Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Tķminn

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 203. Tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Tķminn

						íslendingaþættir fySgja blaðinu í dag

TRAUST OG

FJÖLBREYTT

FRÉTTABLAÐ

Miðvikudagur 8. september 1982

203. tbl. - 66. árgangur.

itstjórn 86300 - Auglýsingar 18300 - Afgreiðsla og áskritt

Utanríkisráðherra grípur inn í bónusmál Fríhafnarinnar;

FYRIRSKIPAR HLUTLAUSA

UTTEKT TVEGGJA MANNA

I

¦ Utanríkisráðherra mun á næstu

dögum skipa ivo menn til að gera

hlutlausa úttekt á svokölluðu „bónus-

máli" í Frihöfninni á Keflavíkur-

flugvelli, en nokkrar deilur hafa staðið

um bónusgreiðslur til starfsmanna

hennar eftir að ákveðið var að koma

þeim á.

„Það stendur til að skipa tvo menn

til að gera þessa úttekt. Starfsmenn

Fríhafnarinnar voru að einhverju leyti

óánægðir með þessar bónusgreiðslur

og við viljum leita eftir samkomulagi

í málinu", sagði Ólafur Jóhannesson,

utanríkisráðherra, í samtali við

Tímann.

Ólafur kvaðst ekki geta sagt til um

hve langan tíma slík úttekt tæki, enda

ekki formlega búið að skipa mennina.

Samkvæmt heimildum Tímans mun

þeim  Benedikt  Sigurjónssyni,  fyrr-

verandi Hæstaréttardómara, og Eiríki

Pálssyni, fyrrverandi skattstjóra,

verða falið að hafa úttektina með

höndum.

Úttektin mun snúa að því að

endurskoða útreikning launa starfs-

manna í verslun og á lager Frí-

hafnarinnar, og hvort vinnuframlag

hvers einstaklings sé í samræmi við

upphaflegan  bónussamning.   Bónus-

samningurinn sem deilt er um gilti fyrir

árið 1981. Ágreiningur varð um það í

byrjun þessa árs hvernig ágóðanum

yrði skipt innbyrðis á milli starfs-

manna, en honum lauk með því að

forstjóri Fríhafnarinnar kvað endan-

lega upp um það hvernig honum skyldi

ráðstafað. Úttektin á að leiða í Ijós

hvort þar hafi verið rétt að verki staðið.

FRI

Tónlistarmenn:

FELLDU

SAMKOMU-

LAGASÍ

¦ „Við felldum samkomulag ASÍ frá

þvf í vor, en það átti einnig að ná til

okkar, enda kom það mun lakara út fyrir

okkur en aðra launþega" sagði Finnur

Torfi Stefánsson lögfræðingur Félags

íslenskra hljómsveitarmanná í samtali

við Tímann en félagið stendur nú í

kjaradeilu við viðsemjendur sína sem

eru Samband veitinga- og gistihúsa.

Þessi deila nær þó aðeins til tónlistar-

manna á veitingahúsum.

„Ástæður þess að ASÍ samkomulagið

var okkur svo óhagstætt eru frekar

„býrókratísks" eðlis fremur en að

veitingamönnum sé um að kenna. Eftir

því sem ég best veit hafa veitingamenn

ekkert á móti því að tónlistarmenn fái

sömu kauphækkanir og aðrir launþegar.

Hinsvegar hafa þeir afsalað sér samn-

ingsrétti sínum til ýmissa milliliða þar

sem VSÍ er toppurinn á, með þeim

afleiðingum að um langt skeið hefur

okkur ekki tekist að ná neinum

viðræðum við okkar eiginlegu við-

semjendur um eitt eða annað heldur

þurfum við jafnan að horfast í augu við

fulltrúa VSÍ. En fulltrúar VSÍ hafa lítinn

áhuga og takmarkaðan skilning á

aðstæðum hjá veitingamönnum og

hljóðfæraleikurum.

Nú er svo komið að mörg atriði

kjarasamnings okkar eru orðin úrelt og

uppi óskir bæði af hálfu veitingamanna

og tónlistarmanna að breyta þar ýmsu.

Þetta hefur ekki náð fram að ganga þar

sem valdið er í höndum VSÍ og þar líta

menn einungis á prósentur og launa-

flokka".

Hverjar eru kröfur ykkar?

„Við höfum sett fram ítarlegar kröfur

í þessum viðræðum en aðalatriði þeirra

eru að við fáum sambærilega kauphækk-

un á við aðra sem samið hafa. Það

fengum við ekki á sínum tíma."

Er verkfall yfirvofandi?

„Samningar standa enn og ég vona

fastlega að takist að ná samkomulagi, en

ég get ekki útilokað þann möguleika að

til verkfalls komi" sagði Finnur Torfi

Stefánsson.                              - FRI

¦   Kartöflur, kartöflur og aftur kartöflur. Kartöfluvertíðin er hafin jafnt hjá háum sem lágum og búist við að uppskeran

verði í rúmu meðallagi. Kartöflubændur norðan og sunnan lands byrjuðu að taka upp með stórvirkum vinnuvélum um

helgina en hann Ámi Sigurðsson, níu ára sem blaðamenn Tímans hittu í kartöflugörðunum við Korpúlfsstaði í nágrenni

Reykjavíkur, lét sér nægja guðsgaffiana og uppskeran...hún var bara ágæt.

Sjá nánar bls. 5                                                                                                               ESE/Tímamynd Róbert

Nýtt

ieikár

— bls.6

Loni er

dökkhærd

— bls. 2

Ljósasjó

Russells

— bls. 23

Þriðji

heimurinn

— bls. 7

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24