Fréttablaðið - 26.10.2008, Blaðsíða 6
6 26. október 2008 SUNNUDAGUR
DV lottery / Grænakorts
happdrættið
2010 Diversity Visa Lottery Registration
started October 2, 2008
Registration for the 2010 Diversity Visa (DV)
Lottery started at 08:00 on October 2, 2008.
Persons seeking to enter the lottery program
must register online through the designated
Internet website during the registration period.
The website for registering for the 2010 DV
Lottery, www.dvlottery.state.gov, will be available
from 08:00 on October 2, 2008 through to 08:00
December 1, 2008.
AMERICAN EMBASSY
VIÐSKIPTI „Þeir voru mjög
vinsamlegir að veita okkur frið til
að selja eignir,“ segir Gylfi
Sigfússon,
forstjóri
Eimskipafé-
lagsins.
Félagið
greindi frá því í
fyrradag að það
hefði samið við
95 prósent
skuldabréfaeig-
enda um að þeir
falli frá rétti sínum til að
gjaldfella kröfu sína á hendur
félaginu upp á 9,5 milljarða
króna. Þá verður vaxtagreiðslum
frestað og bætast gjaldfallnir
vextir við höfuðstól á meðan
félagið leitar endurfjármögnunar,
svo sem með sölu kanadíska
frystigeymslufyrirtækisins Atlas
Verscold. Flest bréfanna eru á
gjalddaga á árabilinu 2009 og
2010. - jab
Eimskip fær frið til eignasölu:
Samningar við
lánadrottna
GYLFI SIGFÚSSON
Engin mólkurkvótaviðskipti
Engin viðskipti voru með greiðslu-
mark í mjólk á tímabilinu 15. sept-
ember til 15. október. Á því tímabili
hafa tvö til þrjú hundruð þúsund lítrar
gengið kaupum og sölum undanfarin
ár. Samkvæmt heimasíðu Bænda-
samtakanna er ástandið rakið til
fjármálakreppunnar.
LANDBÚNAÐUR
CHICAGO, AP Lögreglan í Chicago
rannsakar nú dauða móður og
bróður söng- og leikkonunnar
Jennifer Hudson. Mæðginin, Dar-
nell Donerson og Jason Hudson,
fundust látin á heimili sínu í
Chicago á föstudag. Þau höfðu
verið skotin til bana.
Lögreglan segir að líklega sé um
fjölskylduharmleik að ræða og var
fyrrverandi eiginmaður eldri syst-
ur Hudson handtekinn skömmu
eftir líkfundinn. Hann heitir Willi-
am Balfour og er grunaður um að
hafa orðið mæðginunum að bana.
Balfour, sem er 27 ára, er á skil-
orði eftir að hafa eytt tæpum sjö
árum í fangelsi fyrir tilraun til
manndráps og bílþjófnað. Lögregl-
an hafði í gærkvöldi ekki lagt fram
ákæru á hendur Balfour.
Þá leitaði lögreglan í gær að sjö
ára systursyni Hudson í gær en
hann var staddur í húsinu þegar
voðaatburðurinn átti sér stað.
Talsmaður söngkonunnar vildi
ekki tjá sig um málið þegar eftir
því var leitað og sagði söngkonuna
og fjölskyldu hennar vilja fá frið.
Krufning átti að fara fram í gær
og er niðurstöðu hennar beðið.
Jennifer Hudson hefur átt góðu
gengi að fagna frá því að hún
komst í úrslit í þriðju þáttaraðar
American Idol. Hún hlaut Óskars-
verðlaun sem besta leikkona í
aukahlutverki fyrir frammistöðu
sína í myndinni Dreamgirls í fyrra.
Þá er nýjasta lag hennar, Spotlight,
nú í fyrsta sæti bandaríska Bill-
board-listans. - ag
Söngkonan Jennifer Hudson harmi slegin:
Móðir og bróðir
létu lífið í skotárás
Á UM SÁRT AÐ BINDA Jennifer Hudson
á um sárt að binda á sama tíma og hún
er í blóma söng- og leiklistarferils síns.
