Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Tķminn

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 203. Tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Tķminn

						MHMKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1982.


¦  Séð yfir salinn í Hótel Borgames, þar sem aðalfundur Stéttarsambandsins fór fram

DUR MÓTI STEFNU

Tímaiiiynd G.E.

rlALUM

téttarsambands bænda

umferð ferðamanna er skipulögð um byggðir og

óbyggðir. Tímabært er að bændur móti stefnu á

þessu sviði og í umhverfis- og náttúruverndarmál-

um sem eru þessu náskyld og felur stjórn

Stéttarsambandsins að vinna að þessu máli".

Þá var í þesari tillögu mælst til þess að stjórnir

Búnaðarfélags íslands og Stéttarsambandsins hafi

náið samstarf í þessum málum.

Aukin kennsla í nýjum búgreinum

„Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1982 telur

mjög brýnt með tilliti til óhjákvæmilegs samdrátt-

ar í hefðbundnum búgreinum að bændaskólunum

sé gert kleift að stórauka kennslu og námskeiðs-

hald í nýjum búgreinum.

Skorar fundurinn á fjárveitingavaldið að sjá til

þess að skólarnir geti sinnt þessu verkefni svo sem

mest má verða."

Sala landbúnaðarafurða til varnarliðsins

„Aðalfundur Stéttarsambandsins skorar á

landbúnaðarráðherra að beita áhrifum sínum til

að stórefld verði tollskoðun á öllum flutninga- og

farartækjum er koma til landsins og einnig á

persónulegum farangri.

Þá telur fundurinn mjög áríðandi að afnema

þau sérréttindi er gilda um innflutning land-

búnaðarvara til varnarliðsins á Keflavíkurflug-

velli".

Tilraunir með innlent fóður

„Aðalfundur   Stéttarsambands   bænda   1982

beinir því til stjórnar sambandsins að beita sér

fyrir eftirfarandi:

1. Að innlendur fóðuriðnaður verði efldur og

aukinn verulega frá því sem nú er.

2.  Að innflutningur á fóðurvörum verði fyrst og

fremst á kolvetnafóðri en innlent hráefni notað

í fóðurblöndur að öðru leyti svo sem unnt er.

3.  Að lögð verði áhersla á tilraunir á sviði

fóðurblöndunar og einnig á fóðrun gripa með

mismunandi tegundir af innlendum fóður-

blöndum."

Mótmælt innflutningi eggja

„Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1982

mótmælir harðlega innflutningi eggja og eggja-

afurða á yfirfullan markað.

Fundurinn skorar á stjórnvöld að veita ekki

undanþágu til þess innflutnings.

Utrýming á riðu í sauðfé

„Aðalfundur Stéttarsambands bænda leggur

áherslu á að riðu í sauðfé verði útrýmt og skorar

á fjárveitingavaldið að leggja fram fjármagn til

þess, og að þeim bændum sem nú búa við sjúkt

fé verði gert kleift að stunda aðra framleiðslu.

Fundurinn telur nauðsynlegt að fullt samráð

verði haft við Stéttarsambandið og Framleiðsluráð

um aðgerðir í þessu efni og þær tengdar þeirri

fækkun sauðfjár sem fyrirhuguð er:"

Framleiðsluráð landbúnaðarins

veiti framleiðsluleyfi

Einar Þorsteinsson bar fram breytingartillögu

við tillögu framleiðslunefndar um úthlutun

framleiðsluleyfa, tillaga Einars var samþykkt með

23 atkvæðum gegn 4, en hún var þannig:

„Aðalfundur Stéttarsambands bænda skorar á

landbúnaðarráðherra að beita sér fyrir þeirri

breytingu á framleiðsluráðslögunum að Fram-

leiðsluráði verði falin úthlutun hverskonar fram-

leiðsluleyfa í landbúnaði".


¦ Hákon Sigurgrimsson, framkvæmdastjóri stéttarsambands bænda í ræðustól á

aðalfundinum. Pálmi Jónsson, landbúnaðarráðherra og Ingi Tryggvason, fonnaður

Stéttarsambandsins fylgjast með.                                             Tímamyndir G.E.

¦ Óskar Gunnarsson, forstjórí Osta- og smjörsðlunnar, Haukur Halldórsson,

Sveinbjarnargerði, formaður sambands loðdýrabænda og Árni Jónasson, erindreki

voru meðal gesta á aðalfundinum.

¦  Jón á Reykjum, Þorsteinn á Skálpastöðum og Guðmundur Ingi, ritari á

aðalfundinum voru fúsir til að stilla sér upp í eina beina röð.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24