Tíminn - 15.05.1982, Blaðsíða 4

Tíminn - 15.05.1982, Blaðsíða 4
Laugardagur 15. maí 1982 4 Wmm stuttar fréttir „Búast má við að f jöldi kennara neyðist til að segja upp störfum” ISAFJöRÐUR: Grunnsktíla- kennarar á ísafiröi telja þaö algjört lágmark aö kaupmátt- ur kennaralauna geti staöiö undir framfærslu svonefndrar visitölufjölskyldu og segja nú- verandi launakjör þvi meö öllu óviöunandi aö þvi er fram kemur i nýlega samþykktri á- lyktun frá þeim. Benda þeir jafnframt á aö kennaralaunin séu langt aö baki þvi er eöli- legt megi telja miöaö viö aör- ar stéttir, sem hafa samsvar- andi menntun aö baki. Jafti- framt benda þeir á aö kennar- ar séu nú eina stéttin er ekki hefur i öllum titfellum þriggja mánaöa bamsburöarleyfi. „Ef fram heldur sem nú horfir má viö þvi búast fyrr en seinna aö fjöldi kennara neyöist til aö segja upp störf- um og leita betur launaöra starfa”, segir i ályktuninni. Kennaraskortur og tiö kenn- araskipti valdi miklum vanda ár hvert utan Reykjavikur en búast megi viö aö þtí veröienn erfiöara en áöur aö fá rétt- indakennara til starfa I dreif- býlinu.” —HEI. Um 2,5 milljóna kr. hagnaður hjá KRON REYKJAVÍK: Heildarvelta KRON á s.l. ári varö 110 mill- jónir króna og er þaö rúmlega 70% aukning frá árinu 1980 aö þvi er fram kom á aöalfundi félagsins sem haldinn var laugardaginn 8. mai á Hótel Sögu i Reykjavik. Um eitt hundrað fulltrúar sóttu fúnd- inn. Eignir félagsins eru 66,7 milljónir þar af eigiö fé nær 61% og er eignastaöa félagsins mjög sterk. Hagnaöur var kr. 2,5 millj. Félagiö rekur nú 10 verslanir, auk efnagerðar en Járnvörubúö KRON hefur veriö lögð niöur. Samþykkt var á fundinum aö gefa Hjúkr- unarheimili aldraðra i Kópa- vogi og Dvalarheimili aldr- aöra viö Snorrabraut 25.000 kr. hvoru til kaupa á búnaöi. A fundinum kom fram aö stofnaö hefur veriö sameign- arfélag um rekstur stórversl- unar i Holtagörðum. Eignar- hlutur KRON er 52% og hefur KRON 3 af 5 fulltrúum i stjórn félagsins. Þá kom fram aö framkvæmdir munu bráðlega hefjast við byggingu hverfis- verslunar KRON viö Furu- grund i Kópavogi. Stjórn félagsins var öll end- urkjörin. Sauðburður að byrja og allar kindur á húsi LANDEYJAR: ,,Jú, jú, þaö eru allar kindur haföar á húsi og þau byrgö á ntíttinni, þvi ærnar mega ekki bera úti i svona miklum gaddi”, sagði Agúst Jónsson bóndi i Sigluvik er viö leituöum frétta af sauö- buröi þar um slóöir þetta kalda vor. Atta stiga gaddur var nóttina áöur en viö röbb- uöum viö Agúst 5. mai s.l. en þá sagöi hann sauöburö aö byrja á nokkrum bæjum. „Þetta eru „sprautukind- urnar” sem byrjaöar eru aö bera, en þær voru sæddar um viku áöur en fariö var aö hleypa til”, sagöi Agúst. Sauö- buröur á svo aö hef jast fyrir alvöru um miöja þessa viku. En kemur ekki fljótt til þrengsla ihúsum ef mikiö þarf aö hafa af lambám i húsi? „Nei, menn eru búnir að fá mikiö pláss i hlööum þar sem hægt er aö gera stýjur og svo eiga menn alltaf einhver hús önnur.” Agúst sagöi einnig komiö mikiö af folöldum. „En þau lifa nú alveg úti, jafnvel betur heldur en ef það væri rigningatiö”. öll hross þurfi þó aö vera á gjöf. „Gróöurinn var orðinn mjög fallegur en er nú alveg fölnaöur.” — Þiö getið þá ekki mikiö fariö aö huga að garölöndum enn? „Nei, nei. Þaö er bilheldur is hér um allt. En þegar þessi timi er kominn, þá veröur þetta nú fljótt aö breytast ef hann bregður til betri tiöar. En þaö er hins vegar ekki vist að þaö veröi alveg strax”. 