Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Tķminn

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 203. Tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Tķminn

						Opið virka daga

9-19.

Laugardaga 10-16

IMftjft

SKemmuvegi 20 ¦ Kópavogi

Simar (91)7 7551 & 7 80-30

Varahlutir

Mikið úrval

Sendum um land allt

Ábyrgð á öllu

Kaupum nýlega

bíla til niðurrifs

Gagnkvæmt

tryggingafélag

S  ^anabriel

n     HÖGGDEYFAR

g   GJvarahlutir £3*3

¦ „l'ólitiskir atburðir verða mér helst

að yrkisefni, enda hef ég mest gaman af

því að mála og vinna með það sem er

efst á baugi. Ég hafði þó einnig

einstaklega gaman af að vinna tónlistar-

seríuna mína, því með hverri mynd

þurfti ég eiginlega að breyta um stíl

þannig að i hvert skipti sem ég breytti

um stfl var eiginlega eins og að fara í frí."

Svo mælist höfuðstolti okkar íslend-

inga á myndlistarsviðinu, sjálfum

ERRÓ, sem er hingað kominn m.a. til

þess að halda sýningu á verkum sínum.

Að þessu sinni mun ERRÓ sýna í

sýningarsal Norræna hússins og stendur

sýning hans frá laugardeginum 11.

september til 26. september næst-

komandi. ERRÓ sýnir að þessu sinni

tvær seríur: 1001 nótt og Geimfarar.

„Ætla ad vera

á meðal indíána"

- Ertu búinn að vinna tónlistarseríuna

þína, sem við sögðum lesendum Tímans

frá í fyrra?

„Ég er langt kominn. Á eftir svona

fjórar til fimm myndir. Þessi sería varð

í raun miklu lengri en ég ætlaði í upphafi

- hún er um 90 myndir. Ég er búinn að

selja megnið af þeim, en ætla að halda

eftir eins og 30 myndum til þess að sýna

saman næst þegar ég sýni í París."

-  ERRÓ hefur eins og kunnugt er

búið undanfarin 24 ár í París og nú í vor

var hann með sýningu þar, þannig að

það verða sennilega ein tvö ár í það að

hann sýni aftur þar. Blaðamaður spyr

hann hvað taki við þegar hann fer

héðan?

„Ætla í réttir

á Síðunni"

„Ja, ég er nú rétt kominn og ætla að

njóta þess vel að vera hér í rúma viku.

Ég ætla að fara Fjallabaksleið og fara (

MIBVIKUDAGUR 8. SEPT.1982.

m' *


\

Öft-

I  ERRÓ við eitt verka sinna. Þessi mynd nefnist Herkúles frá Detroit og er hún úr myndaseríunni 1001 nótt.

Tíiiiamynd - G.E.

ERRÓ opnar sýningu á verkum sínum í Norræna húsinu á laugardag:

„PÖLITÍSKIR ATBURÐIR

MÉR AÐ YRKISEFNI

réttir á Síðunni áður en ég fer utan aftur.

Ég fer héðan til Arizona í Bandaríkjun-

um þar sem ég ætla að dveljast á meðal

indíána í einn mánuð, í fríi, því ég hef

unnið svo mikið í sumar. Vann á Spáni

í sumar og Thailandi í vetur. Ég ætla að

reyna að verða mér úti um nýtt yrkisefni

á meðal indíánanna. Annars ætla ég

bráðlega að gera tvær stórar myndir -

áðra um Falklandseyjar og hina um

dropar

Beirút. Það er mjög gaman að vinna

þessi stóru verk. Ég gerði 200 fermetra

veggmynd í Suður-Frakklandi og þar var

hæðin á einu andliti um 2 eða 3 metrar,

svo cg nefni eitt dæmi. Mér finnst mjög

gaman að vinna með svona gcysistóra

fleti. Þetta var auðvitað mjög mikið

verk, enda hafði ég mér til aðstoðar

leiktjaldamálara frá Ópcrunni í París."

- Hefur þér ekki komið til hugar að

sækja eins og eina hugmynd að verki hjá

þér í íslenskt þjóðlíf?

„Jú, ég hef aðeins hugleitt það og ég

geri ef til vill eitt slíkt."

- Gæti verðbólgan makalausa hér á

landi orðið þér að yrkisefni?

„Ætli verk um íslensku verðbólguna

yrði ekki alltof stórt?

Ég hef látið mér detta í hug að reyna

að verða mér úti um gömul portrait hér

á landi og vinna eitthvað með þau, en

slík hugmynd er engan veginn full-

mótuð."

- ERRÓ aðdáendur eiga því góðar

stundir framundan, þar sem sýning hans

í Norræna húsinu er og skal þeim hér

með bent á það að ætla sér góðan tíma

í að skoða sýningu hans, því sem fyrr er

hvert verka hans heil stúdía útaf fyrirsig.

