Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Tķminn

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 203. Tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Tķminn

						)

mn

MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1982.

í spegli tímans

|; Umsjón: B.St. og K.L.

¦BHHHHH

LONIANDERSON ER DÖKKHÆRD!

¦ í Hollywood hefur Loni

Anderson fyrir löngu unnið sér

það álit gagnrýnanda, að hún

væri gáfuð og hin besta

leikkona, þótt hún leiki oft

„heimskar ljóskur", sem hún

sjálf segist alls ekki vilja h'kjast.

Loni Anderson er dökk-

hærð í verunni, og hún sagðist

alltaf hafa fengið einhver

leiðindahlutverk sem suður-

Amerísk gleðikona, eða ein-

hverja álíka rullu. Alltaf hefði

hún þurft að tala með erlend-

um hreim og hlutverkin orðið

ansi einhliða.

Þetta breyttist allt, þegar

hún lét lýsa á sér hárið. Þá

rigndi yfir hana tilboðum, en

flest hlutverkin eru reyndar

um Ijóshærðar kynbombur.

Nú síðast hefur Loni leikið í

kvikmynd, sem gerð er um ævi

leikkonunnar Jayne Mans-

fields, sem fórst í umferðar-

slysi 1967. Loni segist hafa

dáðst að Jayne, og það sé mjög

spennandi að fá að leika hana.

A móti Loni í myndinni um

J'ayne Mansfield leikur Arn-

old Schwartzenegger Mickey

Hargitay, vöðvafjalhð mikla,

sem var eiginmaður Jayne.

Margir voru á móti því, að láta

hann fá stórt hlutverk í

kvikmynd, jafnvel þó hann

ætti bara að leika sjálfan sig,

en hann þykir hafa staðið sig

með miklum ágætum í mynd-

inni.

Loni Anderson hefur margt

til að bera til að leika þessa

heimsfrægu kynbombu. T.d.

hafði hún enn stærra brjósta-

mál en Jayne hafði, en Loni lét

gera aðgerð til að minnka

brjóstin, en nóg virðist vera

eftir enn. „Ég lét gera þessa

aðgerð til þess að fólk horfði

líka framan í mig," sagði Loni,

„mér fannst orðið leiðinlegt,

að það horfði aldrei neinn í

augun á mér, heldur á þessi

ógnarstóru brjóst. Nú eru þau

mátuleg, eða hvað finnst ykk-

ur?" spurði Loni.

Hún hljóp í skarðið...

¦ Þegar Karl Schmidt, tannlæknir í Schleswig í

V-Þýskalandi, þurfti að fara á spítala, tók Elfríde, hin 54

ára eiginkona hans, að sér tannlæknastofuna og rekstur

hennar, en hún liafði aðstoðað mann sinn áður. Hún

gerði sér lítið fyrir og dreif sig í að gera við tennur þeirra,

sem höfðu átt pantaðan tíma, og hún hafði dregið úr

viðskiptavinunum 73 tennur - þegar hún var handtekin.

Elfride tannlæknisfrú fékk fjögurra mánaða skilorðs-

bundinn fangelsisdóm.

Einn sjúklingurinn á tannlæknastofunni, sem bar vitni,

sagði: „Hún tók úr mér tönn, og því fylgdi miklu minni

óþægindi en hjá nokkrum öðrum tannlækni, em ég hef

verið hjá um dagana!"

^P

A


/¦

¦ Nei, þetta er ekki Jayne M ansfield sáluga, - þetta

er Loni Anderson, sem leikur Jayne í nýju

kvikmyndinni um líf þeirrar frægu kynbombu.

¦   Arnold Schwarzenegger er að verða stórstjarna,

þ.e.a.s. ef hann er stjarna, þá hlýtur hann að vers

stórstjarna, því hann er yfir 200 pund á þyngd og iui

190 sm hár. Amold er því tilvaliim til að leiks

„vöðvafjallið" Mickey Hargitay

¦ Folke Sundqvist og lllla Jacobsson í hinni frægu ástarsenu. Sagt er að í

Svíþjóð séu vissir árgangar karlmanna, sem verði 11-12 ára í huganum í annað

sinn, þegar þeir hugsa til myndar þessarar, en þeir sögðu sig 14 ára til að fá

inngöngu og fá svolitla nasasjón af ástinni.

HÚN VARÐ FRÆG

EINA SUMARNÓTT

«M,St?y«

„V

¦ Sænska leikkonan Ulla Jacobs-

son er nýdáin úr beinkrabba, 53ja

ára. Hún varð fræg þegar hún lék í

sænsku kvikmyndinni: „Hún dans-

aði eina sumarnótt". Þetta var árið

1951, og þá þótti geysilega syndsam-

legt, að Ulla sást berbrjósta í

myndinni. Þetta þótti dæmigert fyrir

spillinguna í Svíþjóð. Myndin fór

víða um heim og Svíþjóð fékk á sig

spillingarstimpilinn.

UUa var 22 ára þegar hún lék í

þeirri mynd og hún var kvikmynda-

stjarna í 30 ár, en hún sagði sjálf, að

niyiidin „Hún dansaði..." hefði fylgt

sér í gegnum árin. Fólk vissi kannski

ekkert um hana sem leikkonu annað

en það, að hún hefði leikið í þessari

„djörfu" mynd, sem það var kallað

þá.

Arið 1957 fluttist UUa Jacobsson

lil Vínarborgar, og hún lék í

Vestur-Þýskalandi og Austurríki síð-

ustu árin, en einnig hefur hún leikið

í Englandi, Bandaríkjunum, Frakk-

landi og ítalíu.

Síðustu árin leið hún mikið af þeim

sjúkdómi, sem dró hana til dauða,

en hún hélt áfram að vinna eins lengi

og hún þoldi, og fæstir vissu um

veikindi hennar aðrir en nánustu

vinir.

Vantar þig úr?   ¦

¦ Þú þyrftir að vera vellauðugur til að

kaupa þetta skrautlega úr, sem við sjáum

hér mynd af. Þetta er gimsteinum prýtt

úr, og verðið er rúmar 62 milljónir ísl.

króna. 296 demantar skreyta það.

Svissneskur úra- og skartgripasali,

Yves Piaget að nafhi, sem sést hér á

myndinni með sýningardömunni hefur

verið í ijögur ár að hanna þetta úr og

framleiða það. Gimsteinaúrið er hluti af

sýningargripum, sem Paget hefur ferðast

með um heiminn til sýningar. Sýningar-

gripirnir eru samtals á 500 milljónir ísl.

króna.

Svissneski úra-

salinn Yves Piaget

og sýningardaman

hans skoða úrið.

¦ Það er eins gott

að úrið sé vel fest á

handlegginn, þar

sem á því eru 296

demantar.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24