1 venjulegu árferöi sagöi Agúst kartöflur settar niöur frá 14. til 20. mai, s vo búast má viö að sáning veröi meö seinna fall- inu þetta voriö. HEI Predikun á táknmáli SKAGAFJÖRÐUR: Kirkju- kórinn á Sauöárkróki hélt söngskemmtun i félagsheimil- inu Árgarði i' Lýtingsstaöa- hreppi sl. laugardagskvöld. Söngstjóri kórsins ogorganisti Sauöárkrókskirkju sl. 10 ár er Jón Björnsson tónskáld frá Hafsteinsstööum, en hann hef- ur nú gegnt organistastörfum i héraðinu, æft kóra og eflt sönglíf i 60 ár og veriö mikil- virkt og vinsælt tónskáld. A söngskránni voru 15 kórlög en i þremur laganna sungu Þor- bergur Jósefsson og Ragnhild- ur óskarsdóttir einsöng og var Guöbrandur Guðbrandsson undirleikari á trompet i nokkrum laganna. Auk þess söng Þorbergur 5 einsöngslög við undirleik Jóns tónskálds. Kirkjuktír Mælifellspresta- kalls efndi til kaffisamsætis fýrir gesti og heimafólk að söng loknum og voru þar margar ræöur fluttar en kirkjukómum á Sauöárkróki einsöngvurum og stjórnanda þakkaöur mikill og fagur söngur. Um fyrri helgi fóru kirkju- kórinn og sóknarpresturinn á Sauöárkróki til Siglufjaröar í versta hriöarveöri og ófærö og sungu þar messu og efndu siö- ar um daginn til samkomu i Siglufjaröarkirkju. — Þann dag komst síra Myoko Þóröar- son prestur heyrnarskertra frá Akureyri vestur aö Reykj- um I Tungusveit til guösþjón- ustuhalds ásamt sóknarprest- inum ogski'röi hún þar barn og predikaði á táknmáli. Orö var gert á dugnaöi hinnar erlendu konu og ágæta prests, en ferö- in var bæöi löng og ströng. — Betur viöraöi um þessa helgi, er sira Björn H. Jónsson og kirkjukórinn á Húsavik komu vesturhingað og sungu messu heima á Hólum og héldu siöan söngskemmtun á Sauöárkróki undir stjórn hins kunna organ- ista og söngstjóra frú Sigriöar Schiöth en 12 stiga hiti var i Skagafiröi á sunnudag og fag- urt veður eftir langt og hart kuldakast. — Á.S. —Mælifelli fréttir ■ Frú Lotte Zier og Maria Zier viö eitt verka iistamannsins (Tima- mynd ELLA) Yfirlitssýning í minningu Kurt Zier ■ Nú stendur yfir aö Kjarvals- stööum sýning á verkum KurtZi- er fyrrverandi skólastjóra Mynd- lista-og handiðaskóla fslands. Er hér um að ræöa 115 verk, teikn- ingar, svartlistamyndir, kritar- myndir og málverk og má segja aöþessi yfirlitssýning sé „hist og her” úr starfi Kurt Zier, eins og Einar Hákonarson, skólastjóri komstaö oröi, þegar viö litum við að Kjarvalsstööum í gær. Myndirnar eru í eigu ekkju og dætra Kurt Zier þeirra Lotte Zier Maria Zier og Eva Zier, en þær Lotte og Maria eru komnar hing- aö til lands vegna sýningarinnar. Þaö er Myndlista og Handiöa- skóli tslands sem stendur aö sýn- ingunni og vill meö þvi votta hin- um frábæra skólamanni viröingu sina. Hefur veriö gefin út vönduö sýningarskrá þar sem þau rita i minningu Kurt Zier: Einar Há- konarson, Björn Th. Björnsson, Michael Siegel, fr. prófessor viö Rikislistaskólann i Berlin, Höröur Ágústsson, Walter Schafer fyrr- um skólastjóri Odenwaldskóla, Stefán Edelstein og Trude Emm- erich guöfræöingur. — AM Kref jast stöðv- unar fram- kvæmda við Þórsgötu 29 REYKJAVtK: ,,Viö fögnum þeirri samþykkt sem gerö var á Skipulagsnefndarfundi nýveriö þar sem Ibúasamtökum i gamla bænum er gefinn kostur á aö starfa meö Borgarskipulagi Reykjavikur viö endurvinnslu og mótun deiliskipulags fyrir gömlu hverfin” segir i frétt frá Ibúa- samtökum Þingholtanna sem blaðinu barst i gær. Hinsvegar segir í fréttinni harma samtökin hvemig staöiö hefúr verið aö byggingarfram- kvæmdum