Fréttablaðið - 09.11.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 09.11.2008, Blaðsíða 6
6 9. nóvember 2008 SUNNUDAGUR Magnús Sigurðsson hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2008. Aðrir sem áttu handrit í keppninni eru beðnir að vitja þeirra á skrifstofu Menn- ingar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, Ingólfsnausti - Vesturgötu 1, sem fyrst eða fyrir 15. janúar 2009. Einnig er unnt að fá handrit send í póstkröfu. Gefa þarf upp dulnefni. Aðeins var opnað umslag með nafni vinningshafa. Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar, Ingólfsnausti - Vesturgötu 1, 101 Reykjavík, menning@reykjavik.is AUGLÝSING UM SVEINSPRÓF Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin sem hér segir ef næg þátttaka fæst: Í bifvélavirkjun 6. febrúar 2009, bifreiðasmíði 30.-31. janúar og í bílamálun 6.-7.febrúar. Umsóknarfrestur er til 20.desember 2008. Með umsókn skal leggja fram afrit af náms- samningi, lífeyrissjóðsyfi rlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2008. Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum. Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, veffang: www.idan.is og á skrifstofunni. IÐAN - fræðslusetur, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík, sími: 590 6400, bréfsími: 590 6401, netfang: idan@idan.is EFNAHAGSMÁL „Ég er algjörlega sammála meginrökum greinarinn- ar,“ segir Daniel Gros um grein þeirra Heiðars Más Guðjónssonar og Ársæls Valfells sem birtist í Fréttablaðinu í gær. Þar lögðu þeir til að í stað þess að taka sex millj- arða króna lán verði gjaldeyris- forði Íslendinga notaður til að taka einhliða upp aðra mynt sem lög- mynt hér á landi. Gros er forstöðu- maður Centre for European Policy Studies í Brussel og aðstoðaði hann Svartfellinga við einhliða upptöku á evru. „Sérstaklega er ég sammála þeim viðvörunum að þessi lán, sem ríkisstjórnin hyggst taka, muni leggja þungar byrðar á heilar kynslóð- ir. Hjá þessu verður að kom- ast með öllum tiltækum ráðum.“ Alls er verið að leita eftir sex milljarða doll- ara láni til að styrkja krón- una. Þar af myndu um tveir millj- arðar koma frá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum, en fjórir milljarðar dollara kæmu frá hópi ríkja. Þar af hafa lánsloforð þegar fengist frá Noregi, Færeyjum og Pól- landi. Gros segir að besti kosturinn fyrir Ísland nú sé að taka upp evr- una. „Ég myndi ekki bíða fram í janúar til að skipta um gjaldmiðil. Það getur gerst nánast strax.“ Hann segir að þá þurfi einhliða upptaka evru ekki að tákna pólit- ískar deilur við Evrópusambandið „ef Ísland útskýrir að þetta sé neyðarráðstöfun og að Ísland hafi fullkominn skilning á að það muni þurfa að uppfylla Maastricht-skil- yrðin að einhverjum tíma liðnum, ef landið vill taka þátt í evrumark- aðnum, eftir að það hefur gengið í Evrópusambandið.“ - ss Forstöðumaður Centre for European Policy Studies um niðurfellingu krónu: Ekki bíða, skiptið strax DANIEL GROS STJÓRNSÝSLA Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður í Kaupþingi, segir Davíð Oddsson seðlabankastjóra hafa hótað því að koma bankanum á kné. Þetta kom fram í máli Sigurðar í sjónvarpsþættinum Markaðnum á Stöð 2 í gær. Í þættinum játti Sigurður aðspurður því að honum og Davíð hafi „lent illilega saman“ á fundi hjá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum í Washington í fyrra. „Það er rétt, já, okkur lenti illa saman þar,“ sagði Sigurður og staðfesti að Davíð hafi þá hótað að Kaupþing yrði „tekið niður“. Orð Davíðs hafi verið óþægileg. „Mér var mjög brugðið og ræddi þetta við mína nánustu samstarfs- menn.“ Að sögn Sigurðar byggðist andúð seðlabankastjórans meðal annars á þeim fyrirætlunum Kaupþings að skrá hlutafé bank- ans í evrum. Andstaða Seðlabank- ans við það hafi hins vegar verið misráðin og ekki málefnaleg. Orð Davíðs voru að sögn Sigurðar þó aðeins hluti af þeirri ákvörðun Kaupþings að draga ósk um evru- skráninguna til baka. „Við vorum kallaðir ítrekað á fund í fjármálaráðuneytinu og beðnir um að draga þetta til baka. Við gerðum það vegna þess að við töldum ekki við hæfi, eins og umhverfið var þá, að stærsti banki þjóðarinnar væri í einhvers konar átökum við seðlabanka þjóðarinnar og fjármálaráðuneyt- ið líka,“ útskýrði Sigurður sem sagði Árna Mathiesen fjármála- ráðherra síður hafa viljað kveða upp úrskurð í málinu. Sagði Sigurður það hafa verið óþægilegt að reka stærsta banka landsins og hafa það á tilfinning- unni að æðstu ráðamenn þjóðar- innar beittu öllum brögðum til að koma höggi á bankann. „Þetta er mjög sérkennileg staða að vera í,“ sagði Sigurður sem rifjaði upp þegar Davíð tók innstæður sínar út úr bankanum til að mótmæla kaupréttarsamningum. „Maðurinn er forsætisráðherra þá og síðan þegar viðkomandi