Tíminn - 14.09.1982, Blaðsíða 5

Tíminn - 14.09.1982, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982 V ' tf réttir I Gjaldeyrisviðskipti og greiðslukortaþjón- usta í Búnaðarbankanum innan skamms: 77 OTIMABÆRT AÐ TAKA UPP 77 INNLEND GREIBSLUKORT — segir Stefán Hilmarsson, bankastjóri ■ Gjaldcyrisviöskipti og erlcnd greiðslukortaþjónusta veröur tekin upp hjá Búnaðarbanka íslands innan skamms. Það er bankastjórn Seðla- banka Islands sem veitir leyfi til gjaldeyrisviðskipta að fengnu samþykki viðskiptaráðherra og hefur Búnaðar- bankanum þegar verið gefið munnlegt loforð um að bankinn fái leyfi til viðskiptanna. - Það má segja að það sé loksins kominn fullur skriður á þetta mál núna, sagði Stefán Hilmarsson, bankastjóri í Búnaðarbankanum. - Við erum að hefja verklegan undirbúning vegna þessara viðskipta og ég vona að við verðum búnir að fá endanlega staðfestingu á ieyfinu einhvern tímann í næsta mánuði. Að sögn Stefáns er undirbúningurinn aðallega fólginn í því að þjálfa starfsfólk bankans vegna gjaldeyrisviðskiptanna ■ Þau sýna verk sín á sýningunni nú. T.f.v Sigurjón Ólafsson, Valtýr Pétursson, Kristján Davíðsson, Guðmunda Andrésdóttir, Jóhannes Jóhannesson og Þorvaldur Skúlason. Steinþór Sigurðsson gat ekki verið með að þessu sinni. (Tímamynd Róbert) Septem-hópurinn sýn- ir á Kjarvalsstöðum ■ Sl. laugardag opnaði Septem-hópur- inn sýningu á Kjarvalsstöðum, sem standa mun til 20. sept. nk. Þetta er 10. sýning hópsins og því eins konar afmælissýning, en hópurinn hefur haldið sýningar árlega. Að þessu sinni sýna verk sín Sigurjón Ólafsson, Valtýr, Pétursson, Kristján Davíðsson, Guð- munda Andrésdóttir, Jóhannes Jó- hannesson og Þorvaldur Skúlason. Steinþór Sigurðsson getur ekki tekið þátt nú þar sem hann hefur verið of önnum kafinn við önnur verkefni. Sama fólkið hefur verið í hópnum frá upphafi. A sýningunni eru 52 eða 53 málverk og 23 skúlptúrar, en þeir eru framlag Sigurjóns Ólafssonar eins. Þetta eru allt verk frá liðnu ári og ekkert þeirra hefur áður komið fyrir almennings sjónir. Spennustödvarbruni á Grundarfirdi: Tjónið tæp fjögur hundruð þús. ■ „Það er hreinlega allt sem í spennistöðinni var ónýtt. Ég gæti trúað, að tjónið næmi tæpum fjögur hundruð þúsundum,“ sagði Snorri Böðvarsson, rafmagnsveitustjórí á Ólafsvík, þegar Hörkuárekstur á Breiðholtsbraut ■ Hörkuárekstur tveggja bifreiða varð á gatnamótum Stekkjarbakka og Breið- holtsbrautar laust eftir klukkan 20 á laugardagskvöld. Ökumenn beggja bif- reiðanna voru fluttir á slysadeild, annar þeirra mikið slasaður. Að sögn Iögreglunnar í Reykjavík, var annarri bifreiðinni ekið austur Breiðholtsbrautina. Þegar hún kom að Stekkjarbakka ætlaði ökumaður hennar að beygja inn á hann. Ók hann þá í veg fyrir hina bifreiðina sem ekið var vestur Breiðholtsbrautina. Báðir bílarnir skemmdust mikið. Lögreglan taldi jafnvel að annar þeirra væri ónýtur. - Sjó. Tíminn spurði hann um brunann sem varð í einni af fjórum spennistöðvum Rafmagnsveitna ríkisins á Grundarfirði aðfaranótt laugardagsins. Það var laust eftir klukkan eitt um nóttina að