Tíminn - 26.08.1982, Blaðsíða 12
FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST1982
12
heimilistíminn!
Umsjón: B.St. og K.L.
■ í dag kl. 14 opnar danski sendiherr-
ann á íslandi, J.A.W. Paludan, stóra
postulínssýningu á Kjarvalsstöðum. Það
er danska fyrirtækið Bing & Gröndahl,
sem sýnir sjaldgæfa postulínsmuni, m.a.
með sérstökum tengslum við ísland,
sérunnin listaverk eftir nútíma lista-
menn, verðmætt safn platta og merka
muni, sem nú eru í framleiðslu, m.a.
eftir íslenska listamanninn Rúnu (Sig-
rúnu Guðjónsdóttur). Forseti íslands
verður viðstaddur opnunarathöfnina.
Auk sýningarinnar á Kjarvalsstöðum
verða sérsýningar hjá umboðsmönnum
Bing & Gröndahl víðs vegar um landið.
Hönnunarsamkeppni
Sýningardagana frá íslendingar um
allt land einnig tækifæri til að spreyta sig
við postulínshönnun. Hjá umboðs-
mönnum Bing & Gröndahl eru fáan-
legir pappadiskar til að nota í sam-
keppni um bestu diskaskreytinguna.
Hver búð veitir Bing & Gröndahl-styttu
í 1., 2. og 3 verðlaun meðal keppenda
Sögulegir postulínsmunir,
m.a. eftir Albert Thorvald-
sen
Árið 1978 vígði Bing & Gröndahl, í
tilefni af 125 ára afmæli sínu, nýtt safn
hjá gömlu verksmiðjunni í miðborg
Kaupmannahafnar. Sjálft safnhúsið er
þegar marg-verðlaunað fyrir byggingar-
list, og í safninu hafa þúsundir
áhugamanna um postulínslist út um
allan heim séð sýnishorn úr meira en
aldarlangrí þróun verksmiðjunnar. Úr
þessu safni hefur fengist að láni
samstæða af mjög verðmætum gömlum
munum á sýninguna að Kjarvalsstöðum.
T.d. verða til sýnis dæmi um gamlar
diskaskreytingar og sérunnir munir frá
hinum miklu heimssýningum fyrri aldar.
Einnig verða á sýningunni nokkur af
alelstu stykkjum dönsku postulínsverk-
smiðjunnar. Þau eru unnin eftir þekkt-
um verkum eftir hinn mikla myndhöggv-
ara Albert Thorvaldsen, og verður
m.a. hægt að líta sjálfan meistarann í
hinni frægu sjálfsmynd hans. Högg-
myndin er endurgerð smækkuð úr hinu
ómálaða, óglerhúðaða biskví-postulíni.
Einmitt verk eftir Thorvaldsen úr þessu
sérstaka postulíni var frumframleiðsla
Bing & Gröndahl árið 1853.
Gömul hefð í framleiðslu
Að sjálfsögðu er ógerningur að sýna
í öllum atriðum heildarframleiðslu
postulíns að gamalli hefð verksmiðjunn-
ar í Kaupmannahöfn. Þó hefur verið
leitast við það eftir bestu getu, annars
vegar með myndatöflum sem útskýra
hvernig postulínsstykki er framleitt
ásamt sýnishornum af stykkinu á ýmsum
þrepum, og hins vegar með starfandi
postulínssmiðju. Einn af skreytingar-
mönnum Bing & Gröndahl er búinn að
færa verkstæði sitt til íslands til þess að
Fyrstu munimir, sem framleiddir voru í verksmiðju Bing & Gröndahl, voro myndir myndhöggvarans Alberts Thorvaldsen.
Bing & Gröndahl:
Postulínssýraing
á Kiarvalsstödum
sýna hvernig hún handskreytir postulín
eins og gert var fyrir heilli öld að gamalli
hefð. Þetta er Lisbeth Hansen postulíns-
málari, og hún mun skreyta eitt af
sígildum stellum Bing & Gröndahl,
„Empire“.
Margir aðrir af þekktustu leirkera-
smiðum og postulínslistamönnum Dana
verða á sýningunni og gefa víðtækt
innsýn. í stöðu danskrar postulíns - og
steinleirslistar í dag.
Islenskt ívaf nú á dögum
Á Kjarvalsstöðum verða líka merkar
nýjungar úr framleiðslu verksmiðjunnar
nú, t.d. veggflísar eftir íslenska leirkera-
smiðinn Rúnu (Sigrúnu Guðjónsdóttur)
ásamt heilmiklu af nýjungum þessa
hausts frá hinni rótgrónu postulínsverk-
smiðju.
Verðmætt safn platta og
séríslenskra platta
Áhugamenn um platta fá tækifæri til
að skoða heildarsafn af Bing &
Gröndahl-plöttum. f safninu er auðvitað
líka fyrsti jólaplatti heims sem Bing &
Gröndahl gaf út árið 1895. Hann er nú
metinn á um 30.000 kr. og er frægur um
allan heim. Platti þessi varð upphafið að
safnaraHefð sem teygir sig út um allan
heim í dag. Á sýningunni verða líka
jólaplattar sem Bing & Gröndahl
framleiddi sérstaklega fyrir ísland árin
1928-29-30.
Ýmsir aðrir plattar sem eru sérstak-
lega tengdir íslandi verða til sýnis, t.d.
minnisplattar um heimsókn Friðriks 8.
Danakonungs til íslands árið 1907, um
1000-ára Alþingishátíð 1930 og 1100-ára
þjóðhátíð 1974.
Hugmyndir fyrir heimilið
Gestir sýningarinnar geta tekið með
heim hugmyndir fyrjr borðskreytingar.
Bing & Gröndahl sýnir 12 veisluborð,
öll með borðbúnaði sem er seldur með
25 ára skriflegri viðbótahlutatryggingu
frá verksmiðjunni. Henning Koppel,
Mexico, Ballerina, Peru, Offenbach,
Comet, Julerose, Lövfald, Korinth,
Saxneskt blóm, Blámálað og Mávastell-
ið frá því um aldarmótin. Af sí ðast-
nefndu stelli er sýnd heildarsamstæða,
samtals yfir 100 mismunandi hlutir.
Sýningin að Kjarvalsstöð-
um verður opin:
■ Sjálfsmynd Alberts Thorvaldsen
þekkja flestir Islendingar, enda stóð hún
um langt skeið í fullri stxrð á miðjum
Austurvelli, en nú síðustu árin í
Hljómskálagarðinum. Afsteypu af henni
hafa Bing & Gröndahl framleitt.
Fimmtudag
Föstudag
Laugardag
Sunnudag
Mánudag
Aðgangur ókeypis.
26. ágúst kl. 14-22
27. ágúst kl. 14-22
28. ágúst kl. 14-22
29. ágúst kl. 14-22
30. ágúst kl. 14-22
■ Á sýningunni gefur að líta 12 borð dúkuð og lagt á með matarstellum frá Bing
& Gröndahl. Þetta jólaborð hafa Hríngs-konur skreytt. Hnífapörín eru frá
Rammagerðinni, en glösin flytja umboðsmenn Bing & Gröndahl hér á landi inn.
Skreytingarnar hafa Hrings-konur sjálfar gert. (Tímamyndir: Arí)
Lisebeth Hansen postulinsmálari situr á sýningunni og málar ýmsa postulínsmuni af miklum hagleik.