Lestu fréttir um efnahags-
ástandið?
Já 87,7%
Nei 12,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Verður þetta harður vetur?
Segðu skoðun þína á visir.is
KRÓATÍA, AP Forsætisráðherra
Króatíu hét því á föstudag að allt
yrði gert sem yfirvöld gætu til að
hafa uppi á
morðingjum
blaðamanns
sem var myrtur
í sprengjutil-
ræði í Zagreb í
gærmorgun.
Forsætisráð-
herrann, Ivo
Sanader, tók svo
djúpt í árinni að
segja að „enginn glæpamaður
gæti sofið rólegur“ fyrr en þetta
mál og fleiri alvarlegir glæpir
sem framdir hefðu verið í landinu
væru upplýstir. Sanader kallaði
þjóðaröryggisráð Króatíu saman
til bráðafundar eftir morðið á
blaðamanninum Ivo Pukanic, sem
átti og ritstýrði blaðið Nacional en
það var þekkt fyrir rannsóknar-
blaðamennsku. - aa
Blaðamannsmorð í Króatíu:
Unna sér ekki
hvíldar fyrr en
málið er upplýst
IVO SANADER
Má fleyga við Esjuberg
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hefur
gefið fjárfestinum Ingunni Wern-
ersdóttur heimild til að fleyga úr
klöppinni á lóðinni á Þingholtsstræti
29a. Ingunn ætlar að byggja sér
niðurgrafið baðhús og bílskýli við hið
sögufræga hús Esjuberg.
SKIPULAGSMÁL
STJÓRNSÝSLA Fulltrúi Hafnarfjarðar í stjórn
Strætó bs., Guðmundur Rúnar Árnason, sagði
sig úr stjórn fyrirtækisins á síðasta stjórnar-
fundi. Ástæðan var sú að Reykjavík fékk
formennsku í stjórninni. Fulltrúi Álftaness sat
einnig hjá vegna sömu ástæðu.
Í bókun Guðmundar segir að gert hafi verið
samkomulag á síðasta kjörtímabili um að
formennskan myndi ganga á milli sveitar fé-
laga á tveggja ára fresti. Síðan þá hafi Reykja-
vík og Kópavogur skipt formennsku með sér,
en nú taki Reykjavík við henni aftur. „Ég tel
skynsamlegt að umsamið fyrirkomulag sé
haldið og teldi eðlilegt að fulltrúi Garðabæjar
tæki við, enda sá fulltrúi sem mesta reynslu
hefur í stjórninni,“ segir í bókuninni.
Jórunn Frímannsdóttir, nýr stjórnarformað-
ur, segir vissulega vera kveðið á um að
sveitarfélögin skipti á milli sín stjórnarfor-
mennskunni. Hún segir fyrrum formann
Strætó, Björk Vilhelmsdóttur fullrúa Reykja-
víkur, hins vegar staðhæfa að samkomulag
hafi verið um að Reykjavík tæki við stjórnar-
taumun af Kópavogi.
„Það er talið mikilvægt, bæði af meiri- og
minnihlutans í Reykjavík að við fáum
stjórnarformennskuna. Það er eðlilegt að
langstærsti eigandinn með mesta fjármagnið
haldi um stjórnartaumana. Stundum hefur
myndast núningur þegar eitt hefur verið
samþykkt í borgarstjórn en annað í stjórn
Strætó,“ segir Jórunn.
Í bókun Guðmundar er einmitt amast við
því að Reykjavík nýti sér yfirburði sína. Þar
segir að lengi hafi legið fyrir að hann myndi
segja af sér „ef til þess kæmi að Reykjavík
beitti yfirburðastærð til að knýja á um
breytingar“.
Jórunn telur hins vegar að skipanin njóti
stuðnings á höfuðborgarsvæðinu. „Samtök
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu eru til
dæmis sammála þessu. Ég harma hins vegar
að missa Guðmund úr stjórninni,“ segir hún.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar,
segir klárt að með skipan Jórunnar í for-
mannsstól hafi samkomulag verið brotið. „Það
liggur ljóst fyrir að á sínum tíma var gert
samkomulag um formennsku sem nú hefur
verið brotið. En nú skiptir öllu máli að skipa
starfhæfa stjórn og við munum skipa nýjan
fulltrúa á næsta bæjarstjórnarfundi.“
kolbeinn@frettabladid.is
Saka Reykjavík um yfirgang
Fulltrúi Hafnarfjarðar hætti í stjórn Strætó þegar Reykjavík fékk formennskuna. Segir það brot á sam-
komulagi sveitarfélaganna. Fulltrúi Reykjavíkur segir eðlilegt að stærsta sveitarfélagið ráði för.
ÓSÆTTI Í STJÓRN Reykvíkingar eru ásakaðir um að sýna yfirgang með því að taka við stjórnarformennsku í strætó.
Röðin hafi verið komin að Garðabæ. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
MENNTUN Alls brautskráðust 448
nemendur frá Háskóla Íslands við
hátíðlega athöfn í gær. Í ræðu
sinni vék Kristín Ingólfsdóttir
rektor að mikilvægi þess að rík
áhersla verði áfram lögð á afburða-
árangur í menntun, vísindum og
nýsköpun. „Þegar þessi stefna var
mótuð töldum við hana skipta
miklu máli til að auka velferð sam-
félagsins. Nú teljum við að hún sé
lífsnauðsynleg.“ Þannig geti
Íslendingar knúið samfélagið upp
úr öldudal til nýrrar framfara-
sóknar.
Í ræðunni sagði rektor að nú
muni háskólinn leggja meiri þunga
en nokkru sinni á nýsköpunar-
verkefni á öllum sviðum vísinda
og fræða. Lagði hún sérstaka
áherslu á hugvísindi. Fjölþætt
menntun á sviði hugvísinda treysti
stolt Íslendinga og sjálfsöryggi
vegna eigin menningar. Þannig
gætu hugvísindin stuðlað að skiln-
ingi á stöðu þeirra í sambandi við
aðrar þjóðir. Þá sagði hún að sem
aldrei fyrr væri það nú markmið
Háskóla Íslands að unga út hug-
myndum, verkefnum og sprota-
fyrirtækjum sem verði ný aflstöð
í atvinnulífinu.
Við athöfnina var lýst kjöri
þriggja heiðursdoktora, þeirra
Sørens Langvad frá verkfræði-
deild og Jónatans Þórmundssonar
og Sigurðar Líndal frá lagadeild.
- hhs
Á fimmta hundrað nemenda brautskráðir frá Háskóla Íslands í gær:
Aukin áhersla lögð á nýsköpun
ÚTSKRIFT Jón Torfi Jónasson, forseti
menntavísindasviðs, afhendir prófskír-
teini.
BANDARÍKIN, AP Um það bil
helmingur lækna í Bandaríkjun-
um gefa sjúklingum sínum
lyfleysur reglulega án þess að
upplýsa sjúklinga um það.
Þetta kemur fram í nýrri rann-
sókn, sem birt er í British Medical
Journal. Bandarísku læknasam-
tökin ráða læknum eindregið frá
því að gefa lyfleysur.
Í þessari rannsókn voru
lyfleysur skilgreindar sem hvers
kyns lyf, sem gefin eru sjúkling-
um þótt vitað sé að þau hafi engin
bein áhrif á þann sjúkdóm sem
við er að stríða. Þar á meðal eru
verkjatöflur, vítamín, sýklalyf,
svefnlyf og sykurpillur. - gb
Bandarískir læknar:
Gefa lyfleysur
úr hófi fram
KJÖRKASSINN