starfsmanni stöðvarinnar var gert viðvart um að rafmagn væri farið af hluta Grundarfjarðarbæjar. Fór hann strax í spennistöðina og sá að þar voru tvö öryggi ónýt. Eftir að hafa komið fyrir nýjum öryggjum virtist starfsmanninum allt vera komið í lag. En þegar hann var á leið út varð hann þess var að götuljós í bænum loguðu ekki. Fór hann því inn aftur og hafði þá brotist út eldur í háspennuskáp. Þegar hann fékk ekki við eldinn ráðið fór hann og kom boðum til lögreglunnar, sem síðan kallaði út slökkvilið bæjarins. Þegar slökkviliðið kom á vettvang var spennustöðin alelda. í fyrstu var reynt að slökkva eldinn með kvoðu, en þegar það gekk ekki var ákveðið, að taka rafmagnið af bænum og nota sjó til að sprauta á eldinn. Með sjónum var slökkvistarf fljótunnið. - Sjó. og eins væri það mikið verkefni að koma gjaldeyrisþjónustunni fyrir innan veggja bankans. - Þetta er rnjög flókið mál og ég á von á því að þetta gerist í áföngum, en að gjaldeyrisþjónusta verði veitt í öllum útibúum Búnaðarbankans þegar þessi starfsemi er komin í fullan gang, sagði Stefán Hilmarsson, bankastjóri. Varðandi greiðslukortin þá sagði Stefán að það væri ekkert launungarmál að stjórn bankans stefndi að þvi að taka upp þjónustu með Visa-greiðslukort. Landsbankinn hefði haft góða reynslu af Visa-kortunum og með tilliti til góðs samstarfs Búnaðarbankans við Lands- bankann í þessu máli, þá hefði það orðið úr að Búnaðarbankinn stefndi einnig að notkun Visa korta. Ekki sagði Stefán nein áform uppi innan bankans um að taka upp innlend greiðslukort að svo stöddu. Stefán sagðist vera þeirrar skoðunar að eins og sakir standa væri nóg til af eyðsluleiðum í þjóðfélaginu og því engin ástæða að bæta enn einni við. -Ég vil mótmæla því að ávísanir séu á undanhaldi hérlendis og að reynslan af þeim sé slæm. Tékkarnir hafa reynst frábærlega vel og Íslendingar mega vera stoltir af hve vel þeir hafa kunnað með þá að fara og hvað misnotkun hefur verið lítil, sagði Stefán Hilmarsson. - ESE Bílaeign lands- manna yfir 100 þúsund ■ „í árslok 1981 var bifrciðaeign landsmanna 1000936 og hafði fjölgað upi 5333 á árinu,“ segir í ársskýrslu Bifreiðaeftirlits ríkisins fyrir áríð 1981, en skýrslan kemur nú út í seinna lagi vegna tafa á vélavinnslu. Þar scgir jafnframt að nokkur aukning hafi orðið á vcrkefnum á árinu, eða um 7%. Starfsmönnum hafi hins vegar ekki fjölgað nema um 2.4, eða 2.8%, þannig að verkefnaaukningunni hafi að veru- legu leyti verið mætt með aukinni hagræðingu. f skýrslunni kemur fram að um- skráningar á bifreiðum, án eigenda- skipta jukust um 24.5%. Á síðastliðnu ári voru starfandi á vcgum Bifreiðaeftirlits ríkisins 65.2 menn, og að auki umsjónarmaður meiraprófa. Þá kemur þar jafnframt fram að innkomnar tckjur stofnunar- innar urðu hærri cn heildarrekstrar- kostnaður. Argerð 1983 ER KOMIN Á GREIÐSLUKJÖRUM SEM EKKI HAFA ÞEKKST HÉR Á LANDI Verðið er lægra, en á nokkrum öðrum bíl ÞEIR SEM HUGSA KAUPA TRABANT TRABANT/WARTBURG UMBOÐIÐ H Ingvar Helgason Sýningarsalurinn v/Rauöageröi Sími 33560

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.