmenn álversins starfsemi þess, 

umhverfisstefnu Alcoa, niðurstöður rannsókna á 

umhverfisáhrifum álversins meðan á gangsetningu stóð, 

mannaráðningar, samfélagsleg áhrif álversins og fleira.

Fundirnir hefjast með stuttu erindi og síðan geta 

fundargestir kynnt sér upplýsingar um álverið á 

veggspjöldum og rætt við starfsfólk og sérfræðinga 

álversins. 

Allir fundirnir hefjast klukkan 20.00 

og verða haldnir sem hér segir:

Á fundunum verður boðið upp á kaffi og meðlæti.

Allir velkomnir!

Nesskóla í Neskaupstað       þriðjudaginn 21. október 

Grunnskóla Eskifjarðar     þriðjudaginn 21. október 

Grunnskóla Reyðarfjarðar     miðvikudaginn 22. október 

Menntaskólanum á Egilsstöðum miðvikudaginn 22. október 

Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar  fimmtudaginn 23. október 

Grunnskólanum á Stöðvarfirði  fimmtudaginn 23. október 

KOM ALMANNATENGSL/SVARTHVÍTT

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41