við Þórsgötu 29. „Leit- að hefur veriö allra löglegra leiöa til aö fá framkvæmdirnar stööv- aöar meöan sátta er leitaö i mál- inu. Kærum sem fram hafa komið hefur i engu veriö sinnt. fbúasamtökin krefjast þess að byggingarframkvæmdirnar veröi stöövaöar þegar í staö og máliö tekiö ipp aönýju og fullt tillit tek- ið til ibiía við ofanveröa Þtírsgötu og Lokastig”, segir i fréttinni. —Sjó. Tónleikar í Norræna húsinu ■ A morgun sunnudag heldur Jóhanna G. Möller sópransöng- kona og Krystyna Cortes pianó- leikari, tónleika I Norræna húsinu og hefjast þeir klukkan 17. A tón- leikunum veröa flutt verk eftir bæöi innlenda og erlenda höf- unda. ■ Þeirsem dvalarstyrkihlutu ásamt Einari Laxness, formanni Menntamálaráðs. Frá vinstri: Jóhann Hjáimarsson, Vernharður Linnet, Flosi Ólafsson, Thor Vilhjálmsson, Guömunda Andrésdóttir, Einar Laxness og Magnús Jónsson. (Timamynd Ella) Atta listamenn hlutu tveggja mánaða dvalarstyrk ■ Menningarsjóöur og Mennta- málaráö efndu til blaöamanna- fundar I gær vegna hinnar árlegu styrkveitingar úr Menningar- sjóöi. Ráöiö auglýsti aö þessu sinni eftir umstíknum um dvalar- styrki til handa listamönnum, sem hyggjast dveljast erlendis um a.m.k. tveggja mánaöa skeiö og vinna þar aö listgrein sinni. Voru þessir styrkir ákveönir átta talsins nú, kr. 10 þús. hver. Enn var auglýst eftir umsóknum um styrk til útgáfu ísl. tónverka, i heild að upphæö kr. 15 þús. Loks var auglýst eftir umsóknum um styrk til þeirra sem stunda fræöi- starf og náttúrufræöirannsóknir. Þá hafa aö venju veriö veittir all margir styrkir án sérstaks um- sóknarfrests upp I greiöslu far- gjalds fyrir listamenn og/eöa til annarrar menningarstarfsemi eftir þvi sem fé hefur hrokkiö til. A þessu ári hafa nú veriö veittir slikir styrkir til 17 aöila, rithöf- unda, leiklistarfólks, tónlistar og myndlistarmanna. Jazzvakning hlaut sinn fyrsta opinbera styrk Einar Laxness, formaöur Menntamálaráös ávarpaöi gesti og kynnti þá listamenn sem hlutu dvalarstyrk kr. 10.000 hver. Bár- ust 28 umsóknir en aðeins var unnt aö veita eftirtöldum átta listamönnum styrk. Þeir voru: Asi I Bæ, Flosi ólafsson, Guö- munda Andrésdóttir, Hiif Bente Sigurjónsdtíttir, Jóhann Hjálm- arsson, Jtín Reykdal, Magnús Jónsson og Thor Vilhjálmsson. Umsækjendur til ttínverkaút- gáfu voru nú þrir og ákvað Menntamálaráö aö veita þeim öllum nokkra úrlausn. Þeir voru: Jazzvakning sem hlaut 10.000.00 ■ Arleg vorsýning Myndlista- og handlöaskóla tslands veröur nú um helgina og veröur sýningin opin báöa dagana frá kl.14 til 22. Þessi vorsýning er hin 43. i röö- inni og er hún aö sögn aöstand- enda skólans löngu oröin árviss og vinsæll þáttur i bæjarlifinu. kr. til útgáfu minningarplötu um Gunnar Ormslev, saxófónleikara, Guðjtín Matthiasson til plötuút- gáfu kr.2500.00 og Trometblás- arasveitin til útgáfu tónverks eft- ir Jónas Tómasson, tónskáld kr.2500.00. Þess má getaað til jassleikara hefur opinbert fé ekki runniö áöur svo vitaö sé og er frumkvæöi Menntamálaráös og Menningar- sjóðs þvi athyglisveröara en þaö styrkti kvikmyndageröarmenn hérlendis fyrst allra. —AM Segja þeir sýninguna ávailt fjöl- sótta. Þaö eru framhalds- eða sér- námsdeildir skólans sem standa aö þessari sýningu og sýnir hver deild i sinni kennslustofu i húsa- kynnum skólans aö Skipholti 1. Ekki er unnt aö sýna frá nám- skeiöum, sökum plássleysis. Vorsýning Mynd lista- og handíða skóla íslands

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.