-AB

+7*

*¦*

fréttir

Stórfellt

atvinnuleysi ef

fiskiskipaflotinn

stöðvast

¦ „Framkvæmdastjórn

Verkamannasambands ís-

lands vekur athygli á því

alvarlega ástandi sem hlýt-

ur að skapast ef hótun

L.Í.Ú. um stöðvun fiski-

skipaflotans kemur til

framkvæmda. Slíkt myndi

hafa í för með sér stórfeld-

ara atvinnuleysi verka-

fólks en hér hefur þekkst

um árabil.

Verkamannasamband

íslands skorar því á alla þá

aðila, sem málið snertir að

gera allt sem í þeirra valdi

stendur til að koma í veg

fyrir að slíkt ástand skap-

ist."

Segir í ályktun frá Fram-

kvæmdastjórn Verka-

mannasambands íslands

sem lögð var fram á fundi

stjórnarinnar í gær. Enn-

fremur segir í ályktuninni:

"Framkvæmdastjórn

Verkamannasambands ís-

lands mótmæiir harðlega

þeirri vísitöluskerðingu er

ríkisstjómin fyrirhugar

samkvæmt          nýsettum

bráðabirgðalögum.

Afskipti ríkisvaldsins af

gerðum kjarasamningum

eru ætíð vítaverð og eru í

raun stórhættuleg því þau

minnka traust almennings

á heiðariegum samskipta-

reglum og gerð kjara-

samninga.

Bendir fundurinn á að

laun verkafólks eru ekki

orsök þess efnahagsvanda,

sem nú blasir við heldur

óráðsía, röng fjárfesting

og margra ára óstjórn.

Kaupmáttur          launa

verkafólks hefur farið rýrn-

andi á undanförnum árum

og mun verkafólk ekki

þola enn frekari skerð-

ingu. Því telur fundurinn

nauðsynlegt við lausn efna-

hagsvandans að þeir betur

settu verði sóttir til ábyrgð-

ar í stað þess að ráðast á

lífskjör láglaunafólks."

i

Davíd hristir

upp í íhalds-

kerfinu

¦ Á fundi borgarráðs í gær

lagði Davíð borgarkeisari

fram tillögur sínar um breyt-

ingar á stjórnsýslu borgar-

innar. Tillögurnar eru merki-

legar fyrir þá sök að fyrir

nokkrum mánuðum, þ.e. fyr-

ir kosningar, mátti hann ekki

heyra á það minnst að gera

neina uppstokkun á stjórn-

sýslti borgarínnar.

Nú   er   hann   sem   sagt

tilbúinn   að   stokka  gamla

íhaldskeriið   upp,   og   sjálf-

sagt kemur það til af því að

Gunnlaugur            Pétursson,

borgarritari, hefur sagt

lnusu starfí sínu frá og með

1. nóv. nk. Með skipulags-

breytingunum rótar Davíð til

helstu          embættismönnum

borgarinnar,   stokkar   upp

verksvið    þeirra     og    inn-

byrdisskiptingu, og   kemst

þannig   hjá   því   að   ráða

nokkurn   starfsmann   í   stað

Gunnlaugs.

Helst  af öllu  vildi  hann

afgreiða   tillögurnar   síðar   í

þessarí viku, en þar sem

aðrir flokkar en Sjálfstæðis-

flokkurinn eiga eftir að líta á

þær, þá var samþykkt að

bíða með afgreiðslu fram til

loka næstu viku.

Samkvæmt     nýja     skipu-

rítinu verður Jón G. Tómas-

son,   borgarritari,   Magnús

Óskarsson,              borgarlög-

maður,   Björn   Friðfinnsson,

frarhkvæmdastjóri lögfræði-

og               stjómsýsludeildar,

Eggert       Jónsson,       fram-

kvæmdastjóri  fjármála-  og

hagsýsludeildar,      Jón      G.

Kristjánsson,                 starfs-

mannastjóri borgarinnar, og

Hjörleifur B. Kvaran, skrif-

stofustjóri borgarverkfræðings.

Gulrót með

þjóðernis-

kennd

¦ Vegir grænmetisins era

órannsakanlegir og ekki alltaf

grænir. Allir hafa heyrt um

ýmislega afbrigðilegar og

stórar kartöflur, en þjóð-

emiskennd meðal gulróta hef-

ur hingað til veríð óþekkt

fyrirbrigði.       Gulrótin       á

meðfylgjandi mynd virðist

hafa verið þess óneitanlega

meðvitandi hvar hún óx upp,

því að eins og sjá má myndar

hún Y, sem er einkennisstafur

Kópavogsbúa. Gaman væri að

sjá gulrætur í Hafnarfirði leika

þennan stafaleik eftir, en það

skal tekið fram að ekki er

ætlast til þess að gulrætumar

séu hengdar á bílana.

Tímamynd G.E.

Krummi ...

KRUMMI... vill meina að

lyfta ætti stafrófskennslunni á

örlítið hærra plan í Kópavogi.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24