hættir sem forsætisráðherra þá er hann gerður að formanni bankastjórnar Seðlabankans. Okkur fannst það alltaf mjög sér- kennileg ráðstöfun,“ sagði Sigurð- ur. Þegar Fréttablaðið náði tali af Geir Haarde forsætisráðherra síðdegis í gær kvaðst hann hafa verið á fundum allan daginn og hvorki séð viðtalið við Sigurð Ein- arsson né kynnt sér innihald þess. „Ég sé ekki ástæðu til að svara þeirri spurningu núna,“ svaraði Geir aðspurður hvort ástæða væri til þess að sannleiksgildi ummæla Sigurðar yrðu rannsökuð. Kvaðst forsætisráðherra þurfa að hlusta á viðtalið áður en hann gæti tjáð sig um málið. Ekki náðist í seðlabankastjór- ana þrjá í gær. gar@frettabladid.is Fullyrt að Davíð hafi hótað Kaupþingi falli Fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings segir seðlabankastjóra hafa hótað því að knésetja bankann, meðal annars vegna áforma um að skrá hlutafé í evrum. Forsætisráðherra kveðst ekki hafa séð ummælin og tjáir sig ekki um þau. DAVÍÐ ODDSSON GEIR HAARDE SIGURÐUR EINARSSON „Þetta er mjög sérkennileg staða að vera í,“ segir fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, sem telur bankann hafa verið beittan brögðum af æðstu ráðamönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI EFNAHAGSMÁL Að sögn Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, stóð Seðlabanka Íslands til boða mjög stór fjármögnun aðeins nokkrum vikum áður en hrun bankakerfisins fór af stað. Seðlabankinn hefði ekki viljað taka lánið því kjörin hafi ekki þótt nógu góð. Þetta kom fram í sjónvarpsþættinum Markaðnum á Stöð 2 í gær. Sagði Sigurður einn lánveitandanna hafa verið bandaríska bankann JP Morgan. Rætt hafi verið um að lánið yrði á bilinu 3 til 5 milljarðar dollara. Það er jafnvirði 75 til 125 milljarðar króna í dag. - gar Gagnrýni á Seðlabankann: Risaláni hafnað fyrir hrunið EFNAHAGSMÁL Tryggvi Þór Herbertsson, sem var efnahags- ráðgjafi Geirs Haarde forsætis- ráðherra þar til hann hætti óvænt um miðjan síðasta mánuð, segist hafa mælt gegn yfirtöku ríkisins í Glitni í byrjun október. Þetta kom fram í viðtali við Tryggva í Markaðnum á Stöð 2 í gær. „Ég sá það mjög fljótlega að með því að fara svokallaða Glitnisleið myndi það valda dómínó-áhrifum inn í hagkerfið,“ sagði Tryggvi og játti því í Markaðnum að sér hefði fundist að hans rödd næði ekki nægjan- lega í gegn. - gar Efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar: Var andvígur yfirtöku Glitnis NOREGUR Landssamtök bygginga- geirans í Noregi óskar eftir því að norska ríkisstjórnin grípi til ráðstafana til að koma í veg fyrir að kreppa verði á byggingamark- aði í Noregi. Ný spá gerir ráð fyrir að 60 þúsund launamenn finni fyrir kreppunni þegar framkvæmdir verða fyrir töfum eða stöðvast á næstu tveimur árum, eftir því sem fram kemur í norska ríkisútvarpinu, NRK. Landssamtökin telja að efnahagur sveitarfélaganna þurfi að styrkjast og að sveitarfélögin þurfi að fá bætt tap og tekju- minnkun. - ghs Norskur byggingageiri: Óttast kreppu á tveimur árum VIÐSKIPTI „Ef tilfellið er að Kaup- þingsmenn hafi hætt við umsókn um að fá að gera upp í evrum vegna pólitísks þrýstings voru það mistök hjá þeim, og líka mis- tök hjá þeim sem um málið fjöll- uðu að gera ekki allt sem hægt var til að bankinn gæti gert upp í evrum,“ segir Vilhjálmur Egils- son, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um þau ummæli Sigurðar Einarssonar, fyrrum stjórnarformanns hjá Kaupþingi, að hætt hafi verið við umsókn bankans um að fá að gera upp í evrum vegna tregðu fjármála- ráðherra til að úrskurða í mál- inu. Vilhjálmur segir að það hefði aukið mjög stöðugleika hagkerf- isins í heild hefði bönkunum verið gert kleift að gera upp í evrum allt frá árunum 2002 eða 2003. „Það hefði dregið úr hags- veiflunni. Krónan ýkir hana en evran vinnur gegn henni. Bank- arnir hefðu ekki getað lánað eins mikið út þegar gengi krónunnar var sem hæst, og það hefði hjálp- að við að draga úr þenslu,“ segir Vilhjálmur. Spurður um meintar hótanir Davíðs Oddssonar í garð Kaup- þings telur Vilhjálmur ekki þörf á sérstakri rannsókn á þeim. „Andstaða Davíðs við að bank- arnir gerðu upp í evrum lá fyrir allan tímann. Davíð hefur aldrei legið á skoðunum sínum á mönn- um og málefnum. Ég hef heyrt hann tala vel um menn og svo ekki jafn vel um aðra menn.“ - kg Framkvæmdastjóri SA um uppgjör banka í evrum: Mistök að hindra bankana EVRA Vilhjálmur Egilsson segir umræð- una til framtíðar snúast um hvort bankarnir ættu að gera upp í krónum eða evrum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ertu sátt/ur við skipan nýrra bankaráða ríkisbankanna? Já 28,4% Nei 71,6% SPURNING DAGSINS Í DAG: Mættir þú á mótmæli í mið- borginni á laugardag? Segðu skoðun þína